Tíminn - 06.10.1970, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 6. október 1970
TÍMINN
3 )
Hreinsitækin sett upp ef þörf krefur
OÓ—Reykjavík, mánudag.
— Við höfum alltaf vitað að það
er hætta á einhverri flúormengun
í næsta nágrenni verksmi'ðjunnar,
sagði Halldór H. Jónsson, stjórnar
formaður fslenzka Álfélagsins,
Tímanum í dag, og við liöfum
áhuga á að koma í veg fyrir að
skaði verði af menguninni. Ef
vísindalegar rannsóknir sýna að,
mengunin sé veruleg, munu verða
sett upp hreinsitæki í verksmiðj-
una, en samningar voru gerðir um
þetta atri'ði áður en verksmiðjan
tók til starfa. Er verksmiðjan
var byggð var gert ráð fyrir að
hægt yrði að setja hreinsitækin
«PP, og var hluti þeirra hyggður
um leið og verksmiðjan.
Halldór bauð í dag blaðamanni
frá Tímanum að kynna sér hvaða
ráðstafanir hefðu verið gerðar til
„Gylfaginning”
Framhaid aí bls. 1
hefst hann tol. 20,30. — Fundar
efni: 1. Eftirmáli borgarstjórnar
kosninganna og framtíðarhorfur.
Frummælandi: Arnbjörn Kristins
son, form. fulltrúaráðsins. 2.
Kosning uppstillinganefndar
vegna Alþingiskosninganna 1971.
— 3. Umræður umi prófkjörsregl
ur. Frumimælandi: Sigbvatur Björg
vinsson, ritstjóri.“
Uim 1. diagskrárefnið er fátt
að segja. Alþýðuflokkurinn er í
verki þegar búinn að afgreiða
það tnál með því að neita um
haustkosningar. Flokksmenn eru
búnir að éta ofan í sig öll stóru
orðin frá því í vor og öll skil
yrðin, sem þá var sagt að ætti að
setja fyrir áframhaldandi stjórn
arsamstarfi við Sjálfstæðisflokk-
inn eru geymd, en í staðinn kom
in sú föðurlega yfirlýsing flokks
formannsins Gylfa Þ. Gíslasonar,
að með afstöðu sinni til haust
kosninga hafi Aiþýðuflokikurinn
auðvitað tekið á sig aukna
ábyrgð á afgreiðslu mála í vet-
ur, enda sé A'lþýðuflokkurinn
„ábyrgur" flokkur.
Um 2. dagskrárliðinn er enn
minna að segja, þar sem upp-
stillingarnefnd verður í raun kjör
stjórn í prófkjörinu, sem mikill
meirihluti er fyrir í Alþýðuflokks
félögunum. þótt menn séu ekki
allir sammála hinni nýstárlegu
leið Gylfa við framkvæmd þess.
Um 3. dagskrárliðinn stóðu
deilurnar. Sá, sem valinn var af
meirihluta stjórnar fulltrúaráðs
ins.til að mæla fyrir bjarghringn
um hans Gylfa, var Sighvatur
Björgvinsson, ritstjóri Alþýðublaðs
ins, sem meðal flokksmanna
gengur undir nafninu „His
Masters Voice“. Þetta var sjálf
sagt val framsögumanns miðað við
allar aðstæður, en kemur kannski
ókunnugum dálítið á óvart, því
að þessi sami Sighvatur skrifaði
í vor — fyrir borgarstjórnarkosn
ingarnar — hverja greinina og
leiðarann á fætur öðrum gegn
prófkjörum og skoðanakönnunum
og taldi sig sanna það, að lýðræði
væri einmitt hvergi meira en í
Alþýðuflokknum við ákvörðun
framboða án prófkjörs- Nú mælir
hann fyrir prófkjöri af sama eld
nióði og hann lagðist gegn þeim
í vor — en nota bene: Með því
skilyrði. að framkvæmdin verði
einskonar Gylfa-ginning Alþýðu
flokksmanna.
Nánar verður skýrt frá þessum
fundi Fulltrúaráðs Alþýðuflokks-
félaganna í Reykjavík í blaðinu
á morgun.
f gærkvöldi ákváðu Alþýðu-
flokksmenn í Reykjaneskjördæmi
að þar skyldi fara fram opið
prófkjör við val á mönnum á
framboðslista flokksins við næstu
alþingiskosningar.
Stokkurinn í mæni kerjaskálans í Straumsvík. í loftinu eru öflugar viftur, sem draga brennsluefnin út. Á
botni stokksins er rcnna, sem tekur við vatni, ef hreinsitaekin verSa sett upp, en þau verSa þá á milli vift-
anna og vatnsrennunnar. (Tímamyndir—Gunnar)
að fylgjast með flúormengun frá
verksmiðjunni, og hvað gert verð-
ur til að koma í veg fyrir haua
ef þörf þykir. Dr. Basshard, tækni
legur framkvæmdastjóri verk-
stniðjunnar, skýrði í stórum drátt
um frá mengunarrannsóknum og
þeitn hreinsitækjum sem komið
verður fyrir ef þörf þykir.
Það þarf engum að koma á
óvart að flúors verði vart við
verksmiðjuna, því efnið myndast
við brennslu í kerjaskálanumi og
rýkur út í Íoftið. Hins vegar er
magnið svo Mtið aS ekki á að
stafa hætta af. Þó er visst afmark
að svæði næst vertsmiðjunni, sem
vart getur flOorvnengunar að
marki, og var öllum landeigendum
á sínurn tíma gert aðvart um það.
Garðir voru sérstakir samningar
vegna hættu á flúormengun, og
var skipuð nefnd til að rannsaka
þetta atriði löngu áður en verk-
smiðjan tók til starfa. Eru tveir
aðilar neíndarinnar skipaðir af rík
isstjórninni og tveir af Álfélag-
inu.
Skipulegar
mengunarrannsóknir
Tveim árum áður en álfram-
leiðslan hófst voru gerðar athug-
anir á gróðri í Hafnarfirði, Foss-
vogi, Reykjavík og Heiðmörk.
Fannst þá víða sviðnun í trjálaufi,
sem náttúrlega er fráleitt að stafi
af flúormengun frá álverinu. Um
mengunarhættu við verksmiðjuna
er það að segja að ekki er talið
ólíklegt að hennar verði vart á
svæði, sem nær 3 km. suður fyrir
hana og jafnlangt inn til landsins
og 2 km. í átt að Hafnarfirði, eða
sem næst að vegamótum Krísuvík-
urvegarins.
Mengunarnefnd hefur með vissu
millibili tekið sýnishorn af gróðri,
mold og vatni á stóru svæði. Nær
það svæði allt upp í Borgarfjörð,
en þar eru tekin sýnishorn í Reyk-
holti og á Gullberastöðum í Lund-
arreykjardal. Eftir því sem nær
dregur Straumsvík eru sýnishorn-
in tekin á þéttara svæði. Eru sýn-
ishornin ávallt tekin á sömu stöð-
um og er unnið úr þeim í þrem
löndum, á íslandi, í Noregi og
Sviss. Eru niðurstöðurnar síðan
bornar saman. Niðurstöður þeirra
rannsókna sem síðast voru gerðar
liggja ekki enn fyrir. en munu
gera það bráðlega. Eina mögulega
mengunin frá verksmiðjunni er
flúormengun.
Hreinsitækin
Flúorin myndast við brennsluna
í kerjaskálanum, eins og áður er
sagt. Eftir endilöngum mæni skál-
ans er stokkur og efst í honum öfl
ugar viftur, sem draga loftið upp
úr skálanum og blása brennslu-
efnunum út. Neðst í þessum
stokki er breið renna, sem á að
taka við vatni ef til þess kemur
að setja þurfi hreinsisíur í verk-
smiðjuna.
Dr. Basshard sagði, að ef þurfi
að hreinsa flúorin úr úrgangsefn-
unum verði að setja þar til gerðar
síur í fyrrgreindan stokk, milli
rennunnar og loftventlanna. Eru
síurnar gerðar úr plastefni og þétt
ur vatnsúði látinn leika milli
þeirra. Flúor gengur mjög auð-
veldlega saman við vatn og renn-
ur með úðanum niður í rennuna
og verður leiddur út úr verksmiðj-
unni í sjóinn. Sagði framkvæmda-
stjórinn að ekki væri kunnugt um
að nein hætta væri á ncins konar
mengun þótt flúor væri í vatni,
enda yrði hér um svo lítið magn
að ræða, að þess yrði varla vart.
Vatnsrennan, sem út af fyrir
sig er talsvert mannvirki, er þegar
fyrir„hcndi í kerjaskálanum. Það
sem einkum mundi valda erfið-
leikurn við uppsetningu síanna
væri að setja verður þær upp
meðan verksmiðjan er í fullum
gangi. Þó er það engan veginn
óyfirstiganlegt, sagði dr. Basshard,
það mundi einkum vera óþægilegt
að vinna þarna uppi vegaa hitans.
Um kostnað vegna uppsetningar
hreinsitækjanna, var ekki hægt að
fá upplýsingar. Hins vegar er ljóst
að viðhaldskostnaður verður mik-
ill. Þarf að hreinsa síurnar oft til
að þær komi að gagni, en ventlam
ir í mæninum eru svo kraftmiklir
að skipt er um loft í öllum kerja-
skálanum 40 sinnum á klukku-
stund, eða sem því svarar. Þá
sagði framkvæmdastjórinn, að bú-
ast megi við að einhver annar
háttur verði hafður á við hreins-
un, ef til kemur, úr þeim kerja-
skála, sem nú er verið að byggja
og verður fuligerður árið 1972.
En hægt er að sía flúorinn frá
öðrum efnum með annars konar
aðferðum en hér var lýst.
Framhald af bls. 1.
Þá er leið 3 einnig mikil
vandræðaleið og vagnarnir á
þeirri leið, yfirfullir á mestu
umferðartímunum. Við nýaf-
stáðnar breytingar var tíma-
áætlun þeirrar leiðar, rýmkuð
þannig að vagnarnir eiga að
vera stundvísari en áður.
Tímaáætlunin á leið 11 var
rýmfcuð þannig. að nú eru
farnar þrjár ferðir á fclst. í
stað fjögurra áðuir, og tvær
ferðir á klst. á kvöldin í stað
þriggja áður. Er þessi leið
einn mesti höfuðverkur SVR.
SVR hefur nú þrjá skúra til
afnota sem verkstæði og er við
gerðarrúm þeirra mjög tak-
markað, þannig að vandræði
mikil steðja að, þá er eins og
kunnugt er mikill varahluta
skortur hjá SVR vegna brun
ans.
Er ástæða fyrir óánægju al-
imennings yfir þessu nýýa
kerfi SVR, sem sannað hefur
að ekki er hægt að standa við
auglýst loforð. Þá mun vera
mikil óánægja meðal vagn
stjóra yfir því mikla álagi sem
á þeim hefur verið, frá því
breytingar voru gerðar í vetur
og segja þeir að aldrei hefði átt
að gera þær breytingar.
Gaman gaman
Dr. Basshard útskýrif hvernig hreinsitækjum verður komið fyrir i mæni
kerjaskálans ef þeirra gerist þörf.
I