Tíminn - 10.07.1971, Side 13

Tíminn - 10.07.1971, Side 13
LADGARDSVGUR 10. júli 1971 ÍÞRÓTTIR TIMINN í ; 13 J!Lv 'M Glæsileg íslenzku piltarnir sigruðu í alþjóða unglingakeppninni í knatt- spyrnu, sem lauk í Skotlandi ígærkvöldi Islenzka unglingaliðið af Faxa- flóasvæðinu varð sigurvegari í al- þjóða unglingakeppninni í knatt- spyrnu sem lauk í Dunnon í Skot- landi í gærkvöldi. Lék liðið við skozka liðið Cowal Boys Club í úrslitum og sigraði í frábærum leik 4:2. Leikurinn hófst að viðstöddum milli 6. og 7. þúsund áhorfendum með því að þjóðsöngvar Islands og Skotlands voru leiknir. Faxaflóa- liðið tók þegar leikinn í sínar hcnd ur og á 9. mín. skoraði það fyrsta markið. Gunnar Öm, gaf á Hörð Jóhannesson eftir góðan samleik og hann skoraði með föstu skoti. Rétt 10 mín. síðar skoraði Gunnar Örn, annað mark Faxaflóaliðsins, en á 29. mín. minnkuðu Skotarnir bilið í 2:1. Þegar um 2 mín. vom til hálf- leiks var dæmd aukaspyma á Skotana rétt við vítateig þeirra og tók Gunnar Örn, spyrnuna. Hann sendi knöttinn viðstöðulaust í mark ið, og þar með voru íslenzku pilt- arnir aftur komnir tveim mörkum yfir. Ekki voru liðnar nema 2 mín. af síðari hálflcik þegar skozku pilt- arnir skoruðu, og lá eftir það nokk- uð á íslenzku piltunum, en þeim tókst að bægja hættunni frá. Á 18. mín. hóf íslenzka liðið eitt af sínum fallegu upphlaupum og f dag verða leiknar síðustv 18 holurnar í Coca Cola keppn inni hjá GR. Fyrir þær hefur Einar Guðnason, 4 högg í for- skot á næsta mann. En á honum og fjprða manni, sem er Þor- björn Kjærbo, munar 8 höggum: Röð efstu manna eftir 54 hol- ur er þessi: Einar Guðnason, GR, 230 högg. Hans Ingólfsson, GR, 234 högg. Gunnlaugur Ragnarss., GR, 236 h. Þorbjörn Kjærbo, GS, 238 högg. Jóhann Eyjólfsson, GR, 241 högg. Ólafur Bjarki, GR, 243 högg. Svan Friðgeirsson, GR, 244 högg. Með forgjöf er Gunnar Ólafs- son, GR í efsta sæti fyrir síðustu 18 holurnar með 201 högg nettó. ★ Eins og áður hefur verið til- kynnt hefst Golfmeistaramót ís lands, í öllum flokkum þann 10. ágúst n.k. á golfvelli Golfklúbbs Akureyrar á Akureyri. Keppt verður í 8 flokkutri karla og kvenna, og er raðað í flokk karla eftir forgjöf. í meistaraflokki leika þeir sem eru með 1 til 10 í forgjöf. 1. flokki, 11 til 16, 2. flokki 17 tii 22 og 3. flokki 23 til 28. í öldungaflokki keppa þeir sem eru eldri en 50 ára (miðað við 1. júlí). Kvennaflokki konur eldri en 18 ára, telpnaflokki, yngri en 18 ára og í unglingaflokki dreng- ir 18 ára og yngri. Þátttökulistar frá golfklúbb- unum þurfa að hafi borizt Golf- sambandi íslands, Box 1399, í síð- asta lagi 31. júlí n.k. Með þeim þarf að fylgja þátttökugjald, sem er 500 kr. fyrir fullorðna og 100 kr. fyrir unglinga, og einnig þarf að geta um forgjöf viðkomandi keppanda. Golfþingið, það 30. í röðinni hefst þann 9. ágúst kl. 10 árdeg- is á Akureyri. Z..w Mikið verður keppt t golfi um þessa helgi. í dag líkur Coca Cola keppninni hjá GR, og í dag hefst opin unglingakeppni hjá GK i Hafnarfirði. Á morgun fer fram 18 holu höggleikur hjá Golfklúbbi Ness. Nefnist sú keppni Ambassador, en til hennar gefur umboðsm..ður Ambassador á íslandi, heildverzlunin Íslenzk-ameríska, verðlaunin, sem sjást hér á myndinni. í keppninni verða nokkrir íslenzkir og erlendir gestir m.a. Ástraliumaður, sem hér dvelur og leikur mjög vel, en gestirnir keppa um sérverðlaun. gekk knötturinn manna á milli þar til rétt við markið að Hörður Jóhannesson, rak endahnútinn á sóknina með föstu skoti, sem mark vörðurinn réði ekki við. Mikil stemming var á áhorfenda- pöllunum meðan á leiknum stóð. Allir héldu með sínum mönnum, nema leikmenn Rangers, Morton og norsku piltarnir, og hafði sá litli hópur lítið að segja í hina háværu Skota. En þrátt fyrir stuðning sinn stóð allur áhorfendaskarinn upp í leikslok og fagnaði hinum ungu leikmönnum með dynjandi lófataki, enda var knattspyrnan sem þeir sýndu frábær. Að sögn Gunnars Péturssonar, eins af fararstjórum liðsins, voru leikir Faxaflóaliðsins eitt það allra bezta sem hann hefur séð til ís- lenzk liðs fyrr og síðar. Það væri aðeins leikur íslenzka a landsliðs- ins gegn Noregi sem kæmist í ná- við þennan leik og sagðist hami al- drei gleyma þessum leikjum. íslenzku piltarnir1 hefðu vakið aðdáun hvar sém þeir komu fyrir prúðmannlega framkomu og snyrti mennsku. Sérstak athygli hefðu Berri-búningar þeirra innri sem ytri vakið, og væri vægt tekið til orða er hann segði að þetta væri allt ein draumaferð. Gísli Torfason, hefði fengið at- vinnutilboð frá skozka 1. deild- arliðinu Morton, og forráðamenn margra þekktra liða í Skotlandi hefðu látið í ljósi hrifningu á ein- stökum leikmönnum og liðinu í heild. og væri opin leið fyrir marga af piltunum að komast í góð lið í Skotlandi. IÞROTTIR um helgin LAUGARDAGUR Sauðárkrókur: Landsmót UMFÍ. Keppt í flestum greinum íþrótta Knattspyrna: Akranesvöllur kl. 16,00 1. deild, ÍA—Fram. — ísafjarðarvöllur kl. 16,00, 2. deild ÍBÍ—Ármann. Neskaup- staðavöllur kl. 16,00 2. deild Þróttur NK — Haukar. Mela- völlur kl. 15,00 2. deild Þróttur R — Selfoss. Golf: Grafarholtsvöllur: Coca cola kepppnin (úrslit). Hvaleyrar- völlur: Opin unglingakeppni. SUNNUDAGUR: Sauðárkrókur: Landsmót UMFÍ Keppt í flestum g 'brótta Knattspyrna: Laugarci .ir kl. 16,00 1. deild, Valur — IBA. Golf: Hvaleyrarvöllur: Opin ung- lingakeppni. Hólsvöllur Leiru: Keppni GS og Varnarliðsins. — Ness-völlur: Ambassador-keppn- in (18 holu höggleikur með forgjöf). HVERNIG FER I 1. DEILD? Um helgina verða leiknirtveir leikir í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu, og þrír leikir í 2. deild. í 1. deildinni leika í dag á Akranesi ÍA og Fram, og verður sérstök ferð með Akraborginni frá Reykjavík í sambandi við leikinn. í þeim leik mætast íslands- og bikarmeistararnr frá í fyrra og má búast við góðum leik. Á morgun leika á Laugardagsvellinum Valur og ÍBA. í leik þessarar aðila ( fyrra urðu úrslitin 6;5 Val í vil og var sá leikur einn slá eftirminnilegasti sem hér hefur farið fram. Þessi mynd er úr þeim leik og er það Sigurður Dagsson, sem slaer frá marki Vals á lokamínútunum. Akureyringar töpuðu fyrir dönsku 3. deildarliði klp—Reykjavík. Undanfai-na daga hefur danska 3. deildarliðið í knattspyrnu, Her- lef, verið í heimsókn á Akureyri, og hefur það leikið tvo leiki við 1. deildarlið ÍBA. Fyrri leik liðanna lauk með jafntefli 3:3, en síðari leiknum, sem fram fór í fyrrakvöld lauk með sigri danska liðsins 2:1. Sumum finnst þáð kannski held ur léleg frammistaða að sigra ekki danskt 3. deildarlið á heima- velli, en þess ber að geta, að lítii munur er á flestum okkar 1. dciltí arliðum og dönskum 2. og 3. deilc’ arliðum. í Danmörku er munur inn á liðunum lítill, t.d. hefui það marg oft skeð að 2. og 3 deildarliðin slá 1. deildarliðin úl í bikarkeppninni, enda er mikil breidd í dönsku knattspyrnunni. Misheppnub bylting' íþróttablaðið, 5. tbl. er nýkom- ið út. Af efni blaðsins má nefna greinina „Misheppnuð bylting“ eft ir ritstjórann, þar sem fjallað er um árangur í landsleikjum s.l. 8 ár. Síðari hluta greinar um sögu- lega ferð glímumanna á Olympíu leikana 1912, eftir Halldór Hans- en, fyrrverandi yfirlækni. Samtal við Ólaf Johnson, framkvæmda- stjóra um trimmstarfsemi meðal starfsfólksins hjá O. Johnson & Kaaber h.f. Samtal við bræðuma Guðberg og Hermann Auðuns- syni um hjólreiðar, sem nú fara mjög í vöxt hér á landi sem ann- ars staðar, o.fl. — Blaðið er prýtt fjölda mynda. íþróttablaðið er sent til áskrif- enda en auk þess er það selt í lausasölu í bókaverzlunum sportverzlunum. of

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.