Tíminn - 06.10.1970, Blaðsíða 9
>K»JUDAGUR 6. október 1970
TIMINN
9
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Tómas
Kaxisson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnar-
skrifstofur 1 Edduhúsinu, simar 18300 —18306. Skrlfstofur
Bankastraeti 7 — Afgreiðslusími 12323. Auglýsingasimi 19523.
Aðrar skrifstofur simi 18300. Áskriftargjald kr 165,00 á mánuði,
lnnanlands — í lausasölu kr. 10,00 eint. Prentsm Edda hf.
Fiskdreifing í Reykjavík
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins 1 Reykjavík báru
fram á síðasta fundi borgarstjórnar tillögu um að komið
yrði upp sameiginlegri dreifingarmiðstöð fyrir fisk í
samráði við þá, sem annast fisksölu í borginni. Skyldi
m.a. athuga, hvort Sænska frystihúsið hentaði og hvaða
möguleikar væru á að fá það til umræddrar starfssemi.
Einar Ágústsson mælti fyrir þessari tillögu og sagði
m.a.:
— Eins og nú hagar til verður hver fisksali sjálfur
að þeytast milli nálægra verstöðva í leit að fiski svo að
segja á öllum tímum sólarhrings, freistast til að kaupa
meira en hagkvæmt er, ef heppnin er það mikil, að fisk
er að fá, þrátt fyrir takmarkaða aðstöðu til að geyma og
vinna þessa viðkvæmu vöru, og flytja hana langar leiðir
oft á tíðum á ófullkomnum og óhentugum farartækj-
um.
Afleiðing er svo í mörgum tilfellum verri vara heldur
en verða þyrfti og þessir menn gætu haft á boðstólum, ef
skilyrði þeirra væru ögn hagstæðari.
Fiskur er bæði hollur og ódýr matur, þrátt fyrir allar
hækkanir, og vafalaust algengasta fæðutegund á flest-
um íslenzkum heimilum. Það er því hreint fjárhagsatriði,
sem hér er um að tefla — að bæta aðstöðu fiskdreifing-
arinnar.
Við íslendingar njótum þeirra fríðinda að búa við ein
beztu og gjöfulustu fiskimið heims. Engu að síður er
það staðreynd, að erfiðlega gengur að fá fiskinn nýjan
og góðan á borð Reykvíkinga. Ástæðan hlýtur fvrst og
fremst að vera skipulagsleysi í dreifingu Önnur mat-
væladreifing er fyrir löngu komin í fastar skorður. Mjólk,
mjólkurafurðir, kjöt og kjötvörur, grænmeti o. fl. og
þótt mörgum finnist sjálfsagt sitthvað við þau kerfi að
athuga, er þó ástand þeirra mála ósambærilega miklu
betra en sá óskapnaður, sem látinn er viðgangast í fisk-
sölumálunum.
Nú eru gerðar vaxandi kröfur á hendur útflutnings-
framleiðslu okkar — nýjar reglugerðir settar um eftir-
lit og meðferð þess fisks, sem ætlaður er á matborð út-
lendinga — og sízt er þar of fast að orði kveðið. Erlendir
kaupendur láta ekki bjóða sér annað en það bezta. Allt
ætlar um koll að keyra af því komizt hefur upp, að
bein geta verið í fiski, hvað þá ef grunur léki á misbresti
um hreinlæti í meðferð þessara matvæla
Það virðist því sannarlega engin goðgá, þótt farið
verði að huga að því, hvernig meðferð sá fiskur fær, sem
við íslendingar ætlum okkur sjálfum til matar, enda
vitanlega skammt undan að heilbrigðisyfirvöld hér sem
annars staðar geri auknar kröfur til hennar.
Þess vegna er lagt til að borgin gangist fyrir útvegun
hentugs húsnæðis, þar sem koma mætti við sameigin-
legum innkaupum allra fisksala í Reykjavík, en heild-
sala yrði þar í höndum fisksalanna sjálfra Reykjavík og
nágrenni mun þurfa yfir 10 þúsund tonn af fiski yfir
árið og fer þörfrn á neyzlufiski auðvitað vaxandi á næstu
árum, svo að hér er um talsvert stórt úrlausnarefni að
ræða.
Með hliðsjón af þessu hafa augu manna beinzt að
Sænska frystihúsinu, sem um skeið hefur hvergi nærri
verið fullnýtt. Þar mun aðstaða öll vpra hin ákjósanleg-
asta og enginn sá atvinnurekstur þar stundaður, sem ekki
gæti orðið á braut með mjög skömmum fyrirvara. Er
vonandi að borgaryfirvöld sjá sér fært að koma á ein-
hvern hátt til móts við þá menn, sem nú leggja nótt við
dag til að koma vinsælustu og ódýrustu fæðutegundinni
á borð þeirra, sem búa í Reykjavík og nágrenni. — TK
ERLENT YFIRLIT
Anwar Sadat þykir líklegastur
til að verða eftirmaður Nassers
Nasser treysti honum bezt af samverkamönnum sínum
ÁRIÐ 1964 var þeirri skipan
komið á í Egyptalandi, að fjór-
ir menn færu sameiginlega
með varaforsetavaldið. Það var
hlutverk þeirra að fara með
stjórn landsins sameiginlega
um tiltekinn tíma, ef Nasser
forfallaðist eða félli frá. Eftir
styrjöldina 1967 var þessi skip-
an felld niður, og var Egypta-
land varaforsetalaust þangað
til í desember síðastliðnum.
Nasser hafði verið óhraustur
undanfarna mánuði og m. a.
dvalið í Sovétríkjunum sér til
heilsubótar, en ekki fengið
fulla bót. Það þótti þvi hyggi-
legt að endurreisa varaforseta-
embættið að nýju, en nú var
því ekki lengur skipt milli
fjögurra manna, heldur falið
einum manni. Jafnframt var
svo ákveðið, að hann skyldi
gegna forsetaembættinu í tvo
már.uði eftir að aðalforsetinn
forfallaðist eða félli frá, svo
að nægur tími gæfist til að
velja nýjan forseta.
Almennt er nú litið svo á,
að Nasser hafi þegar hann
valdi varaforsetann ,í fyrra, til-
nefnt þann manninn, sem hann
bar persónulega mest traust til
allra samstarfsmanna sinna.
Því þykir líka næsta sennilegt.
að þessi maður verði fyrir val-
inu, þegar þingið kemur sam-
an innan skamms tíma til að
velja nýjan forseta. Hann hef-
ur það a. m. k. umfram aðra
keppinauta sína, að Nasser
treysti hoaum bezt.
ANWAR SADAT. sem Nass
er tilnefndi sem varaforseta í
desember í fyrra og gegnir nú
forsetaembættinu um tveggja
mánaða skeið, fæddist 25.
desember 1918 og má því
segja, að þeir Nasser hafi ver-
ið jafnaldrar. Faðir hans var
skrifstofumaður á herspítala og
var það snemma ósk Sadats að
verða hermaður. Hin ósk hans
var að hrekja Breta frá Egypta
landi. Fyrri ósk hans rættist,
þegar hann fékk inngöngu í
herskóla 1936 Þar hófst kunn-
ingsskapur þeirra Nassers.
Þeir urðu fljótt nánir vinir og
skoðanabræður, þvi að báðir
voru þeir þá þegar eldheitir
þjóðernissinnar Sadat var hins
vegar enn ákafari andstæðing-
ur Breta og óþolinmóðari. Það
leiddi til þess, að Bretar grun
uðu hann um að stunda njósnir
fyrir Þjóðverja á stríðsárun-
um og var hann því hafður i
haldi 1942—44. Þá slapp hann.
Andúð hans á Bretum hafði
aukizt við varðhaldsvistina og
tók hann nokkru síðar þátt f
ráðagerðum um að sprengja
upp brezka sendiherrabústað-
inn, en Nasser stöðvaði það.
Sadat var síðan um skeið með-
limur í bræðrafélagi Múham-
eðstrúarmanna. er skipulagði
hermdarverk gegn egypzkum
stjórnmálamönnum. er voru
taldir Bretum sérstaklega
hlynntir. Þannig var hann
ákærður fyrir þátttöku í morði
fjármálaráðherra, sem var
myrtur 1946 og sat hann því í
haldi þrjú næstu árin. Honum
var sleppt 1949 og næsta ár
fékk hann liðsforingjastöðu )
hernum. Félagsskapur þeirra
Nassers hófst nú að nýju og
var Sadat einn þeirra tólf liðs-
foringja, sem skipulögðu júní-
byltinguna 1952, þegar Farouk
konungi var steypt úr stóli
Það féll í hlut hans að til-
kynna byltinguna opinberlega,
þega. búið var að fjarlægja
Farouk. Af þessum tólf er Sad-
at sá eini, sem er enn í valda-
honum fjölmörg, sétrstök þýð-
um eða öðrum hætti vikið hin-
um smám saman til hliðar,
enda fylgdi hann þeirri reglu,
að láta engan mann halda mik-
illi valdastöðu til iengdar.
Hann færði þá milli embætta
og suma lét hann draga sig .
hlé. Sadat var sá eini, sem
hann hafði alltaf við hlið sér
og virtist treysta óbilandi á.
SADAT hefur síðan bylting-
in var gerð 1952, gegnt fjöl-
mörgum virðingarstöðum.
Hann hefur verið aðalritstjóri
helzta málgagns Nassers, for
maður í flokki hans, þingfor
seti og einn af varaforsetum
landsins 1964—67. Nasser fól
honum fjölmörg sérstök þýð
ingarmikil verkefni, eins og t
d. að annast um mikilvægust\i
milliríkjasamninga, t. d. við
Rússa.
Vegna þess hve Sadat oefu’
alltaf staðié Nasser nærri of
eius og unnið i skugea han#
hefur borie opinberlega mmm.
á honum en ýmsum öðrum teib
togum Egypta Menn vita þvi
Anwar Sadat (til hægrl) og Aly Sabry, sem er einn helztl keppinautur
hans um forsetaembættið.
minna um nersónuleg viðhorf
hans en ella. Þó þykir víst, að
hann sé eindreginn þjóðernis-
sinni. Hara er einnig þekktui
sem mikill trúmaður, sem oft
vitnar í Kóraninn. Hann er
sagður tala mjög vandað mál
og þykir segja frá flesVam be:
ur. Hann er sagður þægilegur
í umgengni og hafa góða kýmni
gáfu. Hann er tvíkvæntur.
Seinni kona haus er ensk í aðra
ættina og eiga þau sex börn.
Hann er sagður mikill fjöl-
skyldumaður, eins og Nasser
var
Vegna þess, hve handgeng-
inn Sadat var Nasser, þykir
hann öðrum líklegri til að
þekkja vel viðhorf hans og
fylgja fram stefnu hans, ef
hann yrði Kjörinn forseti Hins
vegar efast menn um, að hann
hafi til að bera sömu hyggindi
og stefnufestu og Nasser En
slíkar efasemdit gilda einnig
um þá, sem ero líklegastir til
að keppa við hann um forseta
embættið Það er og víst, að
enginn þeirra mun í fyrstu
hafa þí tiltrú þjóðar sinnar,
sem Nasser naut. Þess manns,
sem hreppir sæti hans, bíður
ekki auðvelt starf framundan.
Líklegastir keppinautar Sad-
ats um forsetaembættið eru
taldir þeir Aly Sabry og Zakar-
igra Mohieddine. Sabry er af
mörgum talinr mikilhæfastur
af samverkamönnum Nassers.
Skoðanalegt, hefur hann verið
talinn standt nærri kommún-
ístum i innanlandsmálum, en
þó vilja gæta fulls sjálfstæðis
í skiptum 'ið Rússa Mohied
dine e: hínt vegar talinn
standa til nægri.
Þ. Þ.