Tíminn - 08.08.1970, Blaðsíða 2
TÍMINN
LAUGARDAGUR 8. ágúst 13»
EFNT TIL NÝRRAR
UMBÚÐASAMKEPPNI
Vegna hins góða árangurs og
þátttöku, sem náiðst í umbúða-
samkeppni Iðnkynninggarinnar fyr
ir tveimur árum, hefur Félag ísl.
iðnrekenda ákveðið að gangast fyr
ir umbúðasamkeppni með svipuðu
sniði.
Tilgangur samkeppninnar er
eins og fyrr að auka áhuga á hag
kvæmum og söluörvandi umbúð-
um og styrkja þannig samkeppn
ishæfni íslenzkra fyrirtækja. Vegna
stækkandi markaðar íslenzkra
framleiðsluvara við inngöngu fs-
lands í EFTA og aukinnar sam-
keppni af þeim sökum er nauð-
synlegt að fslendingar standi vel
á verðinum og dragist ekki aftur
úr.
Hið mikla framboð iðnvarnings
í heiminum í dag hefur gert um-
búðir að einum þýðingarmesta
Ekkert hey verBur
selt úr Eyjafirði
ISB-Reykjavík, miðvikudag.
( Ákveðið hefur verið, að ekkert
hey verði selt að svo stöddu af
jívæði Búnaðarsambands Eyjafjarð
iar. Ástæðan mun vera sú, að víða
»í Eyjafjarðarsýslu er mikið kal á
1 túnum og útlit fyrir uppskeru-
' brest. Rannsókn fer nú fram á að-
! stöðu bænda á svæðinu.
; Búnaðarsamband Eyjafjarðar og
* oddvitar á búnaðarfélagssvæðinu
i héldu fuad 30. júlí s. 1. um ástand
og horfur í heyskaparmálum
bænda á svæðinu. Ákveðið var að
banna alfa heysölu úr héraðinu að
svo stöddu. Auk þess verði látin
fara fram rannsókn á því, hvaða
bændur innan héraðsins komi til
með að vanta hey og hverjir verði
aflögufærir. Rannsóknin mun
væntanlega standa yfir næstu vik
urnar og eru það oddvitar, hver í
sínum hreppi, sem safna gögnum
um heybirgðimar.
FORMAÐUR FRAMSÓKNAR
FLOKKSINS, ÓLAFUR
JÓHANNESSON MÆTIR Á
ÞREMUR FUNDUM Í
NORÐURLANDSKJÖRDÆMI
EYSTRA
Fundir Framsóknarflokks
, ins í NorSurlandskjördæmi
eystra verSa sem hér segir:
Mánudaginn 10. ágúst
Hótel KEA, Akureyri
Þriðjudaginn 11. ágúst
Félagsheimilið Húsavík.
Fimmtudaginn 13. ágúst Fundirnir hefjast allir
Félagsheimilið Þórshöfn. kl. 21 og eru öllum opnir.
------------------------------------
Yfirleitt 7—9 laxar á stöng
í Laxá í S-Þing.
Guðmundur J. Kristjánsson, for-
’maður Dandssambands ísl. stang-
veiðimanna, brá sér norður í land
á dögunum, og var við veiðar í
.Laxá í S-Þingeyjarsýslu 28. júlí
til 1. ágúst.
Lét hann vel af för sinni, þeg-
ar Veiðihornið náði tali af hon-
um í gærkvöldi.
— Eg veiddi alls 9 laxa þessa
fjóra daga. Fékk ég einn 17 punda
á maðk og annan 15 punda á flugu
hf gerðinni Sweep nr. 6. Einnig
veiddi ég á spón, en mest veiddi
ég þó á maðkinn. Voru laxarnir
níu sem ég veiddi 10—17 punda,
fyrir utan einn 7 punda. Það eru
12 stangir í ánni, og þessa daga
veiddist ytfirleitt samtals 7—9
laxar á stöng.
— Og hvar varstu aðallega við
veiðar í ánni?
— Ég var á neðsta svæðinu, þ.
e. i Laxármýralandi og svo á
efsta svæði, og er ég mjög ánægð-
ur með þessi svæði. Hins vegar
má geta þess að ég er ekki ánægð
ar með cniðsvæðið, þar veiðist
langminnst.
— Hvernig er áin?
— Hún er sæmilega tær núna,
hins vegar var hún gruggug eftir
þætti í nútíma vörudreifingu. Ný
efni s. s. ýmsar gerðir plastefna
hafa komið til sögunnar og valdið
allt að því byltingarkenndum fram
förum á sviði umbúðaframleiðslu.
Það hefur mikla þýðingu fyrir
hverja þá þjóð er horfir fram til
aukinnar framleiðslu og fullvinnslu
iðnvarnings að hafa vakandi auga
með þeim framförum, sem verða
á svið vörupökkunar.
Vinna við umbúðirnar verður að
grundvallast á náinni þekkingu á
þeim kröfum, sem varan gerir tit
pökkun, sem varan gerir til þeirra,
að J>ví er snertir vernd, pökkun,
flutning á markað O'g hönnun. Með
hönnun er í þessu sambandi jafnt
átt við lögun vörunnar hagkvæmni
í meðförum og notkun sem list-
rænt útlit og sölueiginleika.
Fyrirhugað er að efna til slíkr-
ar samkeppni annað hvert ár og
að umbúðir sem viðurkenningu
hljóta, verði sendar á alþjóðleg-
ar umbúðasamkeppnir t. d. Eur-
ostar.
Samkeppnin er fyrir allar gerð
ir umbúða, jafnt flutningaumbúð
ir sem sýninga- og neytendaum-
búðir og getur sérhver íslenzkur
umbúðanotandi, umbúðaframleið-
andi og sá sem hefur með hönd-
um gerð eða hönnun umbúða, tek
ið þátt í samkeppninni. Umbúð-
irnar verða að vera hannaðar í
ísiandi og hafa komið á markað
hér eða erlendis.
Allar umbúðir, sem sendar eru
til þátttöku, á að afhenda burðar-
gjaldsfrítt í þremur eint'ökum, og
skulu, ef unnt er, tvö þeirna vera
með innihaldi en eitt án innhalds.
Fyrir sérstakar gerðir umbúða
má þó veita undanþágu frá þessu
skilyrði. Umbúðirnar ásamt upp
lýsingum um nafn og heimilisfang
þátttakanda, umbúðaframleiðand-
ann, umbúðanotandann og þann,
sem séð hefur um hönnun um-
búðanna, skal senda til Félags ís-
lenzkra iðnrekenda, Lækjargötu
12, IV. hæð, Reykrjavík fyrir 1.
október 1970.
Sérstök dómnefnd hefur verið
skipuð til að meta þær umbúðir
sem berast og er hún skipuð eft
irtöldum aðilum:
Stefán Snæbjörnsson húsg.arkit.
frá Iðnaðarmálast. íslands, Rafn
Hafnfjörð framkv.stj. frá Félagi
fsl. iðnrekenda, Kristján Þor-
valdsson framkv.stj. frá Félagi
ísl. stórkaupmanna. Pétur Sig-
urðsson kaupm. frá _ Kaupmanna-
samtökum fslands. Ástmar Ólafs
son teiknari frá Félagi íslenzkra
Framhald á bls. 14.
hitana í júní, og framan af júli-
mánuði var hún ákaflega gruggug.
— Er veiðin alltaf bezt í Laxár-
mýrarlandi?
— Já, það tel ég alveg öruggt,
það veiðist mjög mikið fyrir neð-
an Æðarfossa. En til gamans má
geta þess, að ég átti tal við Birgi
Steingrímsson formann Stang-
veiðifélagsins á Húsavík, og ræddi
hann um, hvað orðið hefði af öllu
því mikla magni sem gengið hafði
upp í ána. Var sannleikurinn sá,
að á meðan áin var svo gruggug
lá mikið af honum upp við Laxár
virkjunina, en fór síðan að færa
sig neðar, þegar áin varð tærari.
— EB.
Hlaut merki umbúSasamkeppnlnnar 1968. HÓLKAR UTAN UM ÁLAFOSS
HESPULOPA. HönnuSur: Gísli B. Björnsson. FramleiSandi: Plastprent hf.
Notandi: Álafoss hfy
Hiaut viSurkenningu umbúSasamkeppninnar 1968. MIÐI FYRIR GLJÁTEX
PLASTLAKK. HönnuSur: Kristján Kristjánsson. FramieiSandi: Prentverk
Odds Björnssonar. Notandi: EfnaverksmiSjan Sjöfn, hf.
Bókin ÍSLENZK FYRIRTÆKI
1969—1970 er nýkomin út á veg-
um Frjáls framtaks hf. Bókici er
407 bis. og hefur verið í undir-
búningi sl. tvö ár. Tilgangurinn
með útgáfunni er fyrst og fremst
sá að veita fyllri og Ijósari upp-
lýsingar en önnur samsvarandi rit
um íslenzk fyrirtæki, félög, stofn-
anir og starfsmenn þeirra, vöru-
umboð og þjónustu.
Bókinni er skipt í eftirfarandi
kafla: Verzlanir — Iðnfyrirtæki —
Heildverzlanir — Þjónustufyrir-
tæki, félög og stofnanir — Landið
— Umboðskrá og Vörumerkjaskrá.
ís.'enzk fyrirtæki fæst hjá út-
gefanda, Frjálsu framtaki hf. Suð-
urlandsbraut 12.
NÝ BOK KOMIN:
ÍSLENZK FYRIRTÆKI