Tíminn - 26.05.1971, Blaðsíða 16

Tíminn - 26.05.1971, Blaðsíða 16
Maður á sjúkrahúsi eftir átök viö STEFNAN Framsóknarflokkurinn stefn- ir að jafnrétti og jafnræði allra þegna þjóðfélagsins. Hann legg nr því áherzlu á, að fyllsta jafnréttis kynjanna í íslenzku þjóðfélagi verði gætt. Flokkurinn telur nútíma- þjóðfélagi nauðsyn, að njóta starfskrafta og hæfileika kvenna f atvinnulífi og öllu þjóðmálastarfi, en við núver- andi þjóðfélagaðstæður er kon- um ekki sköpuð nægileg að- staða til að nýta hæfileika sína sem skyldi. Framsóknarflokkurinn telur, að á eftirfarandi sviðum sé skjótra úrbóta þörf: • Dagheimils- og barnaheim- ilismálum verður að koma í sómasamlegt horf, alls staðar á landinu, og aðstaða til heim- ilishjálpar að aukast stórlega, þannig að tryggt sé að hjón geti unnið úti og heigað sig félagsstarfsemi án þess að þurfa að neita sér um að eiga börn. • Tryggingalögin verður að endurskoða með tiiliti til þess, að fyllsta jafnréttis kynjanna sé gætt svo að karlmenn njóti allra sömu réttinda sem kon- ur nú hafa. Ennfremur að all- ar konur, hvar sem þær vinna, öðlist þau mannréttindi að fá þriggja mánaða leyfi frá störf- um vegna barnsburðar. A Launþegar hljóti laun og stöður eftir hæfileikum, mennt un og starfsreynslu, en ekki eftir kynferði. • Konur, scm á miðjum aldri vilja leita út í atvinnulífið, eigi kost á endurhæfingarnám- skeiðum í þeim störfum er þær hafa áður lært til eða kennslu á öðrum sviðum. Enn fremur að þær eigi kost á starffræðslu á sama hátt og skólafólk. þrjá pilta OÖ—Reykjavík, þriðjudag. Maður á sjötugsaldri liggur nú á sjúkrahúsi eftir átök sem hann átti í við þrjá stráka 17 og 18 ára gamla. Slagsmálin áttu sér stað undir miðnætti sl. £ íbúð mannsins við Snorrabraut. Er mað urinn mikið marinn og bólginn í andliti og eru piltarnir einnig skrámaðir á andliti og víðar. Um kl. 11 í gærkvöldi hittu strákarnir manninn fyrir utan heim ili hans á Snorrabrautinni. Bauð sá fullorðni þeim inn til sín og lofaði að gefa þeim áfengi. Þetta var þegið. Þegar inn kom dró karl upp viskípela og gaf strákunum að dreypa á. Þótti þeim sopinn góður og báðu um meira. Ekki var við það komandi. Gerðu þeir sér þá lítið fyrir og tóku pelann af manninum og afgreiddu, sig sjálfir. Eigandanum rann í skap og greip hann trélurk og kfttis- spaða sem hvorttveggja var nær- tækt og réðst á strákana, og veitti þeim öllum áverka. Við yfirheyrslu báru þeir, að þeir hafi aðeins var- ið sig, en ekki ráðizt á manninn, nema að einn þeirra segist hafa snúið hann niður Ugólfið, og hafi Framhald-á bls. 3 Á 20 tonna báti til Græniands KJ—Reykjavík, þriðjudag. í gær kom til Reykjavíkur, lít- ill danskur bátur, sem er á leið til Grænlands, nánar til tekið til Godtháb á vestur-ströndinni. Á báturinn því töluverða ferð fyrir höndum, héðan frá Reykjavík og suður fyrir Grænlandsodda, og betra að ekki verði mikill ís á leið hans þangað. Báturinn hefur verið tíu daga á leiðinni til Reykjavíkur, en hann hafði viðdvöl á Hjaltlands eyjum fyrst, síðan var siglt til Færeyja, og þaðan til Vestmanna- eyja. Til Reykjavíkur kom bátur- inn svo í fylgd dansks skips, Randia Dania. Á bátnum eru sex menn, en þetta er ekki fiskibátur, heldur ætlaður til skemmtisiglinga með ferðafólk í nágrenni Godtháb. Minnir útlitið helzt á skemmti- snekkju auðkýfinga — mikil yfir- bygging, og því ekki víst að hann þoli vel mjög mikinn sjó, þar sem hann er líka aðeins um ugu tonn að stærð. Klukkurnar vigðar FB—Reykjavík, þriðjudag. Klukknavígsla og aftansöngur verða í Hallgrímskirkju á laug- ardaginn og hefjast kl. 17.30. Þor- kell Sigurbjörnsson tónskáld leik ur á klukknaspilið forspil og sálma lag, sem hann hefur samið fyrir það, að ósk'songmálastjórá Þjóð- kirkjunnar, óssonar. dr. Roberts A. Ott- 10 kosningaskrifstofur B-listans í Reykjavík Framsóknarflokkurinn hefur opnað kosningaskrifstofur í Reykja- vík fyrir öll 10 kjörsvæðin. Verða skrifstofurnar opnar daglega fram að kjördegi frá kl. 2—7 og 8—10 nema um hvítasunnuhelg- ina verður lokað bæði á sunnudag og mánudag. Skrifstofurnar eru á eftirtöldum stöðum: 1. Fyrir Arbæjarskóla að Hraunbæ 102. Símar: 85780 og 85785. 2. Fyrir Breiðholtsskóla að Fornastekk 12. Símar: 85480 og 85488. Fyrir Breiðagerðisskóla að Grensásvegi 50. Sími: 85440. Fyrir Langholtsskóla að Langholtsvegi 51. Símar: 85944 og 85950. Fyrir Álftamýrarskóla að Grensásvegi 50. Sími: 85441. Fyrir Laugarnesskóla að Skúlatúni 6. Símar: 25013 og 25017. Fyrir Sjómannaskóla að Skúlatúni 6. Símar: 25085 og 10929. Fyrir Austurbæjarskóla að Skúlatúni 6. Símar: 10930 og 10940. Fyrir Miðbæjarskóla að Hringbraut 30. Símar: 12154 og 24480. Fyrir Melaskóla að Hringbraut 30. Símar: 12136 og 24480. Upplýsingar um utankjörfundarkosningu eru í síma 25011. • Upplýsingar um kjörskrá eru í síma 25074. • Kosningastjóri er í síma 25010. Stuðningsfólk Framsóknarflokksins er beðið að hafa samband við kosningaskrifstofumar sem fyrst. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. m Skólaslit Félagsmálaskóla Framsóknarflokksins Félagsmálaskóla Framsóknarflokksins verður slitið föstudaginn 28. maí n.k. Skólaslitin fara fram að Hótel Esju, 2. hæð, og hefjast kl. 20.30. Formaður skólanefndar, Jónatan Þórmundsson, prófessor, mun flytja skýrslu um starfsemina á liðnu starfsári, og þeim, sem útskrifuðust úr skólanum í vetur, verður afhent prófskírteini. Þá fer fram vígsla klukknanna og samhringing, og mun biskup íslands, herra Sigurbjöm Einars- son vígja hinar nýju samhringing- arklukkur og klukknaspilið. Að lokum verður aftansöngur. Dr. Jakob Jónsson prédikar, en séra Ragnar Fjalar Lárusson, þjónar fyrir altari. Organleikari er Páll Halldórsson. Sálmalög verða leik- in á klukknaspilið. Danski báturinn þar sem hann lá vi3 IngólfsgarS í gærdag. (Tímam. Guimar) Saltvík 71 byrjar á tónhræru - endar á samanpökkunardiskóteki FB—Reykjavík, þriðjudag. Mikil og fjölbreytt dagskrá verð ur á hvítasunnuhátíðinni, sem hljómsveitin Trúbrot gengst fyrir í samvinnu við Æsku- lýðsráð Reykjavíkur £ Salt- v£k um helgina, en hátíðin nefn- ist Saltvík ’71. Hátíðin hefst kl. 20 á föstudagskvöld með þv£ að ýmsir tónlistarmenn á staðnum flytja „tónhræru", eins og segir i dagskránni. Síðan hefst dansleik- ur, sem stendur fram til kl. 2 eftir miðnætti, en að þeim loknum verður flugeldasýning. Fyrir dansi leika Trúbrot og Mánar, og auk þess verður diskótek. Á laugardagsmorguninn hefst hljómlistin strax kl. 10 með Morg- undiskóteki, siðan verð Beathljóm leikar frá kl. 11 til kl. 19. Aftur hefjast hljómleikar og þá standa þeir fram til 2 eftir miðnætti. Á sunnudagsmorguninn verður diskó tek, en kl. 11 mun sr. Bernharður Guðmundsson, Trúbrot og fleiri sjá um nýstárlega guðsþjónustu. Frá kl. 17 til 21 verður þjóðlaga- hátíð, um kvöldið verður varðeld- ur og miðnæturdansleikur verður frá kl. 12 á miðnætti fram til kl. 4 um nótt.ina. Á mánudag verður lorgundiskótek hádegisdansleikur, ýmsir hljómlistarmeni) leika milli kl. 2 og 3 siðdegis og frá 3 til 4 verður það sem kallað er £ dagskránni samanpökkunardiskó- tek. Aðgöngumiði að hátíðinni kost- ar 350 krónur og gildir fyrir alla dagana. Miðaverð er óbreytt all- an timann. Forsala aðgöngumiða hefst við Útvegsbankann á fimmtu dagsmorgun og heldur áfram fram á laugardag. Aðgöngumiðsala er einnig við Saltvíkurhlið. Ferðir verða frá Umferðamiðstöð inni frá kl. 1600 á föstudag, og frá Saltvík i lok dagskrár hverju sinni. Fargjald er kr. 60 hvora leið. Næg bílastæði og tjaldstæði eru í Saltvík. Hátíðargestir eru beðnir að gæta þess, að hafa með sér góðan viðlegubúnað, hlíföar- föt, hituijartæki og nesti. Fjölbreyttar veitingar verða á boðstólum í Saltvík, svo sem pyls ur, samlokur, öl, kaffi súkkulaði- kex og margt fleira. Á staðnum verður læknisþjón- usta, og þar er og hjálparsveit skáta með góða aðstöðu. Fjóirir íþróttavellir eru í Salt- vík til afnota fyrir gesti. í góða veörinu verða bátar á víkinni, sem taka farþega til skemmti- ferða út um Kjalarnestanga. Saltvík ’71, er hvað dagskrá snertir miðuð við 14 áira unglinga og eldri. Framkvæmdastjórn hátiðarinnar hefur aðsetur sitt £ Hlaðbúð £ Saltvik, gegnt veitingaskála. Fram kvæmdastjóri er Hinrik Bjama- son. rækju- mið fundin í Djúpál KJ—Reykjavík, þriðjudag. Fiskileitarskipið Hafþór hefur að undanförnu verið i rækjuleit, og leitaði fyrst við Eldey, síðan út af Vesturlandi, og síðast var leitað við Vestfirði. í Djúpálnum fundust góð rækjumið. Fékk Haf þór rúm 300 kiló á togtíma á 130— 140 faðma dýpi. Var rækjan frek- ar stór, eða 180—200 stykki i kílóinu af rækjunni cins og hún kcmur fyrir úr sjónum. Ilafþór er væntanlegur til Reykjavíkur á morgun úr þessum leiðangri sinum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.