Morgunblaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
Aðventustund í Laufási | Jóla-
andi liðins tíma verður á sveimi við
utanverðan Eyjafjörð í Gamla bæn-
um í Laufási á morgun, sunnudaginn
11. desember frá kl. 13.30 til 16.
Samveran byrjar í kirkjunni en í
Gamla bænum fer fram gamaldags
jólaundirbúningur, þar sem m.a.
verður búið til jólaskraut, jólatré
skreytt, skorið í laufabrauð og
búin til kerti svo eitthvað sé nefnt.
Gestir geta fengið að smakka
hangikjöt, laufabrauð og kúmen-
kaffi. Einnig verður boðið upp á
gamaldags sælgæti. Jólamarkaður
verður í skálanum, þar sem margs-
konar jólavarningur verður á boð-
stólum.
Bókakynning | Þóra Sigríður Ing-
ólfsdóttir kynningarfulltrúi JPV út-
gáfu og Karl Emil Gunnarsson þýð-
andi kynna fjórar bækur á
Amtsbókasafninu í dag, laugardag-
inn 10. desember kl. 15. en þær eru
Játningar Láru miðils, Blekkinga-
leikur, Dexter í dimmum draumi og
Veronika ákveður að deyja.
Hádegistónleikar | Björn Steinar
Sólbergsson organisti heldur hádeg-
istónleika í Akureyrarkirkju laugar-
daginn 10. desember kl. 12. Á efnis-
skrá verða verk tengd aðventu og
jólum eftir Andrew Carter, Marcel
Dupre og Naji Hakim.
NIÐURSTAÐA ráðgjafa sem unnu
með stýrihópi verkefnisins Akureyri í
öndvegi var sú að ekki væri æskilegt
að byggja stórmarkað á íþróttavall-
arsvæðinu. Ásdís Hlökk Theódórs-
dóttir skipulagsfræðingur sem starf-
ar hjá Alta hefur verið stýrihópnum
til ráðgjafar varðandi tillögugerð um
nýtt skipulag í miðbæ Akureyrar, en
tillögur hópsins ganga út á að byggja
íbúðir á svæðinu sem og einnig að
koma þar upp útivistarsvæði, fjöl-
skyldu- og skemmtigarði.
Ásdís Hlökk sagði að vilji íbúaþings
sem efnt var til síðastliðið haust hafi
staðið til þess að reisa stórverslun á
miðbæjarsvæðinu og að í þeim tillög-
um sem hlutu verðlaun í alþjóðlegri
samkeppni um nýtt miðbæjarskipu-
lag hafi slíkar hugmyndir einnig verið
settar fram. Það hefðu menn haft að
leiðarljósi.
Kostir bornir saman
Betur hefði átt eftir að útfæra, m.a.
staðsetningu stórmarkaðar, þar hafi
íþróttavallarsvæðið komið til skoðun-
ar sem og aðrir kostir. Bornir voru
saman kostir og skoðað hvar best
hentaði í og við miðbæinn að koma
fyrir slíkri verslun. Þar hafi verið litið
til landnýtingar, verslunarrýmis,
áhrif þess á aðra verslunaruppbygg-
ingu og hvort líklegra væri að hún
myndi virka sem segull á aðra upp-
byggingu verslunar og þjónustu í
miðbænum eða draga frá annarri
starfsemi á því svæði. Þá hafi fjar-
lægðir verið skoðaðargaumgæfðar
með tilliti til gönguvegalengda í mið-
bænum, stærð og gólfflatarmál,
byggingarlag slíkrar verslunarmið-
stöðvar sem og einnig byggðamynstr-
ið.
Grundvöllurinn hafi verið hvernig
efla ætti miðbæinn og að byggt yrði á
þeim grunni sem fyrir. Í þeirri vinnu
var m.a. litið til þess hvernig farið
væri með umsóknir um byggingu
stórmarkaða í nágrannalöndum okk-
ar og áhrif þeirra á miðbæjarlífið.
Horft til annara svæða
„Að öllu þessu skoðuðu var það
okkar niðurstaða að það væri óum-
deilanlega æskilegra með tilliti til
uppbyggingar í miðbænum og eflingu
hans, að horfa til þeirrar staðsetning-
ar sem fram kom í tillögu stýrihóps-
ins, þ.e. á Sjallareitinn eða þá svæði
milli Skipagötu og Glerárgötu þar
sem nú eru bílastæði,“ sagði Ásdís
Hlökk.
Hún sagði það niðurstöðuna að
ýmsar áleitnar spurningar væru uppi
varðandi byggingu stórmarkaðar á
íþróttavallasvæðinu, m.a. hvaða áhrif
slíkt hefði á þróun verslunar og þjón-
ustu í miðbænum og eins hvort fjar-
lægðin væri of mikil til að samlegð
væri þar á milli. Einnig hefði verið
horft til þess sambands sem væri á
milli verslunaruppbyggingar og þjón-
ustu milli miðbæjar og Glerártorgs.
„Við höfðum einnig í huga að ann-
ars vegar erum við með svæði sem
eru í notkun og eru kjörin til endur-
uppbyggingar, en hins vegar svæði
sem er til almannanota, en það hefur
mikið gildi fyrir samfélagið, er verð-
mætt svæði og því verður að vanda
vel til hvernig farið verður með það,“
sagði Ásdís Hlökk.
Ekki æskilegt að byggja
stórmarkað á íþróttavellinum
Önnur svæði eru
talin æskilegri
ODDUR Víðisson, framkvæmda-
stjóri Þyrpingar hf., sagði að
könnun sem fyrirhugað er að Gall-
up framkvæmi á Akureyri í kjölfar
kynningar á hugmyndum um stór-
verslun á Akureyri, sé unnin fyrir
Þyrpingu og Haga. Vilji er fyrir
því að reisa fjögur til fimm þúsund
fermetra verslun við suðvestur-
horn Akureyrarvallar. Oddur sagði
að niðurstaða könnunarinnar yrði
kynnt fyrir bæjarbúum þegar nið-
urstaða hennar liggur fyrir. Oddur
sagði að vissulega hefði komið
fram vilji til að setja upp fjöl-
skyldugarð og byggja íbúðir á
þessu svæði, en einnig verslun og
þjónustu, og nú vildu menn vita
hversu mikill og víðtækur sá vilji
væri. Farið yrði með verslunina
annað yrði það niðurstaða könn-
unarinnar.
Sýnir að þetta er hægt
Oddur sagði það nýtt að einka-
fyrirtæki kæmi að skipulagsmálum
með þessum hætti. „Okkur fannst
alveg réttlætanlegt að sýna fram á
hvað þarna væri hægt að gera. Við
erum aðeins að reyna að sýna
fram á með sannfærandi hætti að
þetta sé hægt en þetta eru tillögur
sem eru til umræðu og breytinga.“
Oddur sagði það vel geta verið
rétt að verið væri að setja fram
einhliða hugmyndir, en ekki væri
verið að reyna að taka fram fyrir
hendurnar á skipulagsyfirvöldum í
bænum. „Við getum það ekki, bæj-
arfulltrúar eru kjörnir til þess að
taka afstöðu til mála. Við teljum
þetta vera hið besta mál fyrir bæj-
arfélagið en lútum því algjörlega
að það er vilji bæjarbúa og bæj-
arstjórnar sem ræður.“
Oddur sagði að Sjallareiturinn
væri ekki nægilega stór fyrir
verslun af því tagi sem fyrirhugað
væri að byggja. Áratugum saman
sagði hann að stórmörkuðum hefði
verið beint út í jaðra borganna, en
það væri að breytast. Það yrði
heilmikið púst fyrir miðbæinn að
fá verslunina á íþróttavallarsvæðið
og að sínu mati ætti sveitarfélagið
að fagna því að stórar keðjur
hefðu hug á að koma sér fyrir í
miðbænum.
Þyrping og Hagar gera könnun
vegna hugmynda um stórverslun
Viljum vita hve
víðtækur viljinn er
Tvennir tónleikar | Jólatónleikar
Samkórs Svarfdæla verða haldnir á
laugardag, 10. desember. Fyrri tón-
leikarnir verða í Dalvíkurkirkju kl.
15 og þeir síðari í Glerárkirkju kl.
20.30. Egill Ólafsson syngur einsöng
með kórnum. Á efnisskrá eru þekkt
jólalög í bland við minna þekkt.
Sungin verða lög og útsetningar eftir
kórstjórann, Petru Björk Pálsdóttur
og sömuleiðis einsöngvarann Egil.
Undirleik annast Helga Bryndís
Magnúsdóttir píanóleikari og í
nokkrum lögum leika með þær
Steinunn Úlfarsdóttir á flautu,
Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir
á selló og Melkorka Guðmundsdóttir
á flautu.
Jólasöngvar | Jólasöngvar Kórs
Akureyrarkirkju verða sunnudaginn
11. desember kl. 17 og 20. Á efnis-
skránni er aðventu- og jólatónlist.
Eyþór Ingi Jónsson leikur á orgel og
stjórnandi er Björn Steinar Sól-
bergsson. Auk þess að hlýða á kórinn
gefst kirkjugestum kostur á að æfa
jólasálmana því auk kórsöngs verður
almennur safnaðarsöngur.
LEIKSKÓLINN Flúðir er 20 ára um þessar mundir og af því tilefni var
efnt til veglegrar afmælisveislu í húsnæði leikskólans. Starfsfólk og leik-
skólabörn buðu aðstandendum í heimsókn og fjölmenntu þeir á staðinn og
þágu veitingar. Einnig komu bæjarfulltrúar í heimsókn, sem og bæj-
arstjórinn Kristján Þór Júlíusson.
Morgunblaðið/Kristján
Afmæli Fjöldi fólks mætti í afmæli leikskólans Flúða og samgladdist börn-
unum og starfsfólki í tilefni tímamótanna.
Leikskólinn Flúðir 20 ára
♦♦♦