Tíminn - 06.08.1970, Page 13
klp-Reykjavík.
Áhugi almennings á knattspyrnu
íþróttinni hefur minnkað veru’ega
á undanförnum árum. Hvernig sem
á þvi stendur hefur þeim fækkað
verulega undanfarin ár, sem koma
til að sjá knattspyrnu, en þó sér-
staklega á síðasta ári.
Það má segja, aS það teljist til
stórtíðinda, ef vel er mætt á leiki,
sem fram fara hér í Reykjavík,
en um aðra staði á landinu vitum
við ekki glöggt.
Þar er þó aðsókn svipuð ár eft-
' ir ár, enda yfirleitt meiri áhugi úti
á landsbyggðinni fyrir að fylgjast
með sínum mönnum heldur en hér
í Reykjavík.
v
' Þó eru undantekningar á því
' og fer það mest eftir hvað lið við-
komandi bæjar er framarfega í
keppni. Ef liðinu vegnar vel, er
vel mætt á völlinn, en gangi því
ver eru aðeins þeir áhugasömustu
sem mæta.
í Reykjavík gildir önnur regla
um þetta, því að þar fer a'ðsókn
minnkandi með hverju ári og gild-
ir einu hvo"t Rey.kjavíkurfélag er
framarlega eða ekki.
Árið 1969 var aðsókn að knatt-
spyrnuleikjiim í Reykjavík 6000
manns minni en árið 1968- Seldur
var aðgangur að 80 feikjum á ár-
inu 1969, en 1968 að 75 leikjum.
Heildaraðsókn var 75.500 manns ár
ið 1969 en 81.500 árið 1968.
í ár er búizt vi'ð enn minni að-
sókn hér í Reykjavík. Þunnskipað
er í hina nýju stúku á Laugardals-
vellinum á öllum leikjum í 1.
deild til þessa, og á leiki í Reykja
víkurmótinu og í 2. deild koma
aðeins fáeinar hræður tif að
horfa á höfuðborgarpiltana leika.
Árið 1965 og 1966 náði aðsókn
að leikjum í 1. deild hámarki hér
í Reykjavík en þá var meðaltal á
leik um 1950 manns, en þess má
geta, að þá voru leiknir aukaleik-
ir. Síðan hefur aðsókn fari'ð minnk
andi ár frá ári og var s. 1. ár 1268
manns eða svipað og 1961 og 1962,
en þá voru leiknir mun færri leik
ir í 1. deifd.
Ástæðurnar fyrir þessu eru ef-
laust margar. í efsta sæti er lík-
lega sú, að leikjum hefur fjölgað
mikið og endalaust tekur fólkið
ekki við Önnur ástæða er sú, að
mörgum finnst knattspyrnan lé-
legri nú en fyrir nokkrum árum,
en um slíkt er enúalaust hægt að
deila.
Hver svo sem ástæðan er, verð-
ur stjórn KSÍ, forráðamenn knatt-
spyrnufélaganna og .'eikmennirnir
að taka höndum saman til að auka
hróður íþróttarinnar, svo að hún
falli ekki í sömu gröf og margar
aðrar, þ. e. a. s. að fara fram fyrir
Reykjavíkurmótið
Ár 1960 1961 ^962 1963
Aðsókn 7799 7810 11394 11989
Meðaltal 780 781 1036 999
Leikir 10 10 11 12
1. deildin
Ár 1960 1961 1962 1963
Meðaltal 945 1202 1208 1327
Leikir 15 15 16 15
Aukal. 1
tómum pöllum og fyrir ofan garð
og neðan hjá þorra iandsmanna.
Fyrir þá, sem gaman hafa af tö-I-
um, er hér aðsókn að ieíkjum í
Reykjavík undanfarin 10 ár og seg
ir hún meira en mörg orð og mynd
ir:
1964 1965 1966 1967 1968 1969
11195 8664 7237 5609 7103 4167
933 866 724 561 718 417
12 11 10 11 10 10
1964 1965 1966 1967 1968 1969
1140 1958 1966 1445 1205 1208
21 16 17 16 15 10
1 1 2 1
BREYTT FYRIRK0MULAG
Á BIKARKEPPNI KSÍ
B-liðin ekki með - undankeppnin svæðis-
keppni - 16 lið taka þátt í aðalkeppninni
■ klp—Reykjavík.
Annað stærsta knattspymumót
sumarsins er nú a® hefjast, en það
er Bikarkeppni KSÍ.
Keppnin er nú með öðru sniði
en venjulega, því b-lið félaganna,
sem hingað til hafa tekið þátt í
henni, og oft gert skurk í leikinn,
en þó sérstaklega b-lið • KR, fá
ekki að taka þátt í henni, og er
haldin sér bikarkeppni fyrir þau.
Sú keppni hófst snemma í sum-
ar, ea hún mun hafa farið eitt-
hvað skakkt af stað, því kærur
hafa borizt á marga leiki, þar sem
, leiMfmi hafi verið of stuttur, en
hvernig þeiim hefur lyktað vitum
við ekki um.
í aðalbikarkeppninni taka þátt
ðll a-lið 1., 2. og 3. deildarliðanna,
og er fyrirkomulagið svæðis-
keppni til að byrja með.
Leikið er í 4. riðlum, Suður-
lands-, Vesturlands-, Norðurlands-
og Austurlandsriðli. í undankeppn
inni taka þátt 2. og 3. deildarlið-
in, en 1. deildarliðin koma inn í
aðalkeppnina, þegar undankeppn-
inni er lokið, en í aðalkeppninni
taka þátt 16 lið, a.m.k. eftir leikja
bókinni að dæma.
í svæðiskeppninni taka iþátt eft-
irtalin lið:
Suðurland:
Þar eru 11 lið úr 2. og 3. deild,
og fer fyrsti leikurinn fram í
kvöld, en þá leika FH og Njarð-
vik.
Leiknar eru 3 umferðir og kom
ast 2 lið í aðalkeppnina.
Liðin, sem leika eru þessi:
Breiðablik, FH, Haukar, Þrótt-
ur, Selfoss, Ármann, Hrönn, Hvera
gerði, Freyr Stjarnan og Njarð-
vík.
• Vesturland:
Þar taka 4 lið þátt í keppn-
inni: Hörður og Vestri frá ísa-
firði og Víkingur Ólafsvík, og
Umf. Skallagrímur, Borgarfirði.
Norðurland:
Þar eru einnig 4 lið, og eru það
Leiftur, Ólafsfirði, Tindastóll,
Sauðárkróki, KS, Siglufirði og
Völsuagur, Húsavík.
»
Austurland:
í undankeppninni taka þátt a.m.
k. 8 lið, eða öll liðin, sem leika í
3. deild.
Ekki er okkur kunnugt um hve-
nær þessari keppni á að vera lok-
'ð, en aðalkeppni bikarkeppninnar
mun að öllucn líkindum hefjast
um miðjan september, eða að lok
inni keppni í 1. deild.
Jafnvel á landsleikjum er oft þunnskipað í stúkunni, eins og þessi mynd
sýnir glögglega.
7. fimmtudagsmótið í kvöid
Sjöunda fimmtudagsmót frjáls-
fþróttacnanna fer fram á Mela-
vellinum í kvöld, og hefst kl.
19.30.
Kept verður í eftirtöldum grein
uni:
Karlar, 100 m. hlaupi, 200 m.
hlaupi, 4x100 m. boðhlaupi, spjót
kasti, kringlukasti, sleggjukasti,
stangarstökki. hástökki og lang-
stökki
Konui. 100 m. hlaupi, 100 m.
grindahlaupi, 4x100 m. boðhlaupi,
hástökki og langstökki.
LANDSLEIKIR SKATTPlNDIR
- segir Albert Guðmundsson formaður KSÍ
Albert G-uðmundsson, for-
maður Knattspyrnusambands
íslands, segir í viðtali í Morg-
unblaðinu í gær, að ísland
muni taka þátt í Olympíuleikj-
unum í knattspyrnu 1972.
Þessi frétt formannsins kem-
ur nokkuð á óvart, því að fyrir
örfáum dögum hafði íþrótta-
fréttaritarar annars blaðs (ekki
stjórnarblaðs) tal af fram-
kvæmdastjóra KSÍ, og spurði
hann um þetta sama efni, en
hann svaraði því til, að engin
ákvörðun hefði enn verið tekin
um það.
f þessu viðtali í Morgunblað-
iau segir Albert cn. a.:, „Að
vegna mikillar skattpíningar
við landsleiki hérlendis stæðu
landsleikir, sem leiknir væru
hér tæpast undir kostnaði við
að senda íslehzk lið út til
keppni."
Einnig segir hann að fjár-
hagsafkoma sé erfiður Þrándur
í Götu til þess að unnt væri
að skapa þau verkefni, sem
landsliðinu væru nauðsynleg
til þess að ná settu marki, og
væri það t.d. óljóst, hvað
yrði um landsliðið og æfingar
þess á næsta vetri.
Þetta er engin ný frétt, og
hefur formaðurinn margoft
áður sagt slíkt hið sama.
Ekki er hann einn ucn þessa
skoðun, því Tíminn hefur oft
tekið þetta mál fyrir, og erum
við svo sannarlega sammála Al-
bert í þessu .
Hitt er svo annað mál, a@ Al-
bert gafst kostur á að fá leið-
réttingu á þessum málum í
borgarstjórn, þar secn hann
sitar sem fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, en þar fell hann á
prófinu, þegar borin var upp
tillaga um að lækka vallarleig-
una.
Það má því með sanni segja
að það sé munur að vera for-
maður íþróttasambandsins á
kvðldin og borgarfulltrúi á dag
imn! klp.
FIMMTUDAGUR 6. ágúst 1970
11
TiMINN
ÍÞRÓTTIR
Minnkandi aðsókn að knatt-
spyrnuleikjum í Reykjavík
Áhorfendum fækkaði um 6000 manns 1969 - búizt við enn meiri fækkun í ár