Tíminn - 23.09.1970, Blaðsíða 3
8BÐVIKUDAGTJR 23. sept. 1970.
TIMINN
Forsætisráðherra
Búlgaríu kemur í
opinbera heimsókn
hingað á morgun
EJ—Reykjavík, þriðjudag.
Todor Zhivkov, forsætisráSherra
Búlgaríu og aðalritari kommúnista
flokks landsins, kemur í opinbera
heimsókn til ísland.s á fimmtudag
inn Ikl. 19 og verður hér á landi
fram á sunnudag.
Á föstudaginn, 25. septemher,
mun Zhivkov hitta forseta ís-
lands. dr. Kristján Eldjárn, en
síðan munu sendinefndir Búlgaríu
og íslands, undir forsæti Zhivkovs
og Jóhanns Hafsteins, forsætisráð
herra, ræðast við. Forseti íslands
býður forsætisráðherranum til há
degisverðar, en síðdegis á föstu
daginn héldur Zhivkov blaða-
mannafund. Um kvöldið sitja gest
irnir veizlu í boði ríkisstjórnar
innar að Hótel Sögu.
Á laugardaginn fer Zhivkov í
ferð um Þingvelli og að Búrfells
virkjun og Heklu. Um kvöldið
halda gestirnir samsæti til heið
urs íslenzku ríkisstjórninni.
Á sunnudaginn fer Zhivkov í
skoðunarferð um borgina, og snæð
ir hádegisverð í Höfða í boði
borgarstjórnar Reykjavíkur, Síð-
degis. heldur Zhivkov síðan til
Kaupmannahafnar.
Framhald á 14. síðu.
Æðardúnssængur
dralonsængur, gæsadúnssæng-
ur, vöggusængur, koddaver,
svæflar. — Æðardúnn, hálf-
dúnn, fiðurhelt \og dúnhelt
léreft.
Patonsullargarnið komið
6 grófleikar, litekta, hleypur
ekki, yfir 100 litir. — Prjón-
ar og hringprjónar í miklu úr-
vali.
Drengjajakkaföt
frá 5—14 ára, terelyne og ull
litaúrval, stakir drengjajakk-
ar, drengjabuxur frá 3—14 ára.
Ungverskar molskinnsbuxur og
gráar terelynbuxiir.
Matrósaföt,
rauð og blá, frá 2—7 ára,
ára, drengjaskyrtur hvítar og
mislitar frá 150 kr.
Terelynebuxnaefni, blátt, grátt,
svart.
— Pósts«ndum. —
Skíðamenn á Akureyri
undirbúa mikinn vetur
Nýr vegur upp í Hlíðarfjall í byggingu
SB—Reykjavík, þriðjudag.
Verið er nú að leggja nýjan veg
að Skíðahótclinu í Hlíðarf jalli við
Akureyri og er vonast til að hann
komist f gagnið fyrir veturinn.
fvar Sigmundsson hefur verið rá'ð
inn framkvæmdastj. Vetraríþrótta
miðstöðvarinnar. Tvö skautasvell
verða starfrækt á Akureyri í vet-
ur.
í sumar hófst lagning nýs
vegar upp að skíðahótelinu í Hlíð
arfjalli, en sá gamli hefur reynzt
mörgum erfiður og er yfirleitt ill-
fær eða ófær. þégar snjóa fer að
leysa. Efsta beygja, sem erfiðust
hefur verið, hverfur nú og einnig
eitthvað af öðrum krókum á veg-
inum. Verður að þessu mikil þót.
Vonast er til, að vegurinn verði
tilþúinn fyrir veturinn ef tíð helzt
góð eitthvað fram eftir hausti.
Ekki er enn ákveðið, hvenær
Skíðahótelið tekur til starfa, en
vonandi verður það um leið og
nægur snjór kemur.
í síðustu viku var fvar Sig-
mundsson ráðinn framkvæmdastj.
Vetraríþróttamiðstöðvarinnar og
felur það starf í sér bæði starf
hótelstj. Skíðahótelsins og stjórn
skíðalyftunnar, en áður var sinn
maðurinn í hvoru starfi. ívar er
nú farinn til Austurríkis, í því
skyni að kynna sér rekstur svip
aðra staða þar og ennfremur áð
athuga um möguleika á tilboðum
í tvær togbrautir í Hlíðarfjall. aðra
norðan við hótelið, en hina uppi
við Stromp.
Framtíðardraumur Skíðaráðs
Akureyrar er að fá lyftu upp á
brún Hlíðarfjalls og mun ívar
hafa augu og eyru opin í ferðalag
inu, ef möguleikar væru á að
láta þann draum rætast bráðlega.
í vetur heldur Skautafélag Akur
eyrar opnu skautasvelli á Krók-
eyri, og bærinn sér um skauta-
svell á íþróttavellinum. Þessir að-
ilar munu hjálpast að eftir þörf
um.
Talsvert stendur til 1 vetrar-
íþróttum á Akureyri í vetur. Þar
verður Skíðamót íslands haldið og
auk þess að minnsta kosti tvö
stórmót með þátttöku erlendra
skíðamanna.
Kennarar læra að kenna
Kennaranámskeið á vegum fræðslumálaskrifstofunnar
EB—Reykjavík, þriðjudag.
Mikil þátttaka var á námskeið-
um fyrir keunara á barna- og
gagnfræðaskólastiginu, sem
fræðslumálaskrifstofan stóð ein fyr
ir í suniar eða í samvinnu við aðra
aðiia. f dag var efnt til blaða-
mannafundar, þar sem skýrt var
frá þessari starfsemi. Fræðslu-
málaskrifstofan stóð í sumar fyr-
Keðjubréf
Vesturgötu. Sími 13570.
Framhald at bls 16.
Einar Ingimundarson, bæjar-
fógeti í Hafnarfirði, sagði Tíman
um í dag að þar stæði enn yfir
rannsókn á peningakeðjubréfunum
sem seld voru í eyðibýlinu Stekki
í síðustu viku. Þrír menn standa
á bak við þau keðjubréf, en einn
þeirra er veikur og er því aðeins
hægt að yfirheyra tvo. Tveir for
svarsmannanna eru úr Reykja-
vík og einn úr Hafnarfirði. Er bú-
ið að taka skýrslur af þeim mönn
um sem frískir eru. Enn er ekki
komið í Ijós hve mikla peninga
þeir hafa haft upp úr starfsem
inni né hve miklu var velt í keðju
bréfunum sem kölluð voru V-44.
Svo virðist sem fareldurinn
hafi gengið algjörlega yfir ef
marka má hve lítið er að gera í
ávísanadeildum pósthúsanna mið-
að við það sem var þegar starf
semin var í blóma.
Rannsóknarlögreglan í Reykja-
vík vinnur einnig að rannsóknum
á keðjubréfum, en nær eingöngu
þeim sem upphaflega koma frá
Svíþjóð og kennd eru við fyrirtæk
ið Investo í Malmö.
Niðurstöður beirra rannsókna,
sem nú er verið að gera í keðju
brófamálum verða allar sendar
saksóknara ríkisins, sem ákveður
hvað gert verður £ málunum, en
öruggt má telja að dómur falli í
keðjubréfamálum til að fá úr
því skorið hvort þessi starfsemi er
lögleg eða ekki.
Innbrot í
Hveragerði
SB—Reykjavík, þriðjudag.
Brotizt var inn í Pokagerðina í
Hveragerði í nótt. Ekki var neins
saknað { fljótu bragði, en þarna
var öllu ruslað til og hlutir
skemmdir. Lögreglan á Selfossi
hefur málið til athugunar og
sagði í dag, að þarna hefðu að-
komumenn verið að verki.
ir námskei'ðuin í 5 kennsluefnum.
Voru haldin sjö eðlisfræðinám-
skeið, fjögur stærðfræðinámskeið,
eitt námskeið í dönsku, og enn-
freniur í lfffræði og þrjú hann-
yrðanámskeið.
>á voru námskeið á vegum
Skólarannsókna, þar sem endur-
skoðunvnámíftfiUtö.i og prófagerð
voru tekin fyrir, Þetta námskeið
vaj; fyrir hóp manna, sem .fengizt
h'áfar'-við samningtl kennslubóka,
endurskoðun námsefnis og prófa-
gerð, og svo þá er á næstunni taka
þátt í verkefnum á þessu sviði. —
Aðrir aðilar, sem staðið hafa fyr-
ir kennaranámskeiðum eru kenn
arafélög, kennaraskólar og Reykja
víkurborg, sem hefur skipulagt
umfangsmestu námskeiðin, eins
og námskeið fyrir kennara 6 ára
barna, stærðfræðinámskeið og
námskeið fyrir handavinnukenn-
ara í samráði við Félag ísl. smíða-
kennara.
Skólarannsóknir stefna nú að
því, að gerð verði úttekt og fram
kvæmd endarskoðun á öllu náms-
efni barna- og gagnfræðaskóla á
árunum fram til 1980. Hafa sér-
stakar áætlanir verið gerðar um
fimm kennslufög, þ.e. eðlis- og
efnafræði, líffræði, stærðfræði,
dönsiku, sögu og samfélags-
fræði. Verða aðgerðir Skólarann-
sókna á þessu sviði næsta vetur
og í framtíðinni, miðaðar við að
framkvæma áætlanirnar og aðrar,
sem enn eru ekki fullfrágengnar.
Þannig vænta Skólarannsóknir
þess, að muni myndast ný náms-
skrá og kennsluhandbækur, i öll-
um námsgreinum skyndunáms-
skóla framtíðarinnar.
Merkur atburður
Mikilvægur atburður hefur
átt sér stað. Fyrsti nemandinn,
sem lokið hefur raungreina-
deildarprófi í Tækniskóla ís-
lands, eftir tveggja óra nám
þar, hefur fengið inngöngu í
verkfræðideild Háskóla fs-
lands. Þetta er atburður, sem
vonandi á eftir að endurtaka
sig oft og þar með valda þátta-
skilum í íslenzkum menntamál
um. Einn helzti gallinn á okkar
skólakerfi hefur verið sá, hve
einhæfar námsleiðir hafa verið
að háskólanámi, og hve lítið
innbyrðis samband hefur verið
milli þeirra námsleiða í ís-
lenzku skólakerfi, sem um hef
ur verið að velja.
Fyrir tveimur árum var af-
burðanemenda, sem lokið hafði
prófi úr raungreinadeild Tækni
skólans synjað um skóavist í
Háskóla íslands.
íhaldssemi
Nú þótti forráðamönnum Há
skólans hins vegar ekki stætt
á því að synja umræddum af-
burðanemenda, sem lokið hafði
raungreinaprófi frá Tækniskól
anum, um skólavist í verkfræði
deild. Það virðist þó hafa verið
gert eftir krókaleiðum og sem
alger undantekning og lögð á
það áherzla, að þessi undan-
þága skapaði ekki neitt for-
dæmi og ýmis skilyrði sett, um
ræddur nemandi verður óreglu
legur nemandi, a.m.k. til að
byrja með, og þarf að ljúka
prófi í ákveðnum greinum.
Af þessu er Ijóst, að háskól
inn er mjög tregur til að
rýmka rétt manna til inngöngu
í háskólann. Hér verður því að
koma til lagabreyting, skýr
lagaákvæði um réttindi manna
til að setjast í háskólann og
sýnast mönnum tillögur Stúd-
entaráðs um þau efni skynsam
legar. Þessa lagabreytingu má
ekki draga, og taka verður af
öll tvímæli um rétt nemenda
er ljúka raungreinaprófi frá
Tækniskólanum, til náms við
verkfræðideild háskólans, upp-
fylli þeir sambærileg lágmarks
skilyrði og þau sem sett eru
stúdentum frá menntaskólum.
Óvenjulega almennt
traust
f skoðanakönnun þeirri, sem
fram fór um síðustu helgi með-
al félagsbundinna Framsóknar-
manna í Reykjavík um skipan
framboðslista flokksins við
næstu alþingiskosningar, hlutu
þingmenn flokksins í Reykja-
vík mikið og almennt traust.
Einar Ágústsson var kosinn á
97,4% gildra atkvæðaseðla og
Þórarinn Þórarinsson á 91,1%
gildra seðla. Þetta er óvenju-
lega almennur stuðningur og
sýnir svo vel sem frekast er
unnt hve mlklð traiist Fraw-
sóknarmenn í Reykjavík hafa
á þingtnönnum sínum, þeim
Þórarni Þórarinssynl og Einari
Ágústssyni. — TK