Tíminn - 08.07.1970, Síða 1

Tíminn - 08.07.1970, Síða 1
) IGNIS 150. fbl. — Miðvikudagur 8. júlí 1970. Fleiri búast til síldveiða OÓ Reykjavík, þriðjudag. Nú eru nálægt 34 íslenzk sfldveiðiskip í Norðursjó og hafa þau flest fengið sæmileg- an afla og seija vel. Eru þau skip, sem mest hafa veitt, bú- in að selja fyrir 6 til 7 millj. króna. Undanfarið hafa bátarn ir aðallega selt í Danmörku, en þangað er styttra af miðun- um en til Þýzkalands eða Eng- lands. Undanfarna daga hefur verið bræla á Norðursjó og tæplega veiðiveður, en nú er að létta til aftur og veðrið að batna. Þeir bátar, sem lengst hafa stundað þessar veiðar í vor og sumar, hafa verið við í tæpa tvo mánuði, en í fyrra fóru íslenzku skipin ekki á síld- veiðar í Norðursjó fyrr en í septembermánuði. Innan skamms munu fjórir bátar til viðbótar fara á síld- veiðar í Norðursjó. Er verið að gera skipin klár, en þau komust ekki af stað fyrir verk föllin og urðu því innlyksa og hafa táfizt um margár vikur Myndin var tekin af bátunumí dag i Reykjavíkurhöfn. (Tímamynd — Gunnar). Esju-deilan útkljáð í haust OÓ-Reykjavík, þriðjudag. Hótel Esja opnaði í morgun og voru dönsku landsliðsmenn- irnir í knattspymu fyrstu gest- imir. Eins og komið hefur fram kærði Sæmundur Ólafs- son, eigandi Kexverksmiðjunn ar Esju, vegna nafngiftar hótels ins, og gerir þá kröfu, að því verði breytt þar sem fyrir- tæki hans eigi einkarétt á nafninu. Málið hefur verið dómte'kið í Sjó- og verzlunardómi, en dómsúrskurður verður ekki kveðinn upp fyrr en í septem- bermánuði, þar sem komið er dómsfrí yfir sumarmánuðina. Mun því hótelið bera nafnið Esja í sumar, hvað sem síðar verður. Sovézkir vísindamenn taka heiðurinn bæði af Leifi og Kólumbusi: Ameríku fyrir 3500 árum! NTB-Moskvu, þriðjudag. Tveir sovézkir vísinda- menn rændu í dag bæði Leif heppna og Kólumbus öllum heiðri af að hafa fundið Ameríku. í staðinn lögðu vísindamennirnir fram þá kenningu, að Tíbetbúar eða Indverjar hafi farið tii nýja heimsins, þegar um 1500 árum fyrir Krist. Þessi kenning er byggð á gömlum kortum, sem vísindamennirnir hafa rannsakað. Það eru tveir austurlanda- sérfræðingar í Leningrad, Gumilev og Kustnestsov, sem rannsökuðu landakort í Tíbet- önskum handritum og eru kort in talin með þeim elztu i heimi. Félagarnir halda því fram, að Tíþetar og Indverj- ar hafi vitað um Ameríku 3000 árum áður en Kólumbus steig þar á land. Þessi kort hafa lengi verið kunn, en eftir rannsóknir vís- indamannanna eru þau litin nýjum augum þar eystra. „Grænt land, sem ligur langt í austri, handan við hafið“ segja þeir, að sé Ameríka. Mál fræðingurinn Vusnetsov hefur og komizt að raun um, að hið hreina ameríska orð „tóbak“ hafi verið þekkt í ótal tungu- málum og mállýakum þegar í fornöld. Ýmis atriði, sem sjást á kortunum voru einnig vel kunn í Asíu, þegar á öldinni fyrir Krists burð. Blindir seldu upp happdrætti sínu! FB-Reykjavík, þriðjudag. Það má víst teljast til und antekninga, að happdrætti geti státað af því, að hver miði sé seldur nokkru fyrir dráttardag. Svo fór þó í Happdrætti Blindrafélagsins. en í því verð- ur dregið á morgun, miðviku- dag, og er vinningurinn Ford Taunus bfll. Við hringdum í dag í Jón Gunnar Arndal formann happ- drættisnefndarinnar og spurð- um hann um happdrættifl. Hann sagði. að happdrættismiðarnir hefðu allir verið seldir í gær- kvöldi, og í, dag hefur vinnings bíllinn svo staðið í Bankastræt inu me8 miða límda á rúðurnar, Framhald á bls. i NAF-fulltrúar á ferð um landið í gær KJ—-Bifröst, þriðjudag. FuIItrúar á aðalfundi Nor- ræna samvinnusambandsine fóru í ferðalög í dag en hitt- ust síðan allir í kvöld í Hótel Bifröst, þar sem þeir fengu sér snæðing. Seinna í kvöld áttu síðan allir fulltrúamir að halda til höfuðborgarinnar aftur. Fulltrúarnir skiptust í þrjá hópa. Einn hópurinn fór á hest bak við Kljáfoss og hélt ríð- andi beina leið til Bifrastar. Annar hópur "ór í bílferð til Þingvalla, um Kaldadal og Borgarfjörð, en briðji hópur- inn fór í siglingu og á skak úti í Flóa. Um kvöldmatarleytið hittust allir hóparnir í Bifröst. Safnar gömlum mnnum og mynd- nm af þeim hér - til sýningar í Svíþjóð SB-Reykjavík, þriðjudag. Forstjóri Þjóðminjasafns Svi þjóðar, Olof Isaksson, er kom- inn hingað til lands, þeirra er- inda að viða að sér efni í ís- Iandssýningu, sem hann hyggst setja upp í safni sínu á næsta ari. Með Isaksson í förinni, er ljósmyndari og munu þeir ferð ast um lar.dið næstu sex vikurn ar. Isaksson hefur einu sinni kom ið hingað til lands áður og þá sem áningarfarþegi. En það varð nóg til þess, að hann fékk mikinn áhuga á íslenzkri menn ingu, gamalli og nýrri. Sýning in, sem hann er nú að safna myndum og munum í, verður sett upp í safninu í Stokkhólmi á næsta ári og komið hefur til tals, að síðan verði farið með hana til Gautaborgar, því safn stjóri þar hefur sýnt mikinn áhuga á henni. Með sýningu þessari er leit azt við að kynna bæði gamla og nýja menningu Islendinga. Ekki er ákveðið enn, hvort einhver íslendingur fer ti1 S-■" íðar til að hafa hönd í bagga með upp setningu sýningarinnar.. Jafntefli ísland — Danmörk 0:0 í gærkvöldi. S|á bls. 12—13 Viiiningaskrá í Happdrætti SBBS - bls. 3

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.