Tíminn - 21.07.1970, Side 3

Tíminn - 21.07.1970, Side 3
MUÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1970. TÍMINN ■ ■ s " ' ‘ í - "' s •• ■ :::>••■■•: Ítf® ■Xv ■•:•■•:;■: •:•.■:•■::> . .... v'M’J 1 Þótt komið væri að miðnætti, beið mannfjöldi við flugstöðina á Akureyri eftir gestunum. (Tímamyndir Gunnar) MARGRÉT OG HENRIK Á AKUREYRI: FENGU GEFJUNARTEPPi Danska skipið Thala Dan, sem sérstaklega er byggt til siglinga í ís og á að flytja Margréti, Hen- rik og fylgdarlið þeirra til ’austar strandar Grænlands, kom til Ak- ureyrar upp úr miðnætti o» þeg- ar lokið var snæðingi á KEA, héldu gestirnir fótgangandi til skips. Skipið lagði úr höfn um kl. 2 á sunnudagsnóttina. TIL AD HALDA Á SÉR HITA Á GRÆNLANDI SB-Reykjavík, mánudag. Margrét krónprinsessa Dana og Henrik prins komu til Akureyrar á laugardagskvöldið og liöfðu þar rúmlega 2ja tíma viðdvöl. Eftir að hafa snætt miðnæturverð að Hótel KEA, gengu þau um borð í danska skipið „Thala Dan“ sem flutti þau áleiðis til austurstrand- ar Grænlands, sem þau ferðast um á næstunni. Klukkan var um hálf tólf, þeg- ar flugvélin ,sem kom með Mar- gréti og Hinrik frá Grænlandi, lenti á Akureyri. Upphaflega var ákveðið að þau yrðu á Akureyri daginn áður, en einhver misskiln ingur mun hafa tafið fyrir. Kalt var í veðri og prinsinn og prins- sessan voru vel klædd við kom- una, hún var í þykkri tweed-buxna dragt, með trefil um hálsinn og marglita slæðu, bundna um höfuð ið að sígaunasið. Hinrik var í frakka, hafði öllu þykkari trefil um hálsinn og loðhúfu á höfðinu. Á móti þeim á flugvellinum tóku bæjarstjóri, forseti bæjar- stjórnar, danski konsúllinn og frúr þeirra, auk mannfjölda. Lítil stúlka afhenti prinsessunni teppi frá Gefjun, til að hafa með sér í kuldann á Grænlandi. Síðan var haldið í bæinn og upp á Hótel KEA, þar sem snæddur var miðnæturverður. Danski konsúllinn, Jóhann Þorkelsson, Bjarni Einarsson, bæjarstjóri, Jón G. Sólnes, forseti bæjarstjórnar og frúr þeirra, snæddu með gest- unum. Prinsessunni var afhent gjöf vlð komuna tll Akureyrar. VATNSKOT - ÞING- VALLASVEIT Ranghermi leiðrétt í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðs- ins 19. júlí s. 1. stendur eftirfar- andi staðhæfing: „Nú hefur ís- lenzka ríkið eignazt Vatnskot“. Hér er farið. algerlega rangt með staðreyndir. Engin sala eða afhending hefur farið fram á eign um Símonar heitins Péturssonar, sem þar bjó síðast. Erfingjar hans hafa því enn allan eignar- og um- ráðarétt yfir húsi og öðruni mann-. virkjum, en ekki íslenzka ríkið Margrét og Hinrik heilsa Jóhanni Þorkelssyni konsúl Dana á Akureyri og konu hans. T. v. Bjarni Einarsson, Erfingjar Símonar í Vatnskoti. bæjarstj. og Jón G. Sólnes, forseti bæjarstjórnar. 3 AVIÐA WÆKB Nýr foringi Sjálfstæð- isflokksins kosinn í næsta mánuði Nokkur óvissa virðist ríkja innan Sjálfstæðisflokksins og utan, um hver muni taka við frambúðarforystu í flokknum eftir hið sviplega fráfall Bjarna Benediktssonar, forsætisráð- herra. Miðstjórn og þingflokk ur Sjálfstæðisflokksins héldu fund „um þau nýju viðhorf og þann mikla vanda, sem skap azt hefur vegna fráfalls for- manns Sjálfstæðisflokksins“ s. 1. föstudag skv. upplýsingum Mbl. I ritstjórnargrein Mbl. er skýrt frá efni þessa fundar með eftirfarandi orðum: „Var fundur þessi haldinn til þess að helztu ráðamenn flokksins gætu borið saman bækur sínar, en hins vegar var ekki að því stefnt, að á þeim fundi yrðu teknar neinar veiga miklar ákvarðanir, heldur var ákveðið að boða til nýg fundar fyrir miðjan ágúst.“ Varnaglar Ennfremur sagði Mbl.: „Það liggur í augum nppi, að ógerlegt er fyrir Sjálfstæðls- flokkinn að taka skyndiákvörð un um mikilvægustu flokksmál efni undir þeim kringumstæð um, sem nú er að mæta. Menn þurfa nokkurn tíma til að átta sig á aðstæðum. Hins vegar voru þegar á fyrsta degi gerð- ar nauðsynlegar ráðstafanir tfl að tryggja stjórnarforustu til bráðabirgða, þannig að ekki skapaðist vandræðaástand eða öryggisleysi á meðan menn hugsa ráð sitt og þétta raðirnar." Vísir tekur afstöðu Ritstjóri Mbl. upplýsir með þessum orðum, að ekki þyki sjálfsagt í æðstu stjórn Sjálf stæðisflokksins, að Jóhann Haf stein taki við frambúðarfor- ystu í flokknum. Þar þykja sjálfsagt fleiri koma til greina og þá líklegast fyrst og fremst Geir Hallgrímsson. En þótt vomur kunni að vera á ýmsum í Sjálfstæðisflokknum um þess ar mundir, þá er Vísir ekki f neinum vafa um niðurstöðuna og slær því föstu án þess að slá nokkra varnagla, að Jóhann Hafstein sé frambúðarforsætis- ráðherra þessarar stjórnar og framtíðarforingi Sjálfstæðisfl. Foringi í kosningum í niðurlagj ritstjórnargreinar sinnar i gær dregur ritstjóri Vísis enga dul á það, að hann stendur með Jóhanni Hafstein, sem frambúðarforingja Sjálf- stæðisflokksins, hvað sem fylg ismönnum Geirs Hallgrímsson ar og varnöglum ritstjóra Morg unblaðsins líður. Gengur rit- stjóri Vísis algjörlega fram hjá þeirri staðreynd, að þing flokkur og miðstjórn Sjálfstæð isflokksins hafa ákveðið að koma saman til fundar í næsta inánuði til ákvörðunar um málið. Orðrétt hljóðar niður iag ritstjórnargreinarinnar á þessa leið. „Við vitum bví af fenginni reynslu, að nýi forsætisráðherr ann er dugmikill hæfileikamað ur. Hans hlutverk er að veUa áfram örugga stjórnarforustu í anda Bjarna Benediktssonar, er til sigurs megi leiða í næstu kosningum." — TK. I

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.