Tíminn - 31.10.1970, Blaðsíða 13

Tíminn - 31.10.1970, Blaðsíða 13
fcAUGARDAGUR 31. október 1970 SÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR 13 HVER TEKUR VIÐ ÁF HAFSTEINI? Hættir sem „einvaldur" landsliðsins í knatt- spyrnu. — Vandfundinn maður í hans stað Hafsteinn Guðmundsson, for- maður ÍBK og „einvaldur“ lands- liðsins í knattspyrnu undanfarin 2 ár, verður ekki „einvaldur“ eða kemur til með að hafa nokkuð með landsliðið gera næsta ár. Hafsteinn staðfesti þaS í við- tali við íþróttasíðuna í gær, að hann muodi ekki gefa kost á sér, og sagði hann að ástæðan væri sú, að hann treysti sér efcki til að standa í því lengur. Þetta væri orðið það mikið starf, að hann hefði hvorki tíma né aðstöðu til að sinna því. GOLFSKÓLINN AÐ BYRJA klp—Reykjavik. S.l. vetur starfraekti Þorvaldur Ásgeirsson, eini golfkennari lands- ins, golfskóla í Suðurveri, á horni Hamrahlíðar og Kringlumýrar- brautar, og var mikil aðsókn að skólanum, bæði byrjendur og lengra komnir. Nú er skólinn að taka aftur til starfa þarna á sama stað, en í sumar var Þorvaldur með hann utan húss og innan hjá Golf- klúbbi Reykjavíkur í Grafarholti, en einnig kenndi hann víða um land. Framhald á 12. síðu. Það hefur ekki koimið þeim á óvart, sem þekkja til Hafsteins og hans mikla starfs í sambandi við landsliðið, að hann ætli ekki að gefa kost á sér áfram. Það hef- ur verið mjög tímafrekt fyrir hann, því að hann er búsettur í Keflavík, og þarf þess vegna að ferðast oft á milli Reykjavíkur og Keflavíkur til að fylgjast með landsliðinu og einstaka leikmönn- um, er þeir hafa verið að leifca með sínum félagsliðum, mæta á fundum og fleira. Eru ferðir hans þau tvö ár, sem han hefur verið Þorvaldur Ásgeirsson „einvaldur“ milli 200—300 tals- ins milli Reyfcjavífcur os Kefla- víkur, og einnig á fjölmarga aðra staði út um land. Hann fær engan kostnað greiddan, og er það því drjúgur peningur, sem fer í þetta hjá honum fyrir utan allan tfm- ann og umstangið bæði með sím- tölum og öðru. Til gamans má geta þess að „einvaldurinn“ sænski, Orur Berg- Pran.-haltí á bls. 12 Fram ekki klp—Reykjavík. Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær, sendi Fram skriflega ósk til niðurröðunar- nefndar KSÍ, um að fá frest- un á lciknum við KR í Bikar- keppni KSÍ, sem fram á að fara á morgun. Pór félagið fram á frest á þeim forsendum að 3 af leik- mönnum liðsins eru leikmenn með handknattleiksliði Fram, sem leikur við US Ivry í París í dag, og þeir varamenn, sem helzt kæmu til greina í þeirra stað, væru einnig í því liði. Niðurröðunarnefndin tófc þessa beiðni fyrir á fundi í gær, og var þar samþykkt að fresta ekki leiknum. Fer hann því fram á morgun eins og ákveðið var í upphafi, og hefst hann kl. 14.00. íþróttasíðan hafði tal af Hilmari Svavarssyni, formanni knattspyrnudeildar Fram um þessa ákvörðun, og sagði hann að Fram gæti ekfcert gert frek ar í málinu og harmaði hann þessa ákvörðun nefndarinnar. Það væri nú ekkert um annað að ræða en að mæta í leikinn — og sigra. FH-Haukar í úrslitum á Síðasta umferðin í Reykjanes- mótinu í handknattleik karla og 2. flokki, fer fram í íþróttahús- inu á Seljtarnarnesi annað kvöld. Hefst keppnin kl. 19.00 með þrem leikjum í 2. flokki, en að þeim loknum leika í M. fl. Grótta og ÍBK, og síðasti leikurinn verð- ur milli Hafnarfjarðarliðanna, FH og Hauka. Verður sá leikur úrslitaleikur mósins, því bæði liðin hafa hlot- ið 6 stig. Hafa þau sigrað Breiða- blik, ÍBK og Gróttu með nokkr- um mun, en Haukar áttu þó í vandræðum með Gróttu og rétt mörðu sigur á síðustu mínútum. ÍBK og Breiðablik hafa hlotið 2 stig í mótinu, en Grótta ekfcert. Reykjavíkurmótið í handknatt- leik fer einnig fram um helgina, og á sunnudagskvöldið verður leikið í M. fl. karla í Laugardals- höllinni. Fyrri leikurinn verður á milili Þróttar og Víkings en sá síðari milli ÍR og Vals, og má þar bú- morgun ast við skemmtilegum og jöfn- um leik. Ársþing KKÍ í dag 10. ársþing Körfuknattleiks- sambands íslands verður haldið í dag, 31. október, í Domus Med- ica, Egilsgötu 3, og hefst klukk- an 14.00. STOFNAÐ: 1920 Staðsett: Elland Road Ground, Leeds. Búningur: Allur hvítur. Verðlaun: 1. deildarmeist- arar 1968—69; 2. deildar- meistarar 1923—24 og 1963—64; enskir deildar- bikarmeistarar 1967—68; Evrópumeistarar borgar- liða 1967—68. Fyrir allnokkru birtist hér á íþróttasíðunni grein, sem hafði yfirskriftina „Kynning ensku knattspyrnufélaganna". Sú grein var um Chelsea. Síðan hafa ekki birzt fleiri greinar, en mikið vatn til sjávar runnið. Nú ætlar íþrótta- síðan a'ö taka aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið og birtir í dag grein um Leeds. „Að feta í fótspor Real Madrid“ er eitt af þeim takmörk- um, sem Don Revie, framkvæmda- stjóri Leeds, hefur sett sér og sínum liðsmönnum. Hann hafði það líka án efa í huga þegar hann brevtti lit félagsbúningsins í „allt hvítt“ — en þannig er einmitt félagsbúningur hins fræga spánska knattspyrnuliðs, Real Madrid. Don Revie þessi er heldur enginn scná- karl. Hann var í fyrra fcjörinn LEEDS UNITED „bezti framkvæmdastjóri keppnis- tímabilsins" og síðan hann tók við Leeds hefur fjöldi áhorfenda á Elland Road — en svo heitir leik- vangur liðsins — aukizt gífur- lega, eða frá urn 9 þúsund manns upp í tæplega 50 þúsund áhorf- endur á hvern leik að meðaltali. En nóg um það. Snúum okkur þá að leikmönnunum. Gary Sprake — markvörður. Að allandsliðsmarkvörður Wales und- anfarin ár og einn af betri mark- vörðum Englands. Sprake, með sitt ljósa og úfna hár, var aðeins sextán ára er hann lék sinn fyrsta leik með aðalliði Leeds og aðeins nítján ára er hann lék sinn fyrsta landsleik. Paul Reaney — bafcvörður. Und- anfarin sjö keppnistímabil hefur hann verið ein aðalmáttarstoð Leeds, en í fyrra fótbrotnaði hann í leik gegn West Ham og gat þar af leiðandi ekki leikið með Leeds í úrslitaleikjum bikarkeppninnar gegn Chelsea og með Englandi í heimsmeistarakeppninni í Mexikó, en hann var valinn til þeirrar keppni. Terry Cooper — bakvörður. Lék fyrst sem útherji, en lék einn leik sem bakvörður með varaliðinu og hefur skipað þá stöðu með aðal- liðinu síða Hann á það til að taka þátt í sókninni og skoraði m. a. úrslitamarkið í úrslitaleik deildarbikarsins gegn Arsenal á Wembley 1968 Hefur leikið með enska landsliðinu og var einn bezti maður liðsins i HM Mexikó. Billy Bremner — framvörður og fyrirliði Var i fyrra kjörinn „knattspyrnumaður ársins" af | brezkum íþróttafréttariturum. j Með rautt hrokkið hár og frekar j lítill. Hann er einnig fyrirliði skozka landsliðsins og hefur leik- I ið fjölda landsleikja. Kom til _ j Leeds beint úr skóla og hefurí | leifcið yfir 300 deildarleiki. : Jack Charlton — miðvörður. Er bróðir hins kucma Bobby Charlton. Var kjörinn „knattspyrnumaður KYNNING A ENSKU 1. DEILDARLIÐUNUM j ársins 1967“. Lék fyrst með Leeds 1953, en sinn fyrsta landsleik 1964. Er þekktur fyrir að skora mörk úr hornspyrnu með því að standa á marklínunni og teygja sig í boltamn. Hefur leikið iyfir 500 deildarleiki með Leeds. deildarleiki með Leeds. Norman Hunter — framvörður. Harður og ákveðinn leikmaður, sem lék með Englandi í heims- meistarakeppninni í Mexikó og var einnig í enska landsliðshópn- um I HM 1966. Leifcur sömu stöðu og Bobby Moore og hefar þess vegna ckki leikið jafn marga landsleiki, sem skildi. Lék fyrst með Leeds 19 ára gamall. Peter Lorime — útherji. Var 15 ára þegar hann lék sínn fyrsta leik með aðalliði Leeds gegn Southampton 1922. Er einn af skot hörðustu leikmönnum 1. deildar og var markhæsti leikmaður Leeds 1968 með 17 mörk. Hefur leikið með skozka landsliðinu. Allan Clarke — innherji. Var keyptur til Leeds fyrir 165 þús. pund frá Leicester og í þau þrjú skipti sem hann hefur verið seld- ur hefur hann samtals kostað 345 þúsund pund. Lék með enska landsliðinu í Mexikó 1970. Mick Jones — miðframherji. Leeds keypti hann fyrir 100 þús. pund frá Sheffield Utd. árið 1967. Jones er mjög sterkbyggður og skorar mörg mörk. Lék einn lands- leik með enska landsliðinu þegar hann var hjá Sheff. Utd. Johnny Giles — inaherji („aft- urliggjandi"). Hann og Bremn-r eru aðaldriffjaðrir Leeds og eru taldir beztu „miðjumenn" Eng- lands, en hvorugur þeirra er þó enskur. Giles var keyptur frá Manch. Utd. árið 1964 fyrir að- eins 35 þús. pund, en er margfalt þess virði nú. Lék fyrst með írska landsliðinu 17 ára gamall. Eddie Grey — útherji. Hefur ótrúlega mikla hæfileika til að einleika, eins og menn muna, sem sáu fyrri úrslitaleik ensku bikar- keppninnar milli Leeds og Chel- sea á Wembley — en þá var hann valinn „maður leiksins“. Hefur leikið með skozka landsliðinu. Mick Bates —- framlínumaður (varamaður). Lítill og snöggur leikmaður, sem hefur leikið með Leeds á þessu keppnistímabili í forföllum Giles. Pau) Madeley — leikur allar stöður, nema markvörð. Var val- inn til Mexikó-farar í stað Reaney, en afþakkaði vegna þess að hann var nýbúinn að gifta sig! Fjölhæf- asti leikmaður í Englandi. — kb. BILLY BREMNER - „knattspyrnumaður ávsins 1970* í Englaudi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.