Tíminn - 31.10.1970, Side 14
14
TIMINN
LAUGARDAGUR 31. október 1976
Viðræðurnar
Framhald af bls. 1
sett voru fram í I. Ii3 samþykkt-
ar miðstjórnar frá 11. obtóber s.l.,
þá lítur miðstjórnin svo á, að
viðræðunum milli Alþýðusam-
bandsins og ríkisstjórnarinnar sé
lokið".
FRAMSÓKNARVIST
KEFLAVlK
Björk, félag Framsóknarkvenna
heldur Fraimsóknarvist í Aðalveri
sunnudaginn 1. nóv. kl. 31. Hús-
ið opnað kl. 2030. Annað kvöld-
ið í þriggja kvölda keppni. Allir
velkomnir. — Skemmtiefndin.
SENDIBÍLAR
ím>
Alls konar flutningar
STÖRTUM
DRÖGUAA BlLA
UMFÍ
Framhald af bls. 3.
fundurinn skyldi fjalla um og
voru þær um eftirtalið efni:
1. 14. Landsmótið, framsögumað-
ur Guðjón Ingimundarson.
2. Leikreglur landsmótsins, fram-
sögumaður Pálmi Gíslason.
3. Skinfaxi, tímaæit UMFÍ, fram-
sögumaður Eysteinn Þorvalds-
son.
4. Erlend samskipti UMFÍ, fram-
sögumaður Sig. Geirdal._
5. Félagsmálaskóli UMFÍ, fram-
sögumaður Hafsteinn Þorvalds-
son.
6. Fjáröflunarmöguleikar UMFÍ,
framsögumaður Gunnar Sveins-
Er framsögum var lokið var
málum vísað til umræðuhópa sem
tóku þau til meðferðar og skil-
uðu áliti síðar á fundinum, og
hófust þá almennar umræður um
framsöguerindi og framtíðarverk-
efnin.
Bar þar hæst 14. landsmót
UMFÍ sem haldið verður að Sauð-
árkróki í júlí næsta sumar í um-
sjá Ungmenniasambands Skaga-
fjarðar, og var um það mál sam-
þykkt eftirfarandi ályktun:
17. Sambandsfundur UMFÍ hald
inn í Stapa 25. okt. 1970 hvetur
sambandsfélög UMFÍ til öflugrar
þátttöku í 14. landsmóti, UMFÍ
sem halda á að Sauðárkróki dagana
10. og 11. júlí sumarið 1971.
Sambandsaðilar, leggi meðal
annars áherzlu á eftirtalin atriði:
a. Þjálfun íþrótbafólks, með þátt-
t'öku í landsmótinu í huga.
b. Unnið verði j tíma að útvegun
samstæða íþróttabúnúinga á
íþróttafólk, svo og félagsmerkja
og burðarfána, og á annan hátt
reynt að vanda framkomu þátt-
tökuliða á mótinu.
c. Sambandsaðilar bregðist vel
Dóttlr okkar, fósturdóttir og dótturdóttir
Ágústa Ásgerður Pétursdóttir
Lést af slysförum 29. október.
Lilja Þorbergsdóttir
Örn Herbertsson
Petra Guðmundsdóttir
Pétur G. Einarsson.
Maöurinn minn,
Guðmundur Helgason fyrrv. bóndi í Súluholti
andaðist að heimili sínu Þóristúni 17, Selfossi, hinn 23. október.
Vilborg Jónsdóttir.
KSi
Eiginmaður minn
Arni Jonsson
bókavörður,
lézt á heimili sínu Gilsbakkavegi 11, Akureyri að kvöldi 29. október.
Guðrún Bjarnadóttir.
Útför konunnar minnar, móður okkar og tengdamóður,
Sigríðar Stefánsdóttur
frá Auðkúlu,
Digranesvegi 6, Kópavogi,
fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 3. nóvember kl. 2 síðdegis.
Gunnar Árnason
Þóra Gunnarsdóttir Ingvar Ekbrand
Árni Gunnarsson Guðrún Björnsdóttir
Stefán Gunnarsson Hertha Jónsdóttir
Auðólfur Gunnarsson Unnur Ragnars Jóhannsdóttir
Hólmfrfður Gunnarsdóttir Haraldur Ólafsson
við um útvegun starfsmanna
vegna íþróttakeppni landsmóts-
ins.
d. Sambandsfélagar gcri sitt tii
þess að auglýsa, lar.dsmótið á
sínu sambandssvæði, og efni
tij hópferðar ungmennafélaga
til mótsins, ef aðstæður leyfa,
enda yrði slík hópferð undir
öruggri fararstjórn, og á
ábyrgð viðkoimandi héraðssam-
bands.
Ungmennafélag Njarðvíkur var
gestgjafi þessa 17. sambandsráðs-
fundar, og snæddu fundarmenn
hádegisverð j boði hreppsnefndar
Njarðvíkurhrepps og skoðuðu
íþrótta m annvirki og félagsað-
stöðu á staðnum.
Til kvöldverðar var boðið af
bæjarstjóm Keflavfkur
Þetta er í fyrsta sinn sem slík-
ur fundur er haldinn á Suður-
nesjum og lofuðu fundarmenn
mjög alila móttöku og fyrirgreiðslu
heimamanna.
(Frétt frá Ungmennafélagi
Íslands).
Ágæt grein
Framhald af bls. 8.
skrifa svona yfirlitsgrein um land
og þjóð, enda bera margar grein-
ar í ritum þessuim þess merki, að
höfundar hafa gefizt upp við að
gera úr efni sínu læsilega og lif-
andi frásögn. Hallberg Ilallmunds-
syni hefur tekizt þetta vel, svo að
segja má, að þetta sé íslardssaga
í hnotskurn. Það er ekki lítils virði,
þegar vel tekst til um slíkar grein-
ar í mestu fróðleiksritum heims-
ins, þar sem milljónir manna heyja
sér vitneskju. Það er til að mynda
ekki lítil ferðamannaauglýsing.
— AK
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Eyþór Árnason,
Kambsvegi 31,
verður jarðsunginr frá Dómkirkjunni, mánudaginn 2, nóvember,
kl. 13.30. SS
Margrét Einarsdóttir
Steinþór Eyþórsson Þórarinn Eyþórsson
Bírgir Eyþórsson Þóra Sigurjónsdóttir og börn
Á VIÐAVANGI
Framhald af bls. 3.
lega liækka um upp undir 6%
og meira en 1% til viðbótar
fram til febrúar á næsta ári.“
Um þetta er það að segja, að
lieppilegra hefði verið að lands-
feðurnir hefðu viljað viður-
kenna það í verki fyrr á sínum
langa valdaferli, að það sé öll-
um í hag að verðbólgan verði
stöðvuð. Ef þeir hefðu t.d. vilj-
að viðurkenna það í verki sl.
vetur, þegar þeir stórhækkuðu
allt verðlag og hefðu fallizt á
tillögur Framsóknarmanna þá,
að létta álögum af helztu í.eyzlu
vörum og halda vísitölunni þar
með í skefjum. Þá hefði kaup-
hækkunarstökkið ekki þurft að
verða ssns stórt í vor og vafa-
laust hefði þá verið komið í
veg fyrir langvinnt verkfall er
olli bjóðarbúinu stórtjóni. Þá
hefði dýrtíðarhjólið ekki snú-
ízí jafn Oisalega og það hefur
gert í aJlt sumar og haust. Það
hefði líka auðveldlega mátt
draga úr snúningshraðanum, ef
ríkisstjórnin hefði séð til þess
að aðeins hlnti kauphækkunar-
innar kæmi út í verðlagið og
hún hefði í því efni lifað í sam-
ræmi við kenningar sínar frá
því fyrir bæjarstjórnarkosning-
ar, þegar sagt var að atvinnu-
vegirnir gætu bótalaust tekið
á sig verulegar kauphækkanir.
í margar vikur hefur ríkisstjórn
in verið að ítreka áhuga sinn á
verðstöðvun. Allir stjórnmála-
fiokkar og alþýðii«amtökin hafa
lýst sig samþykk henni. Af
hverju er verðlagið þá ekki
stöðvað. R>ki«t jórnin hefur það
: i’ondi sér. Eftir hverjn er hn>’
að bíða? Á sú „stöðvun“ að
verða á kostnað launþega? í
gærkveldi var tilkynnt um ÍT7,,
hækkun lyfja, strætisvagna-
gjöld hækkuðn um 15% í dag.
Er ekki koniinn 'ími til að fara
að lifa eftir kenningunni"
— TK
Erlent yfirlit
Framhald af bls. 9
TVÖ ÖNNUR hugsanleg for-
setaefni demokrata sækja nú
einnig um endurkjör sem öld-
ungadeildarþingimenn. Það eru
þeir Edward Kennedy í Massa-
chusett og Hubert Humphrey
í Minnesota. Báðir þykja örugg
ir um að ná kosningu. Af hálfn
Kennedys hefur verið yfirlýst,
að hann muni ekki gefa kost á
sér sem forsetaefni 1972.
Humphrey hefur hins vegar
sagt, að hann sækist ekki eftir
framboði, en muni þó vart
hafna því, ef til hans yrði leit-
að. Ekki þykir nú líklegt að
það verði gert, þar sem Muskie
hefur langtnestan stuðning
þeirra þremenninga sem fc-r-
setaefni. Þetta gæti þó breytzt,
ef kosningaúrslitin þættu leiða
í ljós, að baráttuaðferðir
Agnews þættu vænlegri til fylg
is en þær, sem Muskie hefur
tamið sér. Þá yrði kannski
leitað til gamals baráttumanns
eins og Humphreys. — Þ.Þ.
Verzlunarráð
Framhald af bls. 16.
að öll viðurlög verði aukin við
saknæmri stjórn fyrirtækja, sem
verða gjaldþrota.
í stjórn Verzlunarráðs voru
kjörnir: Haraldur Sveinsson,
Björn Hallgrímsson, Othar Ell-
irigsen, Magnús J. Brynjólfsson,
Bergur G. Gíslason, Ólafur O.
Johnson, Stefán G. Björnsson,
Hjalti Geir Kristjánsson, Jónat-
an Einarsson og Árni Árnason,
en eftirtaldir menn hafa verið
tilnefndir í stjórnina af félaga-
samtökum: Gunnar J Friðriks-
son, Sveinn B. Valfells, Björg-
vin Schram, Kristján G. Gíslason,
Hjörtur Jónsson, Þorvaldur Guð-
mundsson. Gunnar Ásgeirsson og
Hjörtur Hjartarson.
Daníel
Framhaid af bls. 16.
tillögu um. að starf forstjóra yrði
auglýst samkvæmt lögum verk-
smiðjunnar.
5. Þótt ég teldi að Svavar Páls
son hefði unnið ágætt starf í
þágu verksmiðjunnar, áleit ég bet
ur fara á því, að forstjóri hefði
verkfræðilega menntun, eins og
lögin gera ráð fyrir. Hins vegar
tók ég fram, að mikla áherzlu
bæri að leggja á hæfileika vænt-
anlegs forstjóra til að fara með
fjármál og _ viðskiptamál verk-
smiðjunnar. í öllum stéttum eru
ágætir fagmenn, sem bera tak-
markað skyn á fjármál, og er hin
fjölmenna verkfræðingastétt þar
engin undantekning. Fari saman
góð verkþekking og skilningur á
fjármálum þá er vel. Eftir því
vildi ég leita með auglýsingu á
starfi forstjóra, hvort sem sú leit
hefði borið árangur eða ekki.
6. Innan verksmiðjustjórnarinn
ar var forstjóramál þetta rætt á
flestum fundum í vetur án þess
að niðurstaða fengist, sem meiri-
hluti væri fyrir. Eftir að sumar-
leyfum lauk flutti fulltrúi Al-
þýðuflokksins í verksmiðjustjórn
tillögu á fundi 1. september s.l.
að stjórnin mælti með lagabreyt-
ingu á þá lund. að framkvæmda-
stjórar verksmiðjunnar yrðu tveir,
verksmiðjustjóri og framkvæmda-
stjóri fjármála og viðskipta, og
mælti með því við iðnaðarráðu-
neytið, að það beitti sér fyrir
slíkri lagabreytingu á Alþingi.
7 Ég tel. að forstjóramál þetta
sé eingöngu málefni verksmiðju-
stjórnarinnar. og hvorki Verk-
fra»5ingafélag íslands né aðrir aðil
ar eigi að hafa þar nokkur afskipti
af. Verksmi'ðjustjórnin er kosin af
Alþingi til að fara með málefni
verksmiðjunnar undir yfirstjórn
Spil nr. 20 í leik íslands og
Frakklands — þáverandi Evrópu-
meistara — í Dublin 1967 var þaon
ig:
S KG 10 6 5
H Á K 4
T 73
L 10 4 3
S 2 S 983
H D 9 63 H 875
TÁD10 TK9654
L D 7 65 2 L K9
S Á D 7 4
H G 10 2
T G 8 2
L ÁG 8
Á borði 1 sagði S, Þórir Sigurðs-
son, 1 Sp. í fjórðu hendi og Norð-
ur stökk beint í fjóra spaða. Út
kom L-5 og þegar Hj-D lá rétt var
þessi hariða sögn í höfti. 620 til ís-
lands. Á borði 2 opnaði Norðui á
1 Sp., og sagði 2 Sp. við 2 L Suð-
urs, sem stökk þá í 4 Sp. Ut kom
T-5 og vegna hagstæðrar legu bæði
Hj. og L vann dr. Theron spilið,
sem féll því. Staðan eftir 20 spil:
ísland 43 — Frakkland 18.
ráðuneytisins, og m. a. til að ráða
forstjóra að henni. Þegar deila
rís upp, eins og að framan er
greint, er ekkert óeðlilegt við það,
að nokkurn tíma taki að komast
að niðurstöðu, og vitanlega eiga
skiptar skoðanir í þessu máli, sem
öðru, fyllsta rétt á sér. Og þótt
ég hafi orðið í minnihluta í stjórn-
inni, tel ég afskifti Verkfræðinga-
félagsins, og þá einkum kæru til
saksóknara, hreina fjarstæðu, því
öllum, sem vilja kynna sér málið,
er ljóst hver ástæðan er og
ástæðulaust að blanda því inn í
önnur og miklu alvarlegri mál.
Er leitt að Hafsteinn Sigurbjörns-
son skuli enn ekki vera farinn að
skilja þetta, jafn einfalt og það
virðist vera. Hann ruglar hér saro-
an efnisatriðum og málsmeðferð,
en á því tvennu er mikill mun-
ur.
8. Ég tel að verksmiðjustjórn-
in hafi fyrir sitt leyti afgreitt
þetta 1. september, og þótt nokkur
dráttur hafi orðið á því liggi til
þess orsakir, sem ekki geti talizt
tilefni til misferlis og sakadóms-
rannsóknar. Taki ráðuneytið þá
ákvörðun að fara með málið á Al-
þingi, er það réttur vettvangur fyr
ir Verkfræðingafélagið að beita
áhrifum sínum eins og svo marg-
ir gera undir svipuðum kringum-
stæðum. Er það þá Alþingi sem
sker úr.
9. Allir stjórnarmenn nema
Hafsteinn Sigurbjörnsson tóku
fram í sambandi við mál þetta, að
skoðanir þeirra á efnishlið máls-
ins væru óbreyttar. Ég vil mót-
mæla þeim ósmekklegu getsökum
sem fram koma I nefndri grein
Hafsteins Sigurbjörnssonar að ég
sé að koma í veg fyrir einhverja
rannsókn og hverfa frá fyrri af-
stöðu minni. Þegar ég flutti fyrstu
tillögur mínar í stjórninni um
rannsókn á meimtu misferli,
greiddu allir atkvæði gegn henni,
einnig Hafsteinn Sigurbjörnsson,
þótt hann breytti síðar um skoð-
un. Hann hefur engar tillögur
flutt innan stjórnarinnar um for
stjórastarfið. heldur aðeins fylgt
tillögu er ég flutti i janúar s.l.
Sú stefna er ég markaði þar er
óbreytt ai minni hálfu. og von-
ast ég til að Hafsteinn Sigurbjörns
son skilji það hér eftir.“