Tíminn - 20.09.1970, Side 10

Tíminn - 20.09.1970, Side 10
50 TIMINN StTNNUDAOKR 20. september »70 Ltnden Grierson: UNGFRÚ SMITH 34 ekki, hvað hann setti af sér að gera. Hann glamraði á píanóið, þar til Jeen bað hann í guðs bænum að hætta. Þá lokaði hann hljóðfærinu með skelli og gekk út á veröndina. Ekkert var til að lesa, blöðin voru orðin gömui og ekki gat hann dundað við bílinn sinn, því hann stóð utan við hliðið í feti af vatni. Ekki fann hann hjá sér neina löngun heldur til að hjálpa Pat, sem var önnum kafinn við eitthvað niðri við skúrana. Anne var í eldhúsinu með Norton og Roddie fann hvergi smugu, þar sem hann gat verið einn Jafnvel rúmið hans var op- inber staður, því það var úti á veröndinni. Anne var eina manneskjan, sem mátti til að vinna allan dag inn, og það var ekki fyrr en hún var búin að vaska upp og ganga frá eftir kvöldmatinn, að hún gat slappað af. Hún hreiðraði um sig í sófahorninu við hlið móður sinn ar og leit á hin, sem voru í her- berginu. Barbara var óstyrk og ná föl. Roddie geispaði af leiðindum og lögfræðingarnir ræddu eitt- hvert mál í hálfum hljóðum, grúfðir yfir pappíra og skjöl. Anne varð áhyggjufull, þegar hún virti þá fyrir sér, því þáð var aðeins klukkustund síðan Mayn- ard sagði henni, að á morgun hyggðust þeir ganga frá málun- um við Pgt. Jeen var búinn að endurskoða bækurnar og ætlaði að leggja athugunar sínar fyrir þau. Pat var ekki viðstaddur og hún vonaði, að hann svæfi. Hún þráði nærveru hans og ákvað að styðja hann, hvað sem á dyndi. Jafnvel þótt Maynard krefðist þess, myndi hún ekki ákæra hann. Hún vildi aðeins að áin lækkaði fljótt, svo þessi óboðnu gestir færu. Þá gæti hún loksins sagt það sem henni lá á hjarta við Pat. Ef hún gæti sannfært hann um, að öll lífshamingja hennar væri und ir því komin, að hann yrði áfram á Gum Valley, myndi hann áreið- anlega giftast henni og þá væru engin lög til, sem gætu tekið hann frá henni. Jeen gekk út og síðan bauð einn af öðrum góða nótt og fór í háttinn. Frú Smythe fór með Barböru og loksins varð Anne ein. Hún sat lengi með Iókuð augu og hugsaði um fyrra líf sitt í Sidney, um lystisnekkjuna í Rose Bay og fallegu íbúðina sina, en hún sáknaði hvorugs. Það var ekkert j borginni, sem freistaði hennar lengur. Hin ferðaglaða Anne, sem alltaf var til í að fara í veizlur var horfin, og hér var allt sem hún óskaði sér í lífinu. Hún slökkti Ijósið á olíulamp- anum, sem þau höfðu grafið upp, þegár rafmagnið bilaði, og síðan læddist hún fram ganginn og út á veröndina. Roddie steinsvaf og varð hennar ekki var. Um stund stóð hún og horfði yfir túnið. Þegar hún sneri við og ætlaði inn aftur, tók hún eft- ir, að það var Ijós í skrifstofunni. Hún velti fyrir sér, hvað Jeen gæti verið að gera þar, þegar all- ir aðrir voru háttaðir. Hún lædd- ist nær glugganum, til að sjá, hvað hann væri að aðhafast. Sér til gremju sá hún ekki inn af veröndinni. Eini staðurinn sem var nægilega hár, var uppi á stíflu garðinum. Hún fór úr skóm og sokkum og óð út á túnið. Þegar hún var komin upp á stíflugarð- inn, sem var blautur og háll, sá hún greinilega inn á ski'ifstofuna. Hvað var Jeen eiginlega að gera? Hún undraðist þetta atferli hans. Jeen sat j birtunni frá olíu- lampa og reif sundur blöð og bréf og stakk tætlunum í lítinn hveitipoka, líklega til að losa sig við hann við tækifæi'i. Hann virt- ist afskaplega ánægður og örugg- rnr með sjálfan sig. Anne fylgdi hverri hreyfingu hans með augun um og loks fór hún að skilja sam hengið. Þarna stóð hún í fullar tíu mín útur og það fór að síga í hana, þegar lögfræðingurinn b.vrjaði að rífa sundur stofna af ávísanaheft- um. Nú vissi hún, hver það í raun inni var, sem átti sökina á, að Gum Valley bar sig illa fjárhags- lega upp á síðkastið. Nú sat hann þarna inni og eyðilagði allar sann anir fyrir því, að Pat hafði sagt sannleikann og hún var fegin að hafa fylgt þeirri hugdettu sinni að fara inn á ; skrifstofuna og skrifa hjá sér allar mikilvægustu upphæðirnar. Hún skammaðist sín fyrir að hafa j fyrstunni lát- ið sér detta í hug að vantreysta Pa-t, jafnvel þótt hún hefði séð hann hálfdrepa sig á þrældómi til að fá endana til að mætast. Og þetta allt var svo að kenna þessum lögfræðingssvikara, sem sat þarna núna og hafði — guð mátti vita bve lengj — stungið peiungunum í eigin vasa. Kæruleysi mitt gerði þetta auð velt fyrir hann og erfitt fyrir Pat, hugsaði hún með sér. — Allt er mér að kenna. Ég vona bara að ég fái tækifæri til að segja Pat, hvað mér þykir þetta leitt. Það er rétt, að á morgun kémur uppgjörið, en það skal að minnsta kosti ekki verða Pat sem verður afhjúpaður þá. Þvei't á móti verð ur það lítiðmennið þarna inni, sem er svo ánægt með sig núna- Ég verð hér, þangað til hann er búinn að þessu og þá elti ég hann og sér, hvar hann lætur pok ann. Ég verð að ná honum, því annars trúLr Maynard mér ekki. f þessu hélt Jeen, að hann hefði séð einhverja hreyfingu fyr ir utan. Fyrst hélt hann, að það Furuhúsgögn á framleiðsluverði Sel sófasett, sófaborð, horn skápa o.fl. — Komið og skoðið. Húsgagnavinnustofa Braga Eggertssonar, Dunhaga 18. Sími 15271 til klukkan 7. ELDAVÉLAR ÞVOTTAVÉLAR FRYSTIKISTUR KÆLiSKÁPAR HÚSAVlK Raftækjaverzlun Gríms & Árna. ISAFIRÐ1 Raftækjaverzlunin PólHntr h/í. ÖMUNDARFJÖRÐUR Amór Árnason, Vöðlum. DÝRAFJÖRÐUR Gunnar Guðmundsson, Hofi PATREKSFJÖRÐUR Valgeir Jónsson, rafvm. KaupféJag Króksfjarðar. KRÓKSFJARÐARNES BÚÐARDALUR Einar Stefánsson, rafvm. STYKKISHÓLMUR Haraldur Gíslason, rafvm. ÓLAFSVlK Tómas Guðmundsson, rafvm. AKRANES Jón Fríman..sson. rafy/m. REYKJAVlK (Aðalumboð:) Rafiðjan h/f., Vesturgötu 11. Raftorg h/f., Kirkjustræti 8. KEFLAVlK Verzlunin Stapafell h/f. RAUFARHÖFN Kaupfélag N.-P'mgeyinga. BLONDUÓSl AKUREYRI Veralunin Fróði h/f. Raft«kni — Ingvi R. JÓhrmnsson. VOPNAFJÖRÐUR Alexander Árnason, rafvm. EGILSSTAÐIR Verzlunarfélag Austurlands. umeoDsmEnn fvrir IGMS HEimiUSTIEKI ESKIFJÖRÐUR Verzlun Elísar Guðnasonar. ÁRNESSÝSLA Kaupfélag Árnesinga. HÖFN, HORNAFIRÐI Verzlunin Kristall h/f. RANGÁRVALLASÝSLA Kaupfélag Rangæinga. VESTMANNAEYJAR VerzJun Haraldar Eiríkssonar. RAFIÐJAN VESTURGÖTU 11 REYKJAViK SÍMI 19294 — RAFTORG V. AUSTURVÖLL REYKJAVÍK SÍMI 26660 JOHNS-MANVR.LE glerullarefnangrun er nú sem fyrr vinsætasta og örugglega ódýrasta glerullar- einangrunia á markaðnum í dag. Aub þess fáið þér frian álpappir með. Hagkvæmasta einangrnnarefnið í flutningi Jafnvei flugfragt borgar sig. Hagkvæmir greiðsiuskilmálar — Sendum hvert á land sem er. MUNIÐ JOHNS-MANVVLLE í alla einangran. JÖN LOETSSON H.F. HKINGBRAUT 121 sínn 10600 GLERÁRGÖTU 26, Akureyri. — Súni 96-21344 er stmnudagur 20. sept. — Fausta Tungl í hásuðri kl. 5.23. Árdegisháflæði í Rvík kl. 9.23. HEILSUGÆZLA Slökkviliðið og sjúkrabifreiðir. Sjúkrabifreið í Hafnarfirði, sfmi 51336. fyrir Reykjavík og Kópavog sími 11100. Slysavarðstofan í BorgarspíU. inum er opin allan BÓlarhringlnn. Að- eins mótt a slasaðra. Sfmi 81212. Kópavogs-Apótek og Keflavfkur- Apótek eru opin virka daga bL 9—19 langardaga kL 9—14. helga daga kl. 13—15. Almennar upplýsingar um Lækna Djónustu 1 borginni eru gefnar í sjmsvara Læknafélags Reykjavik- ur, sími 18888. f æðingarheimiHö i KópayogL Hlíðarvegi 40, simi 42644. Tannlæknavakt er i Heilsvemd arstöðinnj (þar sem tof- an var) og er opin laugardaga og sunnudaga M. 5—6 e. h. Sími 22411. Kvöld og helgidagavarzla apó- teka í Reykjavík 19.—25. sept. er í Laugavegs ApóteM og Holts Apéteki. Nætur- og helgidagavörzlu lækna í Keflavík 19. sept og 20. sept. annast Kjartan Ólafsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.