Tíminn - 12.05.1971, Blaðsíða 7

Tíminn - 12.05.1971, Blaðsíða 7
MTOVIKUDAGUR 12. maí 1971 TÍMINN 7 FERDASKRIFSTOFAN URM Eimskipafélagshúsinu simi 26900 Farþegar Orvals eiga frátekin herbergi á fyrsta flokks hótelum, eða íbúðir fyrir tvo eða fleiri. Ibúðunum fylgir þjónusta, eldhús og kæliskápur, en á hótelunum er fullt fæði innifalið. Sundlaug á hverju hóteli. Athugasemd frá Þjóðleikhússtjóra sonar o. fl. Helgi er án efa bezti listdansari íslands, sagður af kunnáttumönnum, á svi'ði listdansins, einn allra bezti ballettdansari heims- íns. 11. Svartfugl, nýsamið verk eft- ir Ömólf Árnason, byggt á samnefndu snilldarverki Gunnars Gunnarssonar rit- höfundar. 12. Zorba, söngleikur eftir Jos- eph Stein og John Kander. Söngleikur þessi hefur far- ið sigurför um fjölda landa á síðustu árum og sýndur í mörgum þekktustu leikhús- um, austan hafs og vestan. Um þctta leikrilaval segir í framannefndri grein: „Ef dæma skal eftir vali þejrra verkefna á því ári, sem nú er að líða í leikáranna skaut, ber ekki á öðru en að stjórn Þjóðleikhúss sé æði sljóskyggn á listgildi sjónleika og vanræk- in á menningarlegar skyidur sínar við þjóðina, en vonandi stendur þetta allt til bóta með hækkandi sól, vori í lofti og nýju blóði í náinni framtíð.“ Er hægt að lýsa meiri van- þekkingu eða illgirni en gert cr með þessum tilvitnuðu setning- um, þegar litið er á það, sem með þessum orðum er vcrið að dæma? Hver er tilgangur Tím- ans með svona fáránlegum skrif- um? Mér þætti vænt um að fá svar ritstj. blaðsins við þessari spurningu. Guðl. llósinkranz Beiht þotuflúg frá KeflaVík tQ Palma á Mallorea: Flugtími aðeins fjórar klukkustundir. Engin millilending. Brottfarar- dagar: 3. og 17. ágúst, 1„ 15. og 29. september. Við mælum eindregið með því, að þér berið verð okkar og þjónustu saman við önnur boð. ÁNÆGJAN FYLGIR CRVALSFERÐUM Reykjavík, 10. 5. 1971 Herra ritstjóri! Vegna greinar í blaði yðar þann 8. maí síðastl., þar sem fjallað er um Þjóðleikhúsið, vil ég biðja yður að birta eftirfar- andj upplýsingar: Á því leikári, sem nú er að líða (leikárið telst frá 1. sept. til 30. júní), hefur Þjóðleikhús- ið sýnt eftirfarandi leiksviðs- verk: 1. Eftirlitsmaðurinn eftir Gog- ol, sígilt verk eftir einn snjallasta gamanleikjahöf- und 19. aldarinnar í Evrópu. 2. Malcolm litli eftir David Halliwell, nýtízkulegt verk, sem f jallar um nútímavanda mál. Leikritið hefur verið sýnt í fjölda þekktustu leik- húsa í Evrópu við ágætar undirtektir. 3. Piltur og stúlka eftir Jón Thoroddsen og Emil Thor- oddsen, þjóðlegur, sígildur gamanleikur. 4. Óperurnar Albert Herring og The Turn of thc Screw Við höfum trjggt viðskiptavinum okkar kostakjör í 15 daga úrvals- ferðum með þotu Flugfélagsins beint til MALLORCA eftir Benjamin Britten, sem talinn er mcrkasti óperu- höfundur, scm nú er uppi. Flutt af Skozku óperunni í uppfærslu, sem hlotið hefur alþjóðaviðurkenningu. 5. Ég vil, ég vil eftir Harvey Schmidt og Tom Jones. Gam ansöngleikur, sem farið hef- ur sigurför um heiminn á síðustu árum, enda framúr- skarandi vel gerður og vin- sæll hér. 6. Sólness byggingameislari eft ir Ibsen. Eitt af hinum heimskunnu snilldarverkum skáldjöfursins. 7. Fást eftir Goethe, þýzka skáldsnillinginn. Eitt mesta meistaraverk heimsbók- menntanna, í uppsetningu eins bezta Fásttúlkanda Þýzkalands. 8. Barnaleikritið Litli Kláus og Stóri Kláus, hin sígilda barnasaga H. C. Andersen, sjálfsagt vinsælasta ævin- týraskáld, sem uppi hefur verið. 9. Filippseyjaballettími, þjóð- legur, listrænn ballett, sem farið hefur sigurför um heiminn. 10. Ballettsýning Helga Tómas- Hve langt berzt óþefur og álmóða? Mikinn óþef lagði yfir Reykjavík, föstudaginn 30. apríl. Dagblaðið Vísir tók mál ið til meðferðar 3. maí og komst að þeirri niðurstöðu, að ólyktin hafi komið frá verk- smiðjunni Lýsi og mjöl við I-Ivaleyrarbraut í Hafnarfirði. Jónas Jakob^son, veðurfræðing ur sagði, samkvæmt frásögn- inni í Vísi, að þá undanfarið hefði helzt verið hægt að tala um suðlæga átt; uppstreymi hefði verið lítið og öll skil- yrði hin ágætustu til þess að fnykur og bræla bærizt frá Hafnarfirði til Reykjavíkur. Bjóst þá við að þetta mundi lagast þegar liði á daginn og hvessti, enda reyndist svo. Þetta leiðir hugann að ál- verinu í Straumsvík. Hve langt getur álmóðan borizt þaðan? Hún getur borizt yfir Reykja- vik, þegar veðurlag er svipað og fyrr var lýst, en það er ekki ýldulykt af henni, svo menn verða hennar síður var- ir, fyrr en þá gróðurskemmd- ir segja til sín. Ýldulykt frá Kletti hefur borizt um alla Reykjavík. — Á síldarárunum barst þefill bræla frá verk- smiðjunum á Krossanesi og á Dagverðareyri — yfir Akur- eyri og lengst fram í byggðir Eyjafjarðar. Hafgolan, sem þarna er algeng á sumrin, bar bræluna langar leiðir. Frá síldarverksmiðjunni á Hjalt- eyri bar hafgolan bræluna yfir Árneshrepp, en út yfir Árskógs strönd þegar andaði sunnan. Óþefurinn gefur góðar upp- lýsingar um það hve langt eitrað, lyktarlaust loft frá öðr- um verksmiðjum, t.a.m. álver- inu, getur borizt. Reykvíking- ar mundu fljótt finna fyrir brennisteinsfýlu, ef olíulireins unarstöð væri reist á Geldinga- nesi. Fróðlegt væri að frétta hve langt óþefurinn frá t.a.m. fiskvinnslustöðvum og sfldar- verksmiðjum berst. Menn, kunnugir staðháttum, geta ef- laust gefið upplýsingar. Ingólfur Davíðsson. VERKAMENN Viljum ráða 2 verkamenn í sementsafgreiðsluna. Sementsverksmiðja ríkisins Ártúnshöfða. Sími 83400.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.