Tíminn - 04.07.1970, Blaðsíða 1
®®nu
IGNIS
HEimillSTIEKI
147. tbl. — Laugardagur 4. júlí 1970. — 54. árg.
EJ—rteykjavík, föstudag.
í ræðu Kristjáns Benedikts-
sonar um borgarreikningana í
borgarstjórn Reykjavfkur í
gær, kom m. a. fram, rð end-
urskoðendur hafa gert ýmsar at-
hugasemdir varðandi fyrirtæki
borgarinnar, sumar þeirra at-
hyglisverðar, Er t. d. i.pplýst
þar, að Trésmiðastofa Áhalda-
húss er með fastan sendiferða-
bíl á leigu og greiðir fyrir
hann á árinu 666 búsund krón
ur.
Þá sagði Kristján, að varð
andi rekstrarkostnað bifreiða
hjá Vélamiðstöðinni kæmu
fram margar anzi háar tölur
sem forvitnilegt væri að kynna
sér betur. Þar væri t. d. rekstr
arkostnaður á 10 ára gömlum
Volvobíl án afskriftar kr. 607
þúsund, og á 10 ána gömlum
Scania Vabis' 635 þúsund.
Veðurguðir
töfðu fyrir
sáttasemjara
Fundur hófst í gærkvöldi.
KJ—Reykjavík, föstudag.
Veðurguðirnir komu í veg
fyrir að Valdimar Stefánsson
saksóknari, sem er sáttasemj-
ari í vinnudeilunni í Vest-
mannaeyjum, og fulltrúi Vinnu
veitendasambandsins, kæmust
til Eyja snemma í dag, eins
og ráðgert hafði verið.
Þar sem ekkert var flogið
til Eyja í dag. fóru þeir sjó-
leiðis, og átti sáttafundur að
hefjast í Eyjum klukkan átta
í kvöld.
Eins Jg sagt var frá í Tím
anum í dag, fer að verða
mikið vandræðaástand í Eyj
um, ef ekki takast samningar
mjög skjótlega milli verka-
lýðsfélaganna og vinnuveit-
enda. í Vestmannaeyjum hef-
ur verið í gildi yfirvinnubann
og einnig hefur verið í gildi
bann við út og uppskipun við
höfnina Fiskibátar hafa þó
landað afla sínum. Þessi bönn
hafa það í för með sér, þótt
verkfall sé ekki. að hörgull
fer nú að verða á sumum
vörutegundum í Eyjum, og
frystigeymslur frystihúsanna
fara að verða sneisafullar.
Eyjamenn hafa verið nokk
uð sér á báti í þessum samn-
ingum. og hafa verklýðsfélög-
in sett fram hærri kröfur þar.
og er það vegna þess, að þau
teija dýrara að lifa þar en á
„meginlandinu“.
Rætt um reikninga Rvíkurborgar 1969 á fundi borgarstjórnar:
EIGNABREYTINGARNAR 15 MILLJÚNDM
II EN ÁÆTLAD VAR ÁRIÐ 1969
þrátt fyrir að tekjur fóru 31.3 mílljónir fram úr áætlun
Skjótt skipast veður í lofti. I fyrradag fengu borgarbúar hina mestu
sól og blíðu, en í gær rigningu. Var þá allt notað til að verja sig
gcgn regninu — jafnvel biluð regnhlíf. (Tímamynd Gunnar)
EJ—Reykjavík, föstudag.
Á fundi borgarstjómar Reykjavikur í gær voru reikningar borgar
innar til síðari umræðu og afgreiðslu. f ræðu, sem Kristján Benedikts
son, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, flutti við þá umræðu, kom
margt athyglisvert fram varðandi rekstur borgarinnar og borgarfyrir-
tækja, m. a. að fjármagn til eignabreytinga varð 15 milljónum kióna
minna en áætlað var, þrátt fyrir þá staðreynd, að tekjur fóru 31,3
milljónir fram úr áætlun!
Hér á eftir fara nokkur helztu
atriðin úr ræðu Kristjáns Bene-
diktssonar í gær.
Árið 1969 var mjög gott tekju-
öflunarár hjá Reykjavíkurborg.
í fjárhagsáætlun höfðu tekjur ver-
ið áætlaðar 1217.912 þúsur.d krón-
ur, eftir að samþykkt hafði verið
viðbótarhækkun á útsvörum og
aðstöðugjöldum á miðju ári, er
nam 42.6 milljónum króna. Tekj-
ur urðu hins vegar 1249,259 þús-
und, eða 31.3 milljónum króna
hærri en áætlað var.
Þessir tekjuliðir fóru fram úr
áætlun: útsvör 12.8 milljónir, fram
Iag úr Jöfnunarsjóði 7.1 milljón,
aðstöðugjöld 2,1 milljón, arður af
eignum 6.1 milljón, ýmsir skatt-
ar 0.7 milljónir og ýmsar tekjur
3.5 milljónir. Samtals ge.rir þetta
32.3 milljónir. Fasteignagjöld voru
hins vegar 1 milljón undir áætlun.
Urðu heildartekjur umfram áætlun
því 31,3 milljónir króna.
Þrátt fyrir þessa miklu tekju-
aukningu umfram fjárhagsáætlun,
er útkoman sú, aó mun minna fjár
magn varð aflögu til afskrifta og
nýrra framkvæmda en áætlað
hafði verið.
Eftir hækkun fjárhagsáætlunar-
innar á miðju ári am 42.6 milljón
ir, voru rekstrargjöld áætluð 995,5
milljónir. Þau urðu hins vegar
1037.3 milljónir, eða 41.8 milljón
um hærri. Afgangur til eignabreyt
inga, sem áætlaður hafði verið
222,4 milljónir, varð hins vegar að-
eins 207.3 milljónir.
Þeirri upphæð var síðan varið
þannig. að 49.9 milljónir gengu til
fyrninga og afskrifta, en tekjuaf-
gangur varð 157. milljónir.
Fjármagn til eignabreytinga
varð því 15 milljónum minna en
aætlað var, þrátt fyrir þá stað-
Ra tíl kmds eftír rúma viku
NTB-Clcarwater, föstudag.
I’apýrusbáturinn „Ra 2“ er nú
staddur um 580 sjómílur norð-
austur af Barbadoseyjum og stefn
ir í norð-vestur. Ef allt gengur
eins og hingal. til, mun báturinn
koma að laudi handan við Atlants-
hafið eftir átta daga, og þá á
Martinique eða einhverri annarri
af Antillaeyjunum. Heyerdahl seg-
ir, að mjög miki! olía hafi verið
á sjóm alla æiðinr og hefur
áhöfnin tekið sýnishorn af brák-
inni.
Hafrannsóknaskip Sameinuðu
þjóðanna, „Calamar" hitti „Ra 2"
fyrir skömmu og tók þá við ein-
hverju af olíubrákarsýnunum. —
Skipin sigldu hlið við hlið í tvo
daga, en mjög slæmt veður var
á þessum slóðum þá. Ekki þurfti
þó Heyerdahl á aðstoð „Calamar"
að halda vegna veðursins.
„Calaoiar1' sem var að enda
fiskirannsóknarleiðangur, þegar
það hitti „Ra 2“, notaði tækifær-
ið og gerði rannsóknir á neðan-
sjávarfánu þeirri. sem tekið hef
ur sér bólfestu neðan á papýrus-
bátnum.
„Þetta er ! fyrsta sinn, sem
við á „Ra 2“ höfum séð annað
fólk, síðan við fórum frá Safi, 17.
maí“, sagði Heyerdahl, „og það
er skemmtilegt, að fyrsta fleytan
sem við hittum, skuli líka vera
með fána Sameinuðu þjóðanna við
hún og áhöfn frá ótal þjóðlönd-
Um olíuna á Atlantshafinu sagði
Heyerdahl, að alla leiðina hefði
áhöfnin safnað sýnishornum af
olíubrákinni, sem virðist óslitin,
þvert yfir AtlantshafiS
reynd, að tekjur fóru 31,3 milljón
ir fram úr áætlun.
Samdráttur í nýbyggingu
gatna og holræsa
Á árinu varð mikill samdrátt-
ur j nýbyggingu gatna og holræsa
Framnh. á bls. 2
FÓSTUR
NTB-Oslo — föstudag.
Sonja, krói.prinsessa Noregs,
missti fóstur í morgun. Hún
hafði gengið með í aðeins tvo
mánuði. í tilkynningu frá sjúkra-
húsinu í Fredriksstad segir. að
krónprinsessunni líði ve, eftir nt-
vikum. Sonja verður 33 ára á
morgun, laugardag.
í gær var Sonja í_ afmælisveizlu
tengdafööur síns, Ólafs konungs,
en veizlan var haldin á Hankö.
Þegar hún kom heim, fór hún að
fá blæðingar og undir morguninn
missti hún fóstrið.
4. júní s.l. vai tilkynnt opin-
berlega, að Sonja ætti von á sér
í janúarlok n.k. Síðan hefur prin-
sessan haft hægt nr- sig, en afmæl
isveizlan í gær hefur sennilega
verið of ströng fyrir hana.
Sem kunnugt er voru þau Sonja
og Harald gefin saman í dóm-
Framhitd á bls. 14.