Tíminn - 04.07.1970, Síða 12
12
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
IÞROTTIR
LAffGARDAGUR 4. Jíílí Í970.
„Hlaupin brotalöm okkar“
Rabbaö við Örn Eiðsson, formann FRI um 5-landa keppnina
Á morgun, eftir setningarat-
höfn íþróttahátíðarinnar, hefst á
Laugardalsvellinum, ein mesta
íþróttakeppni, sem nokkurn tíma
hefur verið halðin hér á landi.
En það er 5. landakeppnin í frjáls
um íþróttum, milli Finnlands,
Belgíu, Danmerkur, írlands og ís-
lands.
Íþróttasíðan hafði tal af Erni
Eiðssyni, formanni Frjálsíþrótta-
sambands íslands í gær, og spurði
hann um möguleika okkar manna
í þessari keppni:
„Ég tel að við höfum sáralitlar
vonir, og nokkuð öruggt að við
rekum lestina í keppninni.
ÍÞRÓTTA
m ■ m
HATIÐ1970
Þrír Norðurlandameist
arar í landsiiðinu
— sem leikur gegn Færeyingum
Idp—Reykjavik.
Á miðvikudaginn í næstu viku
lcikur landsliðið I handknattlcik
við úrvalslið Færeyja og fer sá
lcikur fram í Laugardalshöllinni.
Ekki er hægt að telja þetta
íslands-
mótið í
handknatt-
leik utanhúss
íslandsmótið utanhúss árið 1970
í meistaraflokki karla og kvenna
og n. fl. kvenna fer fram dagana
5.—11. júlí í Reykjavík og er lið
ur í Íþróttahátíð ÍSÍ.
í íslandsmótinu taka þátt 10
flokkar í mfl. karla, 9 flokkar í
mfl. kvenna og 13 flokkar í 2.
fl. kvenna. Riðlaskipting er sem
hér segir:
Meistaraflokkur karla:
A-riðill: Fram, Valur, KR, ÍR
Þróttur.
/'B-riðill: FH, Haukar, Armann,
Víkingur, Grótta.
Meistaraflokkur kvenua:
A-riðill: KR, Njarðvík, Valur,
Víkingur, Völsungar.
B-riðill: Árrnann, Fram, Breiöa
blik, ÚÍA.
2. fl. kvcnna:
A-riðill: Breiðablik, ÍA, Njarð
vík, Víkingur, ÍR.
B-riðill: FH, Valur, Ármann,
ÍBK.
C-riðiU: Fram, Fylkir, Þór, Ve.
KR.
Samtals taka því 32 flokkar þátt
í mótinu og má gera ráð fyrir
að þátttakendafjöldi sé um 380—
390.
Mótið hefst á morgun, sunnudag
og verða þá leiknir eftirtaldir
leikir:
Laugarnesskólavöllur:
ÍA — Njarðvík 11. fl. kv. Breiða
blik — ÍR II. fl. kv.
Valur — Fram mfl. karla
FH — Haukar mfl. karla.
VöUur v. Laugardalshöll:
ÍBK — FH II. fl. kv.
KR — ÍR mfl. karla
Víkingur — Ármann mfl. karla-
Laugarlækjarskólavöllur:
KR — Þór II. fl. kvenna.
Víkingur — Valur mfl. kv.
Njai’ðvík — Völsungar mfl. kv.
Fram — Ármann mfl. kv.
ÍÞRÓTTA mfeHÁTÍÐ1970
STÚR-DANSLEIKUR
í Laugardalshöllinni, sunnudaginn 5. júlí, kl. 21,00
Hljómsveitirnar ÆVINTÝRI og NÁTTÚRA leika.
Söngvarar: Björgvin Halldórsson og
Pétur Kristjánsson.
Aðgangseyrir kr. 150,00. Aldurstakmark 14 ára
til 21 árs. — Ölvun er stranglega bönnuð. —
Forsala aðgöngumiða í Café Höll, Austurstræti 3.
ÍÞRÓTTA
landsleik, þar sem Færeyingar eru
ekki aðilar að alþjóða handknatt-
leikssamabndinu, en þessar þjóð
ir hafa leikið áður, en þá í Fær-
eyjum, og lauk þeim leik með sigri
íslands, en liðið átti í miklum
vandræðum með mótherjana í
þeim leik, og þá sérstaklega í
fyrri hálfleik.
Landsliðsnefnd HSÍ hefur nú
valið „landsliðið“ sem mæta á
(Færeyingum á miðvikudag, og
er það þannig skipað:
Ingólfur Óskai’sson, Fram,
fyrirliði.
Guðjón Erlendsson, Fram,
Emil Kai’lsson, KR,
Sigurður Einarsson, Fram,
Axel Axelsson, Fram,
Bjarni Jónsson, Val,
Ólafur H. Jónsson, Val,
Geir Hallsteinsson, FH,
Ágúst Svavarsson, ÍR,
Páll Björgvinsson, Víking,
Viðar Símonarson, Haukum,
Stefán Jónsson, Haukum.
í þessu liði eru 4 menn, sem
ekki léku með j HM-keppninni í
Frakklandi, þeir Emil Karlsson,
og unglingalandsliðsmennirnir
Guðjón Erlendsson, Páll Björg-
vinsson og Axel Axelsson.
HIM-leikmennii’nir, sem ekki
komust í liðið móti Færeyjum,
eru allir markverðirnir með tölu,
þeir Þorsteinn Björnsson, Birgir
Finnbogason og Hjalti Einarsson,
ásamt þeim Jóni Hjaltalín, Einari
Magnússyni, Sigui’bergi Sigsteins-
syni og Björgvini Björgvinssyni.
Við komum til með að berjast um
neðsta sætið við íra, og ég geri
mér vonir um að við verðum ekki
langt frá þeim.“
„Það er fyrirfram vitað að við
verðum ekki ofarlega í þessari
keppni. Til þess eru mótherjarnir
allt of góðii’ fyrir okkar unga og
óreynda lið. Finnarnir eru með
jafnasta liðið, og það bezta, en
Belgíumenn eru einnig með gott
lið, og verður örugglega hörð
keppni milli þeirra og Dana um
annað sætið. En það veitir rétt
til þátttöku I undanúrslitum Evr
ópukeppninnar.
Okkar brotalöm er hlaupin, en
við stöndum þokkalega að vígi í
tæknigreinunum, og eigum í nokkr
um greinum möguleika á að vera
framarlega, en það er helzt í kúlu
varpi, kringlukasti, hástJökki, og
ef tii vill einnig í grindahiaupi
og 200 metra hlaupi.
„Ég er viss um að þetta mót
á eftir að verða öllum ógleyman-
legt, sem það sjá. Svona stórt
mót hefur aldrei fai’ið fram hér
áður, og búast má við að það
verði bið á því að annað tækifæri
gefist.“
Orn Eiðsson
Erlendis di’aga svona ,mðt
að sér þúsundir áhorfenda, enda
eru þau oftast mjög góð.
í þessari keppni taka þátt marg
ir af þekktustu frj álsiþróttamönn
um heims, og verður eflaust gam-
an að sjá þá alla hér á vellinum.
En ég tel að mestur spenningurinn
verði í kringnm hlaupin, eius og
ætíð á svona móbum. þau geta
oft orðið ofsalega spenoandi.
„Ég vona að okk'ar menn standi
sig vel, og að allir geri sitt bezta,
sem ég raunar veit að þeir gera
alir — til meira er ekki hægt að
ætlast af þeim. —Mp.—
Erlendir gestir keppa á
badmintonmótinu hér
I sambandi við Iþróttahátíðina
vei’ður haldið hátíðarmót í bad-
minton, og er það lang stærsta mót
í badminton, sem haldið hefur
verið hér á landi. Þátttakendur
eru 135 víðsvegar að af landinu.
Þá koma til mótsins tveir af
beztu badmintonleikurum Finn-
lands. Keppt verður í íþróttahöll
inni, Laugardal og hefst mótið
með setningarathöfn, mánudaginn
6. júlí kl. 14 en (keppni hefst
strax á eftir. Mótið heldur siðan
áfram á þriðjudaginn og hefst kl.
14.30 en þá verða leiknir undan-
úrslita- og úrslitaleikir. Ails verða
leiknir 150 leikir, og verður leik-
ið á átta völlum samtímis.
Eins og áður sagði koma hing-
að tveir af beztu badmintonleik-
urum Finnlands, þeir eru:
Eero Laikkö 22 ára, dýi’alækua-
stúdent. Hann er finnskur meist-
ari í einliðaleik í ár og hefur ver-
ið meistari í tvíliðaleik árið 1966
og í tvenndarkeppni árið 1968 og
1969. Hann hefur leikið 13 lands-
leiki í badminton.
Marten Segererantz 28 ára tann
læknir. Hann var finnskur meist-
ari í einliðaleik árin 1967 pg 1969,
meistari í tvíliðaleik 7 ár í röð
1963 — 1969 og í tv enndark eppni
1963 — 1966 og 1970. Hann hef-
ur leikið 16 landsleiki í badmin-
ton.
Finnarnir leika hér við okfcar
sterkustu menn, bæði í einliða-
leik og tvílíðaleik.
Um styrkleika þeirra er vitað,
að þeir stóðu sig mjög vel í Norð
urlandamótinu í vetur. Léku þar
við beztu lifk Norðmanna í tví-
liðaleik og töpuðu með 15:12 og
15:12, en Norðmenn eru meðal
sterkustu badmintonþjóða heims.
Af þessu má sjá að hér eru mjö,g
góðir badmintonleikarar á ferð og
verður fróðlegt að sjá viðureign
fslendinganna við þá.
Á mótinu verður keppni í meist
araflokki — a og b flokki full-
orðinna, einnig verður keppt í
fyrsta skipti í „old boys“ flokki
(40 ára og eldi’i). Þá verður keppt
í þrem aldursflokkum unglinga.
í sambandi við þetta mót verður
efnt til kennslu og kynningar á
íþróttinni og verður það á þriðju
daginn, kl. 10—12 f. h.
Mótsstjóri er Karl Maack, en
umsjón með kennslu hefur Garð-
ar Alfonsson.
Hinir 17 ,iítvölclu'
Alf — Reykjavík. — I gær-
dag var tilkynnl á blaðamanna-
fundi, sem KSÍ boðaði til, um
nöfn 17 leikmanna, sem skipa
landsliðshóp, en úr þessum hópi
verða valdir 11 leikmenn til að
leika gegn Dönum á þriðjudags-
kvöld. Mesta athygli vekur, að
Hermann Gunnarsson, Akureyri,
hcfur vcrið valinn í hópinn aft-
ur, en eins og kunnugt er, hefur
hann ekki átt upp á pallborðið
hjá forustuniönnum KSÍ að und-
anföi’nu.
Annars lítur 17 manna hópur-
inn þannig út:
Þorbergur Atlason, Fram,
Magnús Guðmundsson. KR.
Jóhannes Atlason, Fram,
Einar Gunnarsson, ÍBK,
Þorsteinn Friðþjófsson, Val,
Ellert Schram. KR
Guðni Kjartansson. ÍBK,
Haraldur Stui’laugsson, f A,
Eyleifur Hafsteinsson, ÍA,
Halldór B jörnsson, KR,
Skúli Ágústsson, ÍBA,
Ásgeir Elíasson, Fram,
Matthías Hallgrímsson, ÍA,
Guðjón Guðmundsson, ÍA,
Elmar Geirsson, Fram,
Hermnn Gunnarsson, ÍBA,
Jón Ólafur Jónsson, ÍBK.