Tíminn - 20.09.1970, Blaðsíða 6
TIMINN SUNNUDAGUR 20. september 1970
AUGLÝSING
frá nienntamálaráðuneytinu
um
útivistartíma barna og unglinga
Athygli er vakin á því, að samkvæmt 44. gr. reglu-
gerðar nr. 105/1970, um vemd barna og ungmenna,
hefur útivistartími barna og unglinga í þéttbýli um
land allt verið samræmdur. 44. gr. reglugerðarinn-
ar hljóðar þannig:
„í kaupstöðum, kauptúnum og öðm slíku þéttbýli
með 400 íbúa og fleiri, mega börn yngri en 12 ára
ekki vera á almannafæri eftir kl. 20, og eftir kl. 2(2
tímabilið 1. maí til 1. september, nema í fylgd með
fullorðnum, aðstandendum sínum eða urfisjónarmönn-
um.
Unglingar yngri en 15 ára mega á slíkum stöðum
ekki vera á almannafæri eftir kl. 22 tímabilið 1.
september til 1. maí og eftir kl. 23 1. maí til 1.
september, nema í fylgd með fullorðnum, eða um sé
að ræða beina heimferð frá skólaskemmtunum,
íþróttasamkomu eða frá annarri viðurkenndri æsku-
lýðsstarfsemi.
Hvers konar þjónusta við börn og ungmenni eftir
löglegan útivistartíma, önnur en heimflutningur, er
bönnuð að viðlagðri ábyrgð þess, er þjónustu veitir.
Handhöfum þjónustuleyfa er skylt að fylgjast með
því, að ákvæði þessi séu haldin.
Ungmennum yngri en 16 ára er óheimill aðgangur
að dvöl á almennum dansleikjum eftir kl. 20, öðrum
en sérstökum unglingaskemmtunum, sem haldnar eru
af skólum, æskulýðsfélögum eða öðrum aðilum, sem
til þess hafa leyfi og háðar eru sérstöku eftirliti.
Forstöðumönnum dansleikja er skylt að fylgjast með
því að ákvæði þessi séu haldin, að viðlögðum sekt-
um og/eða missi leyfis til veitingahalds eða skemmt-
anahalds um lengri eða skemmri tíma.
Ungmennum yngri en 18 ára er óheimill aðgangur
og dvöl á veitingahúsum, sem hafa leyfi til vínveit-
inga, eftir kl. 20, nema í fylga með foreldrum, for-
ráðamönnum eða maka. Veitingaleyfishafa er skylt
að gæta þess, að ákvæði þetta sé haldið, að viðlögð-
um sektum og/eða missi veitingaleyfa sinna um lengri
eða skemmri tíma.
Þeir sem hafa forsjá eða foreldraráð barna og ung-
menna skulu að viðlögðum sektum gæta þess, að
ákvæði þessarar greinar séu ekki brotin. Þá má einnig
beita sakhæf ungmenni viðurlögum fyrir brot á þess-
um ákvæðum. Útdráttur úr ákvæðum þessarar grein-
ar skal hanga á áberandi stað í öllum skólum skyldu-
náms, almennum veitingahúsum og samkomustöðum
í lögsagnarumdæminu og sér viðkomandi barnavernd-
arnefnd um það ásamt lögreglu.
Bannað er að stúlkur innan 18 ára aldurs starfi á
veitingahúsum og skemmtistöðum, þar sem ætla
má, að siðferði þeirra sé sérstök hætta búin.“
MenntamálaráðuneytiS,
18. september 1970.
Lengið
sumarið
Tvær skemmtiferðir með m/s Gullfossi
til meginlands Evrópu
Fyrri ferð:
30. sept. til 19. okt.
UPPSELT
Seinni ferð:
21. okt. til 9. hóv.
Reykjavík, Leith,
Amsterdam, Hamborg,
Kaupmannahöfn,
Leith, Thorshavn.
Ferðizt ódýrt - Ferðizt með Gullfossi
Allar nánari upplýsingar veitir: FARÞEGADEILD EIMSKIPS, SÍMI 21460
H.E EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
ÍSLENZKAR WIYNTIR 1971
Verðlistinn ÍSLENZKAR MYNTIR 1971 kominn. — Skráir allar íslenzkar
myntir, brauð- og vörupeninga. Einnig skrá ásamt myndum af öllum
íslenzkum seðlum til 1957. — Verð kr. 115,00.
FRfMERKJAMIÐSTÖDIN, Skólavörðustíg 21 A. Sími 21170.