Tíminn - 23.09.1970, Qupperneq 2
r
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 23. sept. 197».
„Það gerir sko ekkert tll, þótt hann rigni. Okkur kemur svo vel saman,
urvdir regnhlífinni, þó hún sé kannske í minnsta lagi". Þetta unga par
var á spássérgöngu elnn daginn í rigningunni og lét veSrið ekkert á sig
fá, en þeir sem eidri voru grettu sig margir hverjir og bölvuSu veSrinu
f hijóSi. Nú er komið haust og haett við að fari að rigna að minnsta
kosti annað slagið. Þá ættu sem flestir að reyna að taka sér þeta unga
fólk tii fyrirmyndar og halda sólskinsbrosinu, þrátt fyrir bleytuna. —
(Tímamynd — Gunnar).
Leikár L.A. að hefjast
Aðalfundur Leikfélags Akureyr-
ar , sfðari hluti — var haldinn
s.l. fimmtudag.
Svo sem áður hefur verið frá
skýrt, gekk starfsemi félagsins
vel á s.l. starfsári. Sýnd voru fimm
íslenzk leikrit og urðu sýningar
alls 97 — iþar af 26 í leikför ■um
Vestur-, Norður- og Austurland.
Leikhúsgestir voru um 18 þús. tals
ins.
Sigmundur Örn Arngrímsson
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri félagsins áfram og einnig
starfar Arnar Jónsson leikari með
félaginu, eins og s.l. ár. Er félag-
kiu mikill fengur að þessum starfs
kröftum, en fleiri þyrftu þó að
bætast í hópinn.
Á fundinum skýrði fram-
kvæmdastjórinn frá vetrarstarf-
inu eins og það nú liggur fyrir.
Fyrirhugað er að starfsemin verði
með svipuðu sniði og s.l. starfsár.
Fyrsta verkefnið verða tveir ein-
þáttungar „Draugasónatan" eftir
Strindherg í þýðingu Einars Braga
og „Skemmtiferð á vígvöllinn“
eftir Arrabal, þýðandi er Jökull
Jakohsson. „Draugasónatan“ er
eitt af síðustu verkum Strind-
hergs, sem mörg hafa haft bein
og óbein áhrif á skrif ýmissa fram
úrstefnuhöfunda, en Arrabal telst
einmitt til þeirra. „Skemmtiferð
á vígvöllinn“ er gamanleikur með
alvarlegum undirtóni og hverjum
manni auðskilinn. Frumsýaing
mun verða í byrjun október. Leik-
stjóri er Sigmundur Örn. Annað
verkefnið er gamanleikur Aristó-
fanesar um kvenskörunginn • Lysis-
trötu og konurnar í Grikklandi,
seip neita að ylja ból bænda sinna
nema þeir hætti öllum bardögum
o« stríðsrekstri. Æfingar hófust
Niðurstöður landsfundar bókavarða:
Heilsuhæli og sjúkrahús fái
bætta bókasafnsjpjómistu
Fyrsti landsfundur íslenzkra
bókavarða var haldinn dagana 17.
— 20. september. Fundinn sátu
um 80 fulltrúar víðs vegar að af
iandinu.
Á fundinum voru flutt 17 fram
söguerindi, og voru umræður á
LEIÐRÉTTING
á frétt um ákvörðun lágmarks-
verðs á rækju og hörpudiski þann
19. þ. m.
Um lágmarksverð á hörpudiski
varð samfcomulag á yfirnefnd, en
lágmarksverð á rækju var ákveð
ið með atkvæðum oddamanns og
fulltrúa kaupenda gegn atkvæðum
fulltrúa seljenda.
eftir öllum erindunum. Fjallað var
bæði um almenningsbókasöfn og
rannsóknabókasöfn og nýjar skrán
ingar og flokkurnarreglur safna,
en í upphafi fundarins komu út
tvær nýjar bækur uim þau efni,
önnur um flokkunarMssS&r fyrir
íslenzk bókasöfn, «sssí skránisií
arreglur. Eru þasá hWfar unnar á
vegum Bókavarðafélags íslands.
Þá var vætt um s'öfn skjala og
handrita, endurskoðun iaga um al-
menningsbókasöfn, launamál. sam
skrá og bókaöflun rannsóknarbóka
safna, menntun bókavarða og fé-
lagsmál þeirra, skólabókasöfn og
söfn fyrir vanheila og sjúka, og
kynningu safna.
Einnig var sýnd kvikmynd um
notkun skólabókasafna. Skoður.ar-
íerðir voru í Landstvoki- og þjöð-
Þá er hinu góða laxveiðitjma-
bili loki'. og „sá svarti tími“ tek-
inn við. Veiðarfærum komið fyrir
a góðum stað þar sem þau bíða
þar til aftur birtir og haldið verð-
ur á ný til veiða í ánum. — Það
þarf víst ekki að ræða frekar um
metárið í laxveiðinni, svo oft hef-
ur þaS verið gert hér í Veiðihorn-
inu og á öðrum stöðum. En það
er ekki eingöngu hinn mikli laxa-
fjöldi, sem þeir er sannir veiði-
menn eru gleðjast yfir að veiði-
tímanum loknum, heldur einnig
hinn aukni skilningur almennings
á gildi fiskiræktar.
Þetta eru síðustu skrifin í
Veiðihornið á þessu sumri, enda
ekki ástæða til að halda því leng-
ur úti þegar hljótt er orðið yfir
laxveiðiánum. Við þökkum öllum
þeim sem aðstoðað hafa okkur
við' að fá sem gleggstar fréttir frá
veiðinni í laxveiðiánum, og svo
öðrum sem aðstoðað hafa við að
afla Veiðihorninu efni um veiði-
skap. — Þegar laxveiðitímabil
næsta árs hefst. mun þátturinn
einnig hefjast á nýjan leik hér í
blaðinu — og við óskum eftir því,
að sú góða samvinna sem við höf-
um haft við veiðimenn í sumar
haldizt einnig næsta sumar. — EB
í ágúst og þá æft í vikutíma, en
verður svo fram haldið um næstu
mánaðamót. Lysiströtu þýddi
Kristján Árnason en Atli Heimir
Sveinsson valdi tónlistina. Messí-
ana Tómasdóttir gerir leiktjöld og
búninga. Leikstjóri er Brynja
Benediktsdóttir, sem einr.ig stjórn
ar þriðja verkefninu, en það er
barnaleikritið „Lína langsokkur“
sem ætlunin er að komist á svið
fyrir jól.
Brynja setti bæði þessi leikrit á
svið í fyrravetur. Lysiströtu fyrir
Herranótt og hlaut sú sýning mjög
góða dóma, en „Línu langsokk" í
Kópavogi, þar sem það var sýnt
við geysivinsældir í alan fyrravet
ur.
Enn hefur ekki að fullu verið
gengið frá verkefnum eftir ára-
mótin, en gert er ráð fyrir tveim
til þrem verkefnum til viðbótar
og liklegt má telja að frumflutt
verði eitt íslenzkt leikrit.
Leiklistarskóli verður starfrækt
ur eins og s.l. vetur og verður
framhaldsdeild fyrir þá sem sóttu
skólann þá og óska að halda
áfram. Fer innritun fram bráðlega
og verður auglýst.
Á s.l. ári tók félagið upp þá ný-
breytni að gefa leikhúsgestum
kost á áskriftarskírteinum, sem
giltu fyrir allar sýningar vetrar-
ins og voru seld með 25% af-
slætti. Notfærðu margir sér þessi
hlunnindi. Slík áskriftarskírteini
verað seld með sama hætti í vet-
ur.
Upplýst var á fundinum að ný
ljósatafla yrði sett upp í leikhús-
inu í haust.
Mikið var rætt um fyrirhugað-
ar breytingar á leikhúsinu og
þann seinagang og sinnuleysi er
virtist ríkja af hálfu bæjarstjórn-
ar um þessi mál. Var eftirfarandi
tillaga samþykkt og skorað á Leík-
húsnefnd að fylgja henni fast
eftir:
„Aðalfundur Leikfélags Akur-
eyrar harmar þann seinagang er
ríkir um fyrirhugaðar endurbætur
á leikhúsi bæjarins. Telur fund-
urinn að á næsta ári verði að ger*
hér stórátak og minnir sérstak-
lega á breytingar á norðurhluta
hússins, sem óverjandi er að leng-
ur dragist að framkvæma. Enn-
fremur er almennu viðhaldi húss-
ins mjög ábótavant, t.d. málning
hússins að utan aðkallandi og
áklæði á sætum í áhorfendasal
þarf endurbóta við, og fleira
mætti nefna. Skorar fundurinn á
Leikhúsnefnd að fylgja þessuin
málum fast eftir.“
fFréttatiikynning frá stjórn L.A.).
Djúpivogur:
Snjórinn hjálpsam-
ur við smölun
ÞP—þriðjudag.
Undanfarið hefur snjóað nokk
uð í fjöll hér fyrir austan, og hef
ur það hjálpað bændum hér vel
við smölun, en sauðfjárslátrunin
hér á Djúpavogi hófst í gær. —
Undanfarið hefur verið allmikil
vinna hér, við pökkun á saltfiski
til útflutnings, einkum til Grikk
lands og Spánar. Þá er búið að
salta hér í sumar um eitt þúsund ■
tunnur af síld. og eru það Gissur
hvíti frá Hornafirði og Ljósfari
sem lagt hafa upp síldina.
f dag var opnuð ný verzlun hér
á Djúpavogi. Nefnist hún Búland,
og eigandi er Kristrún Óskarsdótt
ir frá Hornafirði.
skjalasafnið, bæjar og héraðsbóka
safnið í Hafnarfirði og bókasafn
Norræna hússins.
f niðurstöðum fundarins er m.
a. lýst yfir nauðsyn á að bæta
starfshætti safna, stuðla að auk-
inni mennfun bókavarða og vinna
að meifi kynnum og samstarfi
'/rók&wr'ða um land allt. Brýn þörf
er talin á bættri þjónustu bóka
safna á sjúkrahúsum og heilsuhæl
um og lögð áherzla á mikið og vax
;«ndi hlutverk skólabókasafna. Tal
ið er æskilegt, að Bókavarðafélag
ið semji kauptaxta fyrir bókaverði
í almenningsbókasöfnum um land
allt til samræmingar í launamál-
um.
Loks er lagt til, að landsfundir
verði haldnir á tveggja ára fresti.
Heyrnleysingjaskólinn:
Kennsla hefst. bráð-
lega í nýbyggingunni
Aðalfundur Foreldra- og
styrktarfélags heyrnardaufa,
var haldinn dagana 19. og 20.
sept. síðast’. í Norræna húsinu.
Fundinn sóttu foreldrar
heyrnardaufra barna víðs veg-
ar að af landinu, auk þess
nokkrir kennarar og skóla-
stjóri Heyrnleysingjaskólans.
Þorsteinn Sigurðsson, sér-
kennslufulltrúi Reykjavíkur-
borgar, flutti erindi um skipu-
lag sérkennslu og svaraði fyr-
irspurnum. Branduir Jónsson,
skói’astjóri, sagði frá þingi um
kennslu og uppeldismái heyrn
ardaufra, sem haldið var í
Stokkhólmi á s.l. sumri. Enn-
fremur svaraði hann fyrirspurn
um um skólastarfið á komandi
vetri.
Umræðuhópar störfuðu á
fundinum og skiiuðu ályktun-
um um félagið, Heyrnleysingja
skólann og stöðu hins heyrnar-
daufa í þjóðfélaginu.
Á sunnudagsmorguninn skoð
uðu fundarmenn nýbyggingu
Heyrnleysingjaskólans í Öskju
hlíð, en þar mun væntanlega
hefjast kennsla á næstunni.
Stjórn félagsins skipa nú
þessir menn:
Siguríður Jóelsson, kennari,
formaður; Jóhann G. Bergþórs
son, verkfræðingur, ritari; Ás-
geir Axelsson, vélvirki, gjald-
keri; Vi.'hjálmur Vilhjálmsson,
deildarstjóri, varaform., Hákon
Tryggvason, cand. mag. með-
stjórnandi. — í varastj. eru:
Davíð Davíðsson, sundlaugar-
vörður, Páll Guðbjörnsson, raf-
virkjameistari, Sigurbjörn Þór.
arinsson, verkstjóri.
Dagur verðlaunaður
Stjórn Minningarsjóðs Ara
Jósefssonar. skálds,' úthlutaði ný-
verið í þriðja sinn úr sjóðnum. Til
gangur sjóðsins er, eins og segir
í skipulagsskrá, að veita verðlaun
ungum skáldum eða listamönnum.
Að þessu sinni hlaut Dagur Sig-
urðarson kr. 30.000.00.
Dagur er listamaður af kynslóð
Ara Jósefssonar. Eftir hann hafa
komið út þessar bækur: Hluta-
bréf í sólarlaginu (1958), Milljóna
ævintýrið (1960) Hundabærinn
eða viðreisn efnahagslífsins (1963)
og Níðstöng hin meiri (1965), en
auk þess er hann afkastamikill
myndlistarmaður, svo sem kunn-
ugt er.
Áður hafa hlotið verðlaun úr
sjóðnum þeir Þorsteinn frá
Hamri, Guðbergur Bergsson og
Vésteinn Lúðvíksson.
I
(