Tíminn - 14.05.1971, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 14. maf 1971
GALLABUXUR
13 oz. no. 4—6 lcr. 220,-
— 8—10 kr. 230-,
— 12—14 kr. 240,-
Fullorðinsstærðir kr. 350,-
Sendum gegn póstkröfu.
Litii Skógur
Snorrabraut 22.
Sími 25644
SVEIT
Mjög duglegur 13 ára
drengur vill komast í sveit
í sumar. Upplýsingar í
síma 23479.
BÆNDUR
Rösk 15 ára stúlka óskar
eftir að komast á gott
sveitaheimili í sumar. Er
vön. Upplýsingar í síma
50589. .
BÆNDUR
Glaðlyndan 10 ára strák
langar að komast á gott
sveitaheimili hvar sem er
á landinu. Meðgjöf.
Ingibjörg Yr. Pálmadóttir,
BarmahlíS 32, R., S. 25743
Tveir drengir, 13—14 ára,
óska eftir að komast í sveit
í sumar. Erum vanir. Þarf
ekki að vera á sama stað.
Upplýsingar í síma 30103.
Sveitavinna
Tvær 16 ára stúlkur vanar
sveitastörfum, óska eftir að
komast á góð sveitaheimili
í sumar, helzt í sömu sveit.
Upplýsingar í síma 36133
og 83593.
JÓN E. RAGNARSSON
LÖGMAÐUR
Lögmannsskrifstofa,
Laugavegi 3. Sími 17200,
Á víðavangi
Framhald af bls. 3.
4000 tonna skip og þegar þau
birtast er vissara fyrir íslenzku
togbátana aS foröa sér“.
Það má minna á í þessu sam
bandi, að utanríkisráðherra Al-
þýðuflokksins sagði það lygi í
útvarpsumræðunum um land-
helgismálið að ágangur er-
lendra togara hér við land
færi nokkuð vaxandi.
Stjórnarflokkamir finna að
frestunarstefna þeirra í land-
lielgismálinu á ekki hljóm-
grunn meðal fólksins í land-
inu. Þess vegna hafa þeir lagt
á það vaxandi áherzlu upp á
síðkastið að þeir muni færa
út fyrir hafréttarráðstefnuna,
ef ágangur erlendra togara
verði of mikill. Spurningin er
bara, hve mikið telja þeir að
ágangur erlendra togara megi
vaxa? Ætli það verði
ckki dálítið teygjanlegt hjá
þeim eins og reynslan er af
ýmsum kosningaloforðum
þeirra. Hver vill treysta nú-
verandi ráðherram til útfærslu
í 50 mílur á næsta ári, þótt
ágangur erlendra togara liér
við land margfaldist? Sá, sem
það gerir byggir ekki á reynslu
þjóðarinnar af orðiieldni eða
framgangi núverandi stjórnar-
flokka í landhelgismálum.
— TK
HÖFUM FYRIR-
LIGGJANDI
HJÓLTJAKKA
G. HINRIKSSON
Skúlagötu 32
SÍMI 24033
BARNALEIKTÆKI
★
ÍÞRÓTTATÆKI
Vélaverkstæði
BERNHARÐS HANNESS.,
Suðurlandsbraut 12.
Sími 35810.
TÍMINN
Staribaclier, Austurríki
Pintado, Portúgal
Hilbe, Liechtenstein
BRETAR GANGA I EBE
Framhald af bls. 1.
vörur, og hagsmuni ýmissa sam
veldislanda, annarra en Nýja
Sjálands. Rippon sagði, að þau
tvö meginatriði sem eftir væri
að semja um, væri staða Nýja
Sjálands og hlutur Breta í fjár-
mögnun Efnahagsbandalagsins.
Rippon fjallaði einnig um
Ferðamálafélag
Framhald af bls. 2.
sóknastöð £ Mývatnssveit, gera
fuglaveiðisamþykkt, smbr. heim
ild í fuglafriðunarlögum og að eft
irlitsmaður verði ráðinn á kostn
að hins opinbera, til að annast
eyðingu minks í sveitinni, sem
jafnframt sinni öðru nauðsynlegu
eftirliti.
10. Brýna nauðsyn ber til, að
gert verði lieildarskipulag byggð
ar í Mývatnssveit, m. a. með hlið
sjón af varðveizlu náttúruauðlinda
sveitarinnar.
Að lokum er þess að geta, að
í lok ráðstefnunnar kom fram
áhugi á því að sem fyrst yrði efnt
til helgarráðstefnu um ferðamál
Norðurlands, og m. a. ræddur sá
möguleiki, að aðilar að þeirri ráð
stefnu yrðu m. a. nýtt ferðamála
félag Þingeyinga, svo og ferða
málafélag Akureyrar. Gerði Heim
ir Hanneson þetta að tillögu sinni,
og lýsti Ingi Tryggvason því yfir,
að Kjördæmissambandið hefði full
an hug á því að eiga aðild að slíkri
ráðstefnu, t. d. síðar í sumar eða
haust, þegar þetta hefði verið at-
hugað nánar.
FATAMARKAÐUR
VERKSMIÐJUVERÐ
Höfun- opnað fatamarkað
að Grettisgötu 8, gengið
upp í sundið. — Póstsend-
um. —
Fatamarkaðurinn
Sími 17220.
Útvegum við stuttum fyrir-
vara ýmsar gerðir af
LOFTPRESSUM
G. HINRIKSSON '
Skúlagötu 32
SÍMI 24033
fund Heaths forsætisráðherra
og Pompidou Frakklandsfor-
seta í næstu viku í París ,og
taldi að þar yrði einkum rætt
um stöðu Evrópu í heiminum
eftir stækkun bandalagsins.
Rippon lagði í lokin áherzlu á
áframhaldandi samstarf við
önnur EFTA-ríki.
Umræður um niðurstöður af
Briisselfundinum stóðu í um
tvo tíma. Danski ráðherrann
Nyboe Andersen taldi niðurstöð
una í Briissel varðandi land-
búnaðarstefnuna og iðnaðarvör-
ur nokkuð -viðunandi fyrir
Danmörku, sem einnig hefur
sótt um aðild að bandalaginu.
Norski ráðherrann Kleppe
óskaði Rippon til hamingju
með árangurinn, en benti á að
Norðmenn ættu enn eftir að
ná samkomulagi um sum sín
þýðingarmestu atriði varðandi
inngöngu Noregs í Efnahags
bandalagið.
Ráðstefnuaðstaðan á
Loftleiðum.
EFTA ráðherrafundurinn er
með meiriháttar fundum, sem
haldriir hafa verið á íslandi,
og voriandi öiga fleiri slíkir
eftir að fylgja í kjölfarið. All-
ir, sem taka þátt í ráðstefn
unni búa á Hótel Loftleiðum,
auk nokkurra blaðamanna, sem
líka eru á öðrum hótelum í
Reykjavík. Þrjár hæðir í nýju
hótelálmunni eru undirlagðar
fyrir skrifstofur, fundarstaði og
aðstöðii fyrir blaðamenn. Á
jarðhæðinni er aðalráðstefnu-
salurinn. í honum miðjum er
borðahringur þakinn grænum
dúk, og það er við. þessi borð,
sem ákvarðanir fundarins ei’u
teknar. í loftinu eru kristal-
Ijósakrónur, en dökkir veggir
og rautt gólfteppi, gera salinn
vistlegann. í einu horni salar
ins hafa túlkar aðsetur sitt, en
aðalmálið á ráðstefnunni er
enska, en auk þess er notuð
þýzka og franska. Heyrnartæki
eru við hvern stól í salnum, svo
fulltrúar geta valið á milli
þriggja tungumála.
Á ganginum fyrir framan
ráðstefnusalinn, standa lögreglu
þjónar vörð, og fær enginn,
nema sá sem er með sérstök
skilríki, að fara' inn á þennan
gang. Austast í nýju álmunni,
er svo aðstaða fyrir blaðamenn,
bæði á jarðhæð og í kjallara.
Á jarðhæðinni er fundarsalur,
með litlu sviði og þægilegum
í’áðstefnustólum. Á þessu sviði
gaf Rippon blaðamönnum
skýrslu um síðustu atburði í
Briissel í morgun. í þessum sal
fá blaðamenn upplýsingar um
gang mála á ráðstefnunni, og
hefur verið haldinn blaðamanna
fundur í hvei-ju fundarhléi, auk
þess sem upplýsingar voru gefn
ar þax-na íyrir fundinn.
í kjallaranum er svo vinnu
aðstaða fyrir blaðamenn. í
stórri kennslustofu, hefur ver
ið komið fyi’ir borðum og stól
um, og þai-na hefur verið safn
að saman skólaritvélum úr
Reykjavík til afnota fyrir blaða
mennina. Innan við kenslustof
una er svo póstur og sími meS
símaþjónustu til útlanda og
svo telextæki, sem hafa verið
óspart notuð til að fræða um-
heiminn um, hvað sé að gerast
hér á EFTA-fundinum í Reykja
vík. Þá er þarna í kjallaranum
líka sjónvai>psupptökuherbergi
og útvarpsupptökuherbergi.
Búizt hafði verið við upp
undir hundrað blaðamönnum,
en fæi’ri komu. Þeir hafa reynd
ar verið að tínast að í dag, og
um kl. 5 í dag komu t. d.
tveir — beint frá Briissel, og
þóttust heldur heppnir, að ekki
var búið að halda blaðamanna
fund eftir skýrslu Rippons.
f kvöld hélt svissneska sendi
nefndin hjá EFTA veizlu fyrir
fulltrúa á EFTA-fundinum og
ýmsa aðra gesti, innlenda og
erlenda, á Hótel Sögu. Hófst
veizlan kl. 20.
Gult Ijós
Framhald af bls. 1.
að takast mætti að ganga frá
þeim vandamálum, sem óleyst
væru, fyrri hluta sumars. Með
al þeirra mála, sem enn væri
eftir. að leysa, nefndi hann þá
upphæð, sem Bretland ætti að
gi’eiða í sameiginlegan sjóð
EBE, nauðsynlegar ráðstafanir
til að tryggja hagsmuni Nýja
Sjálands varðandi útflutning
þeii’ra á landbnnaðarvöi’um, að-
allcga þó mjólkurvörum, og
fiskimálastefnuna.
Klukkan þrjú í dag hófst síð
an fundur ráðheri’anefndax’inn-
ar að nýju og var Rippon fyrst
ur á mælendaskrá. Hann rakti
gagn viðræðufundanna í Briiss-
el síðustu daga, en síðan fóru
fram umræður um málið og
stækkun EBE og stóðu þær í
um tvær klukkustundir.
Veiðar og EBE
Framhald af bls. 1.
Gylfi, hafa Islendingar stungið
upp á því við Efnahagsbandalagið,
að við það verði gerður
sams konar samningur og
við gerðum við inngönguna
í EFTA, en þó með þeirri viðbót
að við höfum óskað eftir frjálsum
innflutningi á öllum fiskafurðum
til hins stækkaða Efnahagsbanda-
lags, en ekki aðeins á þeim, sem
við höfum nú frjálsan innflutning
á til EFTA landanna.
I sambandi við fiskimálastefnu
Efnahagsbandalagsins, sagðj Gylfi,
er í’étt að taka það fram, að ég
lét þess skýrt og afdráttarlaust get-
ið í ræðu minni á fundinum síðdeg-
is í dag, að islendingar litu á það
sem tvo algjörlega óskylda hluti að
semja um frjálsa verzlun með fisk
og sjávarafurði og hitt, hvern rétt
þjóðir skyldu hafa til þess að
veiða innan fiskveiðilögsögu hverr-
ar annarar. I þessu felst auðvitað
skýlaus yfirlýsing um það að samn-
ingur íslands við hið stækkaða
Efnahagsbandalag geti aldrei haft
í för með sér nein réttindi nokk-
urarr annarar þjóðar innan íslenzkr
ar fiskVwLLL'gsógu.