Tíminn - 22.05.1971, Síða 10
LAUGARDAGUR 22. maí 1971
TÍMINN
ROBERT MARTIN:
BYSSA TIL L2IGU
39
Hún var svo fögur og þó jafn-
framt svo afskræmd —.
Hann ók hein til Allgoods.
Jenny hin hörundadökka lauk
upp og yfirlýsti, að hvorugt hjón-
anna væri heima, eins og sakir
stæðu. Síðan sótti hann ferðatösk-
una, gaf Jenny svolítið þjórfé, ók
með töskuna út til gistiheimilis-
ins og fékk sér hressingu um leið,
en fór að því búnu beint til golf-
klúbbsins. Klukkuna vantaði stund-
arfjórðung í eitt, er hann lagði
bílnum á yfirfullu stæðinu.
Fyrsta mannveran, sem Jim
kom auga á, var Peggy Roark, og
var hún einmitt rétt nýstiginn út
úr hinum litla vagni sínum, sem
var fremur illa farinn.
— Æ, — en hvað ég er
hrædd, sagði hún, þegar hann kom
til móts við hana. Hann klappaði
henni á öxlina.
— Ekkert annað en horfa beint
ofan á jörðina og sveifla kylfunni
frjálst og létt.
Hún leit á hann, og henni vökn-
aði næstum um augu.
— Þakka yður fyrir, herra
Bennett, sagði hún. — Þetta sagði
Red einnig alltaf við mig.
Svo hraðaði hún sér til búnings-
klefans. Jim fór inn i veitingasal-
inn og kom auga á þá Sam All-
good og Jeff Winters, sem sátu
saman við borð ásamt nokkrum
fleiri mönnum. Allir voru þeir í
óða önn að hamast við að tæma
viskíflösku. Allgood lét sem hann
sæi ekki Jim, en Winters veifaði
til hans og kynnti hann fyrir borð
naut sinum.
Rogan, þjónninn í hvíta jakk-
anum, kom inn með ís í skál.
Jeff veitti því eftirtekt, að neðri
för hans var dálítið bólgin, og fór
Jeff Winters að stríða honum með
því.
— Af hverju kom nú þetta, A!?
Fórstu að hlaupa á hurð í rökkr-
inu, eða hvað?
— Já, herra, muldraði Rogan,
án þess að honum stykki bros, og
hraðaði sér út. Hann leit alls
ekki á Jim.
— Þér eruð maður dagsins hér
í bænum, sagði Winters og sneri
sér að Jim, — ég á við, eftir það,
sem gerðist í nótt. Hugsið yður.
Sam sagði mér al!s ekki frá því,
að þér væruð uppljóstrari.
— Það er nú reyndar eitt af
meginskilyrðunum fyrir því, að
manni verði eitthvað ágengt, að
sem allra fæstir viti nokkuð um
það, svaraði Jim.
Einn af þeim, sem sátu við
borðið, leit á úrið sitt og lét svo
ummælt, að keppnin færi nú rétt
að hefjast.
— Mér segir svo hugur um, að
Peggy litla Roark muni vinna. Ég
held, að mér sé óhætt að fara upp
í hundraðið. Hvernig leggst þetta
annars í þig?
Allgood hló góðlátlega.
— Þú ert þá ekki á þeirri skoð-
un, að sú kona, sem ég ann, geti
farið með sigur af hólmi? Allt í
bezta lagi — en ættum við ekki
að segja fimm hundruð?
Veðmálið var fastmælum bund-
ið, og voru hinir vottar að því.
Þeir stóðu nú allir á fætur
og gengu út á völlinn. Jim sá,
hvar Hector Griffith stóð aftan til
meðal áhorfenda og lét lítið á sér
bera. Katherine Allgood labbaði í
rólegheitum yfir völlinn, og fylgdi
henni kylfingur nokkur, sem rog-
aðist með níðþunga tösku, fulla
af dýrmætum kylfum. Það virtist
liggja mjög vel á henni, og
hún ræddi hlæjandi við hinar fjöl
mörgu vinkonur sínar, sem þarna
voru saman komnar. Peggy Roark
stóð þar skammt frá og mýkti sig
upp með því að sveifla kylfu upp
og niður.
Rykugan station-bíl bar að rétt
í þessu og nam hann staðar beint
fram undan klúbbhúsinu. Jim tók
eftir, að skrásetningarmerkin voru
frá Cleveland, og hann gekk að
bílnum. Skip Gordon sté út,
og þéir tókust í hendur. Skip var
lágvaxinn, Ijóshærður og allmjög
freknóttur, nefstuttur og gekk
með stór hornspangagleraugu.
— Nú eru þær alveg að byrja,
sagði Jim.
— Hvar eru ölföngin, sem þú
varst búinn að lofa mér? spurði
Skip.
— Við hugsum um þau seinna.
Við verðum að fylgjast með leikn
um frá byrjun.
Blaðamaðurinn litli skálmaði á
eftir Jim og barmaði sér hástöf-
um yfir því, að hann skyldi ekki
éinu sinni gefa fengið sér eitthvað
að drekka eftir svona langa öku-
ferð, en Jim hastaði á hann.
Þeir fundu sér stað, sem gaf all-
góða sýn yfir völlinn, þannig, að
þeir sáu nokkurn veginn uppl'.af
leiksins. Jim varð hugsað til þess,
sem Peggy Roark hafði sagt hon-
um, daginn sem þau hittust í
fyrsta sinn: — Ég get ekki ein-
beitt mér, þegar ég hugsa um
Red. Hann var svo indæll faðir.
Jim vissi, að Katherine Allgood
mundi hagnýta sér þetta. Ilún
vissi, fyrir hverju Peggy var við-
kvæmust, og nú gat ekkert komið
í veg fyrir, að hún notfærði sér
það út í æsar.
Þegar keppendurnir höfðu náð
fram að sautjándu holu, kom það.
Katherine Allgood hallaði sér yfir
að Peggy og sagði með engil-
hreinni rödd-.
— Nú finn ég ekki lengur til
óstyrks, vinan. Það var við sautj-
ándu holuna, sem faðir þinn
beið ósigurinn í síðustu keppn-
Inni, er hann tók þátt í. Og hvað
sem föðurinn hendir, þá fer dótt-
irin líkt að — það veiztu sjálf
vel.
Peggy Roark varð líkföl í fram-
an, og augun fylltust af tárum.
Hún sneri sér reiðilega við og
var þess albúin að svara einhverj-
um köpuryrðum, en sá að sér og
stóð niðurlút nokkra stund. Jim
og Skip voru víst þeir einu, sem
heyrt höfðu orðaskiptin, og Skip
muldraði í barminn:
— Svei því öllu saman. Þessi
langa kvenvera er sérfræðingur í
að hitta undir beltisstað.
Katherine Allgood gekk rólega
þangað, sem kúlan lá og sendi
hana með öruggu tvö hundruð
metra höggi, beint fram á móts
við sautjándu holu. Um leið og
hún vék til hliðar, leit hún háðs-
lega á Peggy.
Höggið, sem Peggy reyndi að
framkvæma, tókst svo illa, að telja
mátti hana aumkunarverða fyrir
vikið. Henni mistókst gersamlega,
og kúlan rann stuttan spöl, ef til
vill ekki mikið yfir fimmtíu metra,
yfir skrúðgrænan völlinn. Næsta
högg var betra, en í því þriðja
lenti kúlan út af reininni. Kathe-
rine Allgood vann holuna á færri
höggum og var nú einni holu á
undan í keppninni.
Við átjándu holu hafði Peggy
tekizt áð yfirvinna óstyrk sinn,
en það var of seint. Þær stóðu
jafnt að vigi um þessa holu, en
Katherine Allgood hafði unnið
leikinn. Ennþá einu sinni hafði
hin vinsæla frú Allgood unnið
meistaratitilinn í kvennakeppni
Wheatville-golfklúbbsins. Sigri
hrósandi brunaði hún á móti áhorf
endum, sem komu í röðum til
að samfagna henni, en Peggy Ro-
ark hvarf í mannþyrpinguna, áður
en Jim fengi náð tali af henni,
eins og hann hafði hugsað sér.
er laugardagurinn
22. maí
Árdcgisháflæði í Rvík kl. 04.18
Tungl í hásuðri kl. 11.26
HEILSUGÆZLA
Slysavarðstofan 1 Borgarspítalan
nm er opin aiian sólarhringinn
Simi 81212.
SleJdrviliðið og sjúkrabifreiðir fyr
Ir Reykjavík og Kópavog simi
11100.
Sjúkrabifreið 1 Bafnarfirði siml
51336.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu í borginni eru gefnar 1
símsvara Læknafélags Reykjavík
ur, siml 18888.
Tannlæknavakt er 1 Heilsuverndar
stöðinnl, þar sem Siysavarðsioi
an vai, og er opin laugardaga or
sunnudaga kl. 5—6 e. b. — Sinr
22411
Fæðingarheimilið i Kópavogi.
EDiðarvegi 40. slm) 42644.
Kópavogs Apótek er opið virka
daga fcl. &—19, laugardaga k 9
—14, helgidaga kt 13—15.
Keflavikur Apótek er opið rirka
daga kL 9—19, laugardaga ki
9—14, helgidaga kl 13—1».
Apótek Bafnarfjarðar er opið all»
rirka dag frá fcl 9—7. a laugar
dögum kL 9—2 og a tunnudög-
nm Og öðrum helgidögum er op-
ið frá kL 2—4
Mænnsóttarbólnsetnins fvrit fuii
orðna fer íram i Heilsuverndar
stöð Reykjavíkur’ á má'nudögum
kl 17—18 Héhgið iíán frá Bar
ónsstig. yfir brúna
Kvöld- og helgarvörzlu apóteka i
Reykjavík, vikuna 22. til 28. maí,
annast Reykjavíkur Apótek og
Borgar Apótek.
Næturvörzlu í Keflavík 22. og 23.
maí annast Jón K. Jóhannsson.
Næturvörzlu í Keflavík 24. maí ann
ast Kjartan Ólafsson.
KIRKJAN
Laugarneskirkja.
Messa kl. 2. Sr. Garðar Svavarssón.
Kópavogskirkja.
Barnasamkoma kl. 10,30. Guðsþjón
usta kl. 2. Sr. Gunnar Árnason.
Dómkirkjan.
Messa kl. 11. Sr. Jón Auðuns.
Hallgrímskirkja.
Messa kl. 11. Ræðuefni: „Allir eitt".
(Kaffisala Kvenfélags Hallgríms-
kirkju er kl. 3 í Safnaðarheimil-
inu.) Dr. Jakob Jónsson.
Háteigskirkja.
Messa kl. 2. Sr. Arngrímur Jóns-
son.
Neskirkja.
Messa kl. 11. Sr. Jón Thorarensen.
Guðsþjónusta kl. 2. Sr. Frank M.
Halidórsson.
Langholtsprestakall.
Guðsþjónusta kl. 2. Sr. Árelíus Ní-
elsson.
Árbæjarprestakall.
Barnaguðsþjónusta í Árbæjar-
skóla kl. 11 árdegis. Sr. Guðmund-
ur Þorsteinsson.
Bústaðaprestakall.
Kirkjudagurinn 1971: Barnasam-
koma í Réttarholtsskóla kl. 10,30.
Guðsþjónusta kl. 2. Samkoma kl.
20,30. Sr. Ólafur Skúlason.
Kirkja Óháða safnaðarins.
Messa kl. 2. Sr. Emil Bjömsson.
Ásprestakall.
Messa í Laugarásbíói kl.
Arngrímur Jónsson. Sóknarprestur.
^ÉLAGSLÍF
Félag Austfirzkra kvenua
heldur sína árlegu samkomu fyrir^
aldraðar austfirzkar konur í Sig-
túni, sunnudaginn 23. maí kl. 2,30.
Árni Halldórsson, lögfræðingur, sýn
ir mjmdir frá Austurlandi.
Fclagsstarf eldri borgara
í Tónabæ.
A morgun, mánudag, hefst félags-
vistin kl. 2 e.h. -
Fcrðafélagsfcrðir:
Sunnudagsferð 23. mai. Suður með
sjó. — Lagt af stað kl. 9,30 frá BSI.
Hvítasunnferðir.
1. Snæfellsnes.
2. Þórsmörk.
3. Landmannalaugar -
Farmiðar á skrifstofu félagsin:
Oldugötu 3, símar 19533 og 11798
FLU GÁÆTL ANIR
Loftleiðir hf.
Þorfinnur Karlsefni er væntanleg-
ur frá New York kl. 0700. Fer til
Luxemborgar kl. 0745. Er væntan-
legur til baka frá Luxemborg kl.
1600. Fer til New York kl. 1645.
Snorri Þorfinnsson er væntanlegur
frá New York kl. 0800. Fer til Lux-
emborgar kl. 0845.
Guðríður Þorbjarnardóttir er vænt
anleg frá New York kl. 1030. Fer
til Oslóar og Kaupmannahafnar kl.
1130.
Sjötugur er í dag, laugardaginn
22. maí, Gísli Guðmundsson Wium,
fyrrverandi kaupmaður. Hann fædd
ist að Melum í Mjóafirði árið 1901.
Gísla verður getið í islendngaþátt*
um Tímans bráðlega.