Tíminn - 09.09.1970, Síða 7
SHÐVIKUDAGUR 9. september 197«.
TIMINN
virkjanna við Mývatnsósa, hef-
ir Laxárvirkjun u'msvifa'aust
greitt og það er fyrst með bréfi
dajgs. 31. 7. 1970 sem nýjar
kröfur landeigenda eru sendiar
Laxárvirkjun og getur enginn
aetlast -til þess að milljónakröf
ur séu samsbundis afgreiddar
enda einnig til athug-unar hjá
himum dómkvöddu matsmönn-
um.
Al-drei hefir v-erið eftir því
leitað að þessi m-annvirki, eða
hl-uti þeirra yrði fjarlaegður og
það hafa he.’dur ekki borizt til-
mæli til stjórnar Laxárvirkjun-
ar um viðræður til þ«ss að fiinna
lausn á þeim erfiðleikum á
göngu urriða miili vatns og ár,
se-m bændur telja að skapazt
hafi vegna þessara fram-
kvæmda. Þa-ð má hinsvegar
skýra f-rá þvi, að framkvæmda
stjóri Laxárvirkj-unar fór,
nokkru eftir að han-n tók við
starfi, austur aið Mývatni og
kynnti sér, ásamt eftirlits-
mönnum Laxárvirkjun-ar með
þessum mannvirkjum, þeim
Finnþoga Stefánssyni, þá bónda
á Geirastöðum og ívari Stefáms-
syni, bónda í Haga-nesi, þessar
framkvæmdir og áhrif þeirra á
fiskigengd milíi vatns og ár.
I>ar sem veiðimálastjóri va-r
þá væntanlegur sköm-mu síðar
til Mývatns þá varð að sam-
komulagi að áðurnefndir bænd-
ur ræddu þessi mál við ha-nn og
óskuð-u tillagn-a til úrbóta, en
um fleiri ’eiðir virðist þarm-a
vera að ræða, og var það gert.
Því miður komu ekki tillög-
ur frá veiði-málastjóra tii úr-
bóta, en eins og tekið var fram
við áðurnefnda bæ-ndur, þá var
því lýst yfir að ekki mumdi
stamd-a á Laxárvirbjun að fram-
kvæm-a þær aðgerðir, sem tald-
ar væru, af sérfræðingi u-m
þessi mál, I-íklegastar ti3 árang-
nrs.
0m vatnshæð Mývatns.
Allmikið hefur verið rætt
og ritað um vatnsstöðu Mý-
vatns. og hafa ýmsir haldið því
fram að bún sé n-ú önnur en
var áður en framkvæmdir þess
ar hófust, og nú í Morgunblað
inu þann 28. ágúst 1970, er
-grein eftir Kristján Þórhalls-
son, Vogum, þar sem háu vatns
borði er kennt nm litla silungs-
veiði, þverrandi fuglalif o.fl. —
Veg-na þessara skrifa vill stjórn
Laxárvirkjunar gera grein fyr-
ir þessu atriði:
Fljótt eftir að stíflan í
Syðstu-kvísl var gerð fór að
hera á óánægju bænda með
háa vatnsstöðu, sérstaklega
voru það þeir bændur er
bjuggu norðan og austan við
vatnið, og með bréfi dags. 31.
sept. 1952 er kvartað yfir of
hárri vatnsstöðu og farið frarn
á að vatnið verði lækkað í 47
cm. á mælikvarða þei-m sem
við vatnið er.
Á fundum Laxárvirkjunar-
stjómar, bæði 1952 oð 1953 er
bókað að Mývetningar geti
sjálfir ráðið vatnsstöðunni og
vatnsrennsli, að því tilskyldu.
að vélar virkjunarinar fái nægj
anlegt vatn og komizt verði hjá
að gera Mývetningum búsifjar.
Stjón Laxárvir-kjunar benti
eðlilega á ,að hún hefði engan
áhuga á að ákveða eitt eða
neitt um vatnsborðshæð Mý-
vatns. Það ættu Mývetningar
sjálfir að gera, en enn mun
þeim hafa gengið illa að ná
samkomulagi þar um.
Þann 14. marz 1954, skrifar
Sigf-ús Hallgrímsson, Vogum,
Sig-urjóni Rist bréf þar sem
han kvartar um háa vatnsstöðu
og óskar umsagnar hans. Þessu
bréfi svaraði Raforkumálaskrif
stofan og sendi stjórn Laxár-
virkj-unar afrit af því svari,
ásamt bréfi Sigfúsar.
Á fundi stjórnar Laxárvirkj
unar dags. 30. marz 1954 var
gerö svofelld bókun:
„Ástæðan fyrir umkvörtun-
um þeim, sem fram hafa komið
virðist stafa af ósamkomulagi
milli Mývetninga um hvernig
haga skuli vatnshæð Mývatns,
en stjórn Laxárvirkjun-ar vill
ekki blanda sér í þær deilur.
Geti Mýv-etni-ngar komið því
svo fyrir að til vertði ákveði-nn
aðili sem hafi vald ti-1 að segja
fyrir u-m hver vatnshæðiin skuli
vera, þá er virkjunarstjóra fús
til þess að leggja fyrir eftirfits-
rnann virkjunarinn-ar að hag-a
vatnshæðinni eftir fyrirmælum
þessa aðila á umræddum tím-um
árs, en meðan enginm slíkur að-
ili er til gebur stjórnin ekki ann
að en lagt fyrir eftirlitsmanninn,
eins og hún þegar hefir gert, að
hald-a vatnshæðinni sem fíkastri
því, sem hún hafði verið áður,
á v-iðkomandi árstímum."
Þann 1. ágúst 1954 skrifa
ábúendur við Mývatn stjórn
Laxárvirkjunar bréf, þar sem
skýrt er frá því að nefnd sú,
sem þeir kusu til þess að
kanna hver hin raunverulega
vatnshæð Mývatns hefði verið
áður en stíflan í Syðstukvísl
var gerð, hefði komizt að þeirri
niðurstöðu að hin náttúrlega
staða Mývatns hefði verið 40
—45 cm. á mælikvarðanum, þó
nær 40 cm., og þann 11. ágúst
1954 er á fundi stjórnar Laxár-
virkjunar rædd niðurstaða
þeirrar nefndar er Mývetningar
kusu til þess að komast að
raun um náttúrlega vatnsstöðu
Mývatns.
Stjórn Laxárvirkjunar sam-
þykkxr eftirfarandi:
„Þar sem Mývetningar hafa
nú -kosið nefnd til þess, meðal
annars að „kveða nánar á um
vatnsstöðuna", samþykkir
stjórn Laxárvkkjunarinnar að
fela eftirlitsmanni virkjunar-
innar við Mývatn að haga vatns
hæð í Mývatni í sa-mráði við
nefnd þessa á tímabilinu frá
1. maí til 1. okt., enda beri þá
nefndin ábyrgð á vatnshæðinni
gagnvart Mývetnin-gum. Sam-
þykkt að senda Stefáni Helga-
syni í Haganesi afrit af f-undar-
samþykkt þessari".
Frá þessuir tíma er fullt
samráð haft við ábúendur við
Mývatn um vatnshæðina og
munnlegt samþykki þeirra fyrir
því að fara mætti upp í 60 cm.
á mælikvarðanum í byrjun
vetrar og jafnvel hækka frek-
ar eftir að vatnið væri orðið
ísilagt. Þó voru ekki allir sam-
mála um þetta. Vatnssveiflur
hafa verið mjög litlar síðan
miðlunarmannvirkin tóku til
stai'fa og munu vatnsborðs-
breytingar ekki að jafnaði hafa
verið meiri en um 20 cm.
Þann 26.4. 1969 skrifar for-
maður Veiðifélags Mývatns,
Dagbjartur Sigurðsson, Álfta-
gerði, eftirfarandi bréf:
Hr. rafveitustjóri!
Til skam-ms tíma hef-ur hér
ekki verið -neinn sameiginleg-
ur málsvari fyrir alla iandeig-
endur við Mývatn. Nú hefur
verið ráðin bót á þessu. f Veiði
félagi Mývatns eru allir þeir
sem land eiga að Mývatni.
Stjórn Veiðifélagsins hefur ver
ið falið að gæta hagsmuna
félagsmanna viðvíkjandi yfir-
borðsvatnshæð Mývatns. Óeðli-
leg vatnsstaða í Mý\Tatni getur
haft alvarlegan skaða í för
með sér, bæði hækkun og
lækkun, sérstaklega lækkun.
Vatnsstaðan var svo lág á s.l.
vetri að slfkt má ekki koma
fyrir aftur. Við höfum eins og
aðrir raf-magnsnotendur á
orkusvæði Laxárvirkjunar á-
huga á þvi að sem minnstar
truflanir verði á orkuframleiðsl
unni, og álít ég' því rétt að raf-
veitustjórn Akureyrar geri
samning við stjórn Veiðifélags
Mývatns um yfirborðshæð Mý-
vatns á hverium tíma. Vil ég
því biðja yður að koma þessu
áliti mínu til réttra aðila.
Virðingarfyllst,
Dagbjartur Sigurðsson.
Þetta vor fór vatnsstaðan
niður í tæpa 47 cm., sem þá
var töluvert fyrir ofan það
sem áður var talið að hefði
verið meðalvatnsstaðan.
Viðræður fóru fram milli
fulltrúa Laxárvirkjunar og
stjórnar Veiðifélags Mývetn-
inga sumarið 1969, án þess að
endanleg niðurstaða um vatns-
stöðuna fengist, enda var stjórn
Veiðifélagsins ekki reiðubúin
að nefna neinar endanlegar töl
ur um efri eða neðri rnörk
vatnsins.
Af þessu má sjá að það hef-
ur verið mjög erfitt að gera
svo öllum líki í þessu máli,
þar sem ábúendur við Mývatn
hafa haft svo ólí-kar skoðanir
á því hver vatnsstaðan skuli
vera.
Það er hins vegar staðreynd,
sem sózt af þeim mælingum,
sem gerðar hafa verið, að vatns
staðan hefur veri‘3 miklum
mun stöðugri síðan miðlunar-
ma-nnvirkin tók til starfa, held
ur en áður var.
7
Stjórn Laxárvirkjunar hefur
eins og að frama-n segir, ætíð
viljað haga aðgerðum sínum í
samræmi við ós-kir Mývetninga
og er nú, er þetta er ritað,
beðið eftir nánari óskum stjórn
ar Veiðifélag-s Mývatns, sem nú
er sá aðili, sem semja á við.
Það er því furðulegt þcgar
Kxústján Þórhallsson, Vogum,
vill fcenna Laxárvirkjun um
lélega veiði, átuskort, minnk-
andi fuglalíf, kulda í vatninu
o.fl. og teiur ha.nn að allt þetta
stafi af of hánú vatnsstöðu.
Þar virðast fullyrðingar sett
ar fram alveg að óathuguðu
máli, og væri fróðlegt að vita
álit 'stj-órnar Veiðifélags Mý-
vatns í því sambandi: Hver viil
hún að vatnsborðsstaðan sé?
Hvernig getur átuskortur í Mý
vatni verið Laxárvirkjunar-
stjórn að kenna? Hefur Laxár-
virkjunarstjórn svæft mýið?
Stóð Laxárvirkjunarstjórn fyr-
ir kuldanum í vor og sumar?
Var það hennar sök, að ekki
komu ungar úr eggjucn fugla?
Er kannski allt illt frá Laxár-
vir-kjunarstjórn komið?
En hver á vatnsborðshaað Mý
vatns að vera? Það eru Mývetn
ingar sjálfir sem eiga að svara
því, og stjórn Laxárvirkjunar
er, og hefur alltaf verið, reiðu-
búi-n að taka fyllsta tiilit til
óska þeirra í því efni.
Akureyri í sept. 1970.
Stjórn Laxárvirkjunar.
VELJUM fSLENZKT <H> fSLENZKAN IDNAÐ
* Við velium rwM
það borgar sig
IIISPvlíKS iijlítíllpyi;-:ii-i: Í ■ '
niMal OFNAR H/F.
Síðumúla 27 . Reykjavík
Símar 3-55-55 og 3-42-00