Tíminn - 04.07.1970, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 4. jtílí 1970.
TÍMINN
9
ÍDÉ
Útgefandi: FRAM5ÓKNARFLOKKURINN
Framfcvæmdastjóri: Kristjáin Benediiktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áto), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Tómas
Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Ritstjórnar-
skrifstofur í Edduhúsinu, símar 18300—18306. Skrifstofur
Bamkastræti 7 — Afgreiðslusími 12323. Auglýsimgasími 19523.
AÓrar skrifstofur siími 18300. Áskriftargjald kr. 165,00 á mánuði,
innanlands — f lausasölu kr. 10,00 eint. Prentsm. Edda hf.
Rafvæömg landsins
Eitt þeirra mála, sem stjórnarþingmenn svæfðu á
síðasta þingi, var frv. Vilhjálms Hjálmarssonar o. fl.
um að Orkustofnuninni yrði falið að gera áætlun um,
hvemig hagkvæmast verði að ljúka rafvæðingu landsins
eigi síðar en fyrir árslok 1973. í framhaldi af þessari
áætlun, skyldi raforkumálaráðherra gera tillögur um
öflun þess fjár, sem þyrfti til að fullnægja henni, og
leggja þær tillögur fyrir Alþingi haustið 1970.
í greinargerð tillögunnar segir, að á árunum 1954
—68 hafi að jafnaði um 200 býli verið tengd samveitum.
í árslok 1968 hafi 3429 býli verið tengd samveitum, 948
hafi haft rafmagn frá einkastöðvum, en 447 býli hefðu
verið án rafmagns. Víða væri rafvæðingu mjög langt
komið, t.d. væri aðeins 2,6% býla í Eyjafjarðarsýslu
utan samveitusvæða og 5,3% í Rangárvallasýslu. Annars
staðar væri þetta miklu verra, t.d. væri 72,1% býla í N-
Múlasýslu utan samveitusvæða og 71,9% í Barðastrandar
sýslu.
Árið 1968 dró verulega úr framkvæmdahraðanum, en
þá voru aðeins 130 býli tengd samveitum, og 1969 varð
samdrátturinn enn meiri, en þá voru aðeins um 80 býli
tengd samveitum. Vegna málflutnings stjórnarandstæð-
inga, mun ráðgert að auka þessar framkvæmdir nokkuð
á þessu og næsta ári, þannig að fyrir árslok 1971 verði
búið að tengja öll þau býli, þar sem meðalfjarlægð milli
þeirra er undir 1,5 km. Hvergi nærri er þó búið að
tryggja nægilegt fjármagn í þessu skyni. Eftir er svo
að sjá fyrir þörfum þeirra býla, sem ekki fullnægja
þessu skilyrði.
Það er því mikil nauðsyn, að mörkuð verði ákveðin
stefna í þessum efnum, líkt og gert var í frumvarpi
Framsóknarmanna, og að stefnt sé að því að ljúka raf-
væðingunni innan ákveðins tíma.
Þrátt fyrir fámenni og erfiða staðhætti ákváðu ís-
lendingar að koma síma og útvarpi til allra landsmanna
og að tengja sérhvert byggt ból vegakerfinu. Þetta tókst.
Það er í fullu samræmi við þá stefnu að veita öllum
landsmönnuní aðgang að raforku-
Læknaskipunin
t
Á síðasta þingi fluttu Kristján Ingólfsson og fleiri
tillögu þar sem skorað var á heilbrigðismálaráðherra að
skipa sérstaka nefnd til að athuga gaumgæfilega núgild-
andi löggjöf um læknaskipun með það fyrir augum að
gera læknaþjónustuna traustari en hún nú er.
í greinargerð tillögunnar var bent á, að læknaskip-
unarlögin frá 1964 hefðu bætt kjör lækna verulega. En
þrátt fyrir þessar úrbætur, hafi skorturinn á héraðs-
læknum víða um land síður en svo dvínað. Ýmsir bindi
nú miklar vonir við lögin frá 1968 um læknamiðstöðvar,
en þó verði að draga í efa, að þær leysi allan vandann.
Það er ekki spurningin, segir í greinargerðinni, um
siundarúrbætur í einstaka tilfellum, sem hljómar hæst,
heldur hlýtur um það að vera spurt fyrst og fremst,
hversu úr megi bæta fyrir heildina í komandi framtíð.
Læknar hafa þegar þingað um heilsugæzlumál lands-
byggðarinnar, sömuleiðis landshlutasamtök sveitarfélaga
og enn fleiri aðilar.
Þjóðarheill kallar á varanlegar úrbætur í þessu
vandamáli og má telja eðlilegt og vænlegt til árangurs,
að mál þetta verði krufið til mergjar í milliþinganefnd,
þar sem viðkomandi aöilar eiga sína fulltrúa. Þ.Þ.
ERLÉNT YFIRLIT
Verður Servan-Sctireiber mikill
áhrifamaöur í franska þinginu?
Kosningasigur hans í Nancy hefur vakið heimsathygli.
SERVAN- SCHREIBER
FRANSKA ríkisstjórnin virð-
ist hafa lítinn byr með sér í
aukakosningunum. í okróber
síðastliðnum féll Couve de
Murville, fyrrv. forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra, í
aukakosningu fyrir formanni
flokks vinstri sósíalista, Michal
Rocard. Fall de Murville var
afsakað með því, aiS ekki hefði
verið um öruggt kjördæmi að
ræða. Hið sama verður hins
vegar ekki sagt um aukakosn-
inguna í Nancy tvo undanfarna
sunnudaga. Þar misstu stjórn-
arsinnar kjördæmi, sem var tal-
ið öruggt, og við það bættist,
að sigurvegarinn var maður,
sem er talinn öðrum líklegri
ý til a@ gera stjórninni erfitt fyr-
1 ir á þingi, jafnvel kljúfa lið
hennar þar.
Þessi maður er Jean-Jaques
Servan-Schreiber, framkvæmda
stjóri radikala flokksins og
þekktasti blaðakonungur Frakk
lands.
RÉTT er að rifja upp aðdrag-
anda þessara kosninga. í .stuttu
máli. Lorraine er eitt heízta
námuvinnsluhérað Frakklands.
Einkum eru kol og járn unnin
Iþar úr jörðu- Heldur hefur
dregið úr námuvinnslu síðustu
árin og það valdið nokkru at-
vinnuleysi og brottflutningum.
Það hefur dregið úr þessu, að
mikill jám- og stáliðnaður er í
Lorraine, en honum hefur vegn-
að heldur illa að undanförnu.
Tvær borgir hafa lengi keppt
um forustuna í Lorraine, Metz
og Nancy. Metz hefur veitt bet-
ur síðustu áratugina, m.a.
vegna mikils iðnaðar þar. Kjós-
endur í Nancy hafa yfirleitt
þótt heldur íhaldssamir og þvi
§ átti de Gaulle þar mikið fylgi.
Það kom því á óvart, þegar
hann beið ósigur þar í fyrravor
við þjóðaratkvæðagreiðsluna
um hina fyrirhuguðu fylkja-
skipun- Það átti þó augljósa
skýringu, þvi a0 samkv. tillög-
um stjórnarinnar átti Metz en
ekki Nancy að verða höfuðborg
fylkisins.
Nú í vor urðu Nancy-búar fyr
ir nýju áfalli. Núverandi þjóð-
.cgur milli Parísar og Strass-
bourg liggur um Nancy. í vor
var tilkynnt, að stjórnin hefði
ákveðið að leggja hraðbraut
milli Parísar og Strassbourg,
en hún s'kyldi ekki fylgja þjóð-
veginum, heldur liggja um Metz.
Þessu reiddust íbúar Nancy
ákafega og þingmaður þeirra,
Roger Souchal, taldi sér ekki
annaið fært en að leggja niður
þingmennsku í mótmælaskyni.
í aukakosningunni bauð hann
sig svo fram sem óháðan fram
bjóðanda, en naut óbeins stuðn-
ings stjórnarflokkasna. Kosning
hans þótti viss, en í fyrri um-
ferð þingkosninganna 1968 fékk
hann 48% atkvæða. Kommún-
istar komu þá næst með 17%.
Þetta breyttist hins vegar,
þegar Servan-Schreiber ákvað
að gefa ko t á sér, einnig sem
óháður frambjóðandi
SERVAN-SCHREIBER er
ekki nema 46 ára, en á þó orðið
hir,. sögulegasta feril að baki.
Hann er stofnandi vikublaðsins
L'Express, sem er nú útbreidd-
asta fréttablað Frakklands.
Hann vakti á sér sérstaka at-
hygli 1963, þegar hann beitti
sér fyrir því, að Mr. X, sem
reyndist vera Deferre borgarstj.
í Marseille, yrði frambjóðandi
gegn de Gaulle í forsetakosn-
ingunum 1964, og yrði reynt
að sameina um hann alla mið-
flo'kka og vinstri flokka, aðra
en kommúnista. Þessi ráðagerð
mistókst, því að Mitterand
varð íraenbjóðandi vinstri flokk
anna. Servan-Sdhreiber var á
þessum árum mikill aðdáandi
Mendes-France. Við forseta-
kosningarnar 1968 skildu hins
vegar leiðir þeirra, því að
Mendes France studdi Def-
ferre, en Servan-Schreiber yar
hægri hönd Pohers, frambjóð-
anda miðflokkanna. Nokkra
eftir hina misheppriuðu tilraun
með Mr. X, vakti Servan-
Sohreiber á sér nýja athygli
með hinni frægu bók sinni um
hina amerísku ögrun, sem hef-
ur orðið metsölubók bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum.
Síðan hefur Servan-Schreiber
verið ákafur talsmaður
evrópskrar efnahagssamvinnu,
en hún er að dómi haas, eina
rétta svarið vi? nú,:erandi yfir
burðum Bandaríkjanna.
Fyrir átta mánuðum tók
Servan-Schreiber að sér að
vera framkvæmdastjóri Radi-
kala flokksins og byrjaði á því
að semja miikla og róttæka
stefnuskrá, sem var samþybkt
á þingi flokksins síðastl. vetur.
Stefnuskráin er ítarleg og ný-
stárleg um margt og kemur
víða við, enda kallaði Servan-
Schreiber uppkastið Himinn og
jörð.
f AUKAKOSNINGUM í
Nancy bauð Servan-Schreiber
sig fram utan flokka, og talaði
nú hvorki um þriðja aflið né
samfylkingu miðflokka og
vinstri manna, heldur um sam
fylkingu framfaraafla. Servan-
Schreiber hefur tvívegis boðið
sig fram til þings áður og
fallið í bæði skiptin. Nú fór
hann því á ýmsan hátt öðru
vísi að en áður. í þetta sinn
lagði hann aðaláherzlu á sér-
mál héraðsins, en ræddi minna
um landsmálin. Honum tókst
í upphafi að afla sér fylgis
bæði borgarstjórans í Nancy
o3 aðalblaðsins þar. Hann
lofaði að beita sér fyrir alls-
herjarendurreisn Lorraines, og
því til sönnunar setti hann á
stofn evrópískt fjárfestingar-
félag, sem eingöngu skyldi
styðja framkvæmdir og at-
vinnurekstur -í Lorraine. Hann
fékk marga þekkta erlenda
fjármálamenn og stjórnmála-
menn til að heita félaginu
stuðningi og leyfðu þeir hon-
um að nota nafn sitt í kosn-
Framhald a bls 14.