Tíminn - 08.07.1970, Síða 4

Tíminn - 08.07.1970, Síða 4
4 TÍMINN \ MIÐVIKUDAGUR 8. júlí 1910. HGLL.NA HÍjKTOR cJVorræri Samvinna um betri vörur á réttu verSi. Verzltð í kaupfélagínu m «>o SNYCRTI ^VÖRURj, Æ4 KAKO Mildur fyrir hendur PIPARRÖRUR Ódýrt &gott •X* REYNIÐ MEÐ SÚRMJÓLK / NORDKRONEN BLÁSIÐ HVEITI OG HRÍSGRJÓN nrm LESANDINN Með dómsvald í héraði fara almennt sýslumenn uc Oæjar- fógetar hver í sínu umdæmi. Sýslur (þ.e. sem lögssgnarum dæmi) eru nú 16, en kaupstað- ir utan Reykjavíkur 13. Hver sýsla og hver kaupstaður er sérstakt lögsagnarumdæmi. f 7 kaupstö-ðum utan Reykjavík ur eru sérstakir bæjarfógetar, en í hinum 6 eru bæjarfóget- ar jafnframt sýslumenn í þeirri sýslu er að kaupstað liggur. í Reykjavík skiptist hins vegar meðferð dómstóla milli þriggja embætta. Fjallar hvert embætti um ákveðna mála- flokka, sem í sýslum óg kaup- stöðum eru á einni hendi. Þessi embætti í Reykjavík eru: embætti borgardómara. sem fjallar um svokölluð fógeta- réttarmál o.fl. og sakadómara- embætti, sem fjallar um refsi- mál. I Reykjavík er auk þess embætti saksóknara, sem er einn fyrir landið allt. í einu kauptúni, Bolungar- vík, er sérstakur lögreglu- stjóri, sem fer með dómsvald í tilteknum málaflokkum. Á Keflavíkurflugvelli er og lög- reglustjóri, sem starfar skv. sérstökum lögum, en hann fer almennt með þau mál. sem sýslumönnum og bæjarfó- getum eru annars staðar fal- in. Sýslumenn og bæjarfógetar fara almennt með öll dóms- mál, þar með talin skiptamál, fógetagerðir og uppboð í lög- sagnarumdæmum sínum. Þeir fara og með rannsókn svo- nefndra opinberra mála (refsi málaj fyrir dómi. Auk dóms málanna falla margvisleg stjórnsýslustörf undir verksvið þessara embættismanna, svo sem lögreglustjórn og «katt- heimta, en um þau störf verð- ur ekki fjallað í þáttum þess- um, a.m.k. ekki að sinni. (í Reykjavík er sérstakt lögreglu stjóraembætti og tollstjóraem- bætti). Héraðsdómari dæmir venju- lega einn í almennum dóms- málum. Þar sem sérstök þörf er á sérkunnáttu getur þó dómari, bæði í einkamálum og sakamálum, kvatt til tvo kunn áttumenn, meðdómendur, og er borgaraleg skylda að taka þeirri kvaðningu. Þegar um sérstaklega umfangsmikil mál er að tefla og ætla má, að of- vaxið sé hinum reglulega dóm ara að sinna þeim, vegna em- bættisanna eða af öðrum ástæðum, getur dómsinálaráð- herra skipað sérstakan dóm- ara, í .opinberum málum jafn- vel sérstakan dóm, skipaðan fleiri en einum dómara, til að fara með ákveðið mál. í skip- unarbréfi, svokallaðri umboðs- skrá. er glögglega greint, hvert valdssvið hins sérstaka dómara er og nefnist hann dómari skv. sérstakri umboðs- skrá. Þegar hins vegar reglu- legi dómarinn verður að víkja sæti, sem kallað er, vegna svo nefnds vanhæfis (t.d. vegna skyldleika við .málsaðila), er sérstakur dómari skipaður til að fara með það tiltekna mál og nefnist þá setudómari. Síðar verður nánar fjallað um störf og verksvið héraðs- dómstóla, en í næsta þætti verður vikið að Hæstarétti Björn Þ. Guðmundsson. SENDIBILAR Kjöt - Kjöt 5 verðflokkar, verð kr. 56,00. — Mitt viðurkennda hangikjöt, verð frá kr. 115,00. — Opið kl. 1—7* fimmtudaga og föstudaga, á laugardögum kl. 9—12. Sláturhús Hafnarfjarðar Guðmundur Magnússon, sími 50791, - heima 50199 Ökukennsla - æfingatímar Cortina Upplýsingar t síma 23487 kl. 12—13. og eftir kl. 8 á kvöldin virka daga. Ingvar Björnsson. Alls konar flutningar STÖRTUM DRÖGUM BlLA MEST NOTUÐU HJÓLBARÐAR Á ÍSLANDI Flestar gerðir ávallt fyrirliggjandi ESSO-BÚÐIN GRUNDARFIRÐ! Rafgeymir 6B11KA — 12 volta 317x133x178 m/m 52 ampertímar. Sérstaklega framleiddur fyrir Ford Cortina. SÖNNAK rafgeymar í úrvali S M Y R I L L, Ármúla 7 — sími 84450. Feröafolk - Ferðafólk Heitur matur í hádeginu og á kvöldin. Grill-réttir — kaffi og smurt brauð allan daginn. Staðarskáli, Hrútafirði.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.