Tíminn - 01.07.1971, Blaðsíða 1

Tíminn - 01.07.1971, Blaðsíða 1
1 1 V ALLT FYRIR BOLTAÍÞRÓTTIR Sportvöruverzlun INGÓLFS ÓSKARSSONAR K3*pparstíg 44 - Sími llí’SS. 55. árg. | 5 liilfclfc? , 1 1 ' - 1 11 Ip i 1 lÉlfttitt',:; Áhöfn Sojús-11. F.v. Dobrovolski, Patsaéf og Volkof. Þeir létusf fáeinum mínútum áöur en geimfariS lenti í gaermorgun. Enn óljóst hvers vegna sovézku geimfararnír þrír létust: Er lending manna ef tir langa dvöl í geimnum líf shættuleg? NTB—Moskvu og Washington, miðvikudag. ^ Sovézku geimfararnir þrír í Sojús-li létust í morgun, þegar geimfar þeirra var á leið til jarðar. Geimfarið lenti eðlilega, en þegar það var opnað, kom í Ijós, að þeir voru allir látnir. Líkamar þeirra voru afslappaðir og eins og þeir svæfu. Er augljóst, að dauða þeirra hefur borið mjög skyndilega að höndum, og er af ýmsum talið, að hjörtu þeirra hafi ekki þolað hin miklu umskipti að koma úr 24 sólarhringa dvöl í þyngdarleysi til jarðar á ný. ^ Dauði geimfaranna hefur vakið mikla sorg um allan heim, og hafa samúðarskeyti streymt til Moskvu. Jafnframt hefur komið fram efi um, að menn þoli langa dvöl úti geimnum. áamkvæmt fréttum frá TASS lauk áhöfn geimrannsóknr^töðv- arinnar Saljút að fullu við að ivæma áætlun leiðangursins i gær og fékk tilmæli um að lenda. Geim fararnir báru vísindaleg gögn og dagbækur ferðarinnar yfir í ferju- geimskipið Sojús-11, og bjuggust til heimferðar. Að því búnu sett- u geimfararnir hver á sinn stað í g'’imfarinu, prófuðu tækjakerf- in um borð og bjuggu geimfarið undir viðskilnað við stöðina Sal- jút. Kl. 21,28 að Moskvutima var Sojús-11 skilinn frá Saljút, og hélt heim á leið. Áhöfnin skýrði vísindamönnum á jörðu niðri frá því, að þetta hefði gerzt vandræða laust og að öll tæki um borð störf- uðu með eðlilegum hætti. Aðfararnótt 30. júni, kl. 1,35, var hemlahreyflakerfi geimfarsins sett af stað og lending þar með hafin. Hemlahreyflarnir störfuðu jafnlengi og þeim var ætlað, en þegar þeir höfðu lokið hlutverki sínu, rofnaði allt samband við áhöfnina. í samræmi við gerðar áætlanir var fallhlífakerfi sett í samband, eftir að loftkrafthemlun hafði skil- að sínum áhrifum, og rétt áður en komið var til jarðar voru hreyflar, sem tryggja mjúka lendingu, sett- ir af stað. Lendingarferjan sveif hægt til jarðar á því svæði, sem til lendingar var ætlað. Leitarflokk- ur 1 ti samtímis geimfarinu á þyrlu. Þegar geimfarinu var lokið upp, fundu menn áhöfn geimskips- ins Sojús-11, þá Dobrovolski of- ursta, Volkof verkfræðing og Pat- saéf tilraunaverkfræðing, hvern á sínum stað, og var ekkert lífsmark með þeim. Samkvæmt upplýsingum APN fréttastofunnar í kyöld, hefur ver- ið skipuð sérstök rannsóknarnefnd til þess að kanna orsakir slyssins. Reuter-fréttastofan skýrir frá því, að geimfararnir þrír hafi lát- izt nokkrum mínútum áður en geimskipið lentþ og er af mörgum talið, að viss líffæri hafi ekki þol- að þyngdarafl jarðar eftir 24 sól- arhringa dvöl í þyngdarleysi. Tal- ið er víst, að sé þetta rétt, þurfi að leysa alveg nýtt vandamál varð- andi lengri geimferðir, og muni það draga mjög úr geimferðaáætl- unum Sovétríkjanna á næstunni. Eins og áður scgir, hafa ríkis- stjórnir margra ianda sent so- vézku stjórninni samúðarskeyti, vegna þessa atburðar. Sovézka ríkisstjórnin gaf út yfirlýsingu í dag, þar sem segir, að sovézka b.ióðin harmi miög fráfall þcss- ara þriggja sona Sovétrikjanna. Geimfararnir verða jarðsettir í heiðursgrafreitnum í Kreml. HELZTU ÆVIATRIÐI SOVÉZKU GEIMFARANNA ERU Á BLS. 7 Stjórnarmyndunin: Næsti fundur ídag KJ—Reykjavík, miðvikudag. f gærkvöldi tók flokksstjórn Alþýðuflokksins neikvæða af- stöðu til boðs um að taka þátt í viðræðum um stjómar- myndun með Framsóknarflokkn um, Alþýðubandalaginu og Samtökunum. Ólafur Jóhannesson, for- maður Framsóknarflokksins sagði í viðtali við Tímann í kvöld, að svar Alþýðuflokks- ins hefði engin áhrif á gang viðræðna flokkanna þriggja, og væri eftir sem áður unnið að myndun vinstri stjórnar. Ólaf- ur sagði að unnið væri að at- bvgun ýmissa málaflokka í und irnefndum, en sameiginlegur fundur hefði verið í morgun, og annar fundur væri boðað- ur á morgun, fimmtudag, klukk an tvö eftir hádcgið. Þá sagði Ólafur Jóhannes- son að raunverulegar viðræð- ur um stjórnarmyndun hefðu aðeins staðið í fimm daga, og væri gangur viðræðnanna eðli- legur. Hér fer á eftir fréttatil- kynning frá Alþýðuflokknum, sem er bréf það er flokkurinn ritaði. „Flokksstjóm Alþýðuflokks- ins héfur samþ. að rita for- manni Framsóknarflokksins eft irfarandi bréf: Alþýðuflokkurinn hefur mót- tekið bréf formanns Framsókn- arflokksins, dags. 25. júní, þar sem hann býður Alþýðuflokkn um til þátttöku í viðræðum um samstarf og myndun ríkisstjóm ar Framsóknarflokks, Alþýðu- bandalags o^ Samtaka frjáls- lyndra og vinstri manna. Flokksstjórn Alþýðuflokksins telur, að nú, að loknum kosia- í ingum, sé eðlilegt, að gerð verði tilraun til þess að sam- eina lýðræðissinnaða jafnaðar- menn í einum flokki og lítur svo á að úrslit kosninganna hafi áréttað mikilvægi þess máls. Flokksstjórnin telur, að þess ar tilraunir til sameiningar jafnaðarmanna eigi að vera undanfari viðræðna um stjórn- armyndun og telur Alþýðufl(|kk urinn, í ljósi kosningaúrsíit- anna, ekki fært að ganga til samninga um stjórnarmyndun, án þess að áður hafi verið gerð- ar alvarlegar tilraunir til sam- einingar jafnaðarmanna. Jafnframt minnir flokksstjórn Alþýðuflokksins á, að þegar formaður Framsóknarflokksins tók að sér tilraun til stjórn- ’ >••>’ ald á ,ls. 14

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.