Tíminn - 03.07.1970, Qupperneq 9

Tíminn - 03.07.1970, Qupperneq 9
^ÖSTUDAGUR 3. júlf 197«. TÍMINN 9 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURiNN FYamkvæmdastjóri: Kristján Benediiktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórairiinisson (áb), Anidrés Kristjánsson, Jón Helgason og Tómas Karlsson. Auglýsingastjóiri: Steingrímur Gislason. Ritstjórnar- skrifstofur í Edduhúsinu, símar 18300—18306. Skrifstofur Banfloastræti 7 — Afgreiðslusími 12323. Auglýsinjgasími 19523. Aðrar skrifstofur sórni 18300. Áskriftargjald kr. 165,00 á mánuði, innanlands — f lausasöiu kr. 10,00 eint. Prentsm. Edda hf. Forðast verður víxl- hækkanir Riki.sstjórnin hefur snúið sér til Alþýðusambands ís- lands og Vinnuveitendasambands íslands, og óskað sam- starfs við þessa aðila um rannsókn og tillögugerð, er megi verða til þess að koma í veg fyrir, að víxlhækkanir á kaupi.og verðlagi dragi úr gildi kauphækkana. Það er vissulega ekki nema gott um þessa málaleitan að segja, þótt betra hefði verið að ríkisstjórnin hefði strax hafizt handa sjálf um aðgerðir til að tryggja gildi þeirra kauphækkana, sem nú hefur verið samið um. Slíkar aðgerðir eru svo aðkallandi, að ekki má draga þær með tilvísun til þess, að verið sé að bíða eftir tillögum frá Alþýðusambandinu og Vinnuveitendasambandinu. Til svo skjótra aðgerða er hins vegar ekki hægt að ætlast af þreyttri og værugjarnri ríkisstjórn. Hér á eftir skal bent á nokkrar slíkar aðgerðir, sem eru í samræmi við það, sem Framsóknarmenn hafa beitt sér fyrir á þingi eða haldið hefur fram hér í blaðinu: Þá er fyrst aS nefna það, að ríkisvaldið verður sjálft að forðast allar hækkanir, sem gætu leitt til víxl- hækkana. Þegar kaupgjald hefur hækkað, hafa ríkið og ríkisstofnanir oftast orðið fyrstu aðilarnir til að hækka verðlagið á eftir, t.d. á rafmagni, heitu vatni, póst- og símaþjónustu o.s.frv. Þetta hefur hækkað vísitöluna og leitt til nýrra kauphækkana. Einkaaðilar hafa svo fylgt fordæmi ríkisins og stofnana þess. Rikisstjórnin verður að hlutast til um það nú, aö eng- ar slíkar hækkanir eigi sér stað og a.m.k. alls ekki meðan beðið er eftir rannsókn og tillögum þeirra stéttarsamtaka, sem hún hefur nú leitað ráða til. Til þess að þær verðhækkanir, sem óhjákvæmilega hljóta að verða, leiði ekki til hækkana á kaupgjalds- vísitölunni, verður ríkisstjórnin að gera gagnráðstafanir til lækkana- Á seinasta Alþingi fluttu Framsóknarmenn tillögur um, að helztu lífsnauðsynjar yrðu undanþegnar söluskatti og að fjölskyldubætur yrðu hækkaðar um 20%. Þetta myndi jafngilda þremur vísitölustigum. Fjárhagslega á ríkissjóði að vera þetta vel mögulegt, þar sem tekjur hans munu stóraukast næstu mánuðina sök- um þeirrar aukningar á viðskiptum, er kauphækkanirnar hafa í för með sér. Þá kemur næst að athuga þær ráðstafanir, sem hægt er að gera fyrir atvinnuvegina, til að draga úr því, að þeir þurfi að hækka verðlagið vegna kauphækkunarinn- ar. Fyrir iðnaðinn væri það mjög mikilvægt, að alveg væru felldir niður tollar á vélum og efni til iðnaðarins, eins og Framsóknarflokkurinn lagði til á síðasta þingi. Tekjumissir ríkisins af því myndi vinnast upp aftur í aukinni atvinnustarfsemi og tekjum, sem fengjust þannig. Þá er nauðsynlegt að rekstrarlánaþörf atvinnuveganna verði miklu betur fullnægt en átt hefur sér stað undan- farið. Vaxtalækkun myndi einnig bæta mjög aðstöðu þeirra fyrirtækja, er hafa umsvifamestan rekstur. Þannig mætti rekja þetta áfram. Hér geta fjölmorg úrræði komið til greina. Þótt sum virðast litlu skipta, geta þau sameiginlega áorkað miklu. Þótt stjórnarandstæðingar hafi litla trú á ríkisstjórn- inni og vilji koma henni frá sem fyrst, eru þeir fúsir til að styðja hana í allri slíkri viðleitni, því að hér er um sameiginlegt hagsmunamál allra að ræða. Hér er um það að ræða, að reyna að tryggja batnandi lífskjör og sem stöðugastan kaupmátt gjaldmiðilsins, en það er öðru fremur undirstaða heilbrigðs efnahagslífs. Þ Þ. STANLEY MEISTLER, Herald Tribune: Kínverskir sérfræðmgar annast þjáifun hersins í Tanzaníu Áhrif Kínverja fara vaxandi í Suðaustur-Afríku. KOMMÚNISTAR í Kína gera sýnilega ráð fyrir, að kynþátta- styrjöld í Afríku í fraantíðinni geri þá áhrifameiri en aðra er- lenda menn þar í álfu. tínn sem komið er eru þeir ekki sérlega áhrifamiklir, en álit þeirra og virðing hefm- þó aukizt, eink- um eftir að þeir tóku að sér að leggja þúsund mílna langa járnbraut frá Dar es Salaam til Zambiu, sem ekki nær að sjó. Tanzaníumenn og útlendingar, sem starfa í Dar es Salaam og eru kunnugir landsháttum, bregðast reiðir við ef gefið er í skyn, að um sé a@ ræða ískyggilegt áhrifavald Kínverja. Þeir benda á, að Julius Nyerere forseti, sem telur sig sósíalista, sé menntamaður á vestræna vísu, fluggáfaður og gæddur sterku áhrifavaldi sem einstakl- ingur. Til þess komi aldrei, að hann selji Kínverjum land sitt. Ennfremur er á það bent, að landið hafi lotið nýlendustjórn Þjóðveria og Breta í meira en hálfa öld. Mótun öll á síðari tímum sé þvi af vestrænum toga spunnin. Um þúsund Kín- verjar eru að vísu komnir til' starfá og fér' f jölgándi,' eií "þieir 1 eru yfirleitt út af fyrir sig, forð ast alla boiðun og fara heim þegar starfi lýkur. ÞEIR, sem haldi uppi vörn- um fyrir Nyerere forseta, halda fram, að hann sé aðeins að sæta beztu kjörum, sem honum bjóð- ist. Kínverjar veiti honum dýr- mæta aðstoð með því að leggja járnbrautina og annast aðrar framkvæmdir, en hann hafi áð- ur leitað til Vesturlandabúa um aðstoð. Kínverjar bjó@i venju- lega hagstæðari kjör en hann eigi kost á hjá vestrænum mönnum. Nyerere hefur sjálfur komizt svo að orði: „Við erum þráir og fastir fyrir Tanzaníumenn. Ætli Kínverjar að ná valdi yfir okkur, munu þeir kom.ast að því fullkeyptu“. Þessi umsögn er á góðum rökuim reist. Á þessu ári hafa þó vaknað grunsemdir, sem draga nokku@ úr gildi hennar. Kínverjar hafa haft meiri áhrif á hermál Tanzaníu frá síðast liðnum áramótum en nokkrir aðrir útlendingar. Þeir annast bæði þjálfun hersins og svörtu skæruliðanna, sem stefn? að því að ná sunnanverðri Afriku úr klóm ríkisstjórna hvítu drottn- aranna. AUÐVELT er að gera sér í hugarlund, hvað gæti gerzt. Skæruliðarnir hafa um tíunda hluta Mozambique á valdi sínu og ef þeim tækist að brjóta sér b/aut lengra inn á yfirráða- svæði Portúgala, kynnu Portú- galar að grípa til þess örþrifa- ráðs að varpa sprengjum á stöðvar og griðastaði skærulið- anna í Tanzaníu. Styrjöldin hlyti að færast í aukana ef úr þessu yrði. Skæru liðar og Tanzaníumenn yrðu þá a@ krefjast aukins vopnabúnað- ar. Kína kommúnistanna kæmi Nyerere. Mao. áreiðanlega til hjálpar, enda láta Kínverjar nú þegar í té meiri vopn en aðrir. Aðstaða skæruliða hlyti að styrkjast við þetta, Portúgalar að herða tök sín og berjast af enn meiri ákefð en áður og áhrif Kín- verja ykjust. Þarna gæti hafizt svipuð skrúfa og í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafsins, þegar Rússar uku aðstoð sína- Fyrr á árum varð erlendum mönnum tíðrætt um sjálfstæði Gamel Abdel Nassers Egyptalandsfor- seta, rétt eins og þeir fjölyrða nú um sjálfstæði Nyerere. Þessi þróun er að vísu undir því komin, að skæruliðarnir auki afl sitt og umsvif, þar til ýfingar þeirra í sunnanverðri Afríku eru orðnar a@ innrásar- styrjöld. Skæruliðarnir eru ekki orðnir neitt ægilegi. enn, en Kínverjar bíða þess sýnilega þolinmóðir að sá draumur þeirra rætist, að kynþáttastyrj öld hljóti óhjákvæmilega að brjótast út. NYERERE forseti gerir sér grein fyrir þessari hættu, en hann telur sig eiga skyldum að gegna við að steypa ríkisstjórn um hvítra manna af stóli í Af- ríku og verður að treysta varn ir iands síns gegn gagnárásum Portúgala j framtíðinni, ef tii þeirra kæmi. Kínverjar eru fús ir að veiía aðstoð sína, einir allra þjóða Nyerere treystir því til fulls, að honum sé óhætt að þiggja aðst.cð þeirra án þess að þurfa að eiga á hættu, að hann miasi stjorn á framvinc'- un"i Kanadamenn voru ahrifa- meir: en aðrir um varnir Tanz- aníu alit fram að síðast liðnum áramótum. 90 Kanadamenn höfðu um fimm ára skeið stjórn að þjálfun og uppbyggingu bæði landhers og flughers í Tanzaníu. Samningar runnu út í árslok 1969, og Tanzaníumenn ákváðu að endurnýja þá ekki. Talið er, að Tanzaníumenn hafi viljað afla sér fjölbreytt- 1 ari og öflugri búnaðar en Kan- adamenn voru reiðubúnir að láta í té. Tanzaníumenn eru sagðir hafa óttazt hefndarráð- stafanir Portúgala vegna at- hafna skæruliða í Mozambique, og viljað koma sér upp orrustu- þotum, stórskotaliði, loftvarna- byssum, skriðdrekum og varð- bátum. Auk þessa stafaði Tanz- aníumönnum nokkur stuggur af því, að Kanada er í Atlantshafs bandalaginu ásamt Portúgal. TANZANlUMENN sneru sér til Kínverja, sem höfðu um langt skeið þjálfað skæruliða frá Mozambique í Tanzaníu sunnan verðri og lagt þeim til vopn. Kínverjar voru fúsir að láta Tanzaníumönnum í té gegn vægu venði þann búnað, sem þeir óskuðu eftir, og Kínverjar höfðu það fram yfir Kanada- menn, að þeim voru tvímæla- laust áfram um að steypa ríkis- stjórnum hvítra manna í sunnan verðri Afríku af stóli. Ekki er til fulls ku"nugt, hve mikla hernaðaraðstoð Kínverj- ar hafa veitt Tanzaníumönnum, en talið er, að allt að 200 kín- verskir hernaðarráðgjafar séu að störfum hjá her Tanzaníu og við æfingabúðir skærulið- anna. Þeir annast þó ekki ann- að en þjálfunina. Kinverjar hófu einnig fyrir skömmu að byggja flotastöð í Dar es Salaam og hétu Tazan- íumönnum sex varðbátum í við bót. Einnig er uppi orðrómur um, að Kínverjar hafi lofað a@ reisa bækistöð fyrir flugher Tanzaníu. Hafi sá orðrómur við rök að styðjast, gæti einnig hafa verið samið um afhend- ingu kínverskra herþota. járnbrautarlagningin skarar fram úr að því er fjár- hagsaðstoð Kínverja varðar. Þeir eru byrjaðir lagningu járn brautarinnar frá strönd Ind- landshafs um hálendi Suður- Tanzaníu til eirnámanna í Zam- bíu. Reistar hafa verið umfangs miklar vinnubúðir utan við Dar es Salaam og hvers konar úfc- búnaði í tonnatali er skipað þar upp í viku hverri. Nokkur hundruð Kínverjar eru þegar að störfum við þessa fram- kvæmd og álitið er, að þeir Framhald á bts 14.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.