Tíminn - 23.08.1970, Page 13

Tíminn - 23.08.1970, Page 13
I fJS T\'TT *■ E * 3 pní DTl H 1 H ! m liöJ 1U tUl oi ísJenzk knattspyriraEð, sem taka. þátt í Evrópubikarkeppn- mni í knattspymu, eru komin út á háian ís imeð því að semja við mótherja sfna um að leika bá@a Ieiki í 1. umferð keppn- innar á erlendri grund. Það er hægt að afsaka slíka samninga í ánstaka trlfellum, t.d. þegar Valsmenn komust í 2. umferð keppninnar, en þá var komið fram á vetur og ógjörlegt að leika hérlendis. Einnig má segja, að afsakanlegt sé að semja um báða leiki erlendis, ef íslenzku liðin eru sérstaklega óheppin með mótherja, þ.e.a.s. ef þeir eru frá fjarlægum lönd um og ferðakostnaður er óheyri- lega mikill. Á sínum tíma var deilt hart um það, hvort íslenzk knatt- spyrnulið ættu yfirhöfuð nokk urt erindi í Evrópubikarkeppni. Sá, sem þessar línur skrifar, var einn þeirra, sem mælti með þátttöku íslenzkra liða, fyrst og fremst af þeirri ástæðu, að með þátttöku í Evrópubikarkeppni gæfist okkur kostur á að sjá nokkur af beztu knattspyrnu- liðum heims leika á íslenzkri grund. Var það ein megin rök- semdin fyrir þátttöku okkar manna — og á það bent, a@ án þátttöku í keppninni, hefðum við ekki tækifæri á að sjá þessi frægu lið leika, þar sem þau, í öðrum tilfellum, krefðust bárra fjárupphæða fyrir að leáka, en Evrópubikarkeppnin er á jafnréttisgrundvelli — og á þeim vefctvangi verða hinir stóru að leika við litlu félögin og njóta engra forréttinda. í þessu sambandi má minna á það, að hér hafa leikið mörg heimsfræg knattspyrnulið. Næg- ir þar að nefna Liverpool, Feijenoord og Benfica, sem öll komu hingað í sambandi við Evrópubikarkeppni, og eru heimsóknir þeirra íslenzkum knattspymuunnendum ógleym- anlegar. En nú hefur orðið á stefn-u- breyting, því miður. Peninga- sjónarmiðið er nú allsráðandi. Félögin græða fjárhagslega á því að leika báða leikina ytra — og virðast láta sig litlu skipta, hvort þau fá 10—20 marka flengingu, aðeins ef þau fá pen- inga fyrir. Minnir þetta óneitan lega á þá atvinnugrein kveona, sem Jengst hefur lifað í manií- kynssögunni, og er heldur slæm ur vitnisburður fyrir íslenzka knattspyrnu, ekki sízt á timum, sem landsliðið er að rétta úr kútnum og skapa íslenzkri knatt spyrnu veglegri sess en verið hefur. Á þá að láta einstök fé- lagslið rífa það niður? Tvö utanbæjarfélög hafa nú tekið þann kost að semja við mótherja sína um að leika báða leikina erlendis, Akureyri og Akranes. Þar á undan hafa KR og Valur leikið þennan leik. Vafalaust óttast þessi félög f jár- hagslegt tap, leiki þau annan leikinn heima, og það skal fús- lega viðurkennt, að eins og sak- ir standa, þá eru íþrótt/isam- skipti við útlönd óhagstæð, m.a. vegna ranglátrar vallarleigu, en á meðan svo er, verður að taka áhættuna — eða láta það vera að taka þátt í Evrópubikar- keppni. Peningar skipta miklu máli, en félögin mega ekki gleyma tryggustu stuðnings- mönnum sínum, áhorfendunum, sem gjarnan vilja sjá sterkustu lið sín í keppni við beztu lið Evrópu. Ef til vill er ekki rétt, að stjórn Knattspyrnusambandsins skipti sér af þessu máli. Fyrr eða síðar mun Evrópusamband knattspyrnumanna setja rautt ASAHI PENTAX myndavélar auðvelda fleirum að taka beiri myndir. iH M ASAHi PENTAX FÓTÓHÚSIÐ BANKASTRÆTI SÍMI 2-15-56 ^ ASAHI & PENTAX Utanmál: 24,6x17,5x17,4 cm. Þetta er nýi, hvíti 12 volta 53 amp SÖNNAK- rafgeymirinn I VW, Ope) o.fl nýja þýzka bfla. Fjölbreytt árval SÖNNAK-rafgejrma ávallt fyrir- liggjandi. SMYRILL, Ármúla 7. — Simi 84450. SERVERZLUN Til sölu er sérverzkm á góðum stað' í MIÐBÆNUM Upplýsingar í síma 16205. Ijós á þátttöku íslenzkra liða,’ og gæti það orðið afdrifaríkt. Hins vegar væri það ekki óeðli- legt, að stjórn Knattspyrnusam- bandsins setti það sem skilyrði fyrir þátttöku íslenzkra liða, að þau iéku annan leikinn heima. Að öðrum kosti yr@i öðrum lið- um gefinn kostur á þátttöku. — alf. <H> VELJUM ÍSLENZKT ÍSLENZKAN IÐNAÐ VELJUM punlal OFNA Lengið sumarið Tvær skemmtiferðir meS m/s Gullfossi til meginlands Evrópu Fyrri ferð: 30. sept. til 19. okt. Seinni ferð: 21. okt. til 9. nóv. Ferðizt ódýrt - Ferðizt með Gullfossi Reykjavík, Dublin, Reykjavík, Leith, Amsterdam, Amsterdam, Hamborg, Hamborg, Kaupmannahöfn, Kaupmannahöfn, Leith. Leith, Thorshavn. Allar nánari upplýsingar veitir: FARÞEGADEILD EIMSKIPS, SÍMI 21460 H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.