Tíminn - 22.04.1971, Blaðsíða 7
HWMTUDACUR 22. april 1971
TÍMINN
7
VORKOMA 1971
Btóm, er hafi umfram afla
aðra kosti seigju og þrótt.
Blóm, sem ekki að foldu falla
föl á einni hélunótt.
Bráðum er íiðin öld, síðan samvinnuhreyfingin skaut rótum á fslandi.
Það liggur beint við að líkja upphafi hennar við vorgróður á hörðu
ári. Síðan hefur ísland blómgazt, svo að undravert má telja. Hinar
seigu, þróttmiklu rætur samvinnuhreyfingarinnar hafa verið aflgjafi
og festa þjóðfélagsins langan aldur, og hin
íslenzka samvinnuhreyfing hefur dafnað
og eflzt með gróandi þjóðlífi.
Vöxtur og viögangur samvinnuhreyfingar-
innar er líftrygging heilbrigðis þjóðlífs, af
því að hún vinnur í lýðræðisanda að því að
að viðhalda verzlunaröryggi, og skapa æ
f jölbreyttari verkefní og menningarskil-
yrði, er svari tímans þörf í öllum bæjum og
byggðum landsins.
Góðir islendingar. Samvinnuféiögin eru eign yðar sjálfra
og þess vegna raunhæft tæki yðar til að skapa fullkomnara
líf af innlendri rót í þessu landi.
Óskum samvirLnumönnum um
allt land og íslendingum öiíum
GLEÐILEGS SUMARS.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLACA
Indriði Þórkelsson.