Tíminn - 06.08.1970, Qupperneq 2
TIMINN
fimmtudagur e. &g&at iot*
in
lil
lllf
ISvartá f sókn
— Við fengum 27 laxa í veiði-
ítúrnum, og einn var 24 pund, sem
er örugglega stærsti laxinn, er
Veiðzt hefur í ánni svo menn muna,
-sagði fengsæll laxveiðimaður
'Ásgrímur Agnarsson þegar hann
leit inn til okkar í dag. Ásgrímur
kom úr veiðitúr við Svartá á sunnu-
daginn, og var hann að veiða í
ánni frá 30. s.l. fram á sunnudag.
— Þegar ég kom norður til
Blönduóss, sagði einn góður mað-
ur við mig að ekkert þýddi fyrir
‘mig, að fara til veiða í Svart^,
■æt.'aði ég mér að veiða á annað
borð. En ég hafði trú á ánni, fór
þangað og veiddi satt að segja
iirmn meira en ég hafði búizt við.
Eg hef verið við laxveiði mörg
.íumur og veitt í mörgum ám.
Finnst mér Svartá vera skemmti-
legasta laxveiðiáin, sem ég hef
•veitt í. að Víðidalsá undan skilinni.
‘Aðstaða við veiðar í ánni er góð,
’t.d. er nú búið að koma upp ágætu
veiðihúsi þar. Nokkuð hefur verið
'gestkvæmt þar undanfarið, og því
talsvert ónæðisamt fyrir veiðimenn
er dvelja í húsinu. Frúin í Finns-
tungu er ráðskona þarna og er
hún mjög góð ráðskona að mínu
áliti.
— Hvað um stærð þeirra laxa
sem þið fétagar veiddu?
— Yfirleitt voru þeir 6—10
punda- Sá minnsti þriggja punda,
SpegiISinn
kominn út
Ágústhefti Spegilsins er kom-
ið út. Af efni blaðsins má nefna
Lausnarorðið frá okkur Ebba, Vel
sæmi, kvæði, smáauglýsingar,
Krónukreist h.f. Úr gömtutn
Spegli, Nýja flatarmálsfræðin,
Tónlistarunnandi á listahátíð,
ÍHeimscipraninni, Rakarinn minn
sagði, Á að malbika yfir fótspor
beztu sonu þjóðarinnar? Trúfrelsi
er kristið hugtak, Brauðið og
osturinn og iðnþróunarsjóður. —
Blaðið er 32 síður, skreytt fjölda
teikninga, sem eiga við efnið, eins
og til er ætlazt.
FRYSTIKISTUR
IGINS-djúpfrystirinn gerir yður kleif hagkvæmari matar-
innkaup og sparar yöur snúninga vegna matarkaupa.
Tvöfaldur þéttilisti í loki — hlífðarkantar á hornum
Ijós í loki — færanlegur é hjólum — Ijósáborð með
rofa fyrir djúpfrystingu, kuldastilli og 3 Ieiðbeining3r-
Ijósum, „gult djúpfrysting" — „grænt venjuleg frysting"
— „rautt of lág frysting". —
Stærðir Staðgr.verð Afborg.verð
145 Itr. kr. 16.138.— kr. 17.555.— i út + 5 mán.
190 Itr. kr. 19.938.^- kr. 21.530 — -f- út + 5 mán.
285 Itr. kr. 24.900,— kr. 26.934,— i út + 6 mán.
385 Itr. kr. 29.427.— kr. 31800— ! ut + 6 mán.
RAFIÐJAN
VESTURGÖTU 11 REYKJAVÍK SlM119294
en stærsti 24 pund, eins og ég
sagði áðan. Veiddum við betur á
maðkinn, en þó nokkra á flugu.
— Hvar veiðist bezt í ánni?
— Laxinn er um afla ána. Kast-
aði ég fyrst niður við Blöndu og
fékk þegar lax, þann fyrsta af þeim
níu, sem veiddust á mína stöng
þennan fyrsta veiðidag. Einnig
veiðist vel við Blóta og við árbakk-
ann þar fyrir ofan. Þá veiddi ég
þrjá laxa á horninu fyrir neðan
brú. En sem sagt, Svartá er orðin
góð laxveiðiá, hvað sem Blönduóss-
búar eða aðrir segja. — EB
Aðalfundur Framsókn-
arfélags Dalasýslu
Aðalfundur Framsóknarfélags
Dalasýslu verður haldinn að Tjam
arlundi í Saurbæ, mánudaginn 10-
ágúst, og hefst hann kl. 21. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa verð-
ur haldinn sameiginlegur fundur
hjá félögum cld •' og yngri manna
í sýslunni, og kosnir fjórir til
fimm menn á kjörlista til skoðana-
könnunar vegna framboðs við
næstu alþingiskosningar. Ennfrem-
ur fer fram kosning eins manns í
uppstillingarnefnd og kjör full-
trúa á kjördæmisþing.
Héraðsmót
í Strandasýslu
: Héraðsmót Fram-
sóknarmanna í
Strandasýslu verð
ur að Sævangi
laugardaginn 8.
ágúst og hefst
kl. 9 s.d.
Ræður og á-
vörp flytja Bjarni
Guðbjömsson, al-
þm., Már Péturs-
son, lögfr. og Steingrímur Her-
mannsson, framkv.stj.
Skemmtiatriði annast Hjálmar
Gíslason gamanleikari, og þjóð-
lagatríið „Lftið eitt“.
Hljómsveit Asgeirs Sverrissonar
leikur fyrir dansi-
Bjarni
Hljóp Nixon á
sig - eða ekki?
SB—Reykjavík, miðvikudag.
Verjendur í Manson-réttar-
hnldunum reyna nú að fá málið
fellt niður vegna ummæla Nix-
ons forséta um að Manson væri
beint eða óbeint sekur
um átta morð. Verjand-
inn, Roland Huges, segir um
ummæli forsetans, að hann
hafi misnotað æðsta embætti
landsins til að dæma málalok-
in fyrirfram. Talsmaður Hvíta
hússins viðurkennir, að orð
Nixons geti valdið misskiln-
ingi.
Það er eftirtektarvert, að
þegar Nixoxn sagði þessi ör-
lagaríku orð í ræðu sinni, stóð
dómsmálaráðherrann, Mitchell,
se«n er lögfræðingur, við hlið
hans. Ummælin vöktu sem
kunnugt er mikinn úlfaþyt um
Bandaríkin.
Reynt var með öllum ráðum,
að koma í veg fyrir, að kvið-
dómendur fréttu af þessu.
Þeim var ekki leyft að tala í
síma og blöðum var haldið fri
þeim. Þá var þeim ekið i bil-
um með gluggatjölducn frá
Ambassadorhótelinu, þar sem
þeir búa, til réttarsalarins. En
allt kom fyrir ekki. Það var
höfuðpaurinn í málinu, Oharles
Manson sjálfur, sem hafði með
sér dagblað í réttinn og dró
það þar upp. Yfir þvera forsíð-
una stóð: — Nixon segir Man-
son sekan. Við lá, að uppþot
yrði í réttarsalnum við þetta,
en kviðdómendur fullyrða, að
þetta muni ekki hafa nokkiur
minnstu áhrif á úrskurð þeirra.
Ronald Ziegler blaðafulltrúi
Hvíta hússins hefur eftir beztu
getu reynt áð afsaka orð for-
setans og að hann hafi meint,
að Manson væri álitinn sekur.
Dómsmálaráðherrann, sem
er lögfræðingur, eins og raun-
ar Nixon sjálfur, sagði, að að
sínu áliti, þyrfti forsetinn ekki
að taka til baka nokkuð af þvi,
sem hann hefði sagt. '
Steingrímur
Már
Aðalfundur
Framsóknarfélags
Borgarfjarðarsýslu
Aðalfundur
Framsóknarfé-
lags Borgarfjarð-
arsýslu verður
haldinn að Brún
í Bæjarsveit,
föstudaginn 7.
ágúst kl. 21.
Auk venju-
legra aðalfunda-
starfa mun Halldór E Sigurðsson
alþingismaður, mæta á fundinum
og flytja ræðu. Þá verður einnig
á sama stað og tíma haldinn sam-
eiginlegur fundur hjá félögum
eldri og yngri manna i sýsíunni og
kosnir fjórir til fimm menn á kjör-
lista til skoðanakönnunar vegna
framboðs við næstu alþingiskosn-
ingar., Ennfremur fer fram kosn-
ing eins manns í uppstillingarnefnd
og kjör fulltrúa á kjördæmisþimg.
Snæfellsness- og
Hnappadalssýsla
Aðalfundir Framsóknarfélag-
anna í Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýslu verða haldnir sunnudag
inn 9. ágúst næstkomandi að
Breiðabliki. Hefjast fundirnir kl.
3 eftir hádegi, Auk aðalfundar-
starfa verða valdir sameiginlega
af félögunum fjórir til fimm
menn á kjörlista til skoðanakönn
unar vegna framboðs fyrir næstu
alþingiskosningar.
FUF í Árnessýslu
Félag ungra
Framsóknarm. í
Ámessýslu held-
ur félagsfund að
Eyrarvegi 15
Serfossi fimmtu-.
daginn 6. ágúst,
er hefst kl. 21,00.
Jónatan Þor-
mundsson próf-
essor kemur i.
fundinn og ræðir málefnalegan
undirbúning 13. þings S-U.F. Einn-
ig er á dagskrá inntaka nýrra fé-.
iaga, kjör fulltrúa á 13, þing
S.U.F. á Hallormsstað 28. — 30.
ágúst, og önnur mál.
Félagar eru hvattir til að fjöi-
menna, einkum er þýðingarmik-
ið að trúnaðarmenn komi á fund-
inn.
Héraðsmót
í V-Skaft.
Framsóknarmenn
í V.-Skaft. sýshi
ha.’da héraðsmót
a@ Kirkjubæjar
klaustri laugar-
daginn 8. ágúst
og hefst það kL
9 s.d.
Ræðu flytur
Ha’ldór E. Sig-
urðsson alþm.
annast Jörundur
gamanleikari og
þjóðlagatríóið „Þrír undir sama
hatti.“
Hljómsveitin Tópas leikur fyrir
dansi.
Halldór
Skemmtiatriði
Guðmundsson,
Kennedy tekinn fyrir noíkun eiturlyfja
L
NTB-Hyannis, miðvikudag.
Róbert Kennedv yngri og
R. Sargent Shriver, sonur fyrr
um ambasadors Bandaríkjanna
í París. hafa verlð handteknir
og ákærðir fyrir misnotkun
eiturlyfja. Piltarnir, sem báðir
eru 16 ára, voru í dag yfir-
heyrðir, ásamt 15 öðrum ung
lingum. Lögreglan hefur ekki
viljað láta neitt uppi um mál-
ið.
Áreiðanlegar heimildir segja,
að barna hafi verið um mari
huana að ræða Samkvæmt lög
um í Massachusetts er fjallað
um mál unglinga 16 ára og
yngri hjá sérstökum unglinga
dómstólum.
Unglingarnir voru i sumar-
leyfi i sumarbústað Kennedy-
fjölskyldunnar við Hyannis
Port, þegar bau voru hand-
tekin.
Sargent Shriver, sem var til
skamms tíma ambassador í
París. er nú á kosningaferða-
lagi um Bandarikin.
Robert Kcnnedy yngri, er
næstelztur af 11 börnum Ro-
berts Kennedy, sem myrtur var
í júní 1968, og það barnið.
sem sagður er ljfkjast föður
sínum mest.