Tíminn - 31.10.1970, Blaðsíða 4

Tíminn - 31.10.1970, Blaðsíða 4
4 TIMINN LAUGARDAGUR 31. október 1970 HJÚKRUNARKONUR Stöður hjúkrunarkvenna við lyflækningadeild Borgarspítalans, eru lausar til umsóknar. Upplýsingar veitir forstöðukona í síma 81200. Reykjavík, 29. 10. 1970. Heilbrigðismálaráð Reykjavíkur. Útboð - Fjölbýlishús Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í eftirtalin verk 1 fjölbýlishúsinu Sléttahrauni 15—17. 1. Hreinlætis- og hitalagnir. 2. Vegghleðslur, einangrun, og múrhúðun úti og inni. 3. Málun úti og á sameign inni. 4. Raflögn. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu bæjarverk- fræðings gegn 5000 kr. skilatryggingu. Tilboðum sé skilað eigi síðar, en þriðjudaginn 10. nóvember n.k. kl. 14 á sama stað. Bæjarverkfræðingur. ‘* 14444 BILALEIGA IWKRFISt J ÖT U 103 VWóSendiferðabifreið-VW 5 manna-VWsvefnvagn VW 9manna-Landrover 7manna BILASKOÐUN & STILLING Skúlagötu 32 LJÓSASTiLLINGAR HJÓLASTILLINGAR IVIÓTORSTILLINGAR Látið stilla í tíma. 4 Fljót og örugg þjónusta. I 13-100 Rafgeymir — gert tíWTtt með óvenjumikinn ræsikraft, miðaó vift kassastærJi 12 voh — 64 ampt 260x120x204 m/m SÖNNAfc rafgeymar i órvali S M Y R I L L, Ármúla 7 — simi 84450. LESANDINN Upphaf dómsmáls fyrir Borg ardómi er tíðast það, að ekki hefur verið sinnt greiðslutil- mælum innan ákveðins frests i innheimtubréfi iögtnanns, sem falið hefur verið að heimta kröfu úr hendi skuldara. Ger- ir lögmaðurinn þá alvöru úr þeirri ábendingu, sem venju- lega er í niðurlagi slíks bréfs, að hefja málsókn á hendur skuldara. Það gerir hann með því að skrifa stefnu, þar sem gerðar eru kröfur og cnála- vöxtum og málsástæðum lýst. Stefnan er síðan fengin stefnu- vottum, sem eru tveir, til birt- ingar fyrir skuldara. Honum er stefnt til að mæta á ákveðn um tíma á hinu reglulega bæj- arþingi „til þess þar og þá að sjá skjöl og skilríki fram lögð, á sókn sakar og dómkröfur að hlýða, svara til sakar og sæta dómi“. Hin reglulegu bæjar- þing eru háð í Borgardómi Reykjavíkur á þriðjudögum og fimmtudögum og hefjast kl. 10 (hin reglulegu dómþing sjó- og verzlunardóms eru háð ann an hvern föstudag) — Þegar lögtnaður (eða sóknaraðili sjálfur) leggur fyrir dóminn stefnu og önnur skjöl er mála- tilbúnaS hans varða og dóm- ari getur þess með bókun i þingbók, er sagt að mál sé þing- fest. Mæti varnaraðili (stefndi, þ. e. skuldarinn) ekki við þing- setningu er mál oftast tekið til dóms þá þegar, og verður þá dæmt eftir framlögðum skjöl- um og skilríkjipn innan þriggja vikna, nema á málatilbúnaði séu einhverjir gallar, er varða frávísun málsins frá dóminum. Mæti varnaraðili hins vegar eða einhyer fyrir hans hönd (lögmaður) fær hann venju- lega frest til að skila greinar- gerð um málsvörn. Leiðir þetta oftast til þess, að vitna- og að- ilayfirheyrslur og önnur gagna- öflun fer fram í málinu, sem þá verður munnlega flutt. í fyrra tilfellinu er hins vegnr kallað að mái sé skriflega flutt. Oft verða sættir í málurn, við bingfestingu eða á síðari stig- um, og jafnan eru sættir reynd ar til hins ítrasta. Meginþorri mála fyrir Borg- ardómi er skrifleda fluttur og eru þau mál dæmd á skömmum tíma, enda oftast um að ræða kröfur, sem eru réttar og vafa- lausar og því engum málsvörn- um við komið. Stefndi hefur þá ekki talið ástæðu til að mæta, og ekki getað hindrað dómsá- felling vegna geriðsluvand- ræða. Munnlega fluttu málin eru aðeins brot af tölu þingfestra mála, en það segir ekki alla sögu. Þau mál eru venjulega flókin og viðamikil, mikillar gagnaöflunar er þörf og yfir- heyrslur eru tímafrekar. Þau geta verið fyrir réttinum svo mánuðum og árum skiptir. Þegar málsvörn hefur komið fram í greinargerð varnaraðil., sættir hafa verið reyndar og ■munnlegur málflutningur ákveðinn, fara málin af hinu reglulega bæjarþingi til yfir- borgardómarans, sem síðan skiptir þeim milli annarra dóm enda, sem fara með þau upp frá því. í því skyni hefur málunum verið frestað um óákveðinn tírna, en þegar svo tiltekinn dómari hefst handa í málinu ákveður hann þingdag til nýrrar fyrirtöku málsins. Leggja þá aðilar fram gögn, ef þau hafa ekki öll komið fram á hinu reglulega bæjar- þingi, leiða aðila og vitni til yfirheyrslu og þarf oftast að taka málið mörgum sinnum fyr- ir í rétti áður en aðilar telja sig geta lýst því yfir, að gagna öflun í málinu sé lokið. Þegar hins vegar svo langt er komið ákveður dómari þingdag til flutnings málsins munnlega fyr ir dóminum og að ræðum aðila (lögmanna) loknum er málið dómtekið. Dóm á málinu ber síðan að kveða upp innaa þriggja vikna. Um meðferð máls fyrir dómi gilda flóknár reglur, svonefnd- ar réttarfarsreglur, sem ekki er tóm til að rekja hér. Ýmiss konar ágreiningur getur komið upp í því sambandi, sem tefur mál og flækir. Það þekkja þeir bezt, sem átt hafa í málaferl- um. Það sem hér hefur verið sagt um meðferð einkamáls verður að nægja, þótt ófullkom ið sé, en vilji menn frekar fræðast er þeim bent á, að rétt- arhöld eru alla jafna öllum opin og er þá hægur vandian að heimsækja Borgardóm Reykjavíkur, þegar tóm gefst frá daglegri önn. í næsta þætti verður vikið að Borgardómaraemtoættinu i Reykjavík. Björn Þ. Guðmundsson. Sólun HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR |1 ánjómunstur veitir góða spyrnu W í snjó og hálku,. st allar viðgerðir hjólbarða með fullkomnum tækjum. Snjóneglum hjólbarða. GÖÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN. BARÐINN HF. Ármúla 7. — Sími 30501Reykjavík.. BTBLÍAN er BÓkin handa fermingarbarninu FRAMKVÆMDASTJÓRI óskast að Prjónastofunni Dyngju, Egilsstaðakaup- túni, frá næstu áramótum. Umsóknir ásamt kaupkröfum sendist til stjórnar Dyngju h.f., Egilsstaðakauptúni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.