Tíminn - 16.09.1970, Blaðsíða 9
AnÐVTKUDAGUR 16. september 1970
TIMINN
9
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Frairikvæmdastjórj: Kristján Benediiktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Tómas
KarJsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Giálason. Ritstjórnar-
skrifstofur i Edduhúsinu, simar 18300—18306. Skrifstofur
Bankastræti 7 — Afgreiðslusimi 12323. Auglýsingasimi 19523.
Aðrar sikrifstofur sími 18300. Áskriftargjald kr. 165,00 á mánuði,
innanlands — í lausasölu kr. 10,00 eint. Prentsm, E5dda hf.
Um Alþýðuflokkinn,
k|öt og mjólk
Alþýðublaðið finnur sárt til þess, hversu landbúnað-
arvörur eru orðnar dýrar fyrir neytendur.
Það er sánnarlega góðra gjalda vert að vara við of-
háu verðlagi og réttmætt að lýsa ábyrgð á hendur þeim,
er dýrtíðinni valda. En Alþýðuflokkurinn er ekki jafn-
vígur á öll vopn, frekar en fornmenn. Gunnar var bezt-
ur með boga og atgeir, Skarphéðinn með öxina Rimmu-
gígi, en Alþýðuflokkurinn helgar sér kjöt og mjólk, önn-
ur vopn henta honum síður.
Á þremur síðastliðnum árum hafa orðið meiri verð-
hækkanir, en nokkru sinni fyrr. Öllum er ljóst að megin-
rótin að þeim verðhækkunum eru gengislækkanir ríkis-
stiórnar Alþýðuflokks og íhalds. Þegar Alþýðuflokkur-
inn grætur yfir háu verði á kjöti og mjólk og ráðleggur
fólki að kaupa ekki þessar dýru vörur, er hann að lýsa
fyrir þjóðinni viðreisnarþróuninni. Og læknisráðið er að
kaupa ekki þessar vörur.
Landbúnaðarvörur hafa að sjálfsögðu hækkað í verði
eins og aðrar nauðsynjar í flóðinu mikla. Kjöt af sumar-
slátruðum dilkum á 200 kr. kílóið er auðvitað lúxus-
vara og aðeins stundar fyrirbrigði, rétt eins og laxinn,
sem seldur er á 420 kr. kílóið. Þegar Alþýðuflokkurinn
ráðleggur fólki að kaupa ekki kjötið, steingleymir hann
laxinum, sem er helmingi dýrari. Svona er að vera ein-
hæfur í vopnaburðinum.
Grundvallarverð mjólkur breytist aðeins einu sinni á
ári, þ. e. að haustinu. Aðrar vörur hækka á öllum tím-
um árs og stundum mikið. Eigi að bera saman verðhækk-
anir á ýmsum vörutegundum, verður að taka fyrir eitt-
hvert ákveðið tímabil í þeim samanburði.
Á þremur síðastl. árum hefur mjólk hæbkað frá hausti
1967 til hausts 1970 um 107%. En fleiri vörur hafa
drjúgum hækkað á þessum árum. T.d. hveiti um 103%,
smjörlíki um 104%, soðningin, ýsa slægð og hausuð, um
107%, kaffið um 126%, strásykur um 142% og hafra-
mjöl um 252%. En Alþýðuflokkurinn hefur ekkert haft
að athuga við vferðhækkanir á þessum vörum. Honum
datt ekki einu sinni í hug að segja frá þeim í Alþýðu-
blaðinu. Því síður að hann færi að ráðleggja fólki að
'hætta að kaupa vörurnar.
Vilji Alþýðublaðið að nokkur maður taki mark á skrif-
um þess, dugar það ekki til, að það kenni fólki að kaupa
ekki kiöt og mjólk. Nú verður blaðið að ráðleggja fólkinu
að hætta að baka úr hveiti, hætta að nota smjörlíki, hætta
við soðninguna, hætta að drekka kaffi, hætta að nota
sykur og umfram allt að leggja sér ekki hafragraut til
munns. Geri Alþýðublaðið þetta ekki og láti sér í léttu
rúmi leggja verðhækkanir á öllum öðrum vörum en kjöti
og mjólk, má Alþýðuflokkurinn vænta þess að hann haldi
þeirri ,,virðingu“ áfram, er hann ávann sér í kosning-
unum í höfuðstaðnum í vor.
ölvun við akstur
í ræðu, sem lögreglustjórinn í Reykjavík flutti nýlega
á landsþingi Slysavarnarfélags íslands, upplýsti hann m.
a. að ölvun við akstur færi mjög vaxandi og ykist slysa-
hættan í samræmi við það. Árið 1964 var ekki nema
2.5% umferðarslysa talin stafa af ölvun. en á síðastliðnu
ári var sú tala kominn upp í 4.6% eða hefur nær tvö-
laldazt á þessu tímabili.
Vaxandi ölvun við akstur er svo mikið vandamál, að
það má ekki taka neinum vettlingatökum.
VADIM ADATOVSKI, APN:
Þjððirnar ver ja 200 milljörðum
dollara til vígbúnaðar árlega
Afmælisþing S.Þ. verður að ræða vígbúnaðarmálin sérstaklega
f haxist verður þess sér-
sérstaklega minnzt á alls-
herjarþingi S. Þ., að 25 ár
ern liðin frá stofnun sam-
takanna. í tilefni af því
munu ýmsir af forustu-
mönnum þjóðanna heim-
sækja þingið og flytja þar
ræður. Þá má búast við því
að afmælið muni setja
verulegan svip á málflutn-
ing hinna ýmsu ríkja. í
eftirfarandi grein gerir
Adatovskij grein fyrir því,
hvemig Rússar hyggjast
haga málflutningi sínum.
Á 25. allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna, sem hefst um
miðjan mánuðinn, verður þess
minnzt, að 25 ár eru liðin frá
stofnun þeirra.
Fyrsta alLsherjarþingið var
haldið í London. 10. janúar
1946 og síðan hefur fjöldi með-
lima meira en tvöfaldazt —
úr 51 í 126.
Ég geri ráð fyrir, að þessi
mikla aukning beri vott um
róttækar breytingar, sem hafa
átt sér stað í heiminum með
tilkoonu fjölmargra ungra sjálf
stæðra ríkja í Afríku. Asíu
og rómönsku Ameríku. Þvi
miður eru Sameinuðu þjóðirn
ar ekki enn allsherjarsamtök í
raun og sannleika, þar sem
nokkur þéttbýl lönd og háþró
uð iðnaðarríki eiga ekki aðild
að samtöikunum. Sama er að
segja um lönd, sem berjast fyr-
ir sjálfstæði sínu. En ástæðurn
ar fyrir þessu eru kunnari en
frá þurfi að segja.
ÆMÆLISÞING-IÐ, sem j
hönd fer, er ákjósanlegt til-
efni til þess að líta yfir farinn
veg, en engu síður til þess að
leysa ýmis ennþá mikilvægari
verkefni. Efst á baugi er þá
auðvitað að koma á varanleg
um friði á hnettinum.
Þrátt fyrir stöðugar friðar
umleitanir Sameinuðu þjóðanna
oig annarra friðarafla í heimin
um er alltaf öðru hvoru að
sjóða upp úr víðsvegar í heim-
inum. Arás Bandaríkjanna og
leppríkja þeirra á víetnömsku
þjóðina og aðrar þjóðir Indó-
kina er ekki eingöngu freklegt
brot á alþjóðalögum og sátt-
mála SÞ, heldur einnig bein
ögrun við Sameinuðu þjóðirn-
ar. Þetta mál verður sjálfsagt
rætt á þessu þingi.
Það var líka ábyrgðarlaus
ögrun við Sameinuðu þjóð-
irnar, er ísrael neitaði að fram
fylgja samþykkt Öryggisráðsins
frá 22. nóv. 1967. sem hafði
þann tilgang að auðvelda póli-
tíska lausn í Austurlöndum
nær. Stuðningur Bandaríkja-
manna_ við óskammfeilna af-
stöðu ísraels getur hæglega orð
ið til þess að átökin breiðist út
til annarra landssvæða.
Stefna þessara tveggja ríkja
verður án efa fordæmd á 25.
allsheriarþingi Sþ, sérstaklega
f ljósi síðustu atburða eftir að
samningaumræðum hefur ver-
ið frestað.
Á 24. allsherjarþinginu lögðu
Sovétríkin fram ýtarlega stefnu
sfcrá, sem miðar að því að draga
úr viðsjám í heiminum. Eftir
þetta lögðu 46 önnur ríki fram
sérstakar skýrslur, þar sem
þau skýrðu hug sinn til þessara
mála, sem verður á dagskrá
næsta þings. Nú verður ekki
hjá því komizt að 25. allsherj
arþing Sameinuðu þjóðanna
taki ákvarðanir, sem hægt er
að byggja á, varðandi frið
í heiminum.
Vígbúnaðarkapphlaupið í
heiminum gleypir gífurlega f jár
muni, veldur verðbólgu, hærri
sköttum og hrakandi lífskjör-
um í mörgum löndum. Á 20
ára tímabili frá 1948—1968 þre
földuðust árleg útgjöld til víg
búnaðar í heiminum. Þau hafa
nú náð svimandi upphæð —
200 milljarðar dollara. Fyrir
utan þá efnahagsörðugleika, er
vígbúnaðarkapphlaupið veldur,
er það líka bein ógnun við
sjálfa tilveru mannkynsins.
ÞJÓÐIR heimsins hafa rétt
á því að mega búast við. að
25. allsherjarþing SÞ skili raun
hæfum árangri í meðferð þessa
brennandi vandamáls, sem
snertir alla jarðarbúa.
Sovétríkin beriast mark-
visst gegn áframhaldandi víg-
búnaðarkapphlaupi. Jákvæðar
tillögur Sovétrík.ianna í bessa
átt hafa verið lagðar fram til
athugunar í Genf. á allsherjar
þingi SÞ og í Öryggisráðinu.
Á undanförnum árum hefur
tekizt að ná jákvæðun: samning
um vegna samstarfs bæði inn
an S'Þ og utan, sem byggist á
heilbrigðri skynsemi. Það næg
ir að minna á sáttmálann um
bann við tilraunum með kjarna
vopn, samninginn um bann við
útbreiðslu kjarnavopna og
samninginn um bann við flutn
ingi kjarnavopna út í geiminn.
Fyrir nokkrum dögum var
samþykkt í Genf sameiginleg
tillaga Sovétríkjanna og Banda
ríkjanna um bann við tilraun
um með kjarnavopn og önnur
eyðingarvopn á hafsbotni. Þessi
samningsdrög verða nú lögð fyr
ir 25. allsherjarþingið. Þessar
staðreyndir sýna, að ef viljinn
er fyrir hendi, er hægt að leysa
vandamálin. Hin flóknu vanda
mál afvopnunar er hægt að
leysa, ef öll ríki. að k.iarnorku
veldunum meðtöldum, eru jafn
ákveðin og Sovétríkin í að
stöðva vígbúnaðarkapphiaupið.
25. allsheriarþing Sameinuðu
þjóðanna getur orðið sögulegt
þing, ef það tekur árangursrík
ar ákvarðanir í þessu máli.
Það væri líka án efc til að
auka áhrif og virðingu Sam-
einuðu þjóðanna
APN.