Tíminn - 01.07.1971, Síða 2
) I ;
TTMTNN
FIMMTUDAGUR
1. júlí 19?x
Bærileg neta-
veiöi í Olfusá
Í>Ó—Reykjavík, miðvikudag.
Tíminn ræddi í dag við Magnús
Magnússon á Eyrarbakka, og spurði
hann hvernig netaveiðin hefði
gengið í Ölfusá. Magnús sagði að
netaveiðin í sumar hefði gengið
ágætlega og virtist sama
á hvaða svæði það væri í ánni,
netaveiðin gengi alls staðar bæri-
lega. — Hjá mér hefur veiðin verið
svona 10 til 20 laxar yfir sólar-
hringinn, og er ég ánægður með
það.
Við spurðum Magnús að því,
hvort Sfelurinn tæki eitthvað úr
netunum hjá þeim er netaveiði
stunduðu. Hann svaraði því til, að
allavega gerði selurinn það ekki
hjá sér, en hann sagðist vaka yfir
netunum á meðan þau væru í vatn-
inu, hinsvegar gæti það verið, að
selurinn tæki eitthvað úr netum
annarra, en það væri örugglega
ekki í ríkum mæli.
Að lokum spurðum við Magnús
að því, hvort einhver fjölgun hafi
orðið á selnum undanfarið. Hann
hélt svo ekki vera, fjöldinn væri
svo til sá sami frá ári til árs, enda
tækju þeir alltaf einhverja kópa í
lagnet á vorin, svona 20 til 30
kópa.
SUNN ætlar að
gefa út kynn-
isigarbæklsnga
Á fulltrúai-áðsfundi, Samtaka
um náttúruvernd á Norðurlandi,
sem haldinn var í Varmahlíð í
Skagafirði, 19. júní sl., var ákveð
ið að samtökin skildu hefja út-
gáfu bæklings til kynningar á
náttúruvernd í fjórðungnum og
starfsemi samtakanna.
KEPPN/ ÍSÁL TIL
VARNAR SLYSUM
OÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Tekin var upp keppni á s.l. ári í
Álverksmiðjunni í Straumsvík sem
miðar að því að fækka slysum
starfsmanna. Verðlaun voru veitt
s.l. mánudag til þeirra starfshópa,
þar sem engin slys urðu á mönnum
á árinu. Fyrstu verðlaun eru ferða-
lög til Grænlands. Hlutu þau verð-
laun um 40 starfsmenn í kerja-
skála, og fara eiginkonur þeirra
með. Auk þess hlutu sigurvegararn
ir farandbikar.
Aðrir hópar hlutu peningaverð-
laun. Til að vekja áhuga starfs-
manna enn fremur á að verjast slys
um, er hverjum þeirra, sem komizt
hafa hjá slysum í eitt ár afhent
merki úr bronsi, sem á er letrað
,,Slysalaus“. Að ári liðnu fær sá
slifurmerki, sem ekki hefur orðið
Bóndi heldur
málverkasýningu
PE—Hvolsvelli, miðvikudag.
Jón Kristinsson bóndi, Lambey í
Fljótshlíð, opnar málverkasýningu
í Gagnfræðaskólanum Hvolsvelli
á morgun, fimmtudag 1. júlí, kl.
20.
Á sýningunni verða rúmlega 40
verk, og eru þau unnin í olíu-
vatnsliti og túss. Þetta er fyrsta
sýning Jóns, en undanfarin 20 ár
hefur hann málað og teiknað með
bóndastarfi sínu, og þá aðallega
eftir beiðnum til tækifærisgjafa.
Áður en hann hóf sveitabúskap
var hann auglýsingateiknari, og
teiknaði þá m. a. í auglýsingabók-
ina Rafskinnu, sem var í Austur-
stræti.
Sýning Jóns verður opin dag-
lega frá kl. 14 til 22, fram til 11.
júlí.
Sjónvarp handa varnar-
liðsmönnum í NjarSvíkum
Það eru svo sem engin ný tíðindi
þótt skýrt sé frá því að varnarliðs-
sjónvarpið sjáist á Suðurnesjasivæð-
inu, og inn til Reykjavíkur. Hitt eru
nýrri tíðindi að útvarpsráð hyggst nú
fara af stað og freista þess að gæta
hagsmuna Ríkisútvarpsins. Lokið er
rannsókn tveggja sérfræðinga, sem
höfðu tilskilin próf til að fræða hina
háu stofnun um allan sannleika máls-
ins, þar sem ekki dugir að fara eftir
ótíndum slúðursögum tugþúsunda
sjónvarpsáhorfenda. Þeir hafa þó
hingað til efeki þurft annað en fá sér
dulítinn útbúnað til að blóta á laun
með virðulegri aðstoð yfirmanns
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Undir hann heyrir að stöðin sendi út
á mátulegum styrk. En mátulegur
styrkur er teygjanlegt orð og mun
m.a. þýða að sjónvarpsefni verði
komið til varnarliðsmanna sem búa
i Njarðvíkum. Forveri hans hafði að
vísu lofað því á sínum tíma, sam-
kvæmt beiðni, að skrúfa niður í
sendinum. En spurningin um þá sejn
bjuggu utan girðingar og máttu efcki
missa sitt Bonanza hefur eflaust hvílt
þungt á samvizkunni. Vandamál gátu
einnig risið út af þeim sem bjuggu
í Kefl-avík eða austarlega á vallar-
svæðinu. Þannig var hægt a5 finna
tilefni sem náðu allt að þyngdar-
miðju sendisins, alveg eftir því hvað
átt var við með orðinu styrkur, og
einnig eftir því hvernig samvizku-
spursmálið horfði við hverju sinni.
Það var svo efcki fyrr en ein-
hverjir fóru að auglýsa Keflavíkur-
loftnetin til sölu 1 auglýsingatíma
útvarpsins, að ráðamenn þeirrar
stofnunar töldu að nú væri nóg kom
ið. Auðvitað stóð það nær viðkom-
andi stjórnvöldum — höfundum
beiðninnar — að fylgjast með því
að bónarvegur þeirra yrði virtur,
og yfirstjórn varnarliðsins héldi þau
loforð, sem gefin höfðu verið um tafc-
mörkun á sendingum. En biðin eftir
þeim viðbrögðum er nú orðin
lengri en skynsamlegt getur talizt.
Utanrikisráðuneytið og vamarmála
deild hlusta augsýnilega ekki á út-
varpsauglýsingar, og samband þess-
ara aðila við umheiminn hlýtur að
vera umdeilanlegt eftir hina löngu
þögn. En fyrst útvarpsráð hefur
kveðið upp úr með þetta, verður lík-
lega varla undan því komizt að fara
að nýju bónarveg að yfirmanni varn-
arliðsins, og biðja hann enn einu
sinni að skrúfa niður í sendinum í
trausti þess að hann rugli engu í
áríðandi gögnum eins og Mannrétt-
indasáttmála Sameinuðu þjóðanna og
Nato-sáttmálanum, sem fela ekki í
sér nein ákvæði um sjónvarp handa
varnarliðsmönnum í Njarðvíkum.
Svarthöfðl.
fyrir slysi og síðan gullmerki eftir
þriðja slysalausa árið. Merki þessi
eiga starfsmenn að bera í öryggis-
hjálmum sínum.
Verðlaunin voru afhent við at-
höfn og fluttu þar ræður Friðgeir
Grímsson, öryggismálastjóri, Her-
mann Guðmundsson, formaður
Hlífar og Philip Múller, viðskipta-
legur framkvæmdastjóri ísals.
i ræðu sinni sagði Muller m.a.:
Samkeppni til varnar slysum
hófst í júlí 1970, en tilgangur henn
ar er að stuðla að betri vörnum
gegn slysum innan fyrirtækisins.
Margt er hér gert, sem er mjög
nýstárlegt á Íslandi. Fyrst má telja
þau tæki, sem við höfum. Hér er
vel útbúinn sjúkrabíll og er hann
til taks allan sólarhringinn, ef slys
ber að höndum. í honum eru súr-
efnistæki og önnur hjálpartæki. Þá
er hér við aðalhliðið sjúkraher-
bergi útbúið súrefnistækjum og öðr
um hjálpartækjum ásamt ýmsum
lyfjum. Hliðverðir ÍSAL eru sér-
staklega þjálfaðir í skyndihjálp, og
sama er að segja um verkstjóra.
Verkstjórar hafa einnig sjúkra-
skápa til umráða.
Árangur af keppninni hefur nú
þegar orðið góður, en þó má enn
gera betur. Það eru fyrst og fremst
starfsmennirnir, sem eiga mikið
undir því, að keppni eins og þessi
nái takmarki sinu. Það er einnig að
verulegu leyti á valdi starfsmanna
sjálfra, að fækka slysaorsökum og
forðast slys. Þessari samkeppni er
ekki lokið. ,Við vonum, að árangur
næsta árs verði enn betri.
Það er gleðilegt að finna þann
jákvæða áhuga, sem keppnin hefur
hingað til vakið og eiga margir
aðilar þakkir skildar og ekki sízt
trúnaðarmenn starfsmanna þjá
ÍSAL.
Óskar Már, fyrirverkstjóri þess hóps sem hlaut 1. verSlaun í keppni starfs-
manna ísals til varnar slysum. Heldur hann á bikarnum, sem hópurinn
htaut, auk annarra verölauna. (Tímamynd G.E.)
KARLAKÚRINN FQSTBRÆÐUR
í SÖNGFÖR í MÝVATNSSVEIT
Karlakórinn Fóstbræður heldur
í söngför í byrjun júlímánaðar, og
syngur á tveim stöðum norðan-
lands, á Akureyri laugardaginn 3.
júlí, kl. 5 e. h. í Borgarbíói og
sunnudaginn 4. júlí að Skjól-
brekku í Mývatnssveit, einnig kl.
5 e. h.
Efnisskrá verður hin fjölbreytt-
asta, m. a. verða flutt lög eftir tón-
skáldin Jóhann Ó. Haraldsson, Þór
arin Jónsson, Helga Helgason,
Emil Thoroddsen, Árna Thor-
steinsson, Gylfa Þ. Gíslason, Hall-
grím Helgason, Pál ísólfsson,
Kuula, Raissiger, Bull, Palmgren
og Grieg.
í kórnum eru nú 40 söngmenn.
Þrír einsöngvarar koma fram
með kórnum í þessari ferð, þeir
Magnús Guðmundsson, Hákon Odd
geirsson og Kristinn Hallsson.
Píanóspil annast Carl Billich.
Söngstjóri Fóstbræðra er Garðar
Cortes.
New York T?mes og Washington Post
LEYFILEGT AÐ
BIRTA LEYNISKJÖLIN
NTB—Washington, miðvikudag.
Hæstiréttur Bandaríkjanna kvað
í dag upp úrskurð sinn í máli
bandarísku ríkisstjórnarinnar gegn
blöðunum New York Times og
Washington Post um rétt blaðanna
til að birta útdrætti úr leyniskýrsl-
um bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins. Úrskurðurinn féll blöð-
unum tveimur í vil, þ.e. skv. hon-
um er þeim heimilt að halda áfram
birtingu útdráttanna úr hinum
„leynilegu" skýrslum varnarmála-
ráðuneytisins.
IIB
■I
Laxá í Aðaldal
Frekar dauft hefur verið í Laxá
í Aðaldal undanfarið, og stafar
það sjálfsagt af leiðinda veðri,
sem þar hefur verið undanfarið,
og tafið hefur fyrir göngu laxs-
ins í ána, þar sem mjög brima-
samt hefur verið við ósa Laxár.
Nú í morgun veiddust 7 laxar í
Laxá, og eru þá alls komnir 128
laxar úr ánni. Stærsti laxinn sem
veiðzt hefur á sumrinu er 22 pund,
en sá sem næst kemur er 19 pund,
nn aftur á móti er minnsti laxinn
ekki nema 4 pund. Meðalvigtin
er í kringum 8 pund.
Þverá
— Veiðin í Þverá hefur tregazt
dálítið síðustu dagana, sagði Pétur
Kjartanss á Guðnabakka, þegar
við spurðum hann um veiðina þar.
Alls munu nú vera komnir á milli
350 og 360 laxar á land úr Þverá.
Flestir þeirra eru veiddir á maðk,
en einnig hefur svolítið verið
veitt á flugu, og þá á stærð 6—8.
Pétur sagðist ekki muna eftir
Þverá jafn lítilli í mörg ár, og
væri óskandi að eitthvað rigndi
næstunni til þess vatn ykíst 1
ánni.
Selá í Vopnafirði
Veiði byrjaði í Selá í Vopn;
firði nú um helgina og fengus
þó nokkuð margir laxar fyrst
tvo dagana. Ekki fengust n;
kvæmar tölur um heildarveiðin;
en eftir þeim upplýsingum ser
^eiðihornið hefur aflað sér, þ
lítur veiði mjög vel út í Sel;
Meðalvigt þeirra laxa sem fenj
ust nú um helgina er 8 til 1
pund. — ÞÓ.