Tíminn - 21.07.1970, Síða 5
ÞKIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1970.
TIMINN
s
MEÐ MORGUN
KAFFflNU
Tvær frúr, sín me'ð hvorn
hundinn í bandi, hittust í
skemmtigarðinutn og settust
saman á hekk og tóku tal sam-
an. Auðvitað barst talið að
hundunum.
— Á hundurinn yðar ekki
ættartré?
— Nei, hann notar bara
hvaða tró seim er.
— Heyrðu Hansen. Þegar þið
komið til okkar á sunnudags-
kvöldið, viltu þá biðja konuna
þína að vera ekki í nýja minka
pelsinam sínum. Konan mín
vill nefnilega endilega fá svo-
leiðis líka.
— Það verður erfitt, kæri
vinur. Því við erum einmitt að
koma til að sýna pelsinn.
Þegar Krag var forsætisi-áð-
herra Dana, var hann eitt sinn
að ræða við þingmann nokkurn
um að taka að sér ráðherra-
stöðu. Viðkoimandi þingmaður
vildi helzt ræða málið fyrst
við konu sína og hringdi heim.
— Hvað segirðu um að vera
gift ráðherra, elskan mín?
spurði hann.
— Það fer eftir því, hvern
þeirra þú meinar.
— Elskan, loksins crum við ein.
Jósafat forstjóri var að fara
í langt viðskiptaferðalag. ,
Maður nokkur var að bíða
eftir lyftu í smáhóteli úti á
landi. Meðan hann stóð þarna,
kom ung og falleg stúlka til
háns:
— Eruð þér kvæntur? spurði
hún.
— Ha? . . . Já, ég er það,
svaraöi maðurinn hissa.
. — Gott. Viljið þér þá gjöra
svo vel að renna lásnum upp
fyrir mig, sagði daman og
sneri ba'kinu í manninn.
— Skipstjóri, ég finn ekki
klefann minn.
—Nú, hvaða númer var það.
— Ég man það ekki, en það
var viti rétt við gluggann.
.— Ég hef ofnæmi fyrir
mink, sagði Petra við vinkonu
sína. — í hvert sinn sem ég
sé aðra konu í minkapels, verð
ég veik.
— Mundu nú að skrifa heim
annað slagið, sagði frúin, um
leið og hann fór. — Þó það
sé ekki annað en ávísun.
— Heimskulegt að baka á þess
um tíma.
DENNI
DÆMALAUSI
— Kannski þú ættir að fara
nær.
Maðurinn, sem við sjáum
i hér á myndinni, liggjandi í
' rúmi sínu, heitir Saturnino de
Lucas Gilsanez, og þetta er í
fyrsta skipti í 34 ár, sem hann
liggur í rúmi.
Saturnino var bæjarstjóri í
spánska bænum Mudrian árið
1936. þegar borgarastyrjöldin
geisaði á Spáni. Honum barst
njósn um að andstæðingar
hans ætluðu að koma honum
fyrir kattarnef, svo hann kvaddi
fjölskyldu sína og hvarf spor-
laust. Enginn nema bróðir hans
vissi, að hann fór aldrei lengra
en í niðurgrafið jarðhýsi undir
j húsgafliniím heima hjá sér, og
aC>{Áami vægi ,
löngu dáinn.
í öll þessi ár færði bróðir
ínn honum mst og dr ii þns
var á dag og í hvert sinn sem
nýr meðlimur bættisr frölskyld
unni, fékk Saturuino að sjá
hann gegnum jarðopið. Þannig
Fastir kúnnar hjá Dior í
París hafa veitt því athygli upp
á síðkastið, að búið er að
skipta um sýningarstúlkur þar.
Hafa þeir haft á orði. a'ð þær
nýju séu ekki hálft eins falleg
ar og þær sem fyrir voru.
— Þetta er alveg rétt, —
segir yfirmaður sýningardeild
arinnar, Marc Bohan. — Áður
greiddum við of fjár fyrir feg
urstu sýningarstúlkur Evrópu
— en þeim var alltaf ,,stolið“
frá okkur jafnóðum. Þær gift
ust flestar einhverjum ríkis-
bubbum, og við sátum eftir
I með sárt ennið.
Nú ráðum við aftur á móti
stúlkur, sem ekki eru alveg
jafn hættulega faliegar. en eru
auðvitað sömu kostum búnar
sem fyrirsætur.
★
Barónessa von Langendorff
notaði sitt fína nafn í fyrsta
sinn á ævinni um daginn, þegar
hún boðaði á sinn fund alla þá
* Englendinga, sem eitthvað
hafa að segja í poppheiminum.
Boðskortið var gulli slegið og
prýtt skjaldaitnerki ættarinn-
ar, svo skiljanlega fylltast. við-
takendur lotninga og skund-
uðu á vettvang.
Móttakán fór fram í einu af
íburðarmestu hótelum Lundún
arborgar, og kvaðst barónessan
ætla að kynna nýja og hæfi-
leikamikla popstjörnu —
„Diana“.
En undrun «nanna varð
mikil, er í ljós kom, að hin
apprennandi stjarna og barón-
kynntist hann 28 litlum frænk
um og frændum, sem hann sá
svo ekki aftur fyrr en þau voru
orðin fullorðin, og fékk einnig
fregnir af því, að foreldrar
hans létust og systkinin týndu
tölunni.
Það var ekki fyrr en nú fyr
ir skömmu, að bróðir Saturn
ino fékk telið hann á að koma
upp á yfirborðið til að halda
upp á 59 ára afmæli sitt í
skauti fjölskyldunnar, sem all-
an þennan tíma hafði ekki
minnsta grun um nálægð hans.
Þegar bæjarstjórinn fyrrver
andi var að því spurður. hvers
vegna hann hefði hírzt þarna
1 svo iengi, 1,411$, þess að kqma
frain', þegar borgarastyrjöld-
arbæli, sem yfirborð jarðarinn
ar er orðið? —
Já, dýrmæt er blessuð heils
an, en hvort svona mikið er á
sig leggjandi fyrir hana, er
svo aftur matsatriði.
inni lauk, svaraði hann aðeins
með því að segja, a'ð maður
gæti aldrei verið of öruggur
með sig.
— Og haldið þið kannski að
mér hefði aldrei orðið misdæg
urt, éf ég hefði búið j því pest
essan vora ein og sama mann-
eskjan. Margir urðu ógurlega
móðgaðir og gengu út, en nógu
margir urðu eftir til þess, að
nú hefur barónessan sungið
inn á sína fyrstu lp-hljóm-
plötu og auðvitað undir nafn-
inu Diana.
Maurice Chevalier, sem nú
cr orðinn 81 árs, hneykslaði
um daginn hina frönsku landa
sína með því að láta hafa eft
ir sér í blaðaviðtali að hans
heitasta ósk væri að fá að
deyja á sviðinu. Og helzt af
öllu vill hann lognast út af
meðan á beinni sjónvarpsút-
sendingu stendur. eða eins og
hann sjálfur orðar bað: —
Vegna ástar minnar á áheyr
endum og virðingar fyrir þolin
mæði þeirra gegnum árin, vil
ég vera með þeim. þegar ég
kveð þennan heim. Og þá verð
ég heldur ekki einmana síðustu
stundirnar.
Það var reyndar líka Chevali
er. sem skrifaði síðustu metsölu
bókina í Frakklandi. og þótti
hún ekki síður hneykslanleg.
Þetta eru æviminningar bess
gamla. og kallar hann bókina
„Gráhærður stráklingur" Þar
fjaliar hann meðal annars
hreinskilningslega um ástasam
band sitt við fjölda kvenna.
sem hann hefur kynnzt á langri
ævi ,.En“. segir nann. „hvert
einasta orð i bókinni er satt.
svo enginn getur sótt mig til
saka fyrir hana.“
Charles Bretaprins hefur, að
sögn, tekið Önnu systur sína til
fyrirmyndar hvað klæðaburð-
inn snertir Hann hefur undan
farið sézt í öllu litríkari og
kiæðilegri fötum en áður, og
um daginn gekk hann um me'ð
glæsilegt og næstum glanna-
legt. skræpótt bindi.
Unga fólkið að minnsta kosti
fagnaði mjög þessum fram
förum prinsins, því þótt okkur
finnist þetta ekki stórt skref
í átt til nýmóðins klæðaburðar
þykir það stórt meðal Breta,
þegar hin íhaldssama konungs
fjölskylda á í hlut.
En Adam var ekki lengi í
Paradís, því nú skammast blöð
in í Bretlandi yfir því, að prins
inn hafi verið svo taktlaus, að
láta sjá sig þrisvar me'ð þetta
margumlalaða bindi, sem hann
ber á meðfylgjandi mynd.