Tíminn - 12.01.1971, Page 2
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 12. janúar 1971
Tvö sjúkraflug til
Patreksfjarðar
Þýzki •Jémaðurinn, sem höfuökúpubrotnaði, borinn út úr Gunnfaxa í Reykjavíkurflugvelli. (Tímam. Gunnar)
ÁkvörSun tekin í Reykiavík um bókm enntaverðlaun Norðurlandaráðs
DANI TALINN LÍKLEG-
ASTI VERDLÁ UNAHAFI
EJ—Reykjavík, mánudag.
M'ámidagmn 18. janúar nk. kem-
nr saman til fundar í Reykjavík
nefnd sú, Sem ákvefflur hver hljóta
skuli bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs að þessu sinni, en verð-
launin verða afhent á fundi Norð-
urfandaráðs í Kaupmannahöfn í
byrjun febrúar. Samkvæmt blaða-
fréttum í Svtfþjóð er talið sennilegt
að danski rithöfundurinn Thorkild
Hansen hljóti verðlaunin að þessu
sinni. Verður það þá í annað sinn
íslenzkur
ræðismaður
í Virginíu
SB—Reykjavík, mánudag.
Alan J. Hofheimer hefur verið
skipaður ræðismaður fslands í
Virginíuríki í Bandaríkjunum.
Hann er aðaleigandi Hofheimer,
Nusbaum & McPhaul í Norfolk.
Tuttugu og fimm lönd hafa nú
ræðismann í Virginíu.
í röð, sem Dani hlýtur verðlaunin,
því Klaus Rifibjerg hlaut þau sem
kunnugt er í fyrra.
Bókmenntaverðlaunin nema 50
þúsund dönskum krónum, en í
verðlaunanefndinni eru 10 menn,
tveir frá hverju landi, og að þessu
sinni er Steingrímur J. Þorsteins-
son prófessor formaður nefndar-
innar.
Hvert Norðurfanda hefur lagt
fram tvær bækur. Danir lögðu
fram síðustu bókina í trilógiu Thor-
kilds Hansen um danska þræla-
verzlun í hinni gömlu nýlendu
Dana á vestursttönd Afríku, og bók
eftir Peter Seeberg. Finnsku höf-
undarnir eru Hannu Salama og
Pentti Saarikoski, íslendingarnir
Svava Jakobsdóttir og Thor Vil-
hjálmsson, Norðmennirnir Stein
| Mehren og Dag Solstad og Svíarnir
Sven Delb.'ane og Lars Gyllensten.
Dagens Nyheter segir, að fyrir
utan Hansen sé helzt talið, að Saari
koski, Dag Solstad og Delhlanc
komi til greina viið verðlaunaveit-
inguna. ,
ERLENDUR PATURSSON
FÉLL í FORMANNSKJÖRI
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Skipverji á þýzkum togara var
síunginn hnífi af skipsfélaga sín
um utan við Patreksfjörð sl. laug-
ardag. Slasaði maðurinn var fyrst
fluttur á sjúkrahúsið á Patreks-
firði, en um nóttina var flogið með
hann til Reykjavíkur og liggur
hann nú á sjúkrahúsi, og er talinn
úr lífshættu. f dag slasaðist skip
verji á öðrum þýzkum togara. Féll
blokk á höfuð mannsins, sem höf
uðkúpubrotnaði. Sá maður var
fluttur til Reykjavíkur í dag. Voru
báðir mennirnir fluttir meg flug
vélum Flugfélags íslands.
Ekið á hest of-
an við Eyr-
arbakka
KJ—Reykjavík, mánudag.
f nótt var ekið á hest á vegin-
um fyrir ofan Eyrarbakka, og
drapst hesturinn skömmu síðar,
en hann var í eigu Einars Helga-
sonar, Bræðraborg á Stokkseyri.
Ökumaður bifreiðarinnar til-
kyrrnti ekki um slysið, en Selfoss-
lögreglan hafði haft upp á öku-
maxminum í dag. Fannst hann og
bifreið hans í Hafnarfirði, og var
bjf^eijjn nokkyð skemmd.
Áðfaranótt sunnudagsins var
áætlúná’rblTnúm K-29, sem er í
eigu Ólafs Ketilssonar, stolið frá
Laugarvatni, og fannst bifreiðin
eftir hádegið á sunnudag, fyrir
neðan Tannastaði undjr Ingólfs-
fjalli. Talið er að tveir menn hafi
yfirgefið bifreiðina þar seint um
nóttina eða um morguninn, og eru
þeir, sem gefið geta upplýsing-
ar í málinu beðnir að snúa sér til
lögreglunnar á S-elfossi.
EJ—Reykjavdk, mánudag.
Erlendur Paturssoa, sem verið
hefur formaður Föroya Fiski-
mannafélag í Færeyjum í 16 ár,
féll í formamiskjöri í félaginu
fyrir nokkrum dögum. 1145 félags
menn tóku þátt í fonmannskjör-
inu, og hlaut Óla Jacobsen í
Norðagötu 599 atkvæði, Erlendur
Patursson 464, en þriðji fram-
bjóðandinn fékk 56 atkvæði og 26
seðlar voru ógildir.
Hinn nýi formaður félagsins er i
að sögn færeyskra blaða ungur og
ófcvæntur, og hefur um nokfcufn
tíma haldið uppi verulegri gagn-
rýni á félagið og skipulag þess.
Nú um miðjan janúar munu
hefjast að nýju samningar milli
Fiskimannafélagsins og útgerðar-
manna, en það slitnaði upp úr
þeim samningum fyrir jólin.
Hreyfill 8
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Bifreiðastöðin Hreyfill hefur nú
flutt aðalstöðvar sínar í stórhýsið
sem félagið byggir að Fellsmúla
26, á mótum Grensásvegar og
Mifclubrautar. Jafnframt veirður
breytt um símanúmer stöðvarinn
ar, og er nú 855-22. Gamila númerig
sem filestir þekkja er enn í notk
un, en vercfur lagt niðuir síðar í
þessum mánuði.
Húsið sem Hreyfill byggir við
Fellsmúla er fimm hæðir og er
hver hæð á sjötta hunörað fer
metra að stærð. í ráði er ai reisa
nýja þvottastög fyrir Hreyfil rétt
norðan byggingarinnar, en sú
þvottastöð sem bílastöo'in rekur
nú er orðin of lítil.
Hús Hreyfils á nofckuð langt í
land með að verða fullgert. ■ En
á annarri hæð er búið að innrétta
skrifstofur og sal fyrir símaþjón
ustuna. Verða bækistöðvar Hreyf
ils á þessari hæð í framtíðinni, en
óráo'ið er enn sem komið er hvað
gert verður við hinar hæðirnar.
Auk skrifstofuherbergja er þarna
aðstaða fyrir félagsstarfsemi, en
bílstjórarnir hafa með sér alls
konar félög, svo sem bridgefélag
og taflfélag, sem getið hefur sér
góðan orðstír á mótum, heima og
erlendis, og skreyta verðlaunagrip
ir margskonar aðalskrifstofuna.
Verið er að innrétta stóran sam
komusal, sem taka mun um 200
manns í sæti og veró'ur þar félags
heimili Hreyfils. Bílstjórar á
Hreyfli eru nú um 270 talsins.
Dansleikur FUF
á fimmtudaginn
Á fimmtudaginn heldur FUF í
Reýkjavík dansleik í Veitingahús
inú við Lækjarteig 2, en eins og
fram kemur í útsendri starfsáætl
un félagsins, mun það halda einn
dansleik í mánúði nú næstu mán
uðina.
Dansað verður til kl. 2 e. m.
Tvær hljómsveitir leika. Dans-
leikurinn er öllum opinn, en FUF
félagar eru sérstaklega hvattir til
að koma.
Nánar auglýst síðar. — Stjórn
FUF.
Snæfellingar
Eftir jóla- og
áramótahléið
höldum við
áfíam áður aug
lýstum framsókn
■arvistum, fimm
•kvölda keppni,
þar sem aðal-
.vinningurinn er
■Mallorcaferð fyr
■ir tvo á vegum
■Sunnu. Næsta spilakvöld, það 4.
í röðinni, verður að Röst, Hellis
sandi, næstkomandi laugardag, 16.
janúar, kl. 21. Ávarp flytur Davíð
Aðalsteinsson kennari, Arnbjarg-
arlæk. Einar í Dal og félagar leika
fyrir dansi.Fjölmennum að Röst á
laugardaginn kemur. Gleðilegt ár.
Framsóknarfélögin Snæfellsnesi
Skömmu eftir miðnætti á laug
ardag var Flugfélagið beðið um
aðstoð við að sækja slasao'an mann
til Patreksfjarðar. Fór Fokker
Friendshipflugvél eftir manninum
sem var illa særður eftiir hnífs-
stungu.
í dag bairst beiðni frá Patreks-
firði um að sækja þangað höfuð-
kúpubrotinn, þýzkan sjómann. —
Gunnfaxi var á lei'ð frá ísaf. til R-
víkur og var flugvélinni snúið til
Patreksfjarðar til að taka slasaða
manninn. Lenti flugvélin á Reykja
vífcurflugvelli kl. 6,30 í kvöld.
Handtekinn á
innbrotsstað
OÓ—Reykjavík, mánudag.’
Innbrotsþjófar voru iðnir um
helgina og brutust víða inn, en
lítið var upp úf því að hafa. Á
skrifstofu hjá Þóri Jónssyni, Skeif
unni 17, var gerð tilraun til að
brjóta upp peningaskáp, en það
tókst ekki. Á öörum stað var þjóf
uir handtekinn á innbrotsstað, en
tveir félagar hans sluppu.
Brotizt var inn í gúmmivinnu-
stofu í Skipholti, en efcki er að
sjá að neinu hafi verið stolið. f
fyrirtæki Þóris Jónssonar var
leitað að peningum, en lítið fannst.
Farið var inn um aðaldyir. f
skrifstofunni vax öllu umturnað,
og reynt vair að brjóta upp
peningaskáp. Hefur auðsjáanlega
verið gerð tilraun til að brjóta á
honum bakið, en skápurinn er
traustur og urðu þeir sem þar
voru að verki, frá að hverfa.
Um miðja nótt sást til þriggja
ungra manna, sem voru að athafna
sig í radíóverzlun að Skólavörðu
stig 10. Lögreglan kom á vettvang
og náðist einn piltanna, en tveir
komust undan.
Brotizt var inn á nokkrum stöð
um öðrum, og var fengurinn aðal
lega tóbak, sælgæti og skiptimynt.
TRÚBROT
VERÐUR
FIMM MANNA
HLJÓMSVEIT
EB—Rcykjavfk, mánudag.
Tíminn fékk í dag staðfestingu
á því, að breytingar hafa nú átt
sér stað í hljómsveitinni Trúbrot.
Þeir Gunnar JökuII Hákonarson
trommuleikari og Karl Sighvats-
son orgelleikari hafa tekið sæti í
hljómsveitinni á nýjan leik, en Ól-
afur Garðarsson trommnleikari
fer úr hljómsveitinni. Verður
hljómsveitin framvegis skipuð 5
hljóðfæraleikurum: Gunnari Þórð-
arsyni, Magnúsi Kjartanssyni,
Rúnari Júlíussyni, Gunnari Jökli
Hákonarsyni og Karli Sighvats-
syni.
Sá orðrómur, sem lét mikið á
sér bera fyrir helgi, þess efnis, að
Gunnar Þórðarson færi úr Trú-
broti yfir í Ævintýri er þar með
að fu.lu kveðinn niður. — Að
lokum skal þess getið, að Magnús
Kjartansson, sem leikið hefur á
orgel í Trúbroti, fær nú rafmagns
píanó til umráða í hljómsveit-
inni.