Tíminn - 23.09.1970, Síða 5

Tíminn - 23.09.1970, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 23. sept. 1970. TÍMINN MEÐ MORGUN KAFFINU Fyrir 50 árum fengu hermenn irnir í setuliðinu heldur lítið að botrða. að þeim fannst. Dag nokktrrn kom einn dátinn hlaup andi út úr bragganum, þar sem borðað var og sveifláði hnif og gaffli út í loftið. Liðsforinginn. sem stjórnaði matarskammtinum, átti leið fram hjá í sömu mund og spurði, hvað maðurinn væri eig inlega að gera. — Hváð heldurðu! Það kom fluga inn í braggann og skömm in gerði sér lítið fyrir, flaug ofan í diskinn minn og tók kjötbitann og flaug með hann út og nú er ég að reyna að ná henni til að fá matinn minn aftur. — Þú ert svo þreytulegur, Emil. Ég skal keyra barnfóstr- una heim. r — Gerðu svo vel, clskan. Morgunmaturinn í rúmið. Andrés kom akandi á hjóli eftir veginum og sá ekki stóran stein í íkantinum. með þeim af- leiðingum, að hann ók á stein inn og hafnað á höfðinu í skurð inum. María átti leið fram hjá og nam staðar, þegar hún sá, hvernig komið var fyrir Andrési. — Datztu í skurðinn? spurði hún. — Nei, ég er vanur að fara svona af baki, svaraði hann. — Góðan daginn Jensen. hvernig hafiö þið það heima hjá þér? — Þér verðið áð afsaka, lækn ir, en við erum öll hress núna. Drengur nokkur gleypti í ó- gáti sjálfblekung og faðir hans hringdi í ofboði til læknis. — Ég kem strax, sagði lækn irinn, — en segðu mér, hvað er sonur yðar að gera þessa stundina? — Hann skrifar bara með venjulegum blýanti. — Og livert á svo a'ð fara í brúðkaupsferð? DENNI DÆMALAUSI — Láttu þessa krakka eiga sig. Reyndu heldur að ná forsprakk- anum. I „Hindbærbrus og Kraketæ- er“ heitir eina barnablaðið í heiminum, sem eingöngu börn skrifa allt efni í. Það er sá frægi dansk-íslenzki Otto Sig- valdi í Kaupmannahöfn. sem hefur annazt útgáfu ritsins fyr ir börnin, en þaö hóf útkomu sína 2. desember 1968. Fyrst var blaðið prentað í 25000 ein- tökum og seldust af þeim 18000. Þau tölublöð. sem síðan komu út, voru prentuð í 10.000 eintökum en ekkert þeirra blaða hefur seázt í meira en 8.000 eintökum. Af hinum síð ustu hafa reyndar ekki selzt nerna 1500 til 1700 eintök. Sigvaldi hefur því ákveðið að hætta aið gefa blaðið út. ★ — Við höfum aldrei verið jafngóðir vinir sem nú, segir bandariska 'eikkonan Jean Se- berg, sem skildi við mann sinn fyrir rúmu ári. Þau Jean og franski rithöfundurinn Romain Gary höfðu verið gift í níu ár, þegar þau slitu samvistum, en það var í fullri vinsemd og hvorugt þeirra fluttist á brott. — Við skiptum bara íbúð- inni okkar í tvennt, og reynsl- an hefur sýnt, að þetta er hið ákjósanlegasfia fyrirkomulag, sérstaklega fyrir Diego, sem er sjö ára og okkar eina barn. Þegar við skildum, gerðum við rækilega hreint fyrir okkar dyru.m: -Eg'.niissti að visu .mann inn minn, en í staðinn eignað- ist ég góðan vin, ag-. þaið er ekki síður miki.'vægt. Þótt undarlegt megi ef til vilL virð- ast, þá eru.m við langtum hrein skilnari og betri hvort við ann- að heldur en meðan við vorum gift. Þetta er frú Carmen Notari frá Barcelóna. Frá fæðingu hef Sænska leikkonan Britt Ek- lund, fyrrverandi eiginkona Peters Sellers, dvelst um þess- ar mundir í London, þar sem hún fæst við kvikmyndaleik. Kunningjarnir segja Britt í giftingarhugeliðingum, og hef- ur hún hvorki játað því né neitað. Væntanlegur eiginmað- ur er sannarlega enginn slor- dóni, því að auk þess að vera jarl af Lichtfield, ku hann vera * ur hún þjáðst af einhverjum mænusjúkdómi, sem meðal ann ars olli því, aið hún gat ekki stigið í fæturna. Frúin gekk í gegnum ótaf uppskurði, en allt án árangurs. Loks afréð hún að freista gæf- unnar við baðstaðinn Lourdes í Frakklandi, en þar eiga að hafa gerzt fjölmörg kraftaverk við hina heilögu uppsprettu. Strax við fyrsta baðið fannst Carmen sem um hana færi ein konar rafstraumur, og á eftir gekk hún nokkur skref i fyrsta sinn á ævinni! Þegar í stað var sent eftir fulltrúum lækna- og presta- stéttar og vinna þeir nú að því að gera nákvæma skýrslu um málið, sem síðan verður athuguð gaumgæfilega og rædd á a.'lsherjarfundi í París. Rannsókn á fyrirbærinu get- ur tekið allt að fjögur ár, en frú Notari hefur "kk: áhyggj- ur af þvi hún vonar bara að lækningin verði ekkert stund- arfyrirbrigði, o? að hún geti nú loksins farið aö lifa eðlilegu lífi. . Hver sem niðurstaða sér- fræðinga verður í málinu, verð ur því ekki neitaið, að frúin fékk skyndilega mátt í fæturna ve'lríkur. Það er þó hvorki jarlinn né | Sellers, sem Britt er að spjalla I við í símann, heldur sá vinsæli í leikari Michael Caine, sem leik j ur aðalh.'utverkið í nýrri j brezkri mynd, ,,Carter“. Britt j Eklund leikur einmitt unnustu J hans i þessari mynd, og trú- j lega er hún að mæia sér mót j við hann eða eitthvað í þá átt- j ina, á meðfylgjandi mynd. I * í og á meðfylgjandi mynd sjá- J um við hana ganga niður stiga j á sjúkrahúsinu í Lourdes. ! * I Upp á síðkastið hafa slúður- j dálkahöfundar í Hoilywood j skemmt sér við að spá ski.'naði 1 milli leikarans David Niven og konu hans Hjördísar, en þau hafa verið gift i tuttugu og tvö ár. Það er enginn smá- ræðistími, þegar frægur leik- ari á í hlut, og þess vegna hafa þessar sögusagnir að vonum vakið mikla athygli. Þau hjónin hafa einungis hlegið að þessu, og neita því harðlega, að framhjáhald hafi orsakað missætti þeirra, en því hefur verið haldið fram, að David hafi verið konu sinni ótrúr, og hún auðvitaö brugðizt hin ver'-ta við. — Við erum hreint ekki í neinum ski.'naðarhugleiðingum og höfum aldrei verið, segir leikarinn, og okkar á milli er ekkert missætti. Þetta er bara tilbúningur hugmynda- ríkra kerlinga, sem alltaf verða a@ finna sér citthvað til. Hjóna band okkar er álíka traust og steinsteypa. I ■s>

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.