Tíminn - 26.05.1971, Blaðsíða 7
/
MIÐVIKUDAGUR 26. mai 1971
TÍMINN
„AÐ LÝSA SJÁLFUM SÉR“
Svar til Magnúsar Kjartanssonar
S.ialdan hef ég orðið jafn^
undrandi og þegar ég las grein
Magnúsar Kjartanssonar, sem
ber yfirskriftina: „Að lýsa sjálf
um sér“. Greinin birtist í þátt-
um Austra í Þjóðviljanum 20.
þ.m. Þessi grein er svo gjör-
sneidd beztu kostum höfundar,
að furðu gegnir. Ef til vill veld
ur þar nokkru um. að hann er
að gera tilraun til að hvítþvö
tvær „aukapersónur“ í Ölfus-
borgamálinu, þá Eðvarð Sig-
urðsson. fyrrum varaformann
ASÍ og Jón Snorra fyrrv. rit-
ara og formann bygginganefnd
ar ASÍ.
Magnús Kjartansson segir,
að tildrög þessa máls hafi ver-
ið þau, að verktaki ASÍ hafi
„svikið skuldbindingar sínar
um vinnulaun og efniskaup“.
Hafi það verkafólk, sem laun
sín missti, reynt að innheimta
þau hjá verktaka og sé nú
endanlega ljóst, að af honum
sé ekkert að hafa.
Það var öllum ljóst fyrir 6
árum, að af verktakanum var
ekkert að hafa. Hafi þeir
Eðvarð og Jón Snorri reynt
að telja Magnúsi trú um ann-
en, er það vísvitandi blekking.
Þetta mál hefur aldrei snúizt
um annað en afstöðu stjórnar-
manna ASÍ til siðferðilegrar
skyldu þeirra til að greiða að
fullu þau verðmæti. sem liggja
i húsum þessum vegna vinnu
þeirra, sem enn er ógreidd.
í þessu máli fæ ég ekki bct-
trr séð en þau rök, sem fram
hafa komið gegn ASÍ-mönnum,
séu mjög á einn veg, sbr. yfir-
lýsingu stjórnar Málarafélags
Reykjavíkur. En ef það er „aur-
kast“ að krefjast rétllátrar og
siðgæðislegrar afstöðu af for-
ystumönnum verkalýðsins eða
öðrum, sem fara með mál, er
snerta hagsmuni almennings,
þá er ég hræddur um, að
Magnús Kjarh.nsson hafi
nokkrum sinnum gerzt sekur um
,,aurkast“. Og ég vil bæta við:
Vonandi heldur hann því
áfram. En setjum nú málið
upp á dálítið annan hátt.
Hugsum okkur að í stjórn ASÍ
hefðu verið Sjálfstæðismenn
og Alþýðuflokksmenn og gerzt
sekir um nákvæmlega sömu af-
stöðu gagnvart launþegum.
Dettur einhverjum í hug, að
Magnús Kiartansson hefði tek-
ið með silkihönzkum á því sið-
ferðisbroti? Ég held að smán-
arblettir þeirra hefðu verið
gæsalappalausir í skrifum
Magnúsar þá. enda engin
ástæða til annars.
Nú veit ég að Magnús er
mér sammála í hjarta sínu um
það, að ekki beri að gera
minni siðferðiskröfur til póli-
tískra samherja i ábyrgðar-
stöðum én annarra. Ekki veit
ég, hver sekastur er um brot á
þessari reglu af atvinnupólitík-
usum. Þar verður hver að líta í
cigin barm. En grein Magnúsar
sýnir að keppnin er hörð.
Þá kem ég að þeirri fullyrð-
ingu Magnúsar, að þeir Eðvarð
og Jón Snorri hafi gegnt „al-
geru aukahlutverki“ í þessu
máli. Þegar stjórn ASÍ tók þá
illræmdu ákvörðun að greiða
ekki laun þau, sero uro er
deilt. fyrir 6 árum, skipuðu
hana auk áðurnefndra manna,
Hannibal Valdimarsson, for-
seti og þáverandi formaður Al-
þýðubandalagsins, Snorri Jóns-
son og Einar Ögmundsson. Með
öðrum orðum 5 Alþýðubanda-
lagsmenn, sem mynduðu meiri-
hluta stjórnar ASÍ. Þessir menn
báru ekki aðeins ábyrgð á að
umrædd laun væru ekki
greidd. heldur einnig á því að
svikin voru eftirfarandi fyrir-
mæli i samningi ASÍ við verk-
takann: „Verksali skuldbindur
sig til að inna af hendi greiðsl
^ur vinnulauna jafnóðum og
þær falla í gjalddaga sam-
kvæmt gildandi samningum til
verksala sbr. 10. gr. sem svar
ar sannanlegum vanefndum i
þessu efni.“ í 15. grein þessa
samnings við verktaka er svo
ákveðið að þessi upphæð. sem
ASÍ hefur til tryggingar gegn
vanefndum, m.a. vangreiddum
vinnulaunum. skuli vera 888.
200,00 krónur og skyldi hún
standa þar til últekt verksins
hefð'i farið fram.
Á þessa menn hefur verið
deilt fyrir afstöðu þeirra. Ég
fæ ekki með nokkru móti séð,
hvernig þeir Eðvarð og Jón
Snorri eru allt í einu orðnir
„aukapersónur" i jafn þýðing-
armiklu máli, þó að þeir skipi
2. og 4. sætið á lista AJþýðu-
bandalagsins við næstu kosn-
ingar.
Ég held að málflutningur sá,
sem Magnús notar i þessari
grein, sé rétísýnum Alþýðu-
bandalagsmönnum lítt að
skapi. Og ég held líka, að þvotta
tilraunir Magnúsar á blettóttu
siðferði þeirra Alþýðubandaiags
manna séu fyrirfram vonlausar.
Það verður að vera „verk þeirra
sjálfra, sera gera þ.! frjálsa“ af
„aurkasti“ manna, sem ekki
sætta sig við ranglæti. Eftir
þeim verkum, ásamt tilheyrandi
hugarfarsbreytingu, hefur verið
beðið í 6 ár. Við launþegar, sem
eigum ógreidd laun í verðmæt-
um orlofsheimilanna, sem nú
eru í eigu verkalýðsfélaganna
og ASÍ, biðjumst engrar ölmusu
eða góðgerðastai’fsemi. Svava
Jakobsdóttir sagði í ágætri ræðu
á kosningafundi Alþýðubanda-
lagsins, að það væri mannlegt
að' krefjast réttar síns. Það er
einfaldlega það, sem við erum
að gera.
Ég hárma, að m'g skuli greina
svo mikið á við mann, scm ég
met jafnmikils og Magnus Kjart
ansson, sem ég þess utan taldi
mig hafa ástæðu til að ætla, að
væri mér sammála um grund-
vallaratriði þessa máls. Ég geri
mér að sjálfsögðu ljóst, að ég
er litt fær um að deila við jafn
ritsnjallan mann. Ég er þannig
skapi farinn, að þegar mér
finnst málum brenglað í jafn
vafasömum tilgangi og hér er
gert, hefi ég ekki það geðleysi,
sem þarf til að þegja, og skiptir
þá engu máli, hver í hlut á.
Ég fagna þeirri yfirlýsingu
Magnúsar, að nokkur verkalýðs
félög hafi þegar lýsti opinher-
Icga yfir, að þau séu reiðubú-
in að sínu leyti að greiða um-
rætt launatap. Þó að ég og aðr-
ir, sem mál þetta er skylt, hafi
ekki séð þessar yfirlýsingar,
dreg ég ekki í efa, að Magnús
fari hér meö rétt mál.
Mér skilst, að Magnúsi hafi
þótt mjög miður, að ég skyldi
leyfa Tómasi Karlssyni að
birta fyrirspurn þá, sem ég
bar fram á kosningaíundi Al-
þýðubandalagsins. í henni var
ekkert, sem er launungamál
fremur en annað, sem frá mér
hefur farið um Ölfusborgamál-
ið. Ég- vona, að Magnús sjái,
þegar hann skoðar hug sinn bet-
ur, að hann getur beitt hinum
fræga geiri ritsnilldar sinnar að
verðugra verkefni en fram kem-
ur í greininni „Að lýsa sjálfum
sér“. Og þá munu honum bíta
vopnin betur.
SALTVÍK
’71 —
# 4 hljómleikar — sá lengsti 7 klst.
# 4 dansleikir
# 1 3ja klst. skemmtihljómleikar
# 1 þjóðlagahátíð
# 1 varðeldur
# 2 Beat-hljómleikar
# Diskotek
# Helgistund
Trúbrot — Náttúra — Ævintýri — Mánar — Þrjú á palii — Júbó —
Roof tops — Tilvera — Helgi og Kristín — Haukar — Ingvi Steinn —
Siggi GarSars — Árni Johnson — Torrek — Dýpt — Einar Vilberg
— Arckemetis — Tiktúra — Akropolis — Jeremías — Trix — Plantan
— Ríó tríó — Lítið eitt — Bill og Gerry — Freyr Þórarins — Sr. Bemharður
Guðmundsson.
Forsala aðgöngumiða hefst
í fyrramálið við Útvegs*
bankann.
HVÍTASUNNUHELGIN