Tíminn - 13.05.1971, Page 12
12____________________
24 sinnum
rangstæðir!
f leiknum var íslenzka liöið
24 sinnum dæmt rangstætt
— en franska liöiS 5 sinnum.
Frakkarnir fengu 8 hornspyrn-
ur gegn 2, sem íslenzka liðið
fékk, og 26 sinnum var dæmd
aukaspyrna á íslenzku lcik-
mcnnina fyrir brot, en 12 sinn-
um á l>á frönsku.
Franska liðið átti 19 skot
á mark íslands, þar af varði
Þorbergur 9 þeirra, og 1 var
í stöng. íslcnzka liðið átti aftur
á móti ckki nema 5 skot cða
skalla á mark Frakklands. Þess
ar tölur segja að vísu ckki
mikið um gang leiksins, cn
nokkuð má þó á þeim sjá
hvernig hann var. — klp.
Ágætt 400m.
hf. í gærkvöldi
Ágætt 400 ni, hlaup fór fram í
leikhléi landsleiksins í gærkvöldi.
Sigurður Jónsson, HSK sigraði með
nokkrum yfirburðum á ágætum
tíma svo snemma sumars, 51,3 sek.
Hans bezti tími er 50,6 sek. Annar
varð hinn bráðefnilegi KR-ingur,
Vilmundur Vilhjálmsson, hann náðj
sínum bezta tíma 52,1 sek., Halldór
Guðbjörnsson, KR hljóp á 53 sek.,
Trausti Sveinbjörnsson, UBK, 53,5
sek. Borgþór Magnússon, KR 53,6
sek. og Ágúst Ásgeirsson, ÍR 53,7
sek. hans langbezti tími. . •
í kvöld fer fram annað fimmtu-
dagsmót FÍRR á Melavellinum. Kl.
19 hefst keppni í 100 m. hlaupi
karla og kvenna, hástökki karla og
kúluvarpi karla. Kl- 19,20 verður
keppt í 80(} m. hlaupi karla, há-
stökki kvenna, og spjótkasti karla.
England
sigraði
Möltu 5:0
Celtic bikarmeistari
í gærkvöldi fór fram á Wembley
leikvanginum í London knatt-
spyrnuleikur milli Englands og
Möltu og sigruðu Englendingar
með 5—0. Mörkin skoruðu Martin
Chivers 2 og Lee, Clarke og Lowl-
er eitt hver. Áhorfendur voru 41
þúsund. Þá fór fram í kvöld úrslita
leikur í skozku bikarkeppninni á
milli Celtic og Rangers og sigruðu
Celtic með 2—1, og er það í 21.
skipti sem liðið sigrar í keppninni.
—kb—
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞROTTiR
FIMMTUDAGUR 13. maí 1971
Sagt eftir leikinn:
„Með svipuðum feik og þessum
tapar ísland
.. - ■ ' 1.
fyrir Noregi“
Eftir leikinn í gær brugðum við okkur niður i bún-
ingsklefa til leikmannana og ræddum þar við dómara
leiksins, fyrirliða liðanna og formenn knattspyrnusam-
bandanna á íslandi og í Frakklandi.
Þeir sögðu þetta um leikinn:
Verhove, fyrirliðj franska
liðsins:
„Ég bjóst ekkj við íslenzka
liðinu svona sterku. Þetta er
minn 3ji leikur gegn íslandi, og
liðið tekur miklum framförum
með hverjum leik. Við cru ó-
vanir að leika á svona þungum
velli, en ég vona að áhorfendur
hafi samt ekki orðið fyrir von-
|v.... -ww •
*\
'■ ’ ■ ■ ■ ■ ■ ■■■ • .........
Verhoeve,
fyrirliði Frakklands
brigðum með leik okkar. Mark-
vörðurinn var bezti leikmaður
íslenzka liðsins — hann á víst
alltaf stórleik þegar hann mæt-
ir okkur, því hann var líka frá-
bær í fyrra. Ingi Björn Alberts-
son, er hættulegur og hefur
mikinn fótbolta í sér, og það
var erfitt að gæta hans. í síðarj
leiknum leikum við ekki á svona
þungum velli, og þar höfum við
fölkið með okkur — það ræður
baggamuninum í þcim leik.“
Albert Guömundsson,
forniaður KSÍ:
Þetta var harður og góður
leikur, en völlurinn var erfið-
ur fyrir okkar ungu nýliða.
Þeir Jóhanes og Matthías voru
teknir útaf, þar sem þeir voru
orðnir þreyttir, en það mæddi
mikið, á þeim meðan þeir voru
inná, og skórnir meiddu þá.
Guðgeir kom vel frá leiknum,
og ég tel hann eiU mesta efni,
sem við eigum. En allir stóðu
sig vel í þessum leik“.
Tcllcz, formaður franska
knattspyrnusambandsins:
„Þetta var ágætur leikur.
Bæði liðin börðust og léku vel,
þó í mismunandi stíl. Völlur-
inn var erfiður fyrir okkur, en
íslenzku leikmönnunum tókst
betur að fóta sig á honum. Ég
er ánægður með jafnteflið, en
í síðari leiknum verðum við
sigurvegarar".
Jóhannes Atlason, fyrirliði
landsliðsins:
„Völlurinn var óhemju erfið
ur fyrir okkur, og erfitt viö
Frakkana að eiga á iionum,
því þeir voru það fljótir og
fóru létt með boltann. Þetta
' íii. §
Kaarc Sirevaag, dóniari:
„Það var um ekkert annað að
gera þegar ég dæmdi markið af
islandi — miðherjj íslenzka liðs
ins hélt franska miðframverðin-
um frá sér með olmboganum
alveg frá því að hornið var tek-
ið, og hljóp alltaf mcð honum,
þannig að hann komst ekki að.
Ég var við hliðina á þeim, og
þetta fór ekki á milli mála.
Leikurinn fannst mér lélegur,
en rólegur fyrir mig að dæma,
því það var ekkert ,,tempó“ í
honum. islenzka liðið lék engan
sóknarleik, og mgð svipuðum
leik og þessum gegn Noregi
eftir 14 daga tapar ísland stórt.
J?að sem skeði eftir leikinn, er
eítí í>að versfa, sern ég hef orð-
i. ið,fyxir..Éarfékk,.y,fir mig sand-
poka og grjót, og var hrint í
allar áttir, og sama var um fé-
laga mína að segja. Við áttum
sízt von á þessu hér á íslandi.“
—klp—
Kaare Sirevaag,
dómari leiksins
Ifigi Björn Albertsson, í skallaeinvígi vi8 franskan varnarmann.
(Tímamynd Róbert)
Albert Guðmundsson,
formaður KSÍ
Jóhannes Atlason,
fyririiði íslands
hefur trúlega ekki vcrið
skemmtilegur leikur að horfa
á — en það er ekki spurt að
því, og við erum ekki búnir
að gefa upp vonina um að
sigra þá úti.
Sumir okkar voru hreinlega
búnir í síðari hálfleik, enda
rétt að byrja keppnistímabilið,
en þeir em að enda sitt. Um
aðra leikaðfex-ð var ekki að
ræða, það sá maður þegar leið
á leikinn og við fórum að fara
frarnar — þá opnaðist vörnin
meir hjá okkur. Mér fannst
Þoi-bergur standa sig bezt og
einnig þcir Guðni ög Einar,
og Þröstur átti að mínu viti
góðan leik í þessum fyrsta
landsleik sínum“.