Tíminn - 31.10.1970, Síða 6
6
TÍMINN
LAUGARDAGUR 31. október 1970
Læknisstaða
Staða sérfræðings við Kleppsspítalann er laus til
umsóknar. Laun samkvæmt samningi Læknafélags
Reykjavíkur og stjórnarnefndar ríkisspítalanna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, námsfer-
il og fyrri störf sendist stjórnarnefnd ríkisspítal-
anna, Klapparstíg 26, fyrir 30. nóvember 1970.
t Reykjavík, 30. október 1970
Skrifstofa rrkisspítalanna.
kadíoyinna
Námskeið í radiovinnu fyrir unglinga hefst að
Fríkirkjuvegi 11, þriðjudaginn 10. nóvember.
Innritun og nánari upplýsingar á skrifstofu Æsku-
lýðsráðs alla virka daga kl. 2—8 e.h. Sími 15937.
Útgerðarmenn - Skipstjórar
Framleiði 3ja og 4ra kílóa netastein, merktan, ef
óskað er.
HELLUSTEYPAN — Sími 52050 og 51551.
AÐSTOÐARLÆKNIR
Staða aðstoðarlæknis við skurðlækningadeild
Borgarspítalans er laus til uthSóknar.
Upplýálngar varðandi stöðUna' yeitir yfirlæknir "
deildarinnar. Laun samkvæmt samningi Lækna-
félags Reykjavíkur við Reykjavíkurborg.
Staðan veitist í 6 eða 12 mánuði frá 1. des. n.k.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf, sendist Heilbrigðismálaráði Reykjavíkur-
borgar fyrir 20. nóv. n.k.
Reykjavík, 29. 10. 1970.
Heilbrigðismálaráð Reykjavíkur.
HEIMUR í UPPLAUSN
Hvers vegna ofbeldi,
eiturlyf, stríð?
SIGURÐUR BJARNASON
talar um þetta efni í Aðvent-
kirkjunni í Reykjavík
sunnudaginn 1. nóv. kl. 5. s.d.
Einsöngur Anna Jóhansen. Tvísöngur.
Allir velkomnir.
Málflotningsskrífstofa
mín er að Ingólfsstræti 4, efri hæð.
Skrifstofutími: mánudaga—föstúdaga kl. 9—17
Skrifstofutími: laugardaga kl. 9—12
Sími: 16768
Ragnar AÖalsteinsson
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
MONTGOMERY
DRÖ STYRJ-
ÖLDINA Á
LANGINN MEÐ
VARKÁRNISINNI
Ásakanir gegn brezkum hershöfðingjum og
stjórnmálamönnum í nýútkominni bók látins,
brezks sagnfræðings
f nýútkomnu sagnfræðiriti
um heimsstyrjöldina síðari
heldur höfundurinn Sir Basil
Liddel Hart því fram, að banda
ríski hershöfðinginn George S.
Patton hefði getað flýtt að mun
fyrir stríðslokum. En eldsneyt-
ið, sem skriðdrekar hans þurftu
til að unnt væri að ráðast inn
í Þýzkaland nazista, var fengið
Nerbard Montgomery mar-
skálki.
Sókn Breta norður á bóginn
í Belgí-j stöðvaðist vegna tafa
Montgomerys og mistaka undir-
tnanna hans, að því er Liddell
Hart heldur fram í bók, sem
kom út fyrir nokkrum dögum
hjá útgáfufyrirtækinu Cassell
& Co. í London að höfundi látn
um.
EISENHOWER
Dvight D. Eisenhower, æðsti
yfirmaður herja Bandamanna,
tók þá örlaga^ríka ákvörðun að
styðja Montgotnery á kostnað
Pattons og hinna langdraegu
skriðdreka hans, segir Liddell
Hart. Eisenhower hafði áður
reynt að firna viðunandi mála-
miðlunarlausn.
Höfundur ritar um heims-
styrjöldina síðari sem „hrapa-
leg átök, er hafði að endingu
rutt Rússum braut inn að
hjarta Evrópu“. Styrjöldin
hafi byrjað sem röð af axar-
sköftum af hálfa Breta og
Frakka. Hinn látni brezki sagn
fræðingur heldur því fratn, að
Neville Chambírlain hafi ekki
síður en Adolf Hitler átt sök á
þvi að heimsstyrjöldin brauzt
út.
Myrk göng.
Sá óvænti og áhrifamikli at-
burður, þegar forsætisráðherra
Breta eftir margra ára hlutleys
isstefuu lýsti ótilkvaddur yfir
stuðningi við Pólverja ef naz-
istar réðust inn í land þeirra,
olli þvi að átök voru óhjá
kvæmile? á þeim tíma, þegar
Bandamenn voru sízt undir þau
búnir. að dótni Liddells Hart,
„Ef einhver kyndir undir
gufukatli þangað til gufuþrýst-
ingurinn er kominn yfir hættu
markið, ber hanu sjálfur
ábyrgð á sprengingunni", skrif
ar Liddell Hart um ákvörðun
Chamberlains.
„Þar með var menning
Evrópu komin inn í myrk járn-
brautargöng, og út úr þeitn
komst hún ekki fyrr en eftir
sex löng, þrautum hlaðin
ár. Og jafnvel þá reyndist sigur
gleðiu vera blekking ein.“
Spádómur um skriðdreka-
hernað.
Liddell Hart lézt í janúar
nokkrum mánuðum eftir að
hann hafði afhent útgefanda
sínum handritið, en að því
hafði hann unnið i 22 ár.
Liddell Hart fæddist 31. okt.
1S95, var í brezka hernutn í
heimssyrjöldinni fyrri, ea
hætti hermennsku 1925 til að
helga sig hemaðarsagnfræði og
herstjórnarlist.
Sem spámaður var Liddell
Hart í meiri metum erlendis
en heima í Bretlandi á árunum
milli heimsstyrjaldanna. í hópi
áhugasömustu lesenda hans
voru verðandi herforingjar í
her nazista.
Kenningar hans um skrið-
drekahernað, mikilvægasta
vopnið í stríði á landi í heims-
styrjöldinni síðari, voru ekki í
sérlega miklu áliti. hvorki i
Frakklaudi né Svíþjóð.
«
Gamlar syndir.
Liddell Hart segir að stöðug
sókn og þrýstingur sé grund-
vallaratriði í hverri meiri hátt.
ar innrás og eftirför ..
„Sennilega glötuðu Banda-
Sir Basil Liddell Hart.
menn bezta tækifæri sínu til
að binda skjótan endi á styrj-
öldina, þegar hætt var að
sendi Patton skriðdrekaelds-
neyti í síðustu viku ágústmán-
aðar 1944, þegar lið hans var
komið 150 kílómetrum uær Rín
og brúnum á henni, en her
Breta.“
Montgomery er gagnrýndur
mjög fyrir að hafa að því er
virðist algerlega hafnað hug-
myndum um að sækja fram án
þess að ráði yfir gífurlegu ofur
liði liðs og hergagna.
Sumarið 1942 fól Winston
Churchill Montgomery að fara
með áttunda her Breta inn í
eyðimörkina í Norður-Afríku,
en hann var óþoliumóður vegna
framkvæmdaleysins Claudes
Auchinleck hershöfðingja.
„En kaldhæðni örlaganna
réði því, að árangurinn af þess
um mannaskiptum var sá, að
sókn Breta hófst ekki fyrr en
löngu síðar.“
Sjö vikur liðu, „en Mont-
gomery var ákveðinu í að bíða
þangað til hann hefði lokið öll
um undirbúningi.“
Hik.
„Bretar kunnu ekki að not-
færa sér aðstæður, og orsakirn
ar voru varkárni, hik, silagang
ur og takuiörkuð herkænzka“
„Með sínu venjulega hiki
gerði Montgomery áætlun um
að sækja fram morguninn eftir
með styrk geysilegrar loft- og
stórskotaliðs. Eu þegar dagur
rann, var óvinaherinn á braut
... og Montgomery hafði glat
að tækifæri til að vinna úrslita
sigur.“
Sagnfræðingurinn undirstrik-
ar hliðstæða atburði i sókn-
inni á ítaliu og í bardaganum
um Frakkland.
Öðrum lesendum en brezkum
kanu að þykja galli á bok Lidd
ells Hart, að megináherzla er
lögð á bardaga, sem herir
Breta tóku þátt í, og þá hluta
sóknarinner sem þeir áttu aðild
að Einnia virðist frásbgn hans
af styrjöldinni i Rússlandi eink
um byggjast á þýzkum heimild-
um.
(Þýtt og endursagt)