Tíminn - 09.09.1970, Blaðsíða 6

Tíminn - 09.09.1970, Blaðsíða 6
* TÍMINN MIÐVIKUDAGUR 9. september 1970 Greinargerð stjórnar Laxárar kjunar vegna vatnsmiðlunar Laxárvirkjunar við Mývatn Vegma þess atburðar er varð þegar stífla Laxárvirkjunar í Miiðkvísl var eyðiÆgð og vegna ýmissa fuUyrðinga Mývetninga og fleiri urn miðlunarmaimvirki Laxárvirkjunar við Mývatn, þá sér stjórn Laxárvirkjunar á- stæðu til að gera nokkra grein fyrir þessum málum og sam- skiptum henoar við landeig- endur á þessu svæði. Vegna þeirra miklu rennslis- truf’ana, sem urðu í Laxá á vetrum, sérstaklega þó við úr- rennsli árinnar úr Mývatni, og þeirra miklu truflana, sem þar af leiðandi urðu á raforkufram ieiðslu virkjananna viið Laxá, þá var eftir ítarlegar athugan- ir talið nauðsynlegt tL’ úrbóta, að gera þær stíflur í hinum 3 kvíslum Laxár, sem þar hafa staðið, sú fyrsta frá árinu 1946 og hinar frá árunum 1960 og 1961. Þessar framkvæmdix hafa al gjörlega komið í veg fyrir þær aivarlegu truflanir, sem þarna arðu, stundum oft á hverjum vetri. FullyrSingar um ólögmæti þessara framkvæmda. Stiflan í Syðstukvísl, sem er f landi Haganes, var gerð árið 1946, og með fullu samþykki bóndans þar, Stefáns Helgason- ar, og yfirlýstu hlutleysi hrepps nefndar Skútustaðahrepps um byggingu stíflunnar. Þann 10. ágúst 1953, leyfði Atvinnumáiiaráðuneytið eftirfar- andi framkvæmdir: 1. Geirastaðakvíslin verði dýpk uð og í hana sett stífta með lokum, sern hleypa má vatn- inu um, þegar þörf gerist. 2. Reyinist þessi ráðstöfun ekki nægileg verði „Breiðan" fyrir ofan kvíslina dýpkuð, annað hvort alla leið frá kvíslinni og upp fyrir „Rif- ið“ eða þá á hluta af þess- ari leið. 3. Framkvæmd verði dýpkun og hreinsun við sjálft „Rif- ið“. Liður 1 var framkvæmdur og hófust framkvæmdir árið 1953, en stöðvuðust þá vegna fjár- skorts, en hófust síðan aftur sumarið 1956 og var þeim end- anlega lokið 1960. Þann 5. júlí 1960 veitir Land- búnaðarráðuneyfið leyfi fyrir eftirfarandi framkvæmdum: 1. Stífla í Miðkvísi’ með sii- ungastiga. 2. Stíflur í tvo hliðarfarvegi Syðstu-kvísl'ar. 3. Lagfæring árfarvegs móts við Getdingaey. Ráðuneytið gerði þá kröfu að við mannvirki þessi verði gerð- ar þær ráðstafanir til trygging- ar eðlilegri fiskigöngu, sem veiðiimálastjóri telur fuflnægj- andi, og var það gert. Framkvæmdum þessum var lokið 1961. Samskipti við bændur. Bætur til Stefáns Helgasonar bónda í Haganesi vegna stífl- unnar í Syðstu-kvísl og Stefáns Sigurðssooar bónda á Geira- stöðum vegna stiflunnar í Ge:ra staðakvísl voru greiddar eftir mati, og v-arð enginn ágreining- ur þar um. Þann 19. júní 1960 skrifar Kristján Benediktsson, Arnar- vatni, stjóm Laxárvirkjunar bréf þar sem hann fer fram á kr. 10.000,00 í bætur vegna tjóns, sem hann tefur að orðið hafi á silungsklaki, en það stundaði hann um 10 ára tíma- bil. Þann 21. júní 1960 skrifa á- búendur Arnarvatns stjórn Lax- árvirkjunar bréf þar sem farið er fram á við Laxárvirkjun að endurbyggðar verði gamlar brýr yfir í Geldingaey, þó þannig að þær verði færar dráttarvé! -íeð vagni og séu þetta bætur fy 'r tjón og óþægindi, sem þeir tel... sig hafa orðið fyrir af völdum Laxárvirkjunar á undanförnum 14 árum. Þann 18. júlí 1960, samþykkir stjórn Laxárvirkjunar eftirfar- andi: „Stjórnin heimilar fram- kvæmdastjóra að semja við Arn arvatnsbændur á þeim grund- veli að gengið verði að kröfum þeirra um endurbyggingu brúnna á Syðstukvísl og um bætur vegna tjóns á klaki, hvort tveggja með því skilyhði að landeigendur torveldi á engan hátt fyrirhugaðar framkvæmdir og að hugsanlegt tjón þeirra vegna fari eftir mati eftirá." Voru þessar kröfur Amar- vatnsbænda síðan uppfylltar. Þann 22. júlí 1960, var haid- inn í vinnuskái’a Laxárvirkjunar að Geirastöðum, fundur stjóm- ar Laxárvirkjunar með landeig- endum við Mývatnsósa og hreppsnefnd Skútustaðahrepps. Tilefni fundarins var að leita samkomulags um framkvæmdir þær sem þá stóðu yfir og fyrir- hugaðar voru til að tryggja stöðugt rennsli Laxár. Þar gerði Eysteimn Eigurðsson þá kröfu að gengið yrði frá bótakröfum Arnarvatnsbænda og fram- kvæmdum við endurbyggingu brunna á Syðstukvísl lokið áður en samið yrði um áframhaid- andi framkvæmdir við Miðkvísl, eða þær gerðar. Vegna þessa var því lýst yfir af hálfu stjórnar Laxárvirkjun- ar að ekki verði frekar aðhafzt við stíflun Miðkvíslar fyrr en brýrnar á Syðstukvís!- hafi ver- ið endurbyggðar og unnt verði að hleypa vatni í Geirastaða- kvísl. Eftir kröfu landeigenda var samkomulag um það miili þeirra og stjórnar Laxárvirkj- unar, að lögskipaðir matsmenn verði til staðar, þegar alð þvi komi að Miðvísl verði stífluð, ti! athugunar á silungsgengd. Á fundinum gerði ennfremur Jón Gauti Pétunsson, oddviti, grein fyrir kröfum hreppsnefnd ar og landeigenda, en stjórn Laxárvirkjunar lýsti því yfir, að hún myndi taka kröfumar til athugunar, en frestaði að taka afstöðu tí! þeirra. Stjórn Laxárvirkjunar sendi síiðan kröfurnar til umsagnar raforkumá.'astjóra, og að feng- inni umsögn hans var samþykkt á fundi 30. ágúst 1960 að hafna kröfunum sem heild, en skylt er að taka fram, að þá þegar hafði stjórn Laxárvirkjunar orðið við kröfum Arnarvatns- bænda um bætúr og einnig hafði Stefán Sigurðsson á Geirar stöðum fengið sínum kröfum framgengt, eins og áður segir. Stjóm Laxárvirkjunar var þeirrar skoðunar, að tjónbætur umfram það, sem þá þegar hafði verið samið um vegna framkvæmda vdð Mývatn, skyldu ákvarðaðar af dómkvödd um matsmönnum. Tveir menn voru dómkvaddir af sýslumanninum á Húsavík ti! þess að meta hvert tjón hefði orðið vegna þessara fram- kvæmda Laxárvirkjwnar og voru það þeir Ami Jónsson, núv. landnámsstjóri og Bjart- mar Guðmundsson, alþm. Var hér fyrst og fremst um hugsanlega rýrnun á silungs- veiði að ræða. Samkvæmt upp- lýsingum annars ofanritaðra matsmanna var tvívegis óskað eftir uppi’ýsingum frá ábúend- um á þessu svæði um tjón það, sem þeir töldu að þeir hefðu orðið fyrir, en i bæði skiptin óskuðu þeir eftir frestun á mál- inu. Gerðist síðan ekkert í mál- inu fyrr en bréf dags. 18. maí 1970, berst frá Eysteini Sigurðs syni, formanni nýstofnaðs Veiði- félags Laxár og Krákár, þar sem farið er fram á að Laxár- virkjun leggi til silungaseyði, sem bætur fyrir tjón það á veiði, sem félagið taldi að hefði orðið. Ennfremur var farið fram á að Laxárvirkjun kostaði gerð laxastiga meðfram virkjun- um þeim sem nú eru, og gerðar verði, í Laxá við Brúar. Var jafnframt spurzt fyrir um það í bréfinu hvort stjórn Laxár- virkjunar væri til viðræðu um þessi atriði. Stjórn Laxárvirkjunar svar- aði með bréfi 11. júní 1970 og tL’kynnti að hún væri fús til viðræðna við veiðifélagið. Þessi bréfaskipti háfa nýver- ið verið birt í blöðum, og v ða því ekki rakin hér, en af þeim má Ijóst vera, að það hefur ekki staðið á Laxárvirkju-ar- stjórn að semja um þessi mál. Og þótt matsmenn hafi ekki skil að áliti í öllum tilfeRum, er ekki við Laxárvirkjunarstjórn að sakast þess vegna, heldui bændur sjálfa og verði aganna En allar bætur. sem ssmió hefur verið um eða matsmenr hafa úrskurðað vegna mann- Barna- og unglingaskólinn á Vatnsleysuströnd verður settur við helgiathöfn í Kálfatiarnarkirkju, sunnudaginn 13. sept. kl. 2 síðdegis. Skólastjóri. Tilboð óskast ■ Volvo Amazon, árgerð 1966, í núverandi ástandi eftir árekstur. Bifreiðin verður til sýnis í bifreiðaverkstæðinu Armi, Skeifunni 5, Reykjavík, í dag og á morgun. Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga, Tjóna- deild, Ármúla 3, Reykjavík, fyrir kl. 12 á hádegi föstudaginn 11. september 1970. Leiguhúsnæði óskast 600—800 fermetra húsnæði á jarðhæð óskast til leigu. Má vera óupphitað. Leigutími frá miðj- um september n.k. 1 4—5 mánuði Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins fyrir næstk. föstudag, merkt: „1099“. Trésmiðir óskast nú þegar- Uppmælingavinna. Löng vinna. BREIÐHOLT, Lágmúla 9, Reykjavík. Sími 81550. Verkamenn óskast nú þegar. — Löng vinna. BREIÐHOLT, Lágmúla 9, Reykjavík. Sími 81550. ÚTBOÐ Tilboð óskast um sölu á stálmöstrum fyrir flóð- lýsingu á íþróttavelli. Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 13. okt. n.k. kl. 11,00 f.h. innkaupastofnun reykiavíkukborgar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.