Tíminn - 20.09.1970, Page 16

Tíminn - 20.09.1970, Page 16
Swmudagur 20. september 1970. Rafmagnssala borgarinnar á að vera þjónusta á sannvirði Tillaga Framsóknarmanna um afnám sjálfvirks og allt of stórtæks hækkunarkerfis KJORSEÐILL í skoðanakönnun Framsóknarmanna í Iteykjaneskjördæmi 26. og 27. september 1970 vegna n. k. kosninga til Alþingis. Velja skal fimm nöfn. ValiS ber að framkvæma þannig: Tölustafurinn 1 er settur fyrir framan nafn þess manns, sem valinn er í fyrsta sæti framboðslistans. Tölustafurinn 2 við nafn þess, sem valinn er í anna'ð sætið o. s. frv. þar til fimm nöfn hafa verið númeruð. Framboðslisti við skoðanakönnunina í stafrófsröð: Björn Sveinbjörnsson hæstaréttarlögm., Erluhrauni 8, Hf. Halldór Einarsson, fulltrúi, Miðbraut 8, Seltjarnarnesi. Herta Kristjánsdóttir húsfrú, Sléttahrauni 28, Hafnarfirði. Hi’mar Pétursson, skrifstofumaður, Sólvallagötu 34, Keflav. Ingólfur Andrésson, matsveinn, Vallargötu 8, Sandgerði. Jóhann H. Níelsson, framkvstj., Stekkjarflöt 12, Garðahr. Jóhanna Óskarsdóttir, húsfrú, Suðurgötu 27, Sandgerði. Jón Skaftason, alþingismaður, Sunnubraut 8, Kópavogi. Ólafur Eggertsson, trésmiður, Kirkjuvogi 2, Höfnum. Pétur Guðmundsson, flugvallarstj., Grænási 3, Ytri-Njarðv. Sigtryggur Ha’igrímsson, verksmstj., Nýjabæ, Seltjarnam. Sigurður Haraldsson, veitingaþjónn, Unnarbraut 17, Seltjn. Sig. Sveinbjörnsson, verzlunarm., Arnarhrauni 10, Grindav. Sigurlinni Sigurlinnason, frkvstj., Hraunhólum 6, Garðahr. Teitur Guðmundsson, bóndi, Móum, Kja'arnesi. Óski menn að kjósa aðra en að ofan greinir: Skoðanakönnunin í Reykjaneskjördæmi Utankjörstaðakosning hefst n.k mánudag AK,, Rvík, föstudag. — Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur var til umræðu tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins um afnám hins siÁlfvirka hækkunarkerfis Rafimagnsveitunnar, sem ákveður hækkanir rafmagnsverðs, hvort sem rafmagnsveitan þarf eða ekki. í till'ögunni er lagt til, að ákvörð unarvald um rafmagnsverð verði á ný hjá borgarstjórn. Tillögunni var vísað til stjórnar veitustofnana borgarinnar og síðan til annarrar umræðu í borgarstjórn og endan legrar afgreiðslu. Er nú að sjá, hve Sjálfstæðisflokkurinn metur mikils hag heimilanna. í framsöguræðu fyrir tillögunni sagði Kristján Benediktsson, að með nýrri gjaldskrá Rafmagns- veitu Reykjavíkur, sem tók gildi á miðju s. 1. ári, hafi verið sett Þjóðminja- safnið fær lokk úr hári Thorvaldsens Forseti íslands, dr. Krist- ján Eldjárn, hefur nýlega afhent Þjóðminjasafni ís- ,’ands að gjöf frá Niels Gartig innsiglaforverði við Ríkisskjalasafnið í Kaup- mannahöfn, lokk úr hári Bertels Thorvaldsens mynd- höggvara i fagurlega útskor inni umgerð. Gefandi af- henti forsetanum hárlokk- inn í hinni opinberu heim- sókn forsebans í Danmörku nýverið og óskaði, að hann yrði síðan afhentur opin- beru minjasafni á íslandi til eignar og varðveizlu. Með þessari gjöf vildi Gartig minnast hins íslenzka ætternis Thorvaldsens, en á þessu ári eru liðin 200 ár frá fæðingu hans Þjóðminjasafn íslands kann vel að meta þessa góðu gjöf og kann gefanda beztu þakkir fyrir. (Fhá Þjóðminjasafni). TILBOÐIÐ VAR 13.6 MILLJÓNIR I frétt um gengisbreytinga- greiðslur Reykjavíkurhafnar til sænsku verktakanna, sem tóku að sér byggingu Sundahafnar, var sagt, að samkomuJagstilboð Sví- anna hefði verið þrettán milljón- ir, en átti að vera 13.6 milljónir (þrettán milljónir og sex hundruð þúsund). Eru hafnaryfirvöld og aðrir hlutaðeigandi beðnir afsök- unar á þessari skekkju. K.J. ákvæði í 13. grein, sem fælu í sér heimild til Rafmagnsveitunnar til þess að breyta rafmagnsverði án þess að bera slíkt undir yfirstjórn endur fyrirtækisins, borgarráð-og borgarstjórn. Ákvæði þau, sem um þetta fjalla, eru svohljóðandi: „Rafmagnsveitu Revkjavikur' er heimilt að breyta gjaldskrá þessari til samræmis við verðbreytingar isamkvæmt hlutfalllsgrundvelli, sem fæst úr síðasta ársreikningi Rafmagnsveitunnar, enda sé grund völlurinn iagður fyrir stjórn veitu stofnana borgarinnar til staðfest ingar ráðherra. Þættir þeir, sem taka skal tiliit til eru þessir: Orku kaup, verðjöfnunargjald, laun, efni og vélakostnaður. Gjaldskrár breytingu samkvæmt framansögðu er heimilt að gera allt að tvisvar á ári, 1. jan. og 1. júlí.“ Kristján sagði, að með þessum ákvæðum væru hinir kjörnu full trúar borgarbúa raunverulega sviptir ákvörðunarvaldi um raf- magnsverðið. Að vísu skyldi bera hlutfallsgrundvöllinn undir stjórn veitustofnana til staðfestingar. Að öðru leyti réðu yfirmenn þessa risavaxna fyrirtækis borgarinnar rafmagnsverðinu. Fyrsta hækkun in eftir þessu nýja og sjálvirka kerfi hefði orðið 1. júlí s. 1. og næmi tæpurn 20% og mundi hún byggð á hækkunum þeirra tll- teknu kostnaðarliða, sem áður get- ur. Augljóst er, að stórfelld hækk un verður enn á rafmagni um næstu áramót, ef kerfið ræður með sama hætti. Þegar miklar hækkanir verða á nauðsynjum almennings, svo Um næstu mánaðamót kemur hingað til lands 40 manna flokkur listamanna frá „Skozku óperunni“ og er hér um að ræða óperusöngv- ara og hljóðfæraleikara. Fyrirhug að er að hafa hér fiórar sýningar á vegum Þjóðleikhússins á tveim- ur þekktustu óperum frægasta tónskálds Brcta, Benjamíns Britt- en. Óperurnar, sem sýndar verða eru : Albert Herring og The Turn of the Screw. Þetta er stærsti óperuflokkur, sem hingað hefur komið og er ekki að efa að marg ir munu hafa mikla ánægju af að hlusta á þessa ágætu listamenn frá Skozku óperunni. Að undanförnu hafa þessir lista menn verið á sýningarferð og hafa auk þess sýnt á Edinborgar hátíðinni. Skozka óperan, var stofnuð ár- ið 1962 og er í dag talin meðal fremstu óperustofnana Bretlands. Árið 1969 sagði New Statesman um óperuna í sambandi við sýn- ingu á Trjójumönnum eftir Berli- oz, að „engin óperuflokikur í Vest- sem rafmagni, er eðlilegt að spyrja, hvort þær séu rekstri þjón ustufyrirtækisins nauðsyn, sagði Kristján. Þeirri spurningu svöruðu talandi tölur. Árið 1969 voru heild artekjur Rafmagnsveitu Reykjavík ur 367 millj. ,kr. að frádregnum söluskatti. Rekstrargjöld urðu 274 millj. og rekstrarafgangur 93 millj. eða öllu heldur lHajniHj. þegar framlag til borgarsjóðs, 21 millj. er dregið frá. Um s. 1. ára- mót voru eignir Rafmagnsveitunn ar 717 milljónir en bójjfæðar skuldir 60 millj. Og þá nántu inn- stæður í bankabókum RajTmagns- veitunnar tæpum 50 millj. kr. Handbært fé til ráðstöfunar var um 100 milljónir. Ekki væri hægt að segja annað en þetta væri góð afkoma — rekstrarafgangur nær- fel.lt þriðjungur heildartekna, greiðslustaða einnig mjög góð. Þetta ár varð því mjög hagstætt Rafmaignsveitunni og horfur á þessu ári sérlega góðar. Það er nauðsynlegt og sjálfsagt að þjónustufyrirtæki borgarinnar séu fjárhagslega sjálfstæð, sagði Kristján og geti gegnt ætlunar- verki sínu. Það verður að tryggja, þegar þjónustuverðið er ákveðið. En Rafmagnsveita Reykjavíkur á ekki að afla bönkunum rekstrar fjár. Hún á ekki að selja vöru sína hærra verði en nauðsynlegt er hverju s'nni. Það getur hins vegar gerzt, með sjálfvirku og vélrænu hækkunarkerfi, eins og dæmin sýna. Kristján sagði, að tillaga borgar fulltrúa Framsóknarflokksins um breytingu á ákvæðum 13. gr. gjald Framhald á 14. síðu ur-Evrópu tekur henni fram þeg- ar hún gerir bezt“. Stofnandi Skozku óperunnar var Alexander Gibson, sem hefur stjórnað listrænni starfsemi henn- ar og hefur verið aðalhljómsevit- arstjóri Scottish National Orc- hestra, leikur á flestum snýing- um óperunnar. Skozka óperan er hvort tveggja þjóðleg og alþjóðleg stofnun, og það mikla álit og ótvíræði orðstír, sem hún nýtur í dag er ævintýri líkast, þegar haft er í huga að hún er ekki nema 8 ára. Fáir munu hafa trúað, þegar hún hóf starfsemi sína árið 1962, að hún ætti langra lífdaga auðið, hvað þá komið til hugar að spá henni slíku gengi sem orðið er. Formaður óperuráðsins er Rob- in Orr, en Alexander Gibson hef- ur yfirumsjón með listrænni starf semi, eins og fyrr er sagt. Peter Hemmings er aðalframkvæmda- stjóri og hefur hann tvívegis kom- ið hingað til landsins til að und- irbúa komu óperunnar hingað til Þjóðleikhússins. Skoðanakönnun Framsóknar- manna í Reykjaneskjördæmi fer fram dagana 26. og 27. september n. k. Rétt til þátctöku í skoðanakönu uninni hafa allir félagsbundnir Framsóknarmenn og stuðnings- menn Framsóknarflokksins í kjör- dæminu, sem kosningarétt hafa við Alþingiskosningar þær, sem í hönd fara. Þeir, sem rétt hafa til þátttöku í skoðanakönnuninni, en eru nú fjarverandi og koma ekki heim fyrr en eftir að skoðanakönnunin hefur fari® fram, geta greitt at- kvæði, en þeir verða að snúa sér til formanns Framsóknarfélags þess byggðarlags, sem þeir eru staddir í, og fá hjá honum vottorð, sem fylgja skal atkvæði viðkom- andi kjósanda. Sýnishorn af kjörseðli er birt- ur í blaðinu og geta þeir, sem kjósa utan kjördæmisins, notað það sýnishorn sem kjörseðil, eða ritað nöfnin á sérstakt b.’að. Skal atkvæðaseðillinn settur • sérstakt. lokað mmslag, sem síðan skal sett í annað umslag ásamt unplýsing- OÓ-Reykjavík, laugardag. Að öl.’um líkindum situr inn- brotsþjófur í dag og reynir að komast til botns í hvernig á því stendur að hátt á annað hundrað skór, sem hann stal í velheppn- uðu innbroti í nótt, eru engir af sömu stærð eða gerð, svo að erfiði hans hefur verið til einskis nerna að það komist í tízku að ganga í skóm af sitthvorri gerð- inni. Innbrotið var framið í innflutn ingsfyrirtæki, sem flytur inn skó. um um kjósandann 'þ. e. nafn, lögheimili, fæðingardag og ár) og vottorði félagsformanns. Atkvæði skal síðan senda til Yfirk.iörstjórn- ar, Pósthólf 235, Kópavogi. Einnig verður hægt að kjósa utankjörstaðar hjá formönnum undirkjörstjórnar og á skrifstof- um flokksins í Reykjavik og á Akureyri. Hundrað ár frá fæð- ingu Jónasar Kristjáns sonar læknis FB-Reykjavík, laugardag. Á morgun, sunnudag, verður hátíð haldin í tilefni aldarafmæl- is Jónasar Kristjánssonar, fæknis, sem stofnaði Náttúrulækningafé- lagið. Hátiðin verður í heilsuhæl inu í Hveragerði. Ferð verður aust ur á sunnudagsmorgun frá Um- ferðarmiðstöðinni. Gestirnir munu snæða hádegisverð í heilsuhæl- inu, en hátíðardagskrá hefsit kl. 2. Var brotin hurð í vörugeymshi og stolið þaðan sex kössum, sem í voru hátt á annað hundrað sýnis- horn af skóm af öllum stærðum og gerðum, karlmannaskór, kven- skór og barnaskór. En ekki voru í kössunum nema einn skór af hverri tegund, og mun því þýfið lítils virði. I nótt var einnig brotizt ino í þrju fyrirtæki í Súðavogi, eD ekki er vitað til að neinu hafi verið stolið, nema einhverju mf.gni af vindlingum úr Vogakaffi. SKOZKA ÖPERAN í ÞJÚDLEIKHÚSINU STAL MIKLU AF SKÚM, EN ALLIR OSAMSTÆÐIR

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.