Tíminn - 08.08.1970, Blaðsíða 1
ftimtEÍ
MMVWMUBANKINH AVAXTAR SnUOFð YDMt
MEÐ HÆSTU VÖXTUM
§| SAMVINNUBANKINN
174. tbl. — Laugardagur 8. ágúst 1970. — 54. árg.
Griðasáttmáli Sovét-
ríkja og V.Þýzkalands
Karl Jónsson kaupmaður i Alföt
kemur með koffortið sitt í tjald-
búðlmar I Herjólfsdal, en koff-
ortin eru sjálfsagðir hlutir á
þjóðhátíðinni. (Tímamynd H.E.)
Söl og
reyktur
lundi
á þjóðhátíðinni
í Vestmannaeyjum
HE—Vestmannaeyjum, föstud.
Þjó'ðhátíðin í Vestmannaeyj-
um hófst í dag kiukkan tvö
með lúðrablæstri og guðsþjón
ustu, en fyrstu hátíðargestirnir
tjölduðu í Herjólfsdal í gær,
og í dag hefur verið stöðugur
straumur fólks á hátíðina, og
kemur það ýmist með Herjólfi,
eða fljúgandi með Föxum Flug-
félagsins.
í dag voru Eyjamenn í óða
önn að koma sér íyrir í
tjaldbúðum heimamanna í Herj-
ólfsdal, og þar tjalda hlið við
hlið skrifstofust.jórinn og verka
maðurinn, og hátíðarmaturinn
er yfirleitt sá sami hjá öllum
Vestmannacyingum: Reyktur
lundi, sem er hinn eiginlegi
þjóðhátíðarréttur, hangikjöt
svið og söl.
Guðni Hermansen listmálari
hefur séð um skreytinguna, og
í dag var m.a. verið að lita
tjörnina í dalnum, svo a.tlt
ætti nú saman. Á Fjósakletti
bíður óvenju stór bálköstur,
sem kveikt verður í á miðnætti
Framhalr) - bls 14
NTB-Moskvu, föstudag.
Utanríkisráðherrarnir Walter
Scheel og Andrei Gromyko, sam-
þykktu í morgun drög að gríða-
sáttmála milli Þýzkalands og
Sovétríkjanna. Stjórnir landanna
munu nú taka sáttmálann til með-
ferðar og staðfestingar. Þessi
merkisatburður gerðist í Spiridov-
höllinni eftir 35 klukkustunda
samningaviðræður, í alls 10 daga.
Samkvæmt samningnum eru báðir
aðilar skuldbundnir til að beita
ekki valdi til lausnar vandamálum
sín á milli.
Griðasáttmálinn er fyrsti áþreif
anlegi árangur þeirrar viðleitni
Willy Brandts að koma á sættum
Algjört vopnahlé
— allra herja
NTB—Washington, föstudag.
ísrael og Egyptaland hafa
samþykkt algjört vopnahlé, frá
klukkan tíu í kvöld, að ísl. tíma.
Þetta var tilkynnt samtímis í Tel
Aviv og Washington, um klukkan
hálf fimm í dag. Vopnahléð nær
til allra herja fsraels og Egypta
lands. Ekki hefur verið fylli-
lega ákveðið, hvernig fylgzt verð
ur með að vopnahléð verði ekki
rofið.
Golda Meir, forsætisráðherra
ísraels tilkynnti um vopnahléð
í útvarpi og sjónvarpi. Hún
kvaðst vona, að þetta væri fyrsta
skrefið til varanlegs friðar fyrir
botni Miðjarðarhafs, en þó væru
enn mörg ljón á veginum, og
vandamálin erfið.
William Rogers, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna tilkynnti
um vopnahléð í Washington. Hann
sagði, að tillögur Bandaríkjatn.
um frið fyrir botni Miðjarðar-
hafs hefðu verið samþykktar af
báðum aðilum styrialdarinnar og
bandaríska stjórnin vonaði, að
þessi mikilvæga ákvörðun þeirra
yrði til að greiða fyrir frekari
samningaumleitunum um frið.
Tillögur bandarísku stjórnarinn
ar um vopnhlé og samningavið-
ræður voru lagðar fram 25. júní
s.l. og síðan hafa diplomatar á
æðri stöðum og í aðalstöðvum
Sameinuðu bjóðanna verið önnum
kafnir.
Talsmaður Bandaríska utanrík-
isráðuneytisins, Robert McClosky.
sagði í kvöld, að ekki væri enn
hægt að segja. með hvaða hætti
vrði fylgzt með að vopnahléið yrði
virt.
Golda Meir lét þess einnig
getið. að ísrael hefði sambykkb
vopnahléð eftir að hafa aengið
ítarlega úr skugga um, að allt
ísraels og Egyptalands tók gildi í gærkvöldi
yrði gert, sem hægt væri til að
hindra að vopnahléð yrði misnot-
að. Hún minntist ekki á Jórdaníu,
né heldur hvernig fylgzt yrði rneð
framkvæmd vopnahlésins á víg-
stöðvunum.
við austantjaldslöndin og er einn
ig mikilvægur áfangi í að jafna
ágreiningsefni eftirstríðsáranna í
Evrópu.
Vestur-þýzka stjórnin heldur að
líkindutn fund á morgun. Vestur-
þýzkur talsmaður i Moskvu sagði
í dag, að ef stjórnin samþykkti
uppkast sáttmálans, yrði hann
sennilega formlega undirritaður
fyrir mánaðamotin.
Innihald griðasáttmálans hefur
e-kki enn verið gert opinbert, en
vitað er að hann felur í sér skuld-
bindingu um að beita ekki valdi
og einntg að reyna eftir megni
að koma á eðlilegum samskiptum
ríkjanna. Sáttmálinn felur einnig
í sér það skilyrði, að Sovétríkin,
Bretland, Frakkland og Bandarík-
in komi sér saman um framtíð
Vestur-Berlínar. Skylt sé að virða
núverandi landamæri í Evrópu,
einnig vesturlandamæri Póllands.
Þá er í samningsuppkastinu yfir-
lýsing ,þar sem báðir aðilar lýsa
sig viljuga til að efla samstarf
ríkjanna.
Vestur-þýzki talsmaðurinn sagði,
að við undirritun samningsupp-
kastsins í morgun. hefðu utanríkis
Framhald á bls. 14.
Jóhann Hafstein, forsætisráðherra, í viðtali við fréttam. UPI í Þrándheimi:
Útiloka ekki mðguleik-
ann á kosningum í haust
KJ, TK—Reykjavík, föstudag.
Á fundi forsætisráðherra Norð-
urlandanna, sem haldinn var í
Þrándheimi í gær, spurði frétta-
maður UPI í Þrándheimi Jóhann
um hugsanlegar haustkosningar á
íslandi, og svaraði forsætisráð-
herrann því til, að slíkt væri ekki
útilokað.
Jóhann Hafstein forsætisráðherra
sagði á blaðamannafundinum, sem
haldinn var að loknum for-
sætisráðherrafundinum, að ríkis-
stjirnin hefði ekki tekið ne:nar
ákvarðanir í þessum efnum. hann
taldi það sína persónnlegu skoðun,
að ekki væri útilokaður sá mögu-
leiki, að efnt yrði ti' kosninga fyrr
en ráðgert hafi verið, en sem kunn-
ugt er, þá eiga kosningar til AI-
þingis að fara fram í síðasta lagi
næsta sumar
Aðalmál forsætisráðherrafund-
arins í Þrándheimi va- anna. um-
ræður um markaðsmál, og skipt-
ust ráðherrarnir á skoðunum um
þau mál.
Það var tilkynnt í Mbl. í sl.
mánuði, ' ákveði'ð væri, að kah'a
þingflokk og miðstjórn Sjálfstæð-
isflokksins saman til fundar um
framtíðarskipan í forystu Sjálf-
■ tæðisf’okksins 'yrir miðjan ágúst.
Á þeim fundi verður væntanlegá
tekin afstaða til þess einnig,
hvort' efnt verður til alþingi«kosn-
inga í haust eða beðifl til vors.
Enn hefu'- ekki verið boðað til
þess fundar þingmanna o« mið-
stjórnarmanna Sjálfstæðisflokks-
ins svo vitað sé.
Eftir ^' eitarstjórnarkosningarn-
ar í vor kaus Alþýðuflokkurinn
fimm manna npf'-d til að gera út-
tekt á stöðu Alþýðuflokksins og
hvort halda bæri áfram stjórnar-
samstarfi við Siálfstae'ðisflokk'nn.
Nefnd þessari var falið að skila
á.'iti sínu um málið fyrir miðjan
ágústmánuð.
Áhugamenn um stjórnmál ræða
nú mjög sín á meðal möguleikann
á því að þing verði rofið og efnt
til kosniaga í október. Virðast
fleiri þeirrar skoðunar, a'ð þing-
rof sé yfirvofandi. Það verður
þó varla fyrr en um næstu helgi,
sem línur taka verulega að skýr-
ast.
Jóhann Hafstein