Tíminn - 09.09.1970, Side 14
14
1 j)■
»"A
TÍMINN
TT!
þœs sem hann á mikinn f.iölda
ísl. hestar
Framhald affbls. 16.
enda hafði harm staðið sig vel
í hinni nýafstöðnu keppni. Með
al þeirra, sem buðu í Stjarna
voru Feldmann sjáifur og Led
ermann nokkur frá Norður-
Þýzkalandi, en hann er mesti
fslandshestaeigandi þar norð-
ur frá, og á mjög marga hesta,
sem hann hefur keypt hér. auk
Úr hefur tapazt
frá Bröttugötu að Umferð-
armiðstöð s.l. föstudag.
Upplýsingar í síma. 1589,
Selfossi.
annarra hesta.
Formaður sambands fslands-
hestaeigenda í Þýzkalamdi, fata
kaupmaðurinn Matthiasen-
keypti Loga frá Kirkjubæ, sem
sleginn var á 120 þúsund krón
ur, eða 5000 mörk. Þá má
geta þess, að þarna seldist
Gustur frá Vík, og keypti
hann svissneskur arkitekt, og
greiddi fyrir hann 5600 mörk,
eða 134 þúsund krónur. rúmar.
Auk þess seldist Hvellur frá
Hvítárbakka á 3700 mörk, eða
tæp 89 þúsund. Tveir hestar
aðir, Blossi og Gráni vora
boðnir upp, en ekki fengust
viðunandi boð í þessa hesta,
vildu eigendur fá minnst 3800
mörk fyrir Blossa, og 3500 mörk
fyrir Gráina, en enginn bauð
svo vel. Hins vegar fréttist að
uppboðinu loknu, að boð hefðu
komið í hestana, sem eigendur
gátu sætt sig við, og seldust
þeir því einnig þarna á staðn-
um.
Forsetinn
Framhald af bls. 1
hans þeim á flug'^Hinn sem
fulltrúar dönsku rikisstjórnar-
innar.
Við bi'ottförina sendi forset-
inn kveðjur til dönsku konungs
hjónanna og Emil Jónsson
sendi danska utanríkisráðherr-
anum, Poul Hartling, kveðjur.
Kaffisala
Framhald af bls. 3.
drætti félagsins gefur við'íka mik-
ið í aðra hönd. Félagið selur einn-
ig minningarkort, einnig hafa bas-
arar og kaffisölur drýgt tekjurnar,
en þó ekki sízt góðar gjafir, sem
félaginu hafa borizt-
Yfirlæknir þjálfunarstöðvarinn-
ar er Haukur Kristjánsson, for-
stöðukona er Jónína Guiðmunds-
dóttir, sjúkraþjá.’fari. Formaður
Kvennadeildarinnar er Björg
Stefánsdóttir.
ÞAKKARÁVÖRP
Mtnar innilegustu þakkir til barna, tengdabarna og
barnabarna, og annarra ættingja og vina, sem glöddu
mig með heimsóknum, gjöfum, skeytum og á annan
hátt á 85 ára afmælisdegi mínum 28. ágúst s.l.
Ingibjörg Björnsdóttir, Stykkishólmi.
Fósturmóðir, tengdamóðir og amma okkar
Aðalbjörg Pálsdóttir,
Graenumýri 5, Akureyri
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 10. september
klukkan 1,30 eftlr hádegi.
Sigríður Kristjánsdóttir, Jónas Kristjánsson
Ema Árnadóttir, Egill B. Hreinsson
og börnin.
Útför eiginmanns mfns og föður okkar
Steins Guðmundssonar
frá Seli, Hólmgarði 39,
fer fram frá Háteigskirkju, fimmtudaginn 10. september kl. 13,30.
Fyrir mina hönd og barna minna
Jóhanna Jónsdóttir.
Okkar innilegustu þakklr fyrir vináttu og samúð við andlát og útför
Bjarna Snæbjörnssonar
læknis.
Sérstakar þakkir færum við bæjarstjórn Hafnarfjarðar fyrir auð-
sýnda virðingu við hinn látna.
Helga Jónasdóttir
Jóhanna Tryggvadóttir Jónas Bjarnason
Áslaug Magnúsdóttir Snæbjörn Bjarnason
Málfríður Bjarnadóttir Jón M. Guðmundsson
Alma Thorarensen Bjarni Bjarnason
Kristjana Bjarnadóttir Björn Tryggvason.
Hjartans þakkir tll allra er sýndu okkur samúð, við andlát og út-
för
Guðrúnar Jóhannesdóttur
Svanborg Jóhannesdóttir
Þuríður Jóhannesdóttir
Oaði Jóhannesson
Lilja Kristjánsdóttir
og dætur
Okkar hjartanlegustu og beztu þakkir færum við öllum þeim mörgu
sem á hinn margvíslegasta hátt hjálpuðu og llðsinntu mlnni ástkæru
dóttur, systur, mákonu og frænku
Elísabetu Sigríði Erlu Helgadóttur
í hennar langvinnu og miklu veikindum, bæði utanlands og innan,
og sérstakar þakkir færum við starfsliði Kópavogshælisins og
Hvítasunnusöfnuðinum fyrir þeirra miklu hjálp.
Guð geymi ykkur öll.
Unnur Elíasar
Kristján Jóhannsson
Sigurlaug Jónsdóttir
og frændfólk.
Landsþing
Framhald af bls. 16.
an vísað til viðkomandi nefnda.
Það sem einkum verður og hcf-
ur verið fjallað um á þinginu, er:
a) Sameining tveggja eða fleiri
sveitarfélaga í eitt sveitarfélag.
b) Endurskoðun á verkcfnaskipt
ingu ríkisins og sveitarfélaganna.
c) Hlutdeild fasteignaskatta í
tekjuöflun sveitarfélaga.
Fyrir hádegi á morgun, miðviku
dag, mun Gylfi Þ. Gíslason mennta
málaráðherra svara fyrirspurnum
þingfulltrúa uim skólamál, en eftir
hádegisverðarhlé mun Gaukur
Jörundsson prófessor flytja erindi
um framkvæmd eignarnáms. Að
því loknu verður kynningarfundur
bæjarstjóra, sveitarstjóra og odd-
vita um sameiginleg áhugamál.
Heyþurrkun
Framhald af bls. 3
Segja má að tilráunir þessar
séu enn á byrjunarstigi, en ár-
angur sá sem náðst hefur undan-
farna daga lofar mjög góðu um
að hér sé búið að finna" upp að-
ferð til heyþurrkunar, sem ætti
að geta komið íslenzkum landbún
aði að góðu gagnj. því varla þarf
að .minna nokkurn mann á hve
afkoma bænda er háð tíðarfari
yfir sláttinn.
Benedikt ■ telur að kostnaður
við að koma upp þurrkhúsi með
tilheyrandi tækjum sé ekki meiri
en sem svarar verði einnar drátt-
arvélar. Auk þess sem heyþurrk-
unarhús ætti að gera bændum
kleift að slá og þui-rka hvenær
sem þei-m hentar, og þurfa ekki
að fara eftir duttlungum veður-
farsins. Þá má telja fullvíst, að
næringargildi heys, sem sett er í
hús og þurrkað á stuttum tima,
beint af ljánum, missi mun minna
næringargildi, en hey sem liggur
svo og svo lengi óþurrkað eftir
að það er slegið.
Dr. Gunnar
Framhald ai bls. 1
ins með símskeyti, og voru á
hann boðaðir löglærðir menn, sem
vitað var að væru flokksbundnir
Sjálfstæðismenn eða yfirlýstir
stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks-
ins og eins menn, sem ekki var
vitað til að styddu aðra stjórn-
málaflokka. Munu hafa verið í
þeim hópi fyrst og fremst hæsta-
réttarlögmenn, héraðsdómslög-
menn, borgardómarar, sakadóm-
arar og dómarafulltrúar. en einn-
ig ýmsir aðrir löglærðir embætt-
ismenn hjá borg og ríki.
Fundurinn hófst um sexleytið í
gær með ræðu, sem einn fundar-
boðenda, Bjarni Beinteinsson, hélt.
Fundarmcnn, sem blaðið náði
tali af í dag, sögðu að Bjarni
hefði í upphafi talið upp ýmsa þá
MIÐVIKUDAGUR 9. september 1970
kosti, sem dómsmálaráðherra yrði
að prýða. Síðan hafi hann varpað
fram þeirri spurningu, hvort fund
armenn gætu þá á stundinni nefnt
einhvern þann úr þingliði Sjálf-
stæðisflokksins, sem hefði til að
bera alla þá kosti, sem hann hafði
áður nefnt. Varð þá að sögn löng
og vandræðaleg þögn í salnum,
og ekkert svar barst við spurn-
ingunni.
Mun Bjarni þá hafa ítrekað
við fundarmenn, að nefna einhvern
þann Sjálfstæðismann, sem til
greina kæmi, en aftur varð löng
þögn og sagði enginn orð.
Eftir nokkra stund mun Bjarni
síðan hafa sagt, að vafalaust hefðu
fundarmenn allir eitt nafn í huga
utan þingliðs Sjálfstæðisflokksins,
nafn manns, sem uppfyllti öll þau
skilyrði, sem hann liefði áður
nefnt. Þessi maður væri Gunnar
Thoroddsen.
Lýsti Bjarni því sem sinni skoð
un, að þetta væri eini maðurinn í
forystuliði Sjáifstæðisflokksins
sem væri þeim kostum gæddur.
sem dómsmálaráðherra yrðu að
prýða. Myndi þar á fundinum hefj
ast undirskriftasöfnun, og væru
allir hvattir til þess að skrifa und
ir áskorun til Jóhanns Hafsteins,
forsætisráðherra, þess efnis, að
hann gerði Gunnar Thoroddsen að
dómsmálaráðherra í ráðuneyti
sinu.
Við þessi orð gengu allmargir
fundarmanna úr salnum, að sögn
sumra um þriðjungur, en þeir,
sem eftir voru, skrifuðu nöfn
sín á áskorunarskjalið. Var síðan
haldið áfram að safna lögfræði-
ingum hliðhollum Sjálfstæðis-
flokknum á áskorunina, og í dag
höfðu um 60 skrifað undir hana.
Að því er blaðið veit bezt. var
áskorunin síðan afhent Jóhanni
Hafstein síðdegis í dag.
Banaslys
Framhald af bls. 1
um er hann fór veltornar og hlutu
þær minni háttar meiðsli, nema að
ein þeirra viðbeinsbrotnaði.
Ein stúlknanna fór heiim aðAuðs
haug til að ná í hjálp. Voru Gís.’i
og stúlkurnar öll flutt til Patreks-
fjarðar og annaðist lögireglan þar
rannsókn slyssins.
Á .'augardagsmoi'gun varð annað
sly.s á svipuðum slóðum. Þá var
bll ekið á talsverðum hraða á
brúarhandrið á Vatnsdalsá, sem
rennur í Vatnsfjörð. Var sá bíll
frá Akranesi- í bíinum voru þrír
farþegar og ökumaður. Ung stúlka
frá Siglufirði skarst illa í andliti
er bíllinn lenti á brúarhandriðinu.
Liggur hún á sjúkrahúsinu á
Patreksfirði. Hitt fólkið sem í bíln
um var slapp ómeitt. Bíllinn
skemmdist mikið.
Daginin þar áður vaiið enn eitt
slys skammt frá Vatnsda.’sá. Þaj*
valt út af veginum og skemmd-
ist mikið, en engan sem í þeim
bíl var sakaði.
Vegurinn á þessum slóðum er
yfirleitt góður en á honum eru
sums staðar eins og svo víða beygj-
ur og hindranir og mun ástæða
fyrir þessum tíðu slysum þama
vera sú að ökumenn eru ókunnug-
ir aðstæðum og gæta sín ekki sem
skyldi þegar óvæntar hindra.nir
birtast al.’t í einu.
íþróttir
Framhald af bls. 13
aðlr og þeir hafa verið í sínum
fyrri leikjum í sumar. en í þetta
sinn tókst þeim ekki að sigra með
einu marki eins og í helmingnum
af leikjunum í 1. deild til þessa.
Vörnin er máttarstólpi liðsins, og
þar eru beztu mennirnir, einnig
í þessum leik.
Frá miðjumönnunum kom lítið
af viti, og framlínumennirnir voru
eins og einmana skip, sem stíma
áfram hvert í sínu lagi og án nokk-
urrar samvinnu.
Dómari í þessum leik var Einar
Hjartarson ,og var hann leiðinlega
smámunasamur við upptínslu á
smábrotum, en lót mörg þau stóru
vera.
Bandaríkjamenn
Framhald af bls. 9
Vietnama, „sem hafa sett traust
sitt o'kkur hljóti að láta lífið
fyrir þá röngu ályktun“, þ.e.
að þeir verði teknir af lífi,
ef kommúnistar ná völdum. —
Heimildir hans í þessu efni eru
skýrsla Rand Corporation og
ummæli Douglas Pike, sem
hann segir „fróðasta mann þjóð
arinnar um Vietnam" en er einn
ig forustumaður í USIA (Uni-
ted States Information Agen-
cy). Annars segir einnig í
skýrslunni frá Rand Corpera-
tion, sem varaforsetinn vitnar
í, að ný samsteypustjórn eða
jafnvel hrein kommúnistastjórn
í Vietnam hlyti af góðum og
gildum ástæðum að reyna að
draga úr stjórnmálahefndum
eins og unnt væri.
TÆPAST er þörf á að svara
þeim ásökunum varaforsetans,
að frumvarpið feli í sér ein-
angrunarstefnu. Við 'sækjumst
hvorki eftir afneitun þjóðlegra
skuldbindinga Bandaríkja-
manna né að þeir dragi sig inn
í skelina. Við þörfnumst þess ■
einmitt umfram allt að banda-
rísku valdi sé beitt af mann-
legri gát til aðstoðar fólki í
leit þess að stjórnmálastofnun-
um, sem það sjálft aðhyllist
í stað þess að sóa því, og auka
og vernda mannlífið og bæta
öryggi heimsins í stað þess að
stofna því í hættu.
f Vietnam er ekki fyrst og
fremst um að ræða annað
hvort sigur eða ósigur. Viet-
namar einir geta borið sigur
nú býtum í styrjöldinni og þeir
einir geta beðið ósigur. Við
getuim ekki látið þeim í té eða
lagt á þá neitt, sem þeir girn-
ast ekki og vilja ekki gera
fyrir sjálfa sig. Þetta hefur
reynslan í Vietnam leitt í ljós,
svo hörmulegt sem það er, og
varaforsetinn blekkir banda-
rískan almenning með því að
heita því, sem ekki er unnt
að standa við.
26. apríl 1967 komst ég svo
að orði í ræðu: „Hvers konar
menn standa við stjórnvöl okk
ar, ef þeir þröngva almenningi
til fylgis við stefnu sína að við
lögðum hótunum um drottin-
svik?“ Afstaða mín er enn
óbreytt, helgast ekki af flokks-
fylgi og er hin sama til rikis-
stjórnar Johnsons og Nixons.
Ég leyfi mér hér með að beina
spurningunni hér að framan
til varaforsetans.
SAGAN sýnir, að kúgunin
verður hvað mest þegar þeim,
sem misbeita stjórnmálavaldi
sínu, tekst að þagga niður í
opinberum rökræðum. Þetta
hefur ekki einvörðungu verið
hlutverk lýðskrumara eða ein-
ræðisherra, hvorki til hægri né
vinstri. Þýzkaland nazismans,
McCarthy-isminn, Ungverjaland
og Tékkóslóvakía eru áþreifan-
leg dæmi um fólk, sem hefur
verið ógnað til þagnar í ótta.
Þeim, sem hrópa „einangr-
unarsinnar", „friðarsinnar“,
„blindir, óþolinmóðlr stjórn-
málamenn“ eða aðrar slíkar
ásakanir má ekki með nokkru
móti líðast að kveða niður
óheftar, skynsamlegar rökræð-
ur um mikilvæg mál, hvorki
hér í þinginu né meðal almenn
ings víðs vegar um land.
Lífsháttum okkar Bandaríkja
manna stafar raunveruleg ógn
af því, sem hrærist meðal okk
ar hér heima fyrir, en ekki af
neinu austur í Indó-Kína í 10
þúsund mílna fjarlægð.