Tíminn - 03.07.1970, Side 10
ro
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 3. Julí 1R70.
FULLT TUNGL
Eftir P G. Wodehouse
29
til Göllys. eða bara hringir til
ihans? — spurði Freddie.
— Sendi skeyti? hringi? —
sagði iarlinn sem greinilega hafði
ekki dottið í hu,g þær aðferðir,
svo snjaillar sem þær voru þó.
— Guð náði sál mína, það hefði
dg getað gert, en nú er það og
seint, — sagði jarlinn og andvarp
aði, — ég var svo óheppinn að
gleyma afmæiisdegi Veroniku,
sem er á morgun, og hef þar af
leiðandi ekki keypt neina gjöf
handa henni og nú heimtar móð-
ir hennar að ég fari til London
og kaupi gjöfina handa Veroniku.
Allt í einu glampaði á eitthvað
í sólskininu, það var einglyrnið
hans Freddies sem hafði henzt út
úr augnatóftinni um leið og hann
æpti:
—Guð hjálpi mér, afmælið
hennar Vee, auðvitað, ég er feg-
inn að iþú minntir mig á þetta.
Pahbi viltu gera nokkuð fyrir
mig?
— Hvað er það? — spurði jarl-
inn, varfærnislega.
—.Hvað ætlar þú að kaupa
handa Vee? — spurði Freddie.
— Ég ætlaði nú að kaupa eitt-
hvert ódýrt iglingur, eins og stúlk
um þykir gaman að bera, frænka
þín stakk upp á armbandsúri.
— Ágætt, sú hugmynd felur
vel að ráðagerð minni, iþú skalt
fara til Aspinalls, í Bondstræti,
þeir hafa armbandsúr af ölium
gerðum. Þegar þú ert korninn
þangað skaltu segja þeim að þú
sért fulltrúi F. Threepwoods, ég
skildi hálsfestina hennar Öggu eft
ir hjá þeim, það átti að hreinsa
hana, og um leið pantaði ég men
handa Vee, segðu þeim að senda
festina tií. . . fylgistu með bví
sem ég er að segja pabbi?
— Nei, — sagði jarlinn.
— Þetta er afar auðskilið, fest-
in á öðru leitinu og menið á hinu,
segðu þeim að senda festina til
Öggu, á Ritz hótelið í París. . .
— Hiver er Agga? — spurði
jarlinn, af þó nokkrum áhuga.
— Hvaða, hvaða. Pabbi nú ertu
ekki upp á þitt bezta, Agga er
konan mín.
—Ég 'hélt að konan þín héti
Francis.
— Nei, hún heitir Niagara.
— Það er skrýtið nafn.
— Foreldrar hennar dvöldu yf-
ir hiveitibrauðsdagana í gistihúsi
hjá Niagara-fossunum.
— Er ekki Niagara borg i
Ameríku?
— Það er nú frekar hrikalegt
úrfelli en borg.
— Ég hef al'lta' haidið að það
væri borg.
— Uppfræðarar þínir hafa leitt
þig á villigötur um það mál pabbi.
En væri þér sama þó við snérum
okkur aftur að aðalefninu? tím-
inn líður. Segðu þessum fuglum
hjá Aspinell að senda festina til
Öggu, utanáskrift: Ritz Hótel Par-
ís, og komdu hingað með menið.
Þú skalt ekki óttast að þú sitjir
uppi með barnið.
Nú vaknaði áhugi jarlsins.
Ifann hafði ekki heyrt minnzt á
þetta fyrr, hann spurði:
—Eigið þið barn? er það
drengur? hvað er hann orðinn
gamall? hvað heitir hann? er
hann nokkuð lijkur þér? — jarl-
inn sárvorkenndi vesalings hvít-
voðungnum ef hann líktist föður
sínum._
— Ég talaði í líkingum, pabbi
— sagði Jfreddie þolin-móður, —
meinti að þú skyldir ekki óttast
að þú þyrftir að borga reikning-
inn, það er búið að borga þetta,
ertu nú með á nótunum?
— Auðvitað.
— Segðu mér þá söguna með
þínum eigin orðum.
— Það er festi og men, —
— Já. en ruglaðu þessu ekki
saman.
— Ég ruglast aldrei í neinu,
þú vilt að ég láti senda menið ti'l
konunnar þinnar og komi með
festina með mér heim.
— Nei, nei alveg öfug-t.
— Já, eins og ég ætiaði að
segja. alveg öfugt, betta liggur
ijóst fyrir, en hvers vegna er
Franeis uppnefnd Niagara? —
spurði jarlinn, hann hafði áhuga
á því atriði málsins.
— Hún heitir ekki Francis, og
hún er ekki uppnefnd.
—Er hún ekki hvað?
— Uppnefnd Niagara.
— En þú sagðir mér það sjálf-
ur, fór hún með barnið til Pa-ís-
ar með sér?
Freddie tók nú upp ljósbláan
vasaklút og þurrkaði sér um enn-
ið og sagði: ^
— Heyrðu nú pabbi er þér
ekki sama þó við sleppum þessu
öllu? ekki með menið og festina.
heldur umræðunum um Francis
og barnið.
— En mér finnst Francis fall-
egt nafn.
— Það finnst mér líka, það
hljómar sem tónlist í eyrum mín-
i um, en eigum við ekki samt að
' hætta að ræða um þetta, bara
reyna að gleyma þessu, ég held
við verðum þá báðir hamingju-
samari.
— Ohicago, — sagði jarlinn
ánægður.
— E, ha? — sagði Freddie.
— Það er ekki Niagara, heldur
Chicago, það er borgin sem ég
meinti. það er borg í Ameríku
sem heitir Ohicago.
— Já, hún var þar að minnsta
kosti þegar ég fór þaðan, en með-
al annarra orða, hefur nokkuð
verið hér á seyði upp á síðkastið?
— spurði Freddie, sem var ákveð-
inn í að skifta um umræðuefni
áður en faðir hans spyrði hann
hvers vegna hann hefði skírt
barnið Indianapo'lis. Emsworth
jarl velti þessari spurningu fyrir
sér, hann var nýbúinn að endur-
skoða matarskammt keisaraynj-
unnar og hafði verið ánægður með
árangurinn, en honum flaug í hug
að þær fréttir mundu ekki hrífa
yngri son hans. enda vissi hann
að Freddie hafði aldrei verið
neinn spekingur. Jarlinn tók að
leita í hugarfylgsnum sínum og
mundi þá eftir samtali við mág
sinn, Wedge hershöfðingja, jarl-
inn sagði:
— Egbert -frændi þinn er afar
gramur.
— Út af hverju?
— Hann segir að garðyrkju-
mennirnir hafi verið að elta Ver-
oniku.
Freddie -hrökk við þegar hann
heyrði þessa yfirlýsingu, þetta
hneykzlaði hann iíka og var hann
þó engin tepra, hann vissi sem
var að frænka hans var mjög
freistandi stúlka. en hann hafði
talið brezka garðyrkjumenn hafa
meiri sjá'lfstjórn en svo að þeir
tækju upp á öðru eins og þvílíku
háttalagi.
— Eltu garðyrkjumennirnir
Vee? meinarðu hópum saman’ —
spurði Freddie.
— Nei, ég man núna að það
var bara einn sem elti hana, ég
man þetta nú ekki vel, en mig
minnir að hann hafi svo alls ekki
verið garðyrkjumaður begar til
kom, heldur þessi náungi sem er
ástfanginn af Prudence frænku
þinnL
— Hvað þá? — sagði Freddie
og riðaði við, hann hörfaði að
svínastíunni og studdi sig við girð
inguna á meðan hann þreyfaði
máttleysislega e-ftir einglyrninu
sínu sem einu sinni enn hafði
skotizt út úr augnatóftinni.
— Ja, Egbert fullyrðir þetta,
mér finnst betta furðulegt, maður
hefði frekar búizt við að náung-
inn elti Prudence. Veronica hljóp
til móður sinnar, og hún fór sam-
stundis til mannsins og spurði
hann hvað hann meinti með
svona framkomu, þá lét maður-
inn hana fá sendibréf og stóldmg,
ég skil heldur ekki almennilega
þann hluta sögunnar, ef maður-
inn elskar Prudence, þá er mér
óskiljanlegt hvers vegna hann
stendur í leynilegum bréfavið-
skiptum við Hermione og er að
gefa henni peninga, Hermione á
nóga peninga, en svona er þetþa
nú samt, — sagðj jarlinn.
— Ef þú vilt vera svo væna
að afsaka mig pabbi, þá ætta ég
að skjögra af stað ég þarf að
leggja heilann alvarlega í bleyti,
— sagði Freddie hálfkæfðri
röddu. Að svo mæltu tók hann
vasaklútinn aftur og þurrkaði sér
um ennið, hann skildi hvernig í
öllu lá, þó að jarlinn botnaði ekk-
ert í þessu, sem heildur ekki var
von, en Freddie varð þegar Ijóst
að vesalings Blister hafði aftur
eyðilagt hina ágætu áæfclun sem
hafði verjð lögð u-pp í hendurnar
á honum og nú var hann vafalaust
að ganga frá dótinu sínu niður á
Emsworth Arms. því ekki mundi
Hermione frænka hans hafa beð-
ið borðann með að reka hann, ea
Freddie gat ekki farið til vesalings
vinar sijns, til að ræða málið við
hann, vegna þess að-Finch fólkið
átti von á honum tjl hádegisverð-
ar, og það var ektó hægt að leika
kér að þvj að svíkjast um að miæta
hiá því frekar en Fanshawe-Ohad-
wioks fjölskyldunni.
í Freddie gekk hægt, hann hafði
ekki gengið lengi er hann kom
I auga á einn þessara bekkja sem
er föstudagur 3. júlí
— Procesus og
Martirsianus
Tungl í hásuðri kl. 13,30
Árdegisháflæði í Rvík kl. 6,54
HEILSUGÆZLA
Slökkviliði? siúkrabifreWir.
Sjúkrabifreið t Hafnarflrðl
1 sima 51336
fyr*. r vkjam'k ng Kópavog
sími 11100. )
Slysavarðstofan i Borgarspítaianum
er opin aUan sólarhringinn. Að-
eins móttaka slasaðra. Siml
81215-.
Rópavogs-Apótek og Kenavlkur
Apótek erc opin virka daga kl
9—19 laugardaga kL 9—14 helga
daga kl. 13—15.
Almennar upplýsingar um læfcna
þjónustu t borginnJ eru gefnax
símsvara læknafélags Reykjavtk-
ur, sími 18888.
Fi garhe "ð í Kópavogl.
HQfðarvegi 40. simi 42R44.
Kópavogs-apótek og Keflavikur-
apótek era opin virka daga fcl. »
—19 laugardaga kl. 9—14, helgi-
daga kL 13—15.
Apótek Hafnarfjarðar er opið alla
vírka daga frá tó 9—7 a laugar
dögnm tel 9—2 og a suMnudögum
og öðrum belgidögnm er >pið uá
ki. 2—4.
Tannlæknavakt er * 1 * 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Heiisuvernd
arstöðinni (þar sem slysavarð
stofan var) og er opin laugardaga
og sunnudaga fcl. 5—6 e. h. Simi
22411
Kvöld og helgarvörzlu apóteka í
Reykjavík vikuna 27. júrd — 3.
júli annast Laugavegs-npótek og
Holts-apótek.
Næturvörzlu í Kelifavík 3. 7. ann
ast Arnbjörn Ólafsson.
SIGLINGAR
Skipadeildin:
Arnarfell fer frá ísafirði í dag
til Blönduóss.
Jökulfell lestar á Norðurlandshöfn
um. Dísarfell losar á Austfjörð-
um. Litlafell er í Þorlákshöfn
Helgafell fór frá Borgarnesi í
gær til ísafjarðar. Stapafell er á
Sauðárkróki. Mælifell fór frá Sauð
árkróki í gær til Þingeyrar og
Keflavíkur.
FLUGÁÆTLANIR
FLUGFÉLAG ÍSLANDS h. f.
Millilandaflug
Gullfaxi fór til Glasg. jg Kaup
mannahafnar kl. 08,30 í morgun.
Vélin er væntanleg aftur til Kefla
víkur kl. 18,15 í kvöld. Gullfaxi
fer til London kl. 08.00 í fyrra
málið.
Innanlandsflug:
í dag er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja (2 ferðir) Akur
eyrar (2 ferðir) Patreksfjarðar.
ísafjarðar. Sauðái'króks. Egils-
staða og Húsavikur.
Á morgun er áætlað-að fljúga
til Vestmannaeyja (2 ferðir), Ak-
ureyrar (3 ferðir) Hornafjarðar,
ísafjarðar, Egilsstaða (2 ferðir)
og Sauðárkróks.
Loftleiðir.
Snorri Þorfinnsson er væntanleg
ur frá NY kl. 07,30. Fer lil Lux
emborgar kl. 08,15. Er væntanleg
ur til baka frá Luxemborg kl.
16.30. Fer til NY kl. 17,15.
Þorfinnur karlsefni er væntanleg
ur frá NY kl. 09.00. Fer til
Luxemborgar kl. 09.45. Er væntan
legur til baka frá Luxemborg kl.
18.00. Fer til NY ];1. 19.00.
Leifur Eiríksson er væntanlegur
frá NY kl. 10,30. Fer til Luxem
borgar kl. 11.30, Er væntanlegur
til baka frá Lux. Kl. 02,15. Fer
til NY kl. 03,10.
FELAGSLIF
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
1. Miðnorðuriand 4.—12. júlí
2. Fljótsdalshérað — Borgarfjörð
ur 11. — 19. júlí
3. Vestfirðir 14. — 23. júlf
4. Kjölur — Sprengisandur
14. — 19. júlí
5. Suðausturland 11.—23. júlí
6. Skaftafel'l — Öræfi 16. — 23.
júllí
7. Skaftafell — Öræfi 23. — 30.
júlí
8. Hornstrandir 16.—29. júl?
9. Fjallabak — Laki — Núps-
staðaskógur 18. — 30. júlí
10. Kjölur — Sprengisandur 23.
— 28. júlí.
Ennfremur vikudvalir i sælu
húsum félagsins í Þórsmörk,
Landmannalaugum, Veiðivötnum,
Kerlingarfjöllum og Hveravöllum.
Leytið nánari upplýsinga og
ákvcðið ykkur tímanlega.
Fcrðafélag íslands, Öldugötu 3
símar 11798 — 19533.
Kvenfélag Grensássóknai':
Fer skemmtiferð miðvikudaginn
8. júlí kl. 5 s. d. frá Hvassaleitis
skóla. Farið verður hringferð,
Strandakirkja, Hveragerði.
Tilkynnið þátttöku fyrir mánu-
dagskvöld í síma 36911, 35955 og
34965.
ÁHETToG GJAFIír:
Áheit á Strandakirkju kr. 1000
ÁRNAÐ HEILLA
70 ára er í dag, föstudaginn, 3.
júlí, frú Jóhanna Haraldsdóttir,
Vogum, Xelduhverfi. Jóhanna hef
ur láti'ð félagsmál sveitar sinnar
mikið til sín taka. Hún hefur ver
ið j stjórn Kvenfélags Kelduhverf
is í rúm 15 ár og er eini núlif
andi stofnandi þess. Frú Jóhanna
verður að heiman á afmælisdag
inn. Hennar verður nánar getið
í íslendingaþáttum Tímans.
ORÐSENDING
Vegaþjónusta FÍB:
Helgina 4.—5. júlí 1970.
FÍB - 1
ÁÁrnessýsla (Hellisheiði. Ölfus
og FIói)
I ÍB _ 2
Þingvellir, Laugarvatn
FÍB _ 3
Akureyri og nágrenni
FÍI5 _ 4
Hvalfjörður, Borgarfjörður
FÍB — 5
LU frá Akranesi
FÍB — 6
Úf frá Reykjavík
FÍB — 8
Árnessýsla og víðar
FÍB —11
Borgarf "'rður.
Ef óskað er eftir a'ðstoð vega
þjónustubifreiða veitir Gufunes
radíó, sími 22384, beiðnum um
aðstoð viðtöku.
Lárétt: — 1 Hljóðfæri 6 Ömarga
7 Happ 9 Rödd 11 Mæliein. 12
Gu'ð 13 Leiða 15 Venju 16 Húð-
fletta 18 Vitleysuna.
Krossgáta
Nr. 573
Lóðrétt: — 1 Stand 2 Hit-
unartæki 3 Leyfis* 4 Haf
5 Frægra 8 Angan 10
Gruni 14 Orka 15 Litu 17
Tveir eins.
Ráðning á gátu no. 572:
Lárétt: 1 Sómalía 6 Óró 7
Már 9 Und 11 AÁ 12 ÓO
13 Rás 15 Eir 16 Áti 18
Atrenna.
Lóðrétt: 1 Samaría 2 Mór
3 Ar 4 Lóu 5 Andorra 8
ÁÁA 10 Nói 14 Sár 15 Ein
17 Te.