Tíminn - 04.07.1970, Qupperneq 10
K)
* " -- •-----------------------------
TIMINN , LAUGARDAGUR 4. júlí 1970.
FULLT TUNGL
Eftir P. G. Wodehouse
30
eru alls staðar umhverfis sveita-
setur, ryðgaðir bekkir hafa ekki
mikið aðdráttarafl fyrir menn
sem eru áhyggjum hlaðnir, vana-
lega líta menn bara á bessa bekki
og halda svo leiðar sinnar, það
hefði Freddie líka gert, ef hann
hefði ekki séð að Veronica frænka
hans sat á þessum bekk og hann
heyrði meira að segja að hún var
að gráta, slík sýn var líka það
eina sem gat fengið Freddie til
að gleyma vandræðum Bills,
Freddie var ekki maður til að
gariga fram hjá nauðuglega
staddri fegurðardís. án þess að
hafast eitthvað að, hann flýtti sér
til hennar og sagði:
— Halló Vee, er eitthvað að?
Veroniku Wedge hafði einmitt
vantað einhvem til að hlusta á
frásögnina af Tipton Plimsoll,
sem hafði mælt sér mót við hana
en látið hana svo eina, sem leiddi
til þess að óður garðyrkjumaður
hafði ofsótt hana. Veronika sagði
sögu sína af ástríðuþunga. Fredd-
ie var hjartagóður og það 1 eið
ekki á löngu áður en hann tók
ættræknislega utan um frænku
sina og fór að kyssa hana hvað
eftir annað eins og góðum frænda
sæmdi. Þegar Veronika hafði lok-
ið sögu sinni andvarpaði Freddie
af samúð og lagði hváð eftir ann-
að eið út á að þetta væri hörmu-
legt og furðulegt 'og kyssti hana
töluvert og þó nokkuð oft enn.
Á meðan þessu fór fram, stóð
Tipton Plimsoll á bak við tré,
rétt hjá frændsystkinunum og
honfði á þessa endurfundi elsk-
endanna að því er hann hélt, Tip-
ton var myrkur á svip og honum
leið eins og einhver hefði barið
hann bylmingshögg á bak við eyr-
að.
Emsworth jarl kom til London
rétt fyrir klukkan fimm, hann
fékk sér bíl til ktúbbs Aldraðra
ihaldsmanna, en þar ætlaði hann
að fá sér herbergi til einnar næt-
ur. Bill hafði ferðazt með sömu
lest og jarlinn og kom því um
sama leyti til heimsborgarinnar,
hann hélt þegar til aðalbæki-
stöðva hins æruverða Galahads
Treepwood, sem voru í Duke-
stræti. St. James. Frá beirri
stundu sem frú Hermione Wedge
hafði sprungið, eins og uppblásin
pappírspoki og sagt hver hún væri
hafði Biil orðið ljóst að það sem
honum reið mest á var að ráðfæra
sig við hinn úrræðagóða heims-
mann. Að vísu fannst Bill að
kringumstæður sínar væru svo
ískyggilegar að enginn mannlegur
máttur gæti bjargað honum. en
þó taldi hann smá von um að sá
hugsuður sem hafði komið bví í
kring að Ronnie Fish kvænt.ist
söngleikahússtúiku, þrátt ryrir
fnótstöðu ráðríkra frænkna,
mundi enn einu sinni komast í
gang og finna lausn á vandamál-
inu, en sú lausn varð að vera al-
veg frábær. Bill hitti hinn æru-
verða Galahad fyrir utan dyrnar
heima hjá honum, hann stóð á
tali við bílstjórann sinn. Skyldur
frændans voru heilagar í augum
þessa góða manns, hann var bví
um það bil að leggja af stað til
Blandings kastaala til að vera við-
staddur á afmælisdegi Veroniku
systurdóttur sinnar.
Þegar hr. Galahad sá Bill, trúði
hann varla sínum eigin augum,
svo brá honum illa, honum skild-
ist að eitthvað voðalegt hefði
gerzt, að öðrum kosti væri ungi
maðurinn ekki þarna, hann sem
átti að vera að sýsla með hrífu
þar að Blandings. Hann hrópaði
því:
— Guð komi til. Bili, hvað ert
þú að gera hérna?
— Má ég tala einslega við þig?
spurði Bill og leit óvingjarnlega
á bilstjórann. sem hafði eins stór
eyru og gíraffi og bar með sér
að hann vildi helzt heyra alla
hluti. Hinn æruverði Galahad
teymdi Bilil niður götuna, það
langt frá, að bílstjórinn gat ekki
heyrt til þeirra, svo spurði hann:
Jæja þá, hvað er á seyði? hvers
vegna ertu ekki heima í Bland-
ings? Ég vona að þú sért ekki
kominn til að segja mér að bú
hafir gert aðra skyssu og verið
rekinn aftur?
— Jú, það er nú einmitt það,
sem ég er kominn til að segja
þér, en það var ekki mér að
kenna. Hvernig gat ég vitað að
hún væri ekki eldabuska? Allir
hefðu haldið að hún væri það.
Þó að hinn æruverði Galahad
vissi enn ekkert um hvað hafði
gerzt, þá varð honum þegar ljóst
hver það var í Blandings kastala.
sem hafði verið álitin eldabuska.
Hann sagði því:
— Þú ert auðvitað að tala um
Hermione systur mína?
— Já.
— Þú hélzt að hún væri elda-
buskan?
— Já.
— Hvaö svo?
— Svo lét ég hana fá bréfið og
bað hana að lauma því til Prud-
ance, auk þess gaf ég henni skild-
ing.
— Einmitt. nú skil ég allt sam-
an, og hún hcfur þá dregið sverð-
íð úr slíðrum og rekið þig út úr
garðinum?
— Já.
— Skrýtið, — sagði hinn æru-
verði, — mjög undarlegt. Það
kom nákvæmlega það sama fyrir
Sliffy Bates, vin minn fyrir nokkr
um árum, sá var bara munurinn,
að hann tók feil á brytanum og
föður stúlkunnar sinnar, hélt Her-
mione skildingnum eftir?
— Nei, hún kastaði honum í
mig.
— Þú hefur þá verið heppnari
en Stiffy, hann gaf föður stúlk-
unnar tíu skildinga og sá gamli
lét þá ekki af hendi aftur, ég
man vel að Stiffy þótti það af-
leitt, honum fannst að hann hefði
borgað tíu skildinga fyrir að láta
elta sig í gegn um þyrnigerði og
láta reka á eftir sér með stungu-
gaffli, Stiffy vildi alltaf fá fullt
verðmæti fyrir peningana sína.
En hvernig stóð á þvi að þú rakst
á Hermione?
— Hún kom til að skamma mig
fyrir að elta dóttur sína.
— Þú meinar sjálfsagt systur
dóttur hennar.
—Nei. það var dóttir hennar
hún er hávaxin hálfviti með út-
stæð augu.
Hinn æruverði Galahad greip
andann á lofti þegar har.n heyrði'
þessa lýsingu, svo sagði hann:
— Svo Veronika kom þér þá
svona fyrir sjónir, var það? Þú
hefur óvanalegar skoðanir Bill,
karlmenn sem þekkja hana tala
vanalega um hana eins og gyðju.
en þetta er ágætt, það hefði gert
allt enn flóknara, ef bú hefðir allt
í einu orðið hrifinn af Veroniku,
en úr þvi þú varst ekki hrifnari
af henni en þú segir, hvers vegna
varstu þá að elta hana-;>
— Ég ætlaði að biðja hana að
fara með bréfið til Prue.
— Ah, nú skil ég, hvað stóð í
þessu bréfi?
— Ég skrifaði að ég væri reiðu-
búinn að gera allt sem hún vildi
. . . hætta við að mála og setjast
um kyrrt á þessari krá minni og
vinna við hana, en Freddie hef-
ur kannski sagt þér frá bví öllu
saman?
— Já. í höfuðdráttum og hvað
bréfinu viðvíkur, þá skaltu ekki
hafa neinar áhyggjur af því, ég
skal sjá um að Prue fái það, eg
er einmitt að leggja af stað til
Blandinigs.
— Þetta er hræðilega vel boð-
ið.
— Hreint ekki, er þetta bréfið?
— spurði hinn æruverði, og tók
við umslagi sem Bill hafði þrifið
upp úr innri brjóstvasanum, eins
og þegar töframaður tínir kanín-
upp úr hattinum sínum. Gala-
had virti bréfið fyrir sér og sagði:
— Það er orðið dálítið vott af
svita, en ég býst ekki við að Prue
setji það fyrir sig. Jæja, svo þú
hefur þá ákveðið að snúa þér -að
Mulberry Tree kránni? Það tel
ég viturlegt, þú kærir þig sem sagt
ekki um að vera að grauta í list-
inni núna og æblar að spenoa
vagninn fyrir tryggt verzlunarfyr-
irtæki. Ég sé heldur ekki neina
vankanta á því að þér takist vtl
með krána, sérstaklega ef Iþú fær-
ir hana í nýtízkulegra horf.
— Það er einmitt það sem Prue
vifll, hún • vill hafa sundlaug og
leikvelli þarna.
—En þig mundi auðvitað vanta
peninga.
— Það er nú einmitt þar sem
skói-inn kreppir.
— Ég vildi óska að ég gæti
hjálpað þér, ég mundi gera það
eins og skot. en ég fæ eioungis
þær tekjur af óðalinu, sem yngri
syni ber og get rétt dregið fram
lífið af því, en hefur þú nokkurn
í huga sem þú getur slegið?
— Prue hélt nú kannski að Ems
worth .l’arl mundi hósta upp pan-
ingum, en auðvitað ekki fyrr en
við værum gift, en meinið er, að
ég sagði honu-m að kalóna á sér
hausinn.
— Og það var rétt, það er ein-
mitt það sem Clarence ærti að
gera, en -hvað með það?
er laugardagur 4. júlí
— Marteinn biskup
Tungl í liásuðri kl. 14,21
Árdegisháflæði í Rvík kl. 7,32
HEILSUGÆZLA
Slökkviliðií 1 siúkrabifrelðir.
Sjúkrabifreið 1 Hafnarflrðl
síma 51336.
fyri. r ykjavik og Kópavog
simi 11100.
Slysavarðstofan t Borgarspftalannm
er opin aUan sólarhringinn. A8-
eins móttaka slasaðra Simi
81212.
Kópavogs-Apóteb og fieflavfkur
Apótek erc opln virka daga kL
9—19 iangardaga kl. 9—14 helga
daga kl. 13—15
Almennar upplýsingar um tæfcna
pjónustu l borginnl eru gefnat
sfmsvara I-æknafélags Reykjavtk-
ur, simi 18888.
Fí garhe ’:ð i Kópavogt
Hlíðarvegi 40. simi 42044.
Kópavogs-apótek og Keflavikur-
apótek eru opin virka daga fcl. «
—19 laugardaga kl. 9—14, helgi-
daga kL 13—15.
Apótek Hafnarfjarðar er oplð alla
virka daga frá fld. 9—7 a laugar
dögum fcl 9—2 og á sumnudögum
og öðrnm helgidögum er opið uá
kl 2—4.
Tannlæknavakt er ' Heilsuvernd
arstöðinnl (þar sem slysavarð
stofan var) og er opin Iaugardaga
og sunnudaga ki 5—6 e. h. Sím)
22411
Kvöld- og helgarvörzlu Apótcka
í Reykjavík vikuna 4. júlí til 10.
júlj annast Lyfjabúðin Iðunn og
Garðs Apót-ek.
Næturvörzlu í Keflavik 4 júlí
og 5 júlí
annast Arnbjörn Olafsson.
Næturvörzlu í Keflavík
annast Guðjón Klemenzsen.
SIGLINGAR
Skipadeild SÍS.
Arnarfel-1 er á Blönduósi. Jökul-
fell fór í gær frá Dalvík til Aust
fjarða. Dísarfell losar á Norður-
landshöfnum. Litlafell er í Þor-
lákshöfn. Helgafel-1 fór í gær frá
ísafirði til Sauðárkróks. Stapafell
væntanlegt til Reykjavíkur á
morgun. Mælifell er í Keflavík.
Skipaútgerð ríkisins
Hekla fer kl. 20,00 í kvöld aust
ur um land til Akureyrar. Herjólf
ur er í Reykjavík. Herðubreið fer
kl. 20,00 í kvöld vestur um land
til Akureyrar.
FLUGÁÆTLANIR
Loftleiðir h.f.
Eirí-kur rauði er væntanl-egur
frá NY kl. 04,30. Fer til L/axem-
borgar kl. 05,15. Er væntanlegur
frá Luxemborg kl. 14,30. Fer til
NY kl. 15,15. — Snorri Þorfinns-
son er va»stanlegur frá NY kl.
07,30. Fer til Luxemborgar kl.
08,15. Er væntanlegar tíl baka
frá Luxemborg kl. 16.30. Fer til
NY kl. 17,15. — Þorfinnur karls-
efni er væntanlegur frá NY kl.
09,00. Fer til Luxemborgar kl.
09,45. Er væntanlegur til baka frá
Luxemborg kl. 18,00. Fer til NY
kl. 19,00. — Guðríður Þorbjarnar
dóttir er væntanleg frá NY kl.
08,30. Fer til Oslóar, Gautaborgar
og Kaupmannahafnar kl. 09,30.
Er væntanleg til baka kl. 00,30.
Fer til NY kl. 01,30.
Flugfélag íslands
Gullfaxi fór til Kaupmannahafnar
kl. 03,30 í nótt. Vélin kemur aftur
kl. 10,00 í dag. — Gullfaxi fer til
Osló kl. 11,00 í dag. Vélin kemur
aftur kl. 16,20 í dag. — Sólfaxi
og Skýfaxi fara til London kl.
07,00. Eru væntanlegir aftur til
Reykjavíkur kl. 17,50 í dag. —
Gullfaxi fer til Kaupmannahafnar
kl. 17,00 í dag. Vélin kemur aftur
til Keflavíkur kJ. 23,00 í kvöld.
Innanlandsflug. — f dag er áætl
að að fljúga til Vestmann-aeyja
(2 ferðir), Hornafjarðar, Akur-
eyrar (3 ferðir), ísafjarðar, Egils
staða (2 ferðir) og Sauðárkróks.
— Á morgun er áætlað að fljúga
til A-kureyrar (3 ferðir), ísafjarð
ar, Vestmannaeyja (2 ferðir), Eg-
ilsstaða, Hornafjarðar og Fagur-
hólsmýrar.
FÉLAGSLIF
Kvenfélag Grensássóknar:
Fer skemmtiferð miðvikudaginn
8. júlí kl. 5 s. d. frá Hvassaleitis
skóla. Farið verður hringferð,
Strandakirkja. Hveragerði.
Tilkynnið þátttöku fyrir mánu-
dagskvöld j síma 36911, 35955 og
34965.
Húsmæðraorlof Kópavogs.
Dvalið verður að Laugum í Dala-
sýslu 21. júlí — 31 júl. Skrifstof
an verður opin í Félagsheimilinu
2. hæð þriðjudaga og föstudaga
kl. 4—6 frá 1. júlí. Oppl. í síma
40689. (Helga), 40168. (Fríða).
Tónabær — Tónabær — Tónabær.
Félagsstarf eldri borgara.
Mánudaginn 6. júlí verður farin
skoðunarferð um Reykjavík, leið-
sögumaður Árni Óla ritstjóri.Lagt
verður af stað frá Austurvelli kl.
2 e h. kl. 3 drukkið kaffi í Grilliau
Hótel Sögu. Þátttökugjald kr. 175,
kaffi innifalið. Uppl í síma 18800.
KIRKJAN
Laugarneskirkja.
Messa kl. 11. Séra Garðar Svav-
arsson.
Dómkirkjan.
Messa kl. 11. Séra Óskar J. Þor-
láksson.
Neskú-kja.
Guðsþjónusta kl. 11. Séra Jón
Thorarensen.
Kálf a tj arnarkirkj a.
Kirkjudagur. Guðsþjónusta ki 2.
Séra Jón M. Guðjónsson predik-
ar. Að lokinni kirkjuathöfn verða
kaffiveiting-ar seldar í Glaðheim-
um Vogum, Bragi Friðriksson.
Grensásprestakall.
Messa í Safnaðarheimlinu Miðbæ
kl. 11. Séra Felix Ólafsson.
Hallgrímskirkja.
Messa kl. 11. Séra Ragnar Fj-alar
Lárusson.
i Langholtsprestakall.
Guðsþjónusta kl. 10.30. Séra Sig-
urður Haukur Guðjónsson.
Hallgrímskirkja Saurbæ.
Guðsþjónusta kl. 2. Séra Jón Ein
arsson.
Háteigskirkja.
Messa k-1. 10. Séra Arngrlmur
Jónsson.
Messa kl. 2. Séra Jón Þorvarðs-
son.
Hjallakirkja.
Messa kl. 2. Séra Ingþór Indriða-
son.
Lárétt: 1 Fiskur 6 Svif 7 Tré 9
Dauði 11 Leit 12 Baul 13 Iíanda
15 Ra 16 Maðkur 18 Byggðum.
Krossgáta
Nr. 527
Lóðrétt: 1 Fugl 2 Umgangur
3 R-öð 4 Frostbit 5 Hreyfð-
um 8 Drcifi 10 Tunnu 14
56 15 Op 17 Freri.
Ráðning á gátu no 573.
Lárétt: 1 Trommur 6 Fáa
7 Lin 9 Róm 11 H1 12 Ra
13 Ama 1S Sið 16 Flá 18
E«lhma.
Lóðrétt. Tilhald 2 Ofn 3
M-ar 4 Mar 5 Rómaðra 8
Ilm 10 Óri 14 Aíl 15 Sáu
17 LL.