Fréttablaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 2
2 24. ágúst 2002 LAUGARDAGUR
ELDSVOÐI Lögregla rannsakar nú
eldsvoða sem varð í Torfufelli í
Breiðholti í gær.
Slökkviliði barst tilkynning um
eld í íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi
þegar klukkan var fimmtán mínút-
ur gengin í þrjú. Þegar að var kom-
ið reyndist eldurinn vera í svefn-
herbergi í íbúðinni sem var mann-
laus þegar að var komið.
Vel gekk að ráða niðurlögum
eldsins. Slökkviliðið var farið af
vettvangi klukkustund síðar.
Töluvert miklar skemmdir urðu
á íbúðinni af völdum elds, reyks og
sóts. Eldupptök er enn ókunn. Lög-
regla hefur málið til rannsóknar.
Bruni í Breiðholti:
Mannlaus
íbúð í logum
TORFUFELL
Eldur kom upp í svefnherbergi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
I
Ásatrúarfélagið:
Allsherjar-
goði til
bráðabirgða
ÁSATRÚARMENN Jónína Kristín Berg
gegnir starfi allsherjargoða Ása-
trúarfélagsins þangað til nýr goði
verður kosinn. Á almennum félags-
fundi Ásatrúarfélagsins um síðustu
helgi var brottvikningu Jörmundar
Inga, sem verið hefur allsherjar-
goði undanfarin ár, staðfest. Stefnt
er að því að kjósa nýjan allsherjar-
goða við fyrsta tækifæri. Í yfirlýs-
ingu frá Lögréttu segir að ávirðing-
ar á Jörmund Inga verði ekki rædd-
ar frekar opinberlega, af tillitssemi
við hann og fjölskyldu hans.
NÝBYGGING Framkvæmdir við ný-
byggingu barnaspítalans sunnan
við hús kvennadeildar Landspítal-
ans eru langt komnar. Fyrsta
skóflustunga að húsinu var tekin
fimmtudaginn 19. nóvember 1998
og áætlanir gerðu ráð fyrir að
húsið yrði tekið í notkun í desem-
ber árið 2002. Framkvæmdirnar
hafa dregist lítillega og nú er
áformað að taka spítalann í notk-
un strax í byrjun næsta árs. Með
tilkomu nýja spítalans losnar
pláss sem nýtt verður í því hag-
ræðingarferli sem fór af stað þeg-
ar ríkisspítalarnir voru sameinað-
ir undir merkjum Landspítala -
háskólasjúkrahúss. Gert er ráð
fyrir að skurðlækningadeild verði
á neðri hæð gamla barnaspítalans
og lyflækningadeild á þriðju hæð.
Ekki liggur fyrir hvað gert verður
við pláss sem losnar á kvenna-
deild.
Nýi barnaspítalinn:
Opnar strax eftir áramót
BARNASPÍTALINN
Unnið er að krafti við bygginguna.
Ásgeir Friðgeirsson:
Gefur kost
á sér í suð-
vesturkjör-
dæmi
FRAMBOÐ Ásgeir Friðgeirsson rit-
stjóri hefur tilkynnt formlega að
hann gefi kost á sér á lista Sam-
fylkingarinnar í suðvesturkjör-
dæmi fyrir komandi alþingiskosn-
ingar. Hann sækist eftir 2. sæti á
lista og vill færa stjórnmálaátök
frá vandamálum sem ríkisstjórn
og stjórnmálamenn hafa komið
sér sjálfir í og beina sjónum að
því að byggja upp atvinnulíf og
velferðarkerfi, sem reist er á
menntun og þekkingu.
BÆJARMÁL Bæjaryfirvöld í Kópa-
vogi hafa ákveðið að leyfa áfram
svokallaðan einkadans a. m. k.
þar til dómur fellur í máli sem
höfðað var gegn
Reykjavíkurborg í
kjölfar banns á
einkadansi. Bæj-
arráð tók þessa
ákvörðun í kjölfar
umsagnar bæjar-
lögmanns um
stöðu mála vegna
breytinga sem
gerð var á lög-
reglusamþykkt-
inni í Reykjavík. Engar breyting-
ar verða því gerðar á lögreglu-
samþykkt Kópavogs í bili.
Bæjarlögmaður benti í umsögn
sinni á að borgarlögmaður hefði
talið að breytingin á lögreglusam-
þykkt Reykjavíkur hefði ekki laga-
stoð og stríddi gegn ákvæði stjórn-
arskrárinnar, þar sem segir að öll-
um sé frjálst að stunda þá atvinnu
sem þeir kjósi. Því frelsi megi þó
setja skorður með lögum ef al-
mannahagsmunir krefjist þess.
Borgarlögmaður taldi því að borg-
arsjóður gæti hugsanlega verið
bótaskyldur. Ríkislögmaður var
hins vegar á annarri skoðun og
taldi ólíklegt að breytingin stríddi
gegn ofangreindu ákvæði stjórnar-
skrárinnar.
Í umsögn sinni kemur fram að
bæjarlögmaður Kópavogs telji
óráðlegt að hætta fé skattborgar-
ana í aðgerðir sem verulegur
ágreiningur sé um hvort standi á
lögmætum grunni og geti hugsan-
lega leitt til skaðabótaskyldu. Mál
næturklúbbs í Reykjavík gegn
Reykjavíkurborg hafi fengið flýti-
meðferð og niðurstöðu úr því sé að
vænta í lok september eða byrjun
október. Því ráðlagði hann bæjar-
yfirvöldum að bíða með afgreiðslu
málsins þar til niðurstaðan fengist
í dómsmálinu.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks féllst á skoðun
bæjarlögmanns og samþykkti að
fresta afgreiðslu málsins. Í bókun
meirihlutans segir m. a.: „Annað
væri algjört ábyrgðarleysi af hálfu
þeirra sem falið er að gæta sam-
eiginlegra sjóða skattborgaranna.“
Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar greiddi at-
kvæði gegn tillögu meirihlutans. Í
bókun hans segir m. a.: „Í bókun
þeirra (meirihlutans) eru bara
tíndar til áhyggjur af „peningum“
en hagsmunum stúlknanna á þess-
um stöðum og annarra þeirra sem
hafa orðið fyrir afleiðingum kyn-
lífsiðnaðar hvergi getið né sýndur
áhugi.“
trausti@frettabladid.is
Einkadans er áfram
löglegur í Kópavogi
Meirihluti bæjarráðs samþykkti að fresta afgreiðslu tillögu um bann við einkadansi. Beðið verð-
ur eftir niðurstöðu í dómsmáli næturklúbbs í Reykjavík gegn borginni. Minnihlutinn ósáttur.
GOLDFINGER
Í umsögn bæjarlögmanns Kópavogs kemur fram að hann telji óráðlegt að hætta fé skattborgarana í aðgerðir sem verulegur ágreiningur
sé um hvort standi á lögmætum grunni og geti hugsanlega leitt til skaðabótaskyldu.
Annað væri
algjört ábyrgð-
arleysi af hálfu
þeirra sem
falið er að
gæta sameig-
inlegra sjóða
skattborgar-
anna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Norðurlandamótið
í körfubolta:
Ísland sigraði
Finna
ÍÞRÓTTIR Íslenska landsliðið í
körfubolta sigraði Finna 90 - 72 á
Norðurlandamótinu í Osló í gær.
Þetta er aðeins þriðji sigur Íslend-
inga á Finnum í síðustu 27 leikj-
um.
Íslendingar höfðu fimm stiga
forskot í hálfleik og juku forystuna
í síðari hálfleik. Brenton Birming-
ham, nýliðinn í landsliðinu, var
stigahæstur með 27 stig. Jón Arn-
ór Stefánsson skoraði 19 stig og
Logi Gunnarsson skoraði 13.
Í dag leikur íslenska liðið gegn
Svíum og á morgun verður leikið
gegn Norðmönnum.
Gengi hlutabréfa
Flugleiða:
Tæplega
200% hækk-
un á 9 mán-
uðum
VIÐSKIPTI Gengi hlutabréfa Flug-
leiða hækkaði um tæplega 30% í
gær. Mikil viðskipti voru með bréf
Flugleiða, 45 talsins fyrir samtals
tæpar 760 milljónir. Lokagengi
bréfanna var 3,70 og hækkunin
29,8%. Tvo daga þar á undan hafði
gengi bréfanna hækkað um 14%.
Gengi bréfa Flugleiða hefur
hækkað gríðarlega undanfarið ár.
Lægsta gengi undanfarnar 52 vik-
ur var 1,25 þann 23.nóvember í
fyrra en hefur hækkað jafnt og
þétt síðan og er nú 3,70. Hækkun-
in á þessu níu mánaða tímabili er
þreföld eða 196%.
Markaðsvirði hlutafjár Flug-
leiða hefur því á þessu tímabili
hækkað úr tæplega 2,9 milljörð-
um króna í rúmlega 8,5 milljarða
króna.
Vatnsendavegur:
Grípa þarf
til aðgerða
áður en slys
verður
ÍBÚAR Sveit í borg, hverfissamtök
Vatnsenda, hafa ítrekað beiðni
sína um að umferðaröryggi á
Vatnsendavegi verði komið í við-
unandi ástand. Fyrir ári síðan
sendu samtökin bæjaryfirvöldum
í Kópavogi, lögreglunni, Umferð-
arráði og Vegagerðinni bréf þar
sem kvartað var undan umferðar-
þunga við veginn og ástandi hans.
Þar sem engin viðbrögð fengust
sendu samtökin bréfið aftur til
þessara aðila í vikunni „með von
um betri viðbrögð en áður.“
Í bréfinu til bæjaryfirvalda
segir að umferð um veginn aukist
sífellt. Engar gangbrautir né
hraðahindranir séu til staðar, eng-
ar vegmerkingar, né merkingar
um leyfilegan hámarkshraða. Þá
séu merkingar um að skólabörn
séu við veginn í mýflugumynd, en
40 til 50 börn bíði við veginn eftir
skólabíl á hverjum morgni. Lýs-
ingu við biðskýli sé ábótavant og
lítið hafi verið um hraðamælingar
lögreglu.
Samtökin segja ljóst að grípa
verði til aðgerða strax, áður en al-
varlegt slys verði á veginum.
FLUGLEIÐIR
Gengið hefur lægst farið í 1,25.