Tíminn - 22.07.1970, Blaðsíða 16
Mrevlkudagurinn 22. júií 1970
í kappi við Jónas Svafár! - Sjá bls. 8
íslenzku fulltrúarnlr, sem sóttu Helmsþing æskunnar. F. v. Baldur GuSiaugsson, Ólafur R. inarsson, SigríSur
HlíSar Gunnarsdóttir, Páll Bragi Kristjánsson og Atli Freyr GuSmundsson. (Tímamynd: GE)
Heimsþing æskumwr var
hávaSasamt en gagnlegt
íslenzka sendinefndin komin heim.
SB-Reykjavík, þriSjudag.
Heimsþingi æskunnar i New
York lauk á laugardagsmorguninn,
eftir slíkan ófrið og laeti, að ann-
að eins hefur ekki gerzt í Alls-
herjarþinginu síðan félagi Krúst-
jeff barði skónum sínum i borð-
ið. Sameinuðu þjóðirnar efndu til
þessa heimsþings (World Youth
Assembly) í tilefni 25 ára afmælis
' samtakanna og fór það fram í
aðalstöðvum S.Þ. í New York dag
ana 9.—18. júlí. Fimm islenzkir
fulltrúar sóttu þingið.
íslendingarnir, sem söttu heims-
þing æskunnar, eni þau Atli
Freyr Guðmundsson, erindreki,
Baldur Guðlaugsson, stud. jur..
Ólafur R, Einarsson, form. ÆSÍ,
Páll Bragi Kristjánsson, fulltrúi
og Sigriður Hlíðar Gunnarsdóttir,
nýstúdent. Þau.komu heim af þing-
inu um hádegi í dag og boðuðu
til fundar með fréttamönnum. Þar
kom fram sú skoðun þeirra. að
þrátt fyrir háværar deilur. léleg-
an undirbúning og fleiri ágalla
þingsins, hafi margt áunnizt og
lærdómsrík skoðanaskioti átt sér
stað
Við setningu þingsins, 9. júlí
flutti U Thant, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, ávarp, svo og
formaður 25 ára afmaelisnefndar-
innár og formaður undirbúnngs-
nefndar þingsins. Þá var kjörin
18 manna stjórnunarnefnd. I
henni áttu sæti fjórir fulltrúar
frá Asíu, Afríku, Evropu og S-
Ameríku. en tveir frá N-Ameríku.
Deilur urðu harðar um kjör fuli-
trúa Evrópu, hvort þeir ættu að
skiptast eftir pólitík eða landa-
fræði. Að endingu hlutu írland,
Rúmenía, Sovétríkin og Svíþjóð
sæti Evpópu. Syiinn Lars Thalép
var kjörinn forseti þingsins og
stjórnunarnefndarinnar. Var mjög
til þess tekið, hversu ve) honum
gekk að hafa stjórn á þessom
sundurleita og oft háværa hóoi.
einkum á lokafundinum
Eftir almennar umræður var
þinginu skipt i fjóra umræðuhópa
og fjölluðu þeir um eftirfarandi
efni: 1. Heimsfriðinn. 2. Þróun,
3. Menntun og 4. Manninn og
umhverfið. Fulltrúar höfðu frjálst
val um i hvaða nefndum þeir
störfuðu og skipti íslenzka sendi-
nefndin sér á milli allra hóp-
anna. Baldur starfaði í 1. hópn-
um, sem menn voru farnir að
kalla sin á milli „Heimsstyrjöld-
ina“ vegna ófriðarins, sem þar
ríkti. Atli Freyr og Ólafur störf-
uðu í 2. hópi, en fylgdust jafn-
framt með störfum 3. hóps. Þau
Páll Bragi og Sigríður störfuðu
í 4 hópi. Af hálfu nefndarinnar
íslenzkp vgr lögð rnest áherzla
á 2. og 4. hóp í þeirri síðar
nefndu flutti nefndin tillögu um
mengun hafsins og stofnun al-
þjóðiegrar nefndar. sem gegni því
hlutverki að safna og miðla upp-
lýsingum um orsakir og afleiðing
ar mengunar.
Hópur sá, sem um heimsfriðinn
skyldi fjalla, var nær óstarfhæf-
ur, vegna ósamkomulags, þegar
rætt var um stórveldaátökin i
heiminum, og var lokaskýrsla
hópsins afgreidd með látum eftir
margra klukkustunda þóf og hlé
á fundi. Frh. á bls. 14.
FARA I SAMÚÐAR-
VERKFALL EF
BEIÐNI BERST
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Verkfall hafnarverkamanna
í Bretlandi hefur nú staðið
í sex daga. Skortur á ýmsum
nauðsynjum er farinn að gera
vart við sig í landinu, og með
hverjum deginum sem verk-
fallið dregst á langinn þverr
fleiri vörutegundir á mark-
aði. Brezka stjórnin hefur
heimild til að gera neyðar-
ráðstafanir vegna verkfalls-
ins, eins og að láta hermenn
ferma og afferma skip, en
ekki hefur komið til þess
ennþá. Hafnarverkamenn í
mörgum löndum og einstöku
hafnarborgum í Evrópu hafa
boðað samúðarverkfall. Munu
þeir ekki vinna við að ferma
skip eða afferma, sem fara
eiga til Bretlands eða koma
frá landinu.
Hafa til dæmis hafnarvorka-
menn í Noregi og Sviþjóð lýst
yfir samúðarverkfalli. Sama er
að segja um verkamenn í Hol-
landi og í Antwerpen, sem er
stærsta hafnarborg í Belgíu. Hafn
arverkamenn á íslandi hafa ekki
enn boðað til samúðarverkfalls,
enda hefur ekki verið óskað eftir
bví.
Guðmundur J. Guðmundsson,
varaformaður Dagsbrúnar, sagði
Tímanum i dag, að ef slík beiðni
bærist mundi að sjálfsögðu orðið
MAÐUR HÆTT KOMINN
f BRENNANDI HÚSI
OÓ—Reykjavík, þriðjudag. I inn i dag er kviknaði j íbúð, sem
Fullorðinn maður var hætt kom • hann var í að Njálsgötu 4 B, sem
VELHEPPNUÐ SUMARFERÐ FRAMSÚKNAR-
FÉLAGANNA í REYKJAVÍK
EB—Reykjavfk .þriðjudag.
Á þriðja hundrað manns tóku
þátt f velheppnaðri sumarferð
Fi-amsóknarfélaganna í Reykja
vik. sem farin var síðast liðinn
sunnudag. Var farið austur um
sveitir og víða við ,komið í
sólskininu og blíðunni.
Lagt var af stað úr borginni
um áttaleytið á sunnudagsmorg
uninn op ekið um Hellisheiði
Stanzað var á Kambabrún t
hálftima. en síðan ekið um
Selfoss. austur yfir Þjórsá. aust
ur Holt og upp Landssveit í
Galtalækjarskóg, þar sem num-
ið var staðar og matazt. Skýrði
Sigurjón Pálsson bóndi i Galta
læk mjög vel frá staðháttum
bar og sagði einnig mjög
skemmtilega og ítarlega frá því
fræga Heklugosi. Síðan var ek
ið að Hekluhrauni og litazt þar
um, og bá að Hiálparfossi en
ekki var beint fagurt þar um
að litast, því a^ allt var þar
svart af ösku. Var svo ekið
að nýja félagsheimilinu beirra
Gnúpverja í Árnesi, og eftir
skamma viðdvöl bar var ekið
að Skálholti bar sem listakona
lék á orgel fyrir ferðahópinn
og var svo kirkjan í Skálholti
skoðuð.
Þá var ekið upp hjá Mosfelli
að Laugarvatni og um Laugar
dalsvelli þar sem numið var
staðar. Voru gömul hjón með
í ferðinni, sem eitt sinn höfðu
búið í helli þar os skýrðu þau
mjög vel og skemmtilega frá
búskap sínum bar en í hellin
um eignuðust bau tvö börn
Síðan var ekið um Gjábakka
hraun til Þingvalla oa eftir við
dvöl bar var ekið um Mos
fellsheiði til Reykjavikur bar
sem bessari velheppnuðu sum
arferð lauk um hálf ellefu leyt
ið um kvöldið
við henni. Sagði hann að venjan
væri að alþjóðasambönd bæru
fram slíkar beiðnir, eða til dæm
is í þessu tilfelli flutningasamband
ið brezka, og mundi þá að öllum
líkindum skrifa til Alþýðusam-
bandsins, eða jafnvel einstakra fé-
laga. Guðmundur sagði, að ís-
lenzkir verkamenn hefðu leitað
til brezka flutningamannasam-
bandsins með samúðaraðgerðir og
þeir bragðizt mjög vel við og
stöðvað vinnu við skip að okkar
beiðni og er si'ðferðileg sky.'da
Dagsbrúnar að minnsta kosti að
verða við slíkri beiðni frá þeim
ef hún berst.
SKIPAÐUR
PRÓFESSOR
Jónatan Þórmundsson, fulltrúi
hjá saksóknara ríkisins, hefur í
dag verið skipaður prófessor í laga
deild Háskóla íslands frá 1. ágúst
n. k. að telja.
(Frétt frá menntamálaráðuneyt-
inu.)
I er tvílyft timburhús. Kl. rúmlega
þrjú var slökkviliðinu tilkynnt um
I eld í húsinu. Var mikill eldur á
efri hæðinni þegar komið var að-
Þegar slökkviliðið var nýkomið á
staðinn, bar þar að mann, sem
bjó 1 íbúðinni og sagði hann
slökkviliðsmönnum að hann væri
hræddur um að faðir hans væri
inni í íbúðinni.
Tveir slökkviliðsmenn fóru
strax upp með reykgrímur og einn
upp í stiga utanfrá. Fannst maður
inn liggjandi á bekk i herbergi
því, þar sem sonur hans sagði til
hans Var maðurinn meðvitundar
’aus. Var hann begar fluttur á
slysavarðstofuna og var enn með
vitundarlaus um kl 7 í kvöld,
þriðjudagskvö.’d, Maðurinn var
ekkert brunninn, en í herbergi
hans var mikill reykur.
Slökkvistarfið tók nær tvær
klukkustundir Urðu miklar
skemmdir á efri hæðinni af eldi
og af vatni á þeirri neðri og eins
1 kjallara
A efri hæðinni voru ekki aðrir
íbúar heima við en fullorðni mað
urinn
UMRÆÐU-
FUNDUR UM
STEFNUSKRÁ
S.U.F.
Annar umræðufundurinn Utt
stefnuskrá SUF verður haldinn
að Hringbraut 30 i kvöld kl-
20,30. Fundi' þessir eru liður
í undirbúningi stefnumörkunar
á væntanlegu þingi ungra
Framsóknarmanna. Á fundin-
um í kvöld verður sérstaklega
fjallað um stiórnkerfið, fjölda
hreyfingar (m.a. samvinnu-
hreyfingu og verkalýðshreyf-
ingui og lýðræði. Fundurinn
er öllum opinn og eru ungir
Framsóknarmenn sérstaklega
hvattir til af koma.