Tíminn - 12.01.1971, Síða 1
LJÓSA
PERUR
■OA«Í^MAéfg/L Á/
RAFTÆKJADEILD, HAFNARSTRÆTl 23, SiMI 18395
8. tbl. — Þriðjudagur 12. janúar 1971. — 55. árg.
i
Sjómanna-
deilan er
enn óleyst
— en ekki hefur verið
boðað til verkfalla
EJ—Reykjavík, mánudag.
Samningaumleitanir standa
enn yfir um bátakjarasamn-
ingana, sem yfirmenn, og
nokkur sjómannafélög, hafa
fellt, en ekki er enn Ijóst
hvað verSur, Ekkert félag
hafSi í kvöld boSaS til verk-
fails svo vitaS væri, en bát-
ar eru víSa í höfn, eins og
myndin, sem Ijósmyndari
Tímans, Gunnar, tók viS
Reykjavíkurhöfn í dag, sýnir.
Sjómannafélag Rcykjavíkur hélt
fund í gærkvöldi og var ákveðiS
að láta ekkr-greiða atkvæði um
bátakjarasamningana fyrr en svar
hefði borizt frá sjávarútvegs-
málaráðuneytinu varðandi fæ'ðis-
peninga sjómanna.
Sáttafundur var haidinn í dag í
deilu yfirmanna á togaraflotanum
og Félags ísl. botnvörpuskipaeig-
enda. Hófst sá fundur kl. 14 og
stóð til kl. 18.30.
Eins og fram hefur komið i
fréttum komu fjórir togarar að
Keflavík á dögunum og skiptu þar
um menn á skipunum. en það
voru skólanemendur sem í land
fóru. í
Stjóm Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands mun á
morgun, þriðjudag, koma saman
til fundar og ræða mál þetta.
Lætur stjórn Laxárvirkjunar
stöðva virkjunarframkvæmdir?
— og ríkisstjórnina ábyrgjast að fullnægja orkuþörf virkjunarsvæðisins
KJ—Reykjavfk, mánudag.
Sá orðrómur hefur flogið fyrir,
að stjórn Laxárvirkjunar hafi í
hyggju að láta hætta öllum fram
kvæmdum sem nú standa yfir við
Laxá, og láta ríkisstjóminni það
eftir að ráða fram úr orkumál-
um fyrir svæðj Laxárvirkjunar
með einhverjum ráðum.
Stjórnarformaður Laxárvirkj-
unarstjórnar, Arnþór Þorsteinsson
verksmiðjustjóri á Akureyri, sagði
í viðtali við Tímann í dag, að stjóm
in hefði að undanfömu athugað
virkjunarmálin í ,’jósi undangeng-
inna atburða, og ennfremur sagði
Arnþór, að á næstunni myndi Lax
árvirkjunarstjórn og ríkisstjómin
halda sameiginlegan, sérstakan
fund um Laxármálið, en ekki væri
ákveðið hvenær sá fundur yrði.
Arnþór vildi ekki fullyrða neitt
um hvort núverandi virkjunarfram
kvæmdir yrðu stöðvaðar, eða til
hvaða ráða kynni að verða tekið
í sambandi við virkjunarmálin, en
sagði að tryggja yrði svæðinu raf
orku, með hvaða hætti sem það
yrði, en málin myndu væntanlega
skýrast eftir fundinn með rfkis-
stjórninni.
Svo sem kunnugt er, þá gercðst
það fyrir jólin, að Hæstiréttur
felldi dóm sinn í lögbannsmálinu
Laxá, þar sem heimilt er að
leggja lögbann við ag rennsii ár-
innar verði ekki breytt, og er nú
fógetaréttur að fjalla um, hvort
setja beri tryggingu í því sam
bandi eða ekki. Þá ákvað ríkis
stjórnin strax eftir að dómur féll
í Hæstarétti, að fram skuli fara
Framh. á 14. síðu.
Happdrætti DAS
- sjá bls. 7
„Er læknadeild
höfuölaus her?á<
segir í fundarauglýsingu frá Félagi læknanema
KJ—Reykjavík, mánudag.
Þrátt fyrir mikið umtal og mikl-
ar umræður undanfarin misseri,
er ekki búið að leiða til lykta deil-
ur þær, sem staðið hafa yfir í j
læknadeild Háskólans. Er liaft fyr-
ir satt, að hinn nýkjörni forseti
læknadeildar, Þorkell Jóhannesson,
prófessor, hafi haft við orð að
segja af sér, en hann tók við for-
setastörfum á sl. hausti af próf.
Ólafi Bjarnasyni.
Það sem veldur mesta úlfaþytn-
um innan deildarinnar núna er,
hvort hleypa eigi 36 eða 24 lækna-
nemum áfram, eftir fyrsta áfanga
í deildinni.
Félag læknanema efnir ti' fund-
ar um máli'ð annað kvöld (þriðju-
dagskvöld) í 1. kennslustofu, og er
mikil auglýsing um fundinn á dyr-
um lesstofu læknanema í Lands-
spítalanum. Verður ekki annað
sagt, en aug.’ýsingin sé „róttæk“,
ef svo má að orði komast um aug-
lýsingar, en hún er myndskreytt á
óvenjulegan hátt. Undir fyrirsögn
auglýsingai’innar er mynd af kú-
reka, sem heldur hálstaki urn ann-
an kúreka, beinir byssuhlaupi að
andliti hans og er látinn segja:
„Vilt þú verða deildarforseti og
slást við 1. árs menn?“ Neðar á
augl. er hluti at dollaraseðli,
og yfir ásjónu Georges Washington
hefur verið sett mynd af fáklædd-
um kvenmanni, og hún er látin
segja: „Það vantar peninga“. Ilitl-
er sálugi skreytir þessa auglýsingu,
og er hann látiun segja: „Er
iæknadeildin höfuðlaus her?“
Stærsta myndin er svo einnig úr-
klippa úr blaði, af ungum, geð-
þekkum manni, sem látinn er segja:
Framhaid á bls. 14
£ t.X. m ‘L** idt*Jd i.
Auglýsing :<£knanema. seir. hangir uppi í Landsspítalanum.
(Timamynd Gunnar)