Tíminn - 01.07.1971, Blaðsíða 16

Tíminn - 01.07.1971, Blaðsíða 16
Fimmtudagur 1. júlí 1971. 40 flugvélar koma hér við í flugkeppni f kvöld kl. sjö að íslenzkum tíma, ef allt fer skv. áætlun, hefst í Abingdon við London mikil flug keppni. Áætlað var að 100 vélar tækju þátt í keppninni. Nokkur vanhöld virðast hafa orðið á kepp endum, því saimkv. síðustu upp- lýsingum frá London munu ekki nema 60 flugvélar taka þátt í henni. Keppni þessi er haldin í til- efni af 100 ára afmæli fylkisins British Columbia sem hluta af Kanada, og er keppninni stjórnað frá höfuðborg fylkisins, Victoria sem er á Vancouvereyju við Kyrra haf. Flugvélamar fljúga þessa leið i tveimur höfuðáföngum: London — Quebec og Quebec — Victoria. Fyrri hlutann er um nokkrar leiðir að velja og liggur ein þeirra um fsland. Er nú talið að um 40 flugvélar muni koma hér við á vesturleið. Fyrsta flugvélin mun væntanlega lenda á Reykjavíkur- flugvelli um 2 leytið í nótt, en sú síðasta um kl. 18 á morgun, föstudag. Flugmennirnir mega hafa hér allt að 60 mínútna viðdvöl,, en ef þeir komast fyrr af stað, þá er það þeina hagnaður. Flugmálafélag fslands hefur því undirbúið móttökU’ flugvélanna hér og hjálpast þar að fjöldi að- ila, að gera viðdvöl flugmannanna sem stytzta, svo sem flugmála- stjómin, veðurstofan, olíufélagið Skeljungur, tollgæzlan og félagar úr Félagi íslenzkra einkaflug- mánna. Einnig verða Flugbjörgunarsveit Framhald á bls. 14 L&fiwiá -- *,>'■ * ■ FariS er aS lifna yfir Uppsalakjallaranum aftur og menn farnir aS undirbúa þær rannsóknir, sem þar eiga aS fara fram í sumar, Þessi mynd var tekin í gær, þar sem veriS var aS hreinsa gólf kjallarans. Einn þeirra, sem voru aS moka, var Borgar GarSarsson leikari og sagði hann Ijósmyndar- anum, aS þeir hefSu ekki fyrirmael-i um aS moka varlega fyrr en komrS væri niSur í moid. (Timamynd GE) ■ ■v I Wl$ |K %, -Mák 1 SLÁTTUR HEFST VÍÐAST HVAR EKKI FYRR EN UM MIÐJAN JÚLÍ ÞO—Reykjavík, miðvikudag. í gær hafði Tíminn samband við fréttaritara sína vítt og breitt um landið, og spurði þá, hvernig grasvöxtur og tíðarfar hefði verið undanfarið. Kom fram í þessum viðtölum, að víðast hvar á land- inu hefst sláttur í seinna lagi. Á þetta sérstaklega við um Norður- og Austurland, en þar hefur norð- anátt verið ríkjandi undanfarinn hálfan mánuð, og þar af leiðandi OÓ—Reykjavík, miðvikudag. Fjörutíu þúsund krónum var stoli'ð á skrifstofu hótelsins á Akranesi um hádegisbil s.l. sunnu- dag. Einnig var stolið tvö þús. kr. úr veski, sem hótelgestur geymdi í herbergi sínu. Var farið inn í fleiri herbergi og leitað þar að verðmætum. Ekki varð vart þjófnaðarins úr skrifstofunni fyrr en seint um kvöldið. Hins vegar saknaði gestur- inn peninga sinna fyrr um daginn. Grunur féll á þrjá unga menn úr Reykjavík, sem komu á hótelið um morguninn, en hurfu snögglega um hádegið. Voru þeir handteknir í Reykjavík í gær og játuðu tveir þeirra í dag, að hafa verið við þjófnaðinn riðnir, en sá þriðji neit ar að eiga nokkra hlutdeild í hon- um. Sá yngsti piltanna, sem hand- teknir voru, er 15 ára. Hinir eru 16 ára og 18 ára. verið mjög kalt og rigningarsamt. Á Suðurlandi er það helzt úrkomu leysið, sem tafið hefur fyrir sprett unni, en það hefur lagazt aðeins síðustu dægur, þar sem skúrir hafa komið annað slagið. Jón Kristjánsson á Egilsstöðum sagði, að ’ ar hefði vorað óvenju- snemma og spretta litið mjög vel út um tíma, en fyrir hálfum mán- uði hefði gengið til norðan- og norðaustanáttar, og síðan hefð'i Á skrifstofunni fundu piltarnir lykil að skrifborðsskúffu, þar sem peningarnir voru geymdir. Var lög- reglunni ekki tilkynnt um þjófnað- inn fyrr en um kl. 11,30 um kvöld- ið, enda var ekki farið í skúffuna fyrr, svo að starfsfólk hótelsins vissi ekki að þjófnaðurinn hafði verið framinn fyrr. Hins vegar upplýstist snemma um daginn að stolið hafði verið frá hótelgesti. Einnig var greinilegt að farið hafði verið inn í fleiri herbergi og leit- að að peningum. Piltarnir þrír voru á bak og burt þegar vart varð við peningahvarf- i'ð. Féll strax á þá grunur og var lögr. í Reykjavík tilkynnt um þjófnaðinn. Hafði rannsóknarlög- reglan svo uppi á piltunum í gær- dag. Rannsókn málsins stendur enn yfir og er ekki vitað hvort strákar eru búnir að eyða peningunum, e'ða hluta þeirra. verið leiðindatíð; gróður ekkert tekið við sér, gránað í fjöll flest- ar nætur. — En, sagði Jón, — þó svo að rignt hafi mikið að auki, er ekki hægt að segja að allir hafi verið á móti því, því að vegir hér fyrir austan voru orðnir mjög þurrir sg harðir eftir alla þurrk- ana i vor, en núna hafa þeir batn- að til muna, alla vega hvað ryk snertir. Að lokum sagði Jón, að hann hefði ekki trú á því, að slátt- ur gæti byrjað á Héraði fyrr en eftir vikutima eða svo. Stefán Jasonarson í Vorsabæ tjáði Tímanum, að víða væri farið að verða sæmilega sprottið þar í kring, og væri nokkuð víða farið að slá, og hefði sú litla væta, sem komið hefði undanfarið, bætt gras vöxtinn. Stefán sagði ennfremur, að einn og einn bóndi væri byrj- aður að hirða, en það væri ekki í miklum mæli. Magnús Árnason í Neðri-Brunná í Gilsfirði sagði, að það hefði vart komið skúr í júnímánuði, og þar af leiðandi yrðu hey í rýrara lagi. — Það vantar tilfinnanlega rign- ingu. Einnig mættu fara að koma meiri hlýindi. Þótt hitnað hafi í lofti í dag — hitinn er eitthvað um 10 stig. — Hefur verið mjög kalt undanfarið, yfirleitt 3ja til 4ra st. hiti. Ekki bjóst Magnús við að sláttur gæti hafizt fyrr en um 10. júlí, ef veður batnar ekki mikið frá því, sem verið hefur. Sigurbjartur Gíslason í Þykkva- bæ sagði, að grasspretta væri þar mjög hæg, og helzta orsökin fyrir því væri, að lítið hefði rignt und- anfarið, þannig að áburðurinn hefði ekki náð að verkast, og einn- ig hefði verið næturkuldi, þó svo að hlýtt hefði verið á daginn. Aðspurður sagði Sigurbjartur, að hann byggist ekki við því, að sláttur myndi almennt hefjast fyrr en 10. júlí, en samt væri búið að Framhald á bls. 14 BISKUP ÍSLANDS SEXTUGUR SJ—Reykjavík, miðvikudag. Sigurbjörn Einarsson biskup varð sextugur í dag. Hann fæddist á Efri-Steinsmýri í Meðallandi 30. júní 1911. Foreldrar hans voru Einar Sigurfinnsson bóndi og fyrri kona hans Gíslrún Sigur- bergsdóttir. Sigurbjörn lauk stúd entsprófi frá Menntaskólanum í F; mhald á bls. 14 RÁN Á HÓTEL- INUÁAKRANESI Senda upp tíu loftbeigi OÓ—Reykjavík, miðvikudag. Stór loftbelgur sveif upp frá Reykjavíkurflugvelli laust fyrir kl. átta í gærkvöldi og klukkustund síðar var sams konar loftbelg sleppt frá flugvellinum á ísafirði. Jafnframt var þrem loftbelgjum sleppt frá jafnmiirgum slöðum í Norður-Noregi. Á næstu vikum verður 10 belgjum sleppt til við- bótar frá íslandi. Þetta er liður í rannsóknum, er háskólinn í Bergen og háskóli í Kaliforníu standa fyrir. Neðan í loftbclgjunum eru ýmis konar rannsóknartæki, sem mæla röntgen geisla og áhrif sólar. Fara belg- irnir í 30 km hæð og þar er vís- indatækjum sleppt úr þeim, og svífa þau til jarðar í fallhlífum. Aætlað er að tækin komi til jarðar um 50 klukkustúndum eftir að belgjunum er sieppt Tækin senda alls konar upplýs- ingar til jarðar meðan á flugi stend ur. Er tekið á móti sendingunum í Raunvísindastofnun háskólans, en þar er sérstökum móttökutækjum komið fyrir í þessum tilgangi. Það eru norskir og bandarískir vísinda menn, sem vinna að þessum til- raunum, sem oru liður í rannsókn- um er hófust 1969. I ráði er að búið verði að sleppa ö’lum 10 loftbelgjunum 15. ágúst n.k. Loftbelgirnir sem sendir eru upp í háloftin héðan, eru um 30 metrar á hæð, og eru þá meðtalin tækin, sem hengd eru neðan í þá, en þvermál b ’gjanna er 6 metrar. Flugumferðarstjórnin á Reykja- víkurflugvelli er látin vita í hvert sinn sem belgirnir eru sendir á loft og eru þá flugmenn varaðir við þeim og skýrt frá hvar loftbelg- irnir svífa um loftin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.