Tíminn - 15.07.1971, Síða 9
‘ÍIMMTTJDAGUR 15. júlí 1971
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
FRJÁLSÍÞRÓTTAKEPPNIN
Á LANDSMÓTINU
ÞaS sem mesta athygli vakti
í frjálsíþróttakeppni Landsmóts
UMFÍ og hefur raunar verið að-
alsmerki þessara móta, er hin
mikla þátttaka og harða keppni.
Afrekin hafa aftur á móti ekki
verið á toppmælikvarða, nema í
örfáum greinum, og þá helzt
kvennagreinunum.
1 hlaupagreinunum voru það
HSK-menn, sem hlutu flest verð
launin. Sigurður Jónsson bar sig
ur úr býtum bæði í 100 og 400
m. hlaupum. Sigurður er með
bezta tíma ársins í síðarnefndu
greininni og kom því á óvart,
hve Stefán Hallgrímsson, UÍA,
veitti honum harða keppni. Á
betri brautum geta Sigurður og
Stefán náð mun betri tíma og
jafnvel farið niður fyrir 50 sek.,
en til þess verður að fara mjög
greitt af stað. Jón H. Sigurðs-
son hafði yfirburði í 5 km.
hlaupinu, en Sigvaldi Júlíusson,
UMSE, sem hafði sömu yfir-
burði í 1500 m. hlaupinu, þoldi
ekki hraða Jóns í 5 km. og varð
að hætta hlaupinu. Gaman verð-
ur að sjá þessa hlaupara á
Meistaramóti íslands um helg-
ina.
Keppnin í stökkgreinunum
tókst hið bezta. Jón Pétursson,
HSH, sigraði í kúluvarpinu og
varpaði 15,35 m., og 14,85 m.
hjá Hreini Halldórssyni, HSS,
nægði aðeins til þriðju verð-
launa, þar sem Sigurþór Hjör-
leifsson, HSH, varpaði 14,92 m.
Kúluvarpað var jafnbezta grein
frjálsíþróttakeppninnar. — Jón
Pétursson sigraði einnig í
kringlukastinu, en Sigmundur
Hermundsson, UMSB, í spjót-
kasti.
Beztum árangri skv. alþjóða-
stigatöflu náði Karl Stefánsson,
UMSK, í þrístökki. Hann stökk
14,38 m. og vann' mesta yfir-
burðasigur mótsins, þar sem
næsti maður stökk metcr
skemmra. Guðmundur Jónsson,
HSK, náði bezta árangri ársins
í langstökki, stökk 6,85 m. Ár-
angurinn í þrístökki og lang-
stökki er góður þar sem aðstaða
var slæm til. keppni í þessum
greinum. I hástökki stukku Haf-
steinn Jóhannesson, UMSK, og
Stefán Hallgrímsson, UÍA, jafn-
hátt, 1,86 m., en sá fyrrnefndi
sigraði, þar sem hann fór yfir
hæðina í fyrstu tilraun. Guð-
mundur Jóhannesson, HSH, náði
sínum bezta árangri í stangar-
stökki, stökk 4,03 m. Um afrek
in í karlagreinunum í heild er
það að segja, að hann var ívið
betri en fyrirfram var búizt
við og gaman verður að sjá
beztu menn mótsins í keppni
við reykvíska frjálsiþróttamenn
á Meistaramóti islands um helg
ina.
Keppnin í kvennagreinunum
var ekki síður skemmtileg og
áranguririn i þéim ágætur á ís-
lenzkan mælikvarða, enda eru
stúlkur utan af landsbyggðinni
mun betri í frjálsum íþróttum
en reykvískar.
Björk Ingimundardóttir, UM
SB, sigraði í 100 m. hlaupi á
13 sek., en í undanrásum hljóp
hin efnilega Edda Lúðviksdótt-
ir, UMSS, á 12,8 sek., aðeins
2/10 úr sek. lakari tími en ísl.
metið. Því miður mun Edda
ékkf §éta 'keþpt á 'Islandsmót-
inu. Edda bar sigur úr býtum
í 400 m. hlaupi á góðum tíma,
64 sek., en metið er 61,2 sek.
Stökkin voru góð. Hafdís
Ingimarsdóttir, UMSK, stökk
lengst í langstökki, 5,23 m., en
Hafdís er einnig í fremstu röð
í spretthlaupi. Félagi Hafdísar,
Kristín Bjömsdóttir, UMSK,
sigraði í hástökki, stökk 1,50
m. Helga Hauksdóttir, Akra-
nesi, varð önnur og er ekki síð-
ur efnileg, stökk 1,46 m. Hún
hefur geysilegan stökkkraft og
ætti að bæta þennan árangur
sinn fljótlega. Tvær systur úr
UMS Ulfljóti voru sigursælar
í kúluvarpi og kringlukasti. Guð
rún Ingólfsdóttir kastaði
kringlu lengst 31,60 m. og Hall-
dóra systir hennar varpaði
kúlu 10,39 m. Góður árangur á
ísl. mælikvarða.
Kvennameistaramótið fer
fram í Vestmannaeyjum um
helgina, og verður gaman að
fylgjast með framförum kven-
fólksins S' móti nU.'vi^í' Ö.E;
liNGIR FRJALSIÞROTTAMENN
BORGÞÓR MAGNÚSSON, KR
Borgþór Magnússon, KR, verzl-
unarskólanemi, er okkar efni-
legasti grindahlaupari. Hann er
fæddur 21. febrúar 1952 og hóf
æfingar árið 1966, en það var
ekki fyrr cn 1969, að hann fór
að taka íþróttina alvarlega.
Hanu hcfur auk þcss náð góð-
um árangri í þrístökki, en legg-
ur nú aðaláherzluna á grinda-
hlaupin. Borgþór tók þátt í ung-
lingalandskeppninni í Dan-
mörku í fyrrasumar og stóð sig
mcð miklum ágætum. Bezti ár-
angur hans í einstökum grein-
um til þcssa er: 110 m. grinda-
hlaup 15,1 sek., 400 m. grinda-
hlaup 55,9 sek., 200 m. hlaup
23,9 sek., 400 m. hlaup 51,9 sek.,
hástökk 1,85 m. og þrístökk
14,28 m.
Takmark Borgþórs í hans
beztu greinum í sumar er: 110
m. grindahlaup 14,8 sek., 400 m.
grindahlaup 54,5 sek. og 400 m.
hlaup 50,0 sek.
Borgþór æfir 5 sinnum í viku
og keppir einu sinni í viku. —
Hann var seinn í gang í vor, en
síðustu vikurnar hafa framfarir
hans verið miklar og búast má
við góðum tíma hjá honum síð-
ar í sumar.
Metþátttaka í MÍ í frjálsum íþróttum í Eyjum og Rvík:
ÚRTÖKUMÓT FYRIR LANDS-
KEPPNI OG EVRÓPUMÓTIÐ
Meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum fer fram um næstu helgi.
Keppni karla verður á Laugardals
vellinum og hefst kl. 2 á laugardag
og heldur áfram á sarna tíma dag
inn eftir. Aðalhluta mótsins lýkur
á mánudagskvöld en þá hefst
kcppnin kl. 7.
Kvenfólkið keppir í Vestmanna
eyjum en það er í fyrsta sinn,
sem meistaramót í frjálsum íþrótt
um fcr fram í Eyjutn.
í gær voru alls skráðir um 120
keppendur í bæði mótin frá 15
félögum og samböndum og það
—10.44:-..
er metþátttaka. Um 60 keppendur
í Kvennamótið og álíka margir í
karlamótið. í fyrra voru skráðir
keppendur 102.
Mótin eru úrtökukeppni fyrir
landskeppni unglinga og fullorð
inna, en þær fara fram í Álaborg
og Dublin 21. Og 22. ágúst. Einnig
verður ákveðin þátttaka í EM í
Helsinki, en Evrópumótið fer fram
þar 10. — 15. ágúst.
Síðar í vikunni munu birtast
spádómar um hverjir verða ís-
landsmeistarar í hinum ýmsu
greinum mótanna.
SINNUM
LENGRI LÝSING
neOex
2500 klukkustunda lýsing
viS eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smásala
Elnar Faresfveit & Co Hf
Bergstaðastr. 10A Sími 16995
NOTUÐ
ÍSLENZK
FRÍMERKI
keypt Lærra verði
en áður hefur þekkzt.
William P. Pálsson,
Halldórsstaðir,
Laxárdat, S.-Þing.
Ý.t&títA.&Þl«ri3*ÍÍNGAR
VERÐLAUNAGRIPIR
/Ss
jLj FÉLACSMERKI
Magnús E. Baldvlnsson
Laugavegl 12 - Siml 22804
Nýkomið
f Simca
Útvegum við stuttum fyrir-
vara ýmsar gerðir af
LOFTPRESSUM
G. HINRIKSSON
SÍMl 24033
Skúlagötu 32
Demparar — gormar —
stýrtsendar — splndll-
kúlur — kúplingslager-
ar — kúpllngsdiskar —
kúpl.pressur — hand-
bremsuvirar — stýris-
upphengjur— aftuHlós
— olíudælur — vatns-
dælur — kúplingsdælur
— bremsudætur.
Jón Grétar SigurSsson
héraðsdómslögmaður
Skólavörðustfg 12
Sfmi 18783.
SKOLAVÖRÐUSTIG 2
SEI
— PÓSTSENDUM —
BERGUR LÁRUSSON HF.
ÁRMÚLA 32 — S/M/ 81050
SAMVINNUBANKINN
NÝR ÞÁTTUR
f dag hefst í blaðinu nýr þáttur,
sem ber nafnið UNGIR FRJALS-
ÍÞRÓTTAMENN. — Verða undir
þessu nafni kynntir ungir friáls-
íþróttamenn og konur, en umsjón
hans hefur með höndum frjáls-
íþróttasérfræðingur blaðsins, Örn
Eiðsson.
ísl. sundfólk
fær liðsauka
Islenzka landsliðið í sundi fær
óvæntan liðsauka í landskeppnum
sumarsins: Lisu Ronson, dóttur
hins þekkta íþróttamanns Péturs
Rögnvaldssonar (Ronson). Lisa hef
ur búið í Kalifomíu með foreldr-
um sínum en er samt íslenzkur
rfkisborgari og má því keppa fyrir
landsins hönd í keppni við sund-
fólk annarra þjóða. Lisa hefur æft
sund um nokkurra ára skeið og á
betri árangur í 200 metra skrið-
sundi en núgildandi íslandsmet, og
bezti árangur hennar í 100 m. skrið
sundi er svipaður Isl.metinu. Lisa
kemur hingað 22. júlí nk., og l:;pp-
ir á íslandsmeistaramótinu fyrir
ÆGI og síðan tekur hún þátt í
Norðurlandameistaramótinu og
landskeppnunum í ágúst.
Davies 8.32 m.
Bretinn Lynn Davies stökk ný-
lega 8,32 m í langstökki, en evr-
ópumet Ovansjans. Sovétríkjunum
er 8,35.
Lirlerud kastaði kringlu 56,82
m. í vikunni, sem er bezti árang
urinn í Noregi í sumar, á sama
móti stokk Gjengedal 2,02 m, sem
einnig er bezta stökk Norðmanns
í ár.