Tíminn - 13.05.1971, Síða 2
2
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 13. maí 1971
Cappelen t.v. nýstiginn út úr þotu norsku rikissjórnarinnar á ReykjavíkurílugveHi í dag (Tímamynd G.E.)
inum, eða lauslega áætlað um 0,5
m við venjulegt sumarrennsli i
Leginum, en lítið eitt meira í Vífils
staðaflóa.
Annar áfangi
Annað stig virkjunarinnar er fólg
ið í vatnsborðshækkun, er gerð
verður með lokuvirkjum, er sett
verða í yfirfallið. Er þá gert ráð
fyrir, að vatnshæðin í Steinsvaðs-
flóa geti orðið allt að 22 m y. s.
Verður lokunum stjórnað þannig,
að vatnshæðin í Leginum farj ekki
yfir 22 m y. s. nema í mestu vetr-
arflóðum.
Til samanburðar skal þess getið,
að mesta vatnsborðshæð, sem
mælzt hefur við Lagarfljótsbrú síð
an árið 1948, var 22,2 m y. s. um
miðjan nóvember 1968.
Gera má ráð fyrir að mögulegt
yrði að hefja framkvæmdir við ann
an áfanga á árunum 1974—1976, ef
tilskilin heimild fæst.
Verður þá virkjað afl um 10 000
hestöfl.
EFTA-FUNDURINN í REYKJAVÍK
Framhald af bls. 1.
framkvæmdastjóra EFTA um þró-
un mála innan bandalagsins frá
því síðasti ráðherrafundur var
haldinn.
Um hádegi kemur Rippon til
landsins, og kl. 15 hefst fundur
að nýju og verður þá rætt um
sameiningarmál Evrópu. Rippon
mun hefja þær umræður með
skýrslu um gang viðræðnanna í
SB—Akureyri, miðvikudag.
Leikfélag Akureyrar frumsýnir
Túskildingsóperuna eftir Bertold
Brecht nú á laugardagskvöldið.
Raunar er þetta ekki ópera held
ur leikrit með söngvum, skemmti
leikur um alvarlegt efni. Túskild
ingsóperan var frumsýnd fyrst ár-
ið 1928, og sló þegar í gegn, en
hún er byggð á Betlaraóperunni
eftir John Gay. Verkið gerist í
Hvað étur
heiðagæsin?
Gerður hefur verið samningur
milli Orkustofnunar og Náttúrufræði-
stofnunar íslands um rannsóknir í
Þjórsárvcrum í sumar Eins og kunn-
ngt er, þá á heiðagæsin griðlönd sín
í Þjórsárvejaim, og er samntngur
þessi vottur um, að ekiki sé talið fært
að sökkva heimkynnum gæsarinnar
undir vatn, nema gera einhverjar
rannsóknir áður á aðstæðum, eins
og gróðri og veðri. Einnig er vitað,
að verði Þjórsárverum sökikt, þá eru
litlar líkur á þvl að heiðagæsin verði
hagvön annars staðar á hálendinu,
slíku ástfóstri virðist þessi fugl taka
við varpstöðvar sínar. Mörgum finnst
erfitt að sætta sig við heiðagæs-
•n lendi í hrakningum á íslandi, og
eiga þar margir voldugir og viður-
kenndir erlendir aðilar sama mál.
Yfirleitt er ekki mikið hlustað á inn-
lenda aðila, þótt þeir séu að kvaka
um náttúruvemd, eða verðmæti sem
fari í súginn við virkjanir. Nú, þegar
forsætisráðuneytið boðar rannsóknir
í Þjórsárverum, mun það að líkind-
um vera frekar vegna þess að menn
Brussel. Verða umræður um þetta
efni allan eftirmiðdaginn, en um
kvöldið býður svissneska sendi-
nefndin til veizlu að Hótel Sögu.
Á föstudagsmorguninn verður
m.a. flutt og rædd skýrsla Brugg-
ers um störf ráðgjafanefndar
EFTA, sem sat hér á fundi á
mánudaginn og verður þar m.a.
fjallað um kvörtun Breta vegna
verðlags á innfluttri pappírskvoðu
Lundúnum, og er ekki tímabund
ið.
Æfingar hafa staðið yfir á Tú-
skildingsóperunni á Akureyri síð
an um miðjan marz með nokkr
um hléum að vísu. Verkið er nokk
uð viðamikið, og 25 manns koma/
fram í sýningunni, sem tekur
þrjár klukkustundir. Með helztu
hlutverk fara Sigmundur Örn Arn
grímsson, Arnar Jónsson, Þór-
Framhald á bls. 14.
eins og Peter Scott hafa beðið gæs-
inni griða, en að beiðni og ábending-
frá Norðurlöndum og svör Norð
urlanda í því máli. Einnig verður
skipuð vinnunefnd til að gera drög
að yfirlýsingu fundarins, sem síð
an verður rædd og afgreidd. Yfir
lýsngin verður gerð opinber á
sérstökum blaðamannafundi síð
degis á föstudag, sem Brugger
mun stjórna.
Ráðherrarnir halda flestir ut-
an að fundi loknum eða um helg-
ina.
-----V--------------------------
Auglýst eftir...
Framhald af bls.'l.'111, ■'
sóknir á vatnasvæði Laxár, sem
stofnað hefur verið til, leiði
ekki í Ijós, að lífsskilyrði vatna-
fiska í ánni neðan virkjunar,
spillist,
að rekstri virkjananna í Laxá
verði hagað þannig, að þær
hafi sem minnst truflandi áhrif
á laxveiðar í ánni neðan þeirra.
að stjórn Laxárvirkjunar styðji
fiskiræktaráform í Laxá í sam-
vinnu við stjóm veiðifélags
Laxár og í samráði við veiði-
málastjóra".
Virkjun Lagarfoss
Varðandj virkjun Lagarfoss,
skulu athugasemdir við þá virkjun
vera komnar fram fyrir 1. júnf
1971, en ráðgert er að hefja fram-
kvæmdir við virkjunina á kom-
andi sumri.
í auglýsingunni í Lögbirtingi er
gerð svofelld grein fyrir Lagar-
fossvirkjun:
Fyrsti áfangi
Þriðji áfangi
Þriðja og síðasta stig virkjunar-
innar er fólgið í því, að stöðvarhús
verður stækkað og ný vélasam-
stæða sett upp án þess að til breyt-
| inga á vatnsborðshæð komi.
Verður þá fullt afl virkjunarinn-
ar um 20 000 hestöfl.
Enn er óráðið, hvenær ráðizt
verður í þennan áfanga.
Reykjavík, 7. maí 1971.
Iðnaðarráðuneytið."
Stungu af
Framhald af bls. 1.
formaður stjórnar útgerðarfélags
ins sér til sýslumanns á Patreks-
firði og bað um að skipinu yrði
snúið við og skipstjórinn hand-
tekinn. Réttarhöld hófust í gær-
kvöldi.
Sverrir Einarsson, sýlumaður,
Patreksfirði, yfirheyrði aðila í
dag og hefur nú sent saksóknara
ríkisins málið. Sverrir sagði Tím
anum eftirfarandi um töku skips
ins og þær ástæður sem skipstjór
inn bar að væra fyrir því að hann
hefði gripið til þessa úrræðis.
Fyrir dyrum stóðu skipstjóra-
skipti á skipinu. Fyrri skipstjóri
var að láta af störfum og fram
kvæmdastjóri útgerðarinnar var
búinn að ráða nýjan skipstjóra
sem var kominn á staðinn. Var nýi
skipstjórinn búinn að fá loforð
fyrir einhverri fyrirgreiðslu í
sambandi við að koma skipinu út
til veiða og í gær fanst honum
seint ganga að landa úr skipinu.
Vildi skipstjórinn fá úttekt hjá
útgerðinni bæði fyrir sjálfan sig
og áhöfnina. En hann fékk enga
matarúttekt í verzluninni sem
hafði séð skipinu fyrir nauðsynj
um. Vildi skipstjórinn halda því
fram að lítill matur hafi verið í
skipinu og útlitið yfirleitt óglæsi
legt með það að hægt væri að
koma skipinu á veiðar. Datt hon
um þá í hug að fara með það
til Reykjavíkur til að, eins og
hann orðaði það, að fá sjóveð í
því í Reykjavík, fyrir vangoldnum
launum áhafnarinnar. Hefur skip
stjórinn væntanlega verið fremur
að hugsa um aðra áhafnarmeðlimi
en sjálfan sig því hann átti ekkert
inni, þar sem hann var að taka
við stjórn skipsins.
Var ekki búið að skrá hann
sem skipstjóra á Pétur Thorsteins
son og það var ekki búið að
fela honum að fara með skipið,
hvorki í veiðiferð eða aðra ferð.
Var þetta því hans fyrsta ferð,
óskráður og i heimildarleysi út-
gerðarinnar.
Verið var að landa úr skipinu,
og var löndunin búin að standa
yfir síðan á mánudag. Var henni
ekki lokið þegar verkamenn fóru
í kaffi í gær. Þegar verkamennirn
ir fóru í miðdegiskaffi voru land
festar leystar og skipið hélt úr
höfn. Hinir skipverjarnir, sem
ar innlendra fuglafræðinga hafi ráðið
úrslitum. Kannsóknirnar i Þjórsár-
verum í sumar beinasit einnig að Því
að kanna hvað gæsimar éta. Og
þeirri könnun er þrátt fyrir allt
hrundið af stað löngu eftir að á-
horfendur voru farnir að trúa þvi
að stjórnvöldin ætluðu að segja
gæsinni að éta skít.
A sama tíma og forsætisráðuneytið
sýnir heiðagæsinni fyrrgreinda um-
hyggju, gefur iðnaðarráðuneytið út
fréttatilkynningu og auglýsingu í
Lögbirtingi, þar sem skýrt er frá þvi
að heimiit sé að hefja nýja virkjun í
Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu. 1 aug-
lýsingu um verkið em tekin fram
atriði, sem ebkert samkomulag náð-
ist um miili Laxárvirkjunar og land-
eigenda. Væntanlega liggur ekki fyr-
ir fyrr en i haust hvað heiðagæsin
étur, en það liggur nú ljóst fyrir, og
það án sérstakra rannsókna, hvað
stjórnarvöld eru að segja Þingey-
ingum að éta.
Svarthöfði.
Su virkjun, sem nú verður fram-
kvæmd, er fyrirhuguð sem rennslis-
virkjun, um 8000 hestöfl. Er gert
ráð fyrir að stífla Lagarfljót um
550 m ofan við LagarfosS með
grjót- og jarðefnastíflu. Jafnframt
verður klapparranj austan árinnar
milli stíflu og foss sprengdur nið-
ur á 130 m löngum kafla og verður
þar yfirfall fyrir framhjárennsli.
Meðfram klapparrana þessum
verður grafinn skurður, er veitir
vatni að inntaksvirki, sem verður
gegnt Lagarfossi að austanverðu,
50 m frá Fljótinu. Þaðan verður
vatnið leitt um stokk úr stein-
steypu að vélum stöðvarhússins, er
verður á austurbakka Fljótsins við
fossbrúnina. Frá stöðvarhúsi verð-
ur stuttur skurður út í fosshylinn.
Meðal vatnsborð í Steinsvaðsflóa
að sumri til er nú í um 18,5 m
hæð yfir sjávarmál, en eftir virkj-
unarframkvæmd fyrsta áfanga mun
það verða í um 19,6 m hæð y. s.
Nokkurra vatnsborðshækkunar
mun gæta í Vífilsstaðaflóa og Leg-
TÚSKILDINGSÚPERAN FRUM-
SÝND NYRÐRA Á LAUGARDAG
fóru með lýstu því yfir í réttar
höldunum, að þeir hefðu staðið í
þeirri trú að á skipinu væri lög
legur skipstjóri, og ekki vitað um
að hann væri ekki skráður, en
hins vegar hafa þeir kannski rennt
grun í að þessi ferð væri ekki
fyrirhuguð af útgerðarinnar hálfu.
Töldu þeir sig bara eiga að hlýða
skipstjóranum, sem væri löglegur
yfirmaður. Höfðu þeir ekkert á
móti því að fara suður í þessum
tilgangi nema síður væri, því
að ýmsir þeirra áttu laun inni hjá
útgerðinni.
Skipverjar munu eiga misjafn
lega mikið inni hjá útgerðinni,
allt frá hálfs mánaðar kaupi upp
í 80 þúsund kr. Þeir höfðu flestir
eða allir reynt að fá einhverja
fyrirgreiðslu eftir að þeir komu
í höfn á Bíldudal á sunnudags-
kvöld en ekkert fengið, og voru
peningalausir og höfðu ekki farar
eyri þótt þeir vildu komast burt
frá Bíldudal. Fóru þeir því á
brott á skipinu. Svo virðist að skip
stjórinn hafi átt að öllu leyti frum
kvæðið að þessari för.
Einhvern pata höfðu skipverjar
af að framkvæmdastjóri útgerðar
félagsins væri farinn alfarinn frá
Bíldudal, vegna ósamkomulags við
stjóm útgerðarfélagsins. Alla vega
er það staðreynd að framkvæmda
stjórinn var farinn og ekki náðist
til hans.
Klukkan að ganga sex, eða
rúmum klukkutíma eftir að Pétur
Thorsteinsson hélt úr höfn, var
sýslumanninum á Patreksfirði til-
kynnt um brottför skipsins. Sendi
hann þá Landhelgisgæzlunni
beiðni um að handtaka skipstjór
ann og koma með skipið til baka.
Var síðan komið með skipið til
Bíldudals kl. 7,45 í gærkvöldi. Þá
var sýslumaður byrjaður að taka
skýrslu af stjórnarformanninum.
Klukkan átta kora kærðj fyrir og
síðan öll áhöfnin og yfirmaður
varðskipsins, sem kom með skipið
til Bíldudals. Má segja að búið
sé að rannsaka þennan hluta máls
ins og er ekki annað eftir en að
taka afrit af málskjölum og senda
saksóknara.
Varðskip var ekki langt undan
þegar beiðnin um handtöbu skip
stjórans barst. Var þegar haft sam
band við Pétur Thorsteinsson, og
skipstjóranum skipað að snúa við.
Skipin biðu um stund þangað til
komin var handtökuskipun á
skipstjórann, eða þann sem hélt
sig vera skipstjóra, og skeyti um
að skipið skyldi halda til hafnar.
Skipstjórinn lýsti því yfir í
réttarhöldunum að hann teldi Sig
hafa fulla heimild til að fara
þessa ferð. Alls voru átta manns
um borð í skipinu þegar það fór.
Enginn þeirra býr á Bíldudal, en
nokkrir skipverjar urðu eftir, en
þeir áttu heima á Bíldudal.
Þeir skipverjar sem út fóru,
komu til Reykjavíkur seinni part
inn í dag með áætlunarflugvél.
Skipstjórinn hélt því fram að
skipið hafi verið svo til matar-
laust, en kokkurinn bar að næg
matvæli hafi verið um borð nema
ekkert kjöt og engin mjólk.
Skipstjórinn bar að hann hafi
verið ráðinn á skipið þótt ekki
væri búið að skrá hann, og hefði
því leyfi til að fara með skipið að
vild. Sagði hanu, að hann hafi
verið búinn að fá loforð fyrir út-
tekt til að útbúa skipið til veiða.
Fannst honum seint ganga, bæði
að útbúa skipið að veiðarfærum
eins og hann vildi og greiða skips-
höfninni laun.
Illt mun vera að sjá hvaða er-
indi skipið átti til Reykjavíkur til
að láta taka sjóveð þar. Hefði
ekkert þurft að sigla skipinu til
að koma þessum aðgerðum við.
Kom fram að skipstjórinn taldi
að betra væri að fá lögfræðilega
aðstoð við aðgerðirnar í Reykja
vík en fyrir vestan, eða það er sú
skýring, sem hann gaf á þessu
tiltæki.
Skipstjóri sá, sem hér um ræðir
er frá Vestmannaeyjum. Er hann
29 ára að aldri.