Tíminn - 21.07.1970, Page 14

Tíminn - 21.07.1970, Page 14
14 TIMINN ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 197«. HAFNARFJÖRÐUR Auglýsing um framhaldsdeild Fyrirhugað er að starfrækja framhaldsdeild (5. bekk) við Flensborgarskóla næsta vetur, sam- kvæmt reglugerðum frá 5. maí s.l. um framhalds- deildir við gagnfræðaskóla. Nánari upplýsingar hjá skólastjóra Flensborgar- skólans, sem gefur nánari upplýsingar. Fræðslustjórinn í Hafnarfirði. ALLT í ÚTILEGUNA Tjöld, bakpokar, vindsængur, fótboltastrigaskór með tökkum, prímusar, tjaldlugtir, svefnpokar, veiðistengur og opin og lokuð veiðihjól. — Póst- sendum. — SPORTBÆR, Bankastræti 4. Sími 18027. Auglýsing » Staða bæjarstjóra á ísafirði er laus til umsóknar. Umsóknum, ásamt upplýsingum um fyrri störf, menntun og launakröfur, sé skilað til bæjarstjórn- ar ísafjarðar fyrir 25. þ.m. Bæjarstjóm ísafjarðar. íþróltir Framhald af bls. 13 tnilli einstakra leikmanna. Þeir voru allir 2Óðir. Vörnin: Jóhannes, Ellert, Guðni og Einar — allir þessir leikmenn voru eins og brim brjótar. Og Þorbergur var hinn öruggi bakhjarl. Á miðjunni börð ust Haraldur o| Ásgeir vel — og sjaldan hefur Asgeir lei-kir betur en í þelta skipti. Það var oft unun að sjá, hvernig hann sendi knöttinn frá sér. Eyleifur var einnig góður. Og framlínan hefur sjaldan verið eins virk. Kantarnir vel nýttir — og Hermann hinn hættulegi miðherji, sem sífellt ógnaði. * Sá elzti beztur í norska liðinu. Norska liðið er skipað fremtir ungum leikmönnum ,en bezti mað ur liðsins var elzti maður þess, Trygve Bornö, fyrirliði, sem lék á miðjunni. Dugnaður hans var mikill. Þá vakti mikla athygli Egil Olsen (no. 8), sem er mjög leikinn. Per Haftorsen í markinu var einnig mjög góður. Dómari í leiknum var Thomas Wharton frá Glasgow, mikifl að vallarsýn. Leikurinn var auðdæmd ur — og slapp Wharton vel frá honum. Þó var ég ekki sammála honum, þegar hann dæmdi brot á Hermann Gunnarsson í byrjun síð ari hálfleiks. Hermann átti í höggi við miðvörð norska liðsics — og sigraði í því einvigi — og átti að- eins markvörðinn eftir, sem kom hi'aupandi út á móti honum. Sá ég ekki betur en markvörðurinn gripi í Hermann, en knötturinn gekk áfram til Guðjóns, sem skor- aði. En þá dæmdi Wharton markið af, taldi, að Hermann hefði brotið á markverðinum. En sem sé, að öðru leyti dæmdi Skotinn vel. —alf. Leit Framhald af bls. 1 við Grænland. Munu skipverjar hafa svipazt um eftir fluvélinni, en engin tilkynnimg hefur borizt um að neitt hafi fundizt. Einnig var norska flutningaskipið Bestum á svipuðum slóðum og hóf lei't. Frá Keflavíkurflugvelli héldu tvær leitarflugvélar frá Varnarliðinu, og allt síðan hafa tvær leitarflugvélar þaðan verið á lofti allan sólarhringinn og leit að. Leitinni er stjórnað frá Hali- fax en leitarsvæðinu frá íslandi og að línu, sem dregin er í suð- austur frá Hvarfi, er stjórnað frá íslandi. Flugvélar frá danska flughern- um á Grænlandi leita suður af Hvarfi og á hafinu milli Græn- lands og Ameríku leita banda- rískar og kanadískar flugvélar. Ekki er vitað til að sovézkar Veljið yður i hag • Úrsmíði er okkar fag Nivada OMEGA JUpina. PIERPOnT Magnús E. Baldvlnsson Laugavcgi 12 — Sími 22804 IAIúðar þakkir okkar og annarra vandamanna fyrir samúð við andlát og útför Sigríðar Björnsdóttur, Bjarna Benediktssonar, Benedikts Vilmundarsonar. Rut Ingólfsdóttir, Björn Bjarnason, Guörún Bjarnadóttir, Bjarni Markússon, ValgerSur Bjarnadóttlr, Vilmundur Gylfason, Anna Bjarnadóttir, Útför Katrínar Bjarnadóttur • frá Útey, verður gerð frá Miðdalskirkju, Laugardal, miðvikudaginn 22. júlí kl. 3 e. h. — Bílferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 1. Börn, tengdabörn og barnabörn. Innileg þökk fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför, Helga B. Þorkelssonar, klæðskera. Færum stéttarsystkinum hans og IÐJU, félagi verksmiðjufólks í Reykjavík innilegustu þakkir. Guðríður Sigurbjörnsdóttir, Baldur Helgason, Ingibjörg Elnarsdóttir, Kjartan Helgason Guðfinna Einarsdóttir, Einar Helgason og barnabörn. Elginmaður minn og faðir okkar, SkarphéSinn Sigvaldason er lézt 15. júlí s. I. verður jarðsunginn frá Neskirkju, miðvikudag- inn 22. júlí kl. 10.30 Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanlr. Gerður Jónsdóttir, Ingibjörg Skarphéðinsdóttir, Sigurður Skarphéðinsson, Baldur Skarphéðinsson, Þórir Skarphéðinsson. ÚTBOÐ Tilboð óskast í smíði og fullnaðarfíágang eftir- talinni húsa: 1. Póst- og símahús á EgilsstöSum, seinni áfangi. 2. Hús pósts og síma og Landsbanka íslands í Grindavík. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Símatækni- deildar, á 4. hæð í Landssímahúsinu í Reykjavík, gegn 5.000,00 króna skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 11. ágúst 1970, kl. 11 árdegis. Póst- og símamálastjórnin. TILBOÐ óskast í nokkrar fólksbifreiðir, er verða til sýnis miðvikudaginn 22. júlí 1970, kl. 1—4 e.h. 1 porti bak við skrifstofu vora, Borgartúni 7. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, Borgar- túni 7, sama dag kl. 5 e.h., að viðstöddum bjóð- endum. Réttur áskilinn til að hafna tilboðum, sem ekki teljast viðunandi. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 10140 flugvélar taki þátt í leitinni, en vitað er að sovézk skip eru á haf inu nærri Grænlandi. Um kl. 2 í dag varð vart við 4 sovézkar flugvélar fyrir norðan ísland, og flugu þær í vesturátt og þegar þær voru kotnnar vestur fyrir, sneru þær til suðurs og flugu yfir hafið milli1 íslands og Græn- lands. Ekki hefur borizt nein til- kynning um þetta flug frá Sovét- mönnum, en talið er líklegt, að þær hafi verið á leið til leitar. Brezki flugherinn tilkynnti um flugvélarnar. Sovézk yfirvöld hafa ekki beðið um neina aðstoð vegna flugvélarhvarfsins. í dag var tilkynnt um að hlutur vseri á reki á þeim slóðum sem síðast varð vart við týndu flug- vélina. Norska skipið Bestum fór á staðinn og sigldi kringum hlut- inn, sem var belgur, og tilkynnti s'kipstjórinn að hann væri ekki tilheyrandi neinni flugvél. Senni- legast hefur þetta verið þelgur, sem sendur var upp til veðurat- hugana. Veðurskipið Aifa var í Reykjavík, til viðgerðar, þegar flugvélin týndist, en fór þegar úr höfn kl. 3 í gær áleiðis vestur. Kom það á þann stað í dag, sem líklegast þykir að flugvélin hafi farizt, en var ekkert búið að finna þegar síðast til fréttist. — Veður suður og vestur af íslandi hefur verið gott til leitar, en við Grænland og suðurundir hefur verið þokusúld og leitarskilyrði slætn. 55 mínútum eftir að týnda flug vélin lagði af stað frá Keflavíkur- flugvelli, lagði sams konar flugvél upp frá sama stað og fór vestur um haf. Lenti hún í Halifax á til- settum tíma og varð flugstjórinn á þeirri vél aldrei var við týndu flugvélina. Á föstudag og laugardag rufu tvær sovézkar flugvélar lofthelgi Svíþjóðar. Þar hafa 64 flugvélar fengið leyfi til að fljúga á ákveðn um stað yfir landið áleiðis til Perú, eða þær söimu, sem leyfi hafa fengið til að millilenda á íslandi. Talið er víst að önnur þeirra véla sem rauf lofthelgina hafi verið sú sem nú er týnd. Vélarnar flugu af þeirri leið sem leyfið var gefið fyrir ^ og yfir sænskt hernaðarsvæði. í báðum tilfellunum voru sænskar orustu- þotur sendar á loft til að fylgjast með sovézku flugvélunum og koma þeim á rétta braut. Sænsk yfirvöld hafa mótmælt athæfinu við sovézka sendiráðið í Stokk- hólmi. Leitinni að týndu flugvélinni verður haldið áfram, bæði úr lofti og af sjó. r Islendingur Framhald af bls. 1. áhöfnin, 27 menn, til Kanarf- eyja. Hið eina, sem kom fyrir far þega og áhöfn, var að einn far þegi fingurbrotnaði og miðaldra ítölsk kona fékk taugaáfall. Allar tilraunir til að slökkva eldinn í skipinu mistókust, og sökk það bví um hádegisbilið í dag. STIMPLAGERD FÉLAGSPRENTSMIÐJUNNAR

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.